Skessuhorn - 02.12.2020, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 23
Jólaútvarp NFGB fm 101,3
Nemendafélags Grunnskóla Borgarness sent út frá Óðali 7.– 11. frá 10:00 23:00. og undanfarin ár og
dagskrá útvarpað áður þáttum en síðan flytja sína þætti beinni útsendingu.
Handritagerð fór fram þar sem hefur tekið sem sérstakt
fréttastofunnar eins og undanfarin ár „Bæjarmálin í beinni” 11. des. kl. er von á góðum gestum hljóðstofu.
Mánudagur 7. desember
10:00 Ávarp útvarpsstjóra
10:10 Bekkjarþáttur 1. bekkur
11:00 Bekkjarþáttur 4. bekkur
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Bekkjarþáttur 7. bekkur
14:00 Félagsstarfið 2018-2019 Stjórn Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi
15:00 Góðir hlutir sem gerðust árið 2020 Nína, Arnór Breki og Sara Sól
16:00 Jakob Frímann Magnússon Rakel Lea og Marta
17:00 Jólastuð Hrafnhildur, Hugrún og Katrín Ragna
18:00 Fjórir meistarar Sveinn og Haukur
19:00 Allt það venjulega Óli, Birgir og Magnús Baldur
20:00 Vísindaskáldskapur Jóhannes og Atli
21:00 Geniusinn hann Elon Musk Þórður Logi og Stefán
22:00 Volkswagen Almar Orri og Örn
23:00 Dagskrárlok
Þriðjudagur 8. desember
10:00 Bekkjarþáttur 2. bekkur
11:00 Bekkjarþáttur 5. bekkur
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Laugargerðisskóli Nemendur á unglingastigi Laugargerðisskóla
14:00 Tölvuleikir Óskar Gísli, Reynir og Einar Magni
15:00 Nýleg íslensk tónlist Egill, Guðjón og Magnús
16:00 Draugasögur Eyrún og Katrín Jóhanna
17:00 Frægir Íslendingar Alexander, Kristján og Sævar
18:00 Drepsóttir Sigurkarl, Ólafur Hrafn og Aron
19:00 Led Zeppelin Ísak
20:00 Samsæriskenningar Halldór Grétar og Dagur
21:00 Samantekt 2020 Kolfinna, Caroline og Ísabella
22:00 Tónlist og spjall Tæknimenn
23:00 Dagskrárlok
Miðvikudagur 9. desember
10:00 Bekkjarþáttur 3. bekkur
11:00 Bekkjarþáttur 6. bekkur
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Danska konungsfjölskyldan Marija, Embla Líf og Kolbrún Líf
14:00 Fótbolti Ernir, Friðjón og Eiríkur
15:00 Íslenskir grínþættir Þorvaldur, Jökull og Sigurður
16:00 Ríkasta fólk í heimi Valborg og Heiða
17:00 Jólaspjall Rakel Svava og Ásdís
18:00 Elvis Presley Atli og Ari
19:00 Jólin í gamla daga Arndís, Kolfinna og Aníta
20:00 Swieta w Polsce i Islandii Agata, Julia og Amelia
21:00 Eurovision spjallþáttur Júlía, Oddný og Díana
22:00 Tæknitröllin spila jólatónlist Tæknimenn
23:00 Dagskrárlok
Fimmtudagur 10. desember
10:00 1. og 2. bekkur, endurflutt þáttur
11:00 7. bekkur, endurfluttur þáttur
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Jóladagatöl Tinna og Guðrún Eygló
14:00 Disney prinsessur Unnur og Dagbjört
15:00 5. bekkur endurfluttur þáttur
16:00 Seinni heimstyrjöldin Stefán og Óli Kristján
17:00 Jólin í gamla daga – jólahefðirnar okkar Auður og Birta
18:00 Áður en klukkan slær sex Alda og Hugrún
19:00 Brandaraþáttur Óskar Steinn og Bastian
20:00 Dökka hlið Hollywood Edda María og Elfa Dögg
21:00 Menntaskóli Borgarfjarðar Nemendafélag MB
23:00 Dagskrárlok
Föstudagur 11. desember
10:00 3. og 4. bekkur endurfluttur þáttur
11:00 6. bekkur endurfluttur þáttur
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Bæjarmálin í beinni
14:00 Tæknimenn spjalla Tæknimen
15:00 Alls konar matur Vildís Ásta og Ólöf
Inga
16:00 Trump fjölskyldan Viktoría og Katla
17:00 Létt jólatónlist og spjall Tæknimenn
19:00 Kveðja útvarpsstjóra og dagskrárlok.
Víkingur Ólafsvík greindi frá í vik-
unni að Gunnar Einarsson hafi ver-
ið ráðinn þjálfari meistaraflokks
Víkings Ólafsvíkur í knattspyrnu.
Gunnar tekur við liðinu af Guð-
jóni Þórðarsyni og er samningurinn
til tveggja ára. Í tilkynningunni seg-
ir m.a.: „Gunnar, sem er 44 ára, er
spennandi ungur þjálfari sem þjálf-
aði Kára í 2. deildinni á síðastliðnu
keppnistímabili en áður hafði hann
þjálfað Leikni í Breiðholti og yngri
flokka hjá Val. Sem leikmaður átti
Gunnar afar farsælan feril en hann
varð fjórum sinnum Íslandsmeist-
ari í knattspyrnu, þrívegis með KR
og einu sinni með Val. Alls á hann
236 leiki að baki í meistaraflokki hér
á Íslandi. Gunnar lék einnig sem at-
vinnumaður í Hollandi og á Eng-
landi og þá á hann einn A-landsleik
að baki fyrir Íslands hönd. Stjórn
Víkings Ó. býður Gunnar velkom-
inn til starfa í Ólafsvík.“
frg/ Ljósm. Víkingur Ólafsvík
Knattspyrnufélag Kára hefur ráð-
ið Ásmund Haraldsson sem þjálf-
ara liðsins og tók hann við liðinu
í gær, 1. desember. Ásmundur er
reynslumikill, bæði sem leikmaður
og þjálfari. Hann hefur leikið með
KR, Þrótti R, ÍR, Gróttu, Skín-
anda, KFG og SR. Þá hefur hann
stýrt Gróttu úr 3. deild í 1. deild,
þjálfað Skínanda, verið aðstoðar-
þjálfari kvennalandsliðsins og nú
síðast var hann aðstoðarþjálfari hjá
FH. frg
Íslenska karlalandsliðið í körfu-
knattleik mætti Lúxemborg
á fimmtudaginn og Kósovó á
sunnudaginn í forkeppni HM
2023. Íslendingar sigruðu Lúx-
emborg með fjórtán stigum eða
90:76. Leikurinn gekk ekki nógu
vel framan af hjá íslensku strákun-
um, þeir hittu illa og í hálfleik var
Lúxemborg 38-34 yfir. Í þriðja
leikhluta komst Lúxemborg fljót-
lega í stöðuna 47-40 en þá fóru
hlutirnir að gerast og Hörður
Axel Vilhjálmsson skoraði sjö stig
í röð og jafnaði þannig stöðuna.
Eftir það átti íslenska liðið tölu-
vert betri leik og leiddi með 19
stigum á tímabili. Ekkert gekk hjá
Lúxemborg að ná íslensku strák-
unum sem lönduðu öruggum ís-
lenskum sigri.
Íslensku strákarnir sigr-
uðu örugglega
Strákarnir sigruðu einnig Kósovó
glæsilega með 24 stigum. Íslend-
ingum gekk ekki vel í upphafi leiks
og Kósovó var með yfirhöndina.
Íslenska liðið náði sér svo á strik
undir lok fyrsta leikhluta og skor-
aði tíu stig á síðustu tveimur mín-
útum leikhlutans. Íslenska lið-
ið hélt uppteknum hætti í öðrum
leikhluta og þegar liðin skildu í
hálfleik var staðan 45-29 Íslend-
ingum í vil.
Kósovó kom sterkt inn í síð-
ari hálfleik en íslensku strákarnir
gáfu ekkert eftir og Kósovó náði
aldrei að ógna forystunni og í lok
þriðja leikhluta var staðan 67-43
Íslandi í vil. Þeir héldu áfram á
sömu braut í síðasta leikhluta og
sigruðu mjög sannfærandi 86-62.
Var þetta þriðji sigur þeirra í röð
í forkeppninni og situr Ísland nú í
toppsæti B-riðils, en tvö efstu lið-
in fara áfram. arg
Sitja í toppsæti riðilsins
Ísland hafði betur gegn Lúxemborg.
Ljósm. KKÍ
Ráðinn
þjálfari Kára
Ásmundur Haraldsson, nýr þjálfari
Kára. Ljósm. Knattspyrnufélag Kára
Gunnar
þjálfar Víking
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu mætti Slóvakíu á fimmtu-
daginn í síðustu viku og Ungverja-
landi í gær í síðustu leikjum liðsins
í undankeppni EM 2022.
Leikurinn gegn Slóvakíu byrjaði
ekki vel fyrir Ísland en á 25. mín-
útu kom Mária Mikolajová Slóvak-
íu yfir og voru þær marki yfir í hálf-
leik. Íslendingar komu öllu grimm-
ari í síðari hálfleik og á 61. mínútu
kom jöfnunarmarkið þegar Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir skoraði
af öryggi. Þá fengu stelpurnar tvær
vítaspyrnur í röð og skoraði Sara
Björk Gunnarsdóttir úr þeim báð-
um og tryggði liðinu 3-1 sigur.
Leikur Íslands og Ungverjalands
fór ágætlega af stað og íslenska liðið
var án efa sterkari aðilinn. Þær náðu
þó ekki að klára færin sín og skildu
liðin markalaus í hálfleik. Íslensku
stelpurnar komu í seinni hálfleik
af krafti og á 64. mínútu átti Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir gott skot
sem hafnaði í netinu og sigraði Ís-
land 1-0.
Stelpurnar sitja nú í öðru sæti
riðilsins, á eftir Svíþjóð, og er sæti
í lokakeppni EM í Englandi í seil-
ingarfjarlægð. Þær hafa tryggt sér
sæti í umspili en eiga möguleika á
að komast hjá því ef úrslit í öðrum
riðlum verða þeim hagstæð. Þau
þrjú lið sem eru með bestan ár-
angur í öðru sæti í riðlakeppninni
fara beina leið í lokakeppnina. Hin
sex liðin í öðru sæti í sínum riðlum
spila um þrjú síðustu sætin í loka-
keppninni.
arg
EM í seilingarfjarlægð
hjá stelpunum