Skessuhorn - 04.11.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 202010
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra
um takmarkanir á skólastarfi tók
gildi í gær, þriðjudag. Fjölmargir
skólar héldu starfsdag á mánudag-
inn og skipulögðu vinnu sína næstu
vikur. Reglugerðin gildir um allt
skólastarf á landinu, en nær einn-
ig til frístundaheimila, félagsmið-
stöðva og íþrótta- og tómstunda-
starfs barna og ungmenna. Víð-
tækt samráð var haft við skólasam-
félagið við undirbúning reglugerð-
arinnar, meðal annars við fulltrúa
allra skólastiga, Kennarasambands
Íslands, skólastjórnendur og Sam-
band íslenskra sveitarfélaga.
Helstu breytingar sem reglu-
gerðin felur í sér eru eftirfarandi:
Leikskólar:
Í leikskólum gildir tveggja metra
reglan um kennara og starfsfólk, en
þar sem lágmarksfjarlægð verður
ekki komið við er starfsfólki skylt
að bera andlitsgrímur. Hámarks-
fjöldi fullorðinna í hverju rými eru
10. Nálægðartakmörk gilda ekki
um börn á leikskólaaldri, en fjöldi
barna í hverju sóttvarnarými skal
að hámarki vera 50. Foreldrar og
aðstandendur skulu almennt ekki
koma inn í skólabyggingar nema
brýna nauðsyn beri til. Gestir sem
koma í leikskólabyggingar, svo sem
starfsfólk skólaþjónustu eða vegna
vöruflutninga, skulu gæta að 2
metra nálægðartakmörkun og bera
andlitsgrímur. Skipulagt íþrótta-,
æskulýðs- og tómstundastarf barna
á leikskólaaldri er óheimilt á meðan
reglugerðin er í gildi.
Grunnskólar og
frístundastarf á grunn-
skólastigi:
Tveggja metra reglan gildir um
kennara og starfsfólk í grunnskól-
um, en nota skal andlitsgrímu þar
sem ekki er hægt að tryggja lág-
marksfjarlægð. Hámarkfjöldi full-
orðinna í hverju sóttvarnarými í
grunnskólum er 10, en starfsfólki
er heimilt að fara milli hópa til að
sinna kennslu og veita aðra nauð-
synlega þjónustu. Nemendur í
1.-4. bekk eru undanþegnir tveggja
metra reglu og grímuskyldu. Há-
marksfjöldi þeirra í hverju sótt-
varnarými eru 50.
Nemendur í 5.-10. bekk þurfa
að fylgja tveggja metra reglu, en ef
víkja þarf frá henni ber nemendum
að nota grímu. Að hámarki mega
25 nemendur í 5. – 10. bekk vera í
hverju sóttvarnarými.
Í sameiginlegum rýmum skóla-
bygginga, svo sem við innganga, í
anddyri, á salerni og göngum, er
heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun
og reglu um blöndun hópa að því
gefnu að nemendur í 5.–10. bekk
og starfsfólk noti andlitsgrímu. Við
aðstæður þar sem ekki er hægt að
framfylgja nálægðartakmörkun,
svo sem í verklegri kennslu og list-
kennslu, skulu kennarar og nem-
endur í 5.–10. bekk nota grímur.
Foreldrar og aðstandendur skulu
almennt ekki koma inn í skólabygg-
ingar nema brýna nauðsyn beri til.
Aðrir sem þurfa að koma í skóla-
byggingar, svo sem starfsfólk skóla-
þjónustu, kennarar tónlistarskóla
eða starfsfólk í vöruflutningum,
skulu gæta að 2 metra nálægðartak-
mörkun og bera andlitsgrímur.
Halda skal þeirri hópaskiptingu
nemenda sem er í grunnskólastarfi
á frístundaheimilum þannig að þar
verði ekki blöndun á milli nem-
endahópa.
Skipulagt íþrótta-, æskulýðs-
og tómstundastarf barna á grunn-
skólaaldri, þ.m.t. starf félagsmið-
stöðva, er óheimilt á meðan reglu-
gerðin er í gildi.
Tónlistarskólar:
Tónlistarskólum er heimilt að
sinna einstaklingskennslu með
tveggja metra nálægðartakmörk-
un milli starfsfólks og nemenda.
Að hámarki mega tíu einstaklingar
vera í sama rými, en tryggja þarf að
blöndun hópa verði ekki önnur en
í almennu skólastarfi. Andlitsgrím-
ur skulu notaðar í öllu starfi með
nemendum þar sem því verður við
komið.
Foreldrar og aðstandendur skulu
almennt ekki koma í tónlistarskóla
nema brýna nauðsyn beri til. Gestir
sem þurfa að koma í skólabygging-
ar, svo sem starfsfólk skólaþjónustu
sveitarfélaga eða vegna vöruflutn-
inga, skulu gæta að tveggja metra
nálægðartakmörkun og bera and-
litsgrímur.
Framhaldsskólar og
menntastofnanir sem
kenna á framhaldsskóla-
stigi:
Skólastarf er heimilt ef nemend-
ur og starfsfólk geta haft minnst
tveggja metra fjarlægð sín á milli og
fjöldi nemenda og starfsmanna fer
ekki yfir tíu í hverju rými. Í áföng-
um á fyrsta námsári mega allt að
25 einstaklingar deila sama rými,
svo fremi sem tveggja metra fjar-
lægð milli einstaklinga er tryggð.
Blöndun nemenda milli hópa er
ekki heimil í kennslu en starfsfólki
er heimilt að fara á milli hópa. Í
sameiginlegum rýmum, svo sem
við innganga, í anddyri, á salerni
og göngum, er heimilt að víkja
frá fjöldatakmörkun og reglu um
blöndun hópa að því gefnu að not-
ast sé við andlitsgrímu. Við aðstæð-
ur þar sem ekki er hægt að fram-
fylgja nálægðartakmörkun, svo sem
í verklegri kennslu, listkennslu,
klínísku námi og kennslu nemenda
á starfsbrautum, skulu nemendur,
sé þess kostur, og kennarar nota
andlitsgrímu.
Aðrir viðburðir sem ekki teljast
til kennslu eða náms skulu ekki fara
fram í skólabyggingum. Takmarka
skal gestakomur í skólabyggingar.
Heimilt er að halda þýðingarmik-
il próf fyrir allt að 30 einstaklinga
í vel loftræstum rýmum, að upp-
fylltri tveggja metra nálægðartak-
mörkun og ýtrustu sóttvarnaráð-
stöfunum.
Háskólar:
Skólastarf er heimilt ef nemend-
ur og starfsfólk geta haft minnst
tveggja metra fjarlægð sín á milli
og hámarksfjöldi nemenda í hverri
kennslustofu fer ekki yfir tíu.
Blöndun nemenda milli hópa er
ekki heimil í kennslu en starfsfólki
og kennurum er heimilt að fara á
milli hópa.
Í sameiginlegum rýmum, svo
sem við innganga, í anddyri, á
salerni og göngum, er heimilt að
víkja frá fjöldatakmörkun og reglu
um blöndun hópa að því gefnu að
notaðar séu andlitsgrímur. Við að-
stæður þar sem ekki er hægt að
framfylgja nálægðartakmörkun,
svo sem í verklegri kennslu, list-
kennslu og klínísku námi, er skóla-
starf heimilt með því skilyrði að
nemendur og kennarar noti and-
litsgrímu. Aðrir viðburðir sem
ekki teljast til kennslu eða náms
skulu ekki fara fram í skólabygg-
ingum. Takmarka skal gestakomur
í skólabyggingar.
Heimilt er að halda samkeppn-
ispróf, þýðingarmikil lokapróf og
staðbundnar námslotur fyrir allt
að 30 einstaklinga í vel loftræstum
rýmum, að uppfylltri 2 metra ná-
lægðartakmörkun og sóttvörnum í
hvívetna.
mm
Samkomutakmarkanir voru sett-
ar á frá og með síðasta laugardegi
og takmarkast við tíu manns í stað
tuttugu áður. Áfram verður tveggja
metra reglan við lýði og auk-
in áhersla er lögð á grímunotkun.
Íþróttastarf í landinu leggst af í bili,
sundlaugar verða lokaðar, krár og
skemmtistaðir sömuleiðis og veit-
ingastaðir þurfa að loka kl. 21:00
á kvöldin. Aðeins verða börn fædd
2011 og síðar undanþegin tveggja
metra reglunni, fjöldatakmörkun-
um og grímuskyldu.
Þetta kom fram í máli Svandísar
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
sem kynnti hertar sóttvarnarað-
gerðir á blaðamannafundi á föstu-
dag. Hertar aðgerðir tóku sem fyrr
segir gildi á miðnætti á föstudag og
gilda til 17. nóvember. „Þetta eru
verulega íþyngjandi skref,“ sagði
Svandís á fundinum og vék næst að
stöðu heilbrigðiskerfisins. „Land-
spítalinn, sem er okkar flaggskip í
heilbrigðisþjónustunni, er á neyð-
arstigi, álagið þar er mikið og vax-
andi og víða í heilbrigðiskerfinu er
mikið álag,“ sagði hún. Hertar að-
gerðir sagði hún vera besta kostinn
í erfiðri og flókinni stöðu. „Það er
ekki ráðrúm til að bíða og sjá til, að
vona það besta,“ sagði heilbrigðis-
ráðherra.
Rýmri takmörk í mat-
vöru- og lyfjaverslunum
Gert er ráð fyrir rýmri fjöldatak-
mörkunum í matvöru- og lyfja-
verslunum eingöngu. Aðrar versl-
anir verða að hlýta tíu manna sam-
komutakmörkunum, að því er fram
kom í máli heilbrigðisráðherra.
Þrjátíu manns verður heimilt að
koma saman við útfarir, en sótt-
varnalæknir lagði til tuttugu manna
takmarkanir þar. er það eina til-
vikið þar sem vikið var frá tillögum
sóttvarnalæknis, að því er Svandís
sagði aðspurð um málið á föstudag.
Reyndar var því breytt um helgina
að grímuskylda var undanþegin
börnum fædd 2011 og síðar í stað
2015 og síðar eins og til stóð í til-
lögum sóttvarnalæknis.
Mikilvægt að
fylgja reglunum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra sagði við upphaf fundarins
að hertar aðgerðir sem gripið hefði
verið til fyrir þremur vikum hefðu
ekki borið tilætlaðan árangur. Því
þyrftu enn að herða aðgerðir. Sam-
félagssmit væru töluvert útbreidd
og komið hefðu upp stór hópsmit
sem mikilvægt væri að ná utan um.
Hún kvaðst vonast til þess að
hertar aðgerðir nú myndu duga til
þess að hægt yrði að slaka á tökun-
um á aðventunni og þá gæti þjóðin
horft til bjartari tíma. Svandís tók
undir þetta í sinni framsögu. ef allt
gengi eftir væru allar líkur á því að
önnur og betri staða blasi við eftir
tvær til þrjár vikur og vonaðist hún
til að eftir þann tíma verði hægt að
slaka aftur á takmörkunum. „Regl-
urnar eru einfaldar þó þær séu erf-
iðar, við þurfum að tileinka okkur
þær og hafa hugfast alla daga hvers
vegna þær eru mikilvægar, vegna
þess að því betur sem við fylgjum
þeim því skemur þurfum við að
fylgja þeim,“ sagði Svandís.
Helstu takmarkanir
Hér að neðan fer listi yfir helstu
takmarkanir sem gripið var til frá
og með miðnætti á föstudag, en
þær ná allar til landsins alls:
Tíu manna fjöldatakmörk eru •
meginregla, en heimild fyrir 30
manns í útförum en aðeins tíu í
erfidrykkjum.
50 manna hámarksfjöldi í lyfja- •
og matvöruverslunum en reglur
um aukinn fjölda með hliðsjón af
stærð húsnæðis.
Fjöldatakmarkanir gilda ekki um •
almenningssamgöngur, hópbif-
reiðar, innanlandsflug eða störf
viðbragðsaðila.
Tíu manna fjöldatakmörk eiga •
ekki við þegar fleiri búa á sama
heimili.
Íþróttir óheimilar.•
Sundlaugum lokað.•
Sviðslistir eru óheimilar.•
Starfsemi sem krefst nálægðar, •
s.s. á hárgreiðslustofum og nudd-
stofum, er óheimil.
Krám og skemmtistöðum lokað.•
Veitingastaðir með vínveitinga-•
leyfi mega ekki hafa opið lengur
en til 21:00.
Grímuskylda þar sem ekki er •
hægt að tryggja tveggja metra
nálægðarmörk milli einstaklinga
sem ekki eru í nánum tengslum.
Börn fædd 2011 og síðar eru •
undanþegin tveggja metrareglu,
fjöldatakmörkum og grímu-
skyldu, en áður gilti þessi regla
um börn fædd 2005 og síðar.
Ráðherra getur veitt undanþágu •
frá takmörkunum vegna félags-
lega ómissandi innviða sem mega
ekki stöðvast, svo sem heilbrigð-
isstarfsemi og félagsþjónustu. Þá
getur ráðherra sömuleiðis veitt
undanþágu við banni frá íþrótta-
starfi fyrir einstaka viðburði, til
dæmis alþjóðlegra kappleikja.
kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Tíu manna samkomubann og
sóttvarnaraðgerðir hertar verulega
Ný reglugerð um skólastarf tók gildi í gær