Skessuhorn - 04.11.2020, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 202018
Fanney Svala óskarsdóttir á Dal-
braut 19 á Akranesi er ein þeirra
sem skreytir við hús sitt í til-
efni hrekkjavökunnar. Skreyting-
ar hennar vöktu verðskuldaða at-
hygli um síðustu helgi enda mikið
í þær lagt. „Mér finnst þetta alltaf
jafn gaman en mest er þetta eitt-
hvað sem ég geri hér heima í bíl-
skúr. Ég stefni svo á að hafa þetta
enn veglegra á næsta ári,“ sagði
hún þegar blaðamaður leit við hjá
henni á sunnudaginn. Þá var veðr-
ið eilítið búið að setja skreyting-
arnar úr skorðun, en engu að síð-
ur býsna hryllilegar, eins og upp var
lagt með. mm
Hrekkjavakan er siður sem hef-
ur verið að ryðja sér til rúms hér
á Íslandi síðustu árin. Í Grundar-
firði er að myndast hefð hjá yngri
kynslóðinni um að klæða sig upp í
skelfilega búninga og ganga í hús
og betla góðgæti. Íbúar Grundar-
fjarðar skrá sig á síðu hjá umsjónar-
mönnum þessa viðburðar um hvort
að hægt sé að nálgast sætindi hjá
þeim. Svo eru sett útikerti, grasker
eða aðrar skreytingar í hræðilegum
stíl svo að börnin rambi nú örugg-
lega á rétt hús. Mikill metnaður er
í búningum sem og mörgum húss-
kreytingum og hafa krakkarnir afar
gaman að þessu. Að þessu sinni
voru hrekkjavökulætin færð fram til
föstudags vegna hertra sóttvarnar-
aðgerða sem áttu að taka gildi dag-
inn eftir.
tfk
Rökkurdagar í Grundarfirði voru
með töluvert óhefðbundnu sniði
þetta árið. Heimsfaraldurinn setti
strik í reikninginn og því þurfti að
hugsa aðeins útfyrir boxið. Fólk var
hvatt til að takmarka samkomur og
samneyti við aðra og helst að halda
sig heima. Föstudagskvöldið 30.
október síðastliðið voru skemmti-
legir tónleikar frumsýndir á verald-
arvefnum en þar komu fram grund-
firskir listamenn sem fluttu yndis-
fagrar dægurperlur fyrir fólk sem
gat notið þess í sófanum heima.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Þor-
kel Mána Þorkelsson organista
Grundarfjarðarkirkju spila und-
ir hjá Amelíu Rún Gunnlaugsdótt-
ur og Runólfi Guðmundssyni afa
hennar. Margir söngvarar komu
fram á þessum tæplega klukku-
stundarlöngu tónleikum og ljóst
að Grundarfjörður hefur að geyma
marga listagóða söngvara.
tfk
Útgerðin í Pakkhúsinu í ólafsvík
opnaði fyrr í mánuðinum nýja vef-
verslun og sendir nú frítt um allt
land. Í verslun Útgerðarinnar er
fjölbreytt vöruúrval af heimilisvör-
um, skartgripum, fatnaði, barna-
vörum, sælkeravörum og ýmsu
öðru. Hægt er að skoða vöruúrvalið
og versla í vefversluninni á utger-
din.shop. arg
Ný vefverslun
Útgerðarinnar.
Útgerðin á netið
Öðruvísi skemmtiatriði
á Rökkurdögum
Finnst gaman að setja upp
hryllilegar skreytingar
Guðbjörg Guðmundsdóttir var búin að útbúa forláta kirkjugarð í garðinum hjá
sér.
Góð stemning á Hrekkja-
vöku í Grundarfirði
Þeir Vilhjálmur og Oscar voru kátir á föstudaginn síðasta er ljósmyndari
Skessuhorns rakst á þá.
Fyrsti bekkur Grunnskóla Grundarfjarðar voru í gönguferð í blíðviðrinu á
föstudaginn ásamt kennurum sínum.
Jóna Björk Ragnarsdóttir tók á móti börnum í bakhúsi í garðinum sínum sem var
búið að skreyta með allskyns óhugnaði.
Guðbjörg Guðmundsdóttir fór alla leið í skreytingum og sagði aðspurð að þetta
væri hennar allra uppáhalds dagur ársins og greinilega mikið hrekkjavökubarn.