Skessuhorn - 04.11.2020, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 202020
Samkvæmt frumvarpi fjármála- og
efnahagsráðherra um tekjufalls-
styrki munu minni ferðaþjónustu-
aðilar, leiðsögumenn og fleiri geta
sótt um styrk vegna tekjufalls sem
varð vegna Covid-19 heimsfarald-
ursins. Samkvæmt mati sem ráð-
gjafafyrirtækið KPMG vann fyrir
ráðuneytið er áætlað að stuðning-
ur við ferðaþjónustuna vegna þessa
úrræðis geti numið um 3,5 milljarði
króna nýti allir þessa leið. Frum-
varpið hefur verið samþykkt í rík-
isstjórn og er nú til umfjöllunar á
Alþingi.
Styrkirnir munu jafngilda rekstr-
arkostnaði (þ.m.t. reiknuðu end-
urgjaldi) á tímabilinu frá 1. apríl
til 30. september, en geta þó ekki
orðið hærri en 400 þúsund krón-
ur fyrir hvert stöðugildi á mánuði
á tímabilinu. Verði frumvarpið að
lögum þurfa rekstraraðilar að upp-
fylla nokkur skilyrði. Þeir þurfa að
hafa orðið fyrir minnst 50% tekju-
falli á tímabilinu frá 1. apríl til 30.
september 2020, að hámarki þrír
launamenn starfi hjá rekstraraðila
og umsækjendur þurfa að auki að
uppfylla skilyrði um skattskyldu
á Íslandi, lágmarksveltu, skilvísi á
opinberum gjöldum og gögnum til
Skattsins og áframhaldandi rekstur.
mm
Hraunfossar í Borgarfirði.
Áætla að tekjufallsstyrkir til ferða-
þjónustunnar verði 3,5 milljarðar
Síðastliðinn mánudag var upp-
runalegri altaristöflu Akraneskirkju
komið fyrir í ramma sínum og upp
á vegg ofan við altari kirkjunnar.
Bjarni Skúli Ketilsson listmálari,
sem hefur listamannsnafnið Baski,
hóf forvörn og viðgerðir í sept-
ember og hafði til þess aðstöðu í
gamla Iðnskólanum við Vinaminni.
Á meðan á viðgerð á gömlu altar-
istöflunni stóð var sett í rammann
utan um hana endurgerð verksins
sem Baski málaði sjálfur. Það verk
er nú falt, að sögn listmálarans.
Það var hátíðleg stund þegar Baski,
Ketill faðir hans og starfsfólk Akra-
neskirkju lagði hönd á plóg við að
ná hinum klettþunga ramma nið-
ur og skipta um myndir í honum.
Þess var vandlega gætt að handverk
smiðsins sem bjó til rammann árið
1867 og merkti hann „e.J. No5“,
héldi sér nánast eins. Naglar sem
nýta mátti voru endurnýttir en nýj-
um komið fyrir í stað annarra.
Baski hefur eins og fram hefur
komið sérhæft sig í lagfæringum á
eldri málverkum samhliða listsköp-
un sinni í Hollandi. Altaristöfluna
í Akraneskirkju málaði Sigurður
Guðmundsson fyrir um 150 árum
en myndina málaði hann sem eftir-
mynd af altaristöflunni sem prýð-
ir Dómkirkjuna í Reykjavík. Sú er
eftir Gustaf Wegener og var mál-
uð 1847. Verkið prýddi uppruna-
lega Garðakirkju en var síðar flutt
á hestvagni upp á Akranes þar sem
það hefur verið allar götur síðan.
Við lagfæringar byrjaði listamað-
urinn að hreinsa upp bakhlið verks-
ins og striginn bættur samkvæmt
kúnstarinnar reglum. Við fyrsta
hluta verksins naut hann aðstoðar
hollenskrar samstarfskonu hans þar
sem fagmennsku og fjögurra handa
var krafist. eftir það tók við mik-
il nákvæmnisvinna við hreinsun og
skerpingu sjálfs málverksins. Sér-
stök efni eru notuð þegar gömul
málverk sem þessi eru löguð, meðal
annars olíulitir með mjög litlu hlut-
falli olíu til að halda réttu áferðinni
og forðast t.d. skarpan mun milli
nýrra og eldri lita. Altaristaflan
var nokkuð sprungin enda fyrstu
árin geymd í óupphituðu hús-
næði Garðakirkju þar sem rakastig
var mjög breytilegt. Þá voru litir í
myndinni farnir að fölna, einkum
efri hluti verksins. Auk þess hefur
nálægt við kerti; vax og hita í tímans
rás, sett mark sitt á myndina. Nú
eftir endurgerð verksins fer ekki á
milli mála hversu vel hefur til tek-
ist. „ef viðgerðin er þannig að það
líti út fyrir að maður hafi ekki gert
neitt og upphaflega handbragðið
komi fram, þá er takmarkinu náð,“
segir Baski að endingu. mm
Baski hefur lokið viðgerð á altaristöflu Akraneskirkju
Það var fimm manna tak að ná myndinni niður.
Listamaðurinn hefur hér lokið við
að koma upprunalegri mynd fyrir í
ramma sínum og er við það að stíga
niður af altarinu.
Hér stendur listamaðurinn á milli frummyndarinnar og þeirrar sem hann málaði sem staðgengil hinnar. Gamla myndin,
nýuppgerð, er honum á hægri hönd.
Starfsfólk Akraneskirkju og feðgarnir Baski og Ketill láta bráðabirgðamyndina
síga niður á gólf og síðan var hafist handa við að skipta út mynd í rammanum.