Skessuhorn


Skessuhorn - 02.12.2020, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 02.12.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 20206 Jólagjafir hjá fyrirtækjum í heimabyggð BORGARBYGGÐ: Borgar- byggð auglýsti í lok nóvember eftir verslunar- og þjónustuað- ilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafa- bréfum sem verða jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 10.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréf- in virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borg- arbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda hjá Borgarbyggð gegn framvísun gjafabréfsins. Gert er ráð fyr- ir að hægt verði að nota gjafa- bréfin á tímabilinu frá 3. des- ember til 28. febrúar 2021. Skil- yrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að fyrirtækið sé skráð hjá hinu opinbera og sé starfandi í Borgarbyggð. Um er að ræða ríflega 300 gjafabréf sem þurfa að afhendast í byrj- un desember 2020. Skráningu í verkefnið lauk fyrir síðustu helgi. -mm Árekstur í hringtorgi AKRANES: Á þriðjudag barst Neyðarlínu tilkynning um árekstur í hringtorgi á mótum Esjubrautar og Kalmansbraut- ar. Þar var bifreið ekið við- stöðulaust fram hjá biðskyldu með þessum afleiðingum. Ekki urðu slys á fólki en önnur bif- reiðin var óökufær. -frg Skemmdarverk í Reykholti REYKHOLT: Að kvöldi þriðjudags í liðinni viku voru unnar skemmdir á Hönnubúð í Reykholti. Klæðning utan á versluninni var skemmd með spörkum og svo virðist sem reynt hafi verið að brjótast inn en án árangurs. Skemmdarvar- garnir höfðu ekki fundist þegar blaðið fór í prentun. -frg Bílvelta við Laxárbakka VESTURLAND: Á miðviku- dagskvöld barst Neyðarlínu til- kynning um bílveltu við Laxár- bakka í Hvalfjarðarsveit. Öku- maður kom sér sjálfur á sjúkra- hús. -frg Fauk út af á Stykkishólmsvegi SNÆFELLSNES: Á miðviku- dagskvöld barst Neyðarlínu til- kynning um bílveltu á Stykkis- hólmsvegi við Kerlingarskarð. Þar hafði ökumaður misst stjórn á bifreið í vindkviðu, ekið útaf og velt bifreiðinni. Bíllinn fór eina veltu og endaði á hjól- unum. Ökumaður var fluttur á sjúkrahúsið í Stykkishólmi. -frg Valt við Grjóteyri BORGARBYGGÐ: Síðdeg- is á fimmtudag barst Neyðar- línu tilkynning um bílveltu við Grjóteyri. Þar hafði ökumað- ur misst stjórn á bifreið sinni í hálku og roki. Ekki urðu slys á fólki. -frg Óbreyttar sóttvarnareglur LANDIÐ: Svandís Svavars- dóttir heilbrigðisráðherra ákvað í gær að framlengja gild- andi reglugerðir um takmark- anir á samkomum og skóla- starfi til 9. desember næst- komandi. Er þetta gert í sam- ræmi við tillögur sóttvarnar- læknis sem mælir gegn því að slakað sé á sóttvörnum núna í ljósi þess hvernig faraldur- inn hefur verið að þróast síð- ustu daga. Þýðir þetta m.a. að áfram verður í gildi tíu manna samkomubann, tveggja metra regla og grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja tvo metra milli manna. -arg Grettislaug og leikskólalóð meðal fram- kvæmda REYKHÓLAHR: Sveitar- stjórn Reykhólahrepps af- greiddi samhljóða á fundi sín- um í liðinni viku fjárhagsáætl- un fyrir næsta ár. Ráðist verður í umfangsmiklar framkvæmdir á Grettislaug en laugin þarfn- ast endurbóta. Eftir lagfæring- ar er gert ráð fyrir að sá kostn- aður sem fer í að reka laug- ina gæti lækkað umtalsvert. Þá verður farið í framkvæmdir á leikskólalóð og nauðsynlegar hafnarframkvæmdir sem þegar eru komnar á samgönguáætl- un. Í bókun með samþykkt- inni segir: „Stjórnvöld hafa skorað á sveitarfélög að vera þátttakendur í innspýtingu til að verja störf. Reykhólahrepp- ur lætur ekki sitt eftir liggja í þessu átaki. Til þess að fjár- magna þessar framkvæmdir verði tekið nýtt lán frá Lána- sjóði sveitarfélaga, allt að 85 milljónum,“ segir í bókun frá fundinum. -mm Guðni Halldórsson var á laugardag- inn kjörinn nýr formaður Lands- samband hestamannafélaga. Tekur hann við því embætti af Lárusi Ást- mari Hannessyni í Stykkishólmi. Kosningin fór fram á 62. lands- þingi LH. Guðni hlaut 92 atkvæði í formannskosningunni en Ólaf- ur Þórisson 68 atkvæði. Kosningu í aðalstjórn hlutu Stefán Logi Har- aldsson, Gréta V. Guðmundsdótt- ir, Sóley Margeirsdóttir, Sigurodd- ur Pétursson, Eggert Hjartarson og Hákon Hákonarson og í varastjórn voru kjörnir Einar Gíslason, Aníta Aradóttir, Ómar Ingi Ómarsson, Ingimar Baldvinsson og Lilja Björk Reynisdóttir. Um efnistök á þinginu að þessu sinni segir á vef LH: „Meðal sam- þykkta þingsins er áframhaldandi samstarf LH við Horses of Iceland- verkefnið, stöðulisti inn á Íslands- mót fullorðinna og ungmenna, til- mæli um að reglur um gæðinga- fimi LH verði notaðar til reynslu fram að næsta landsþingi, reglur um gæðingatölt, lágmarksstærð keppnisvallar innahúss, að LH hefji stefnumótun um nýliðun, áskorun til BÍ og FEIF um að endurskoða verklag við skráningu á nöfnum í WorldFeng, áskorun til Vegagerð- arinnar og Samtaka sveitarfélaga að standa vörð um reiðleiðir, stuðn- ingur LH við faghóp sem vinnur að gerð auglýsinga um umferðarör- yggismál hestamanna og fleira.“ Æskulýðsbikar LH hlaut Hesta- mannafélagið Hornfirðingur en fé- lagið hefur rekið öflugt nýliðunar- og æskulýðsstarf. mm Skatttekjur sveitarfélaga ráða mestu um það svigrúm sem þau hafa til út- gjalda. Jöfnunarsjóði er síðan ætlað að jafna bilið milli þeirra þannig að öll geti sveitarfélögin rækt lögbund- ið hlutverk sitt. Samband íslenskra sveitarfélaga gefur reglulega út töl- fræði um tekjur og gjöld sveitarfé- laga og er nýlega búið að birta slík- ar lykiltölur fyrir árið 2019. Skatt- tekjur sveitarfélaga, án framlaga úr Jöfnunarsjóði, eru útsvar, fasteigna- skattur og skattígildi (lóðaleiga). Í lögum um tekjustofna sveitarfé- laga er svo ákvæði um hámarks- og lágmarksálagningu útsvars og há- marksálagningu fasteignaskatta. Mörg sveitarfélög eru með útsvar og fasteignaskatta í hámarki. Það dregur mjög úr sveigjanleika þeirra í fjármálum þegar allar skattaheim- ildir eru nýttar til hins ýtrasta. Fast- eignaskattar ráðast svo af fasteigna- mati og álagningu. Skatttekjur á íbúa voru að meðal- tali 714 þúsund krónur á landsvísu árið 2019, en miðgildi þeirra er 674 þúsund krónur á íbúa og er þá búið að taka mið af íbúafjölda í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Nokkur sveit- arfélög á landinu skera sig úr hvað varðar háar skatttekjur, hafa tvö- til þrefalt á við landsmeðaltal. Þau sveitarfélög sem um ræðir eiga það sammerkt að njóta fasteignaskatta af virkjunum og sumarbústaða- byggðum. Tróna sveitarfélögin Fljótsdalshreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur og Ásahreppur á toppnum, en þeirra á meðal eru einnig sveitarfélögin Skorradals- hreppur og Hvalfjarðarsveit á Vest- urlandi. Þessi sveitarfélög fá því ekki greiðslur úr Jöfnunarsjóði. Í þeim sveitarfélögum þar sem land- búnaður er megin atvinnugreinin eru skatttekjur hvað lægstar. Á list- anum hér að neðan má sjá að fjög- ur af tíu sveitarfélögum á Faxaflóa- og Breiðafjarðarsvæðinu eru yfir landsmeðaltali tekna á hvern íbúa en sex þeirra eru undir: Skorradalshreppur 1.403 þús. kr. Hvalfjarðarsveit 1.378 þús. kr. Snæfellsbær 794 þús. kr. Grundarfjarðarbær 734 þús. kr. Stykkishólmsbær 660 þús. kr. Borgarbyggð 656 þús. kr. Akraneskaupstaður 648 þús. kr. Dalabyggð 578 þús. kr. Helgafellssveit 570 þús. kr. Eyja- og Miklaholtshrepp 564 þús. kr. Reykhólahreppur 550 þús. kr. mm Skatttekjur sveitarfélaga afar mismunandi Hæstu skatttekjur sveitarfélaga pr. íbúa á Vesturlandi eru í Skorradalshreppi. Guðni kjörinn formaður í LH Guðni Halldórsson nýr formaður tekur nú við af Lárusi Ástmari Hannessyni sem lætur nú af embætti eftir sex ár. Ljósm. LH.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.