Ægir - 2019, Blaðsíða 84
84
„Í Framhaldsskólanum í Vestmanna-
eyjum erum við að mennta einstakl-
inga til að takast á við framhaldsnám
og störf framtíðarinnar. Við erum
framhaldsskóli í stóru og rótgrónu
sjávarútvegsplássi og starfsemi skól-
ans tekur talsvert mið af því. Sjávar-
útvegurinn þarf á mjög fjölbreyttu
starfsfólki að halda og við komum til
móts við þarfir greinarinnar með al-
mennu bóknámi og vélstjórnarnámi,“
segir Helga Kristín Kolbeins, skóla-
meistari Framhaldsskólans í Vest-
mannaeyjum. Skólinn fagnar í ár fer-
tugasta starfsári sínu en hann var
stofnaður árið 1979 og eru nemendur
á haustmisseri um 200 talsins.
Sjávarútvegur og fjórða
iðnbyltingin
Helga segir störf framtíðarinnar verða
mjög ólík því sem við þekkjum í dag . Í
heiminum muni 5 milljónir starfa hverfa
á næstu árum og muni það setja mark
sitt á íslenskan vinnumarkað . Gervi-
greind og vélmenni komi til með að leysa
öll störf sem byggi á endurtekningu og
þau störf sem verði til krefjist þess að
einstaklingar hafi víðtæka þekkingu á
mörgum sviðum, hæfni til að leysa flókin
og skapandi verkefni og séu gagnrýnir í
hugsun . Í daglegu máli sé þessi þróun
kölluð fjórða iðnbyltingin .
„Menntun í sjávarútvegi hefur í hug-
um okkar aðallega mótast af hugmynd-
inni um skipstjórnar- og vélstjórnar-
menntun . Með minnkandi fiskafla er al-
gjör nauðsyn að nýta betur það sem
kemur úr sjónum og auka verðmæti . Til
að skapa aukin verðmæti úr minni fisk-
afla þarf nýjar hugmyndir, nýjar lausnir
og frjótt hugmyndaríkt fólk með mennt-
un við hæfi .
Í Framhaldsskólanum í Vestmanna-
eyjum höfum við verið að byggja upp
umhverfi og aðstöðu fyrir skapandi fólk,
lausnamiðað umhverfi og frjóa hugsun í
samfélagi sem lifir og hrærist í sjávarút-
vegi sem er í þörf fyrir meira menntað
fólk . Í skólanum er lögð áhersla á að
leggja grunninn að starfsfólki sem getur
borið með sér frumkvöðlahugsun og eru
því námsgreinar eins og nýsköpun
komnar í kjarna stúdentsprófsins . Frum-
kvöðlahugsun sem nýtist inn í sjávarút-
vegstengt nám skólans, hugsun sem
mun skapa okkur ný tækifæri í framtíð-
inni, með meiri verðmætum úr auðlind-
inni .“
Málmiðnaðarkennsla í fremstu röð
Í málm- og vélstjórn er skólinn búinn að
bæta við fullkomnum tölvustýrðum
tækjum og hermum og hefur sett sér það
markmið að aðastaða nemenda sé í
fremstu röð . Skólinn hefur fengið styrk
frá Gene Haas Foundation and National
Institute for Metalworking Skills til að
efla kennslu málmiðnargreina enn frek-
ar og í bréfinu, sem fylgdi styrkveiting-
unni, er kennurum skólans þakkað það
mikla framlag sem þeir hafa innt af
hendi fyrir þróun þessara greina .
„Skólaárin í framhaldsskóla eru mót-
unarár þar sem lagður er grunnur að
því sem koma skal . Markmið okkar er að
einstaklingar útskrifist með þá hæfni
sem fjórða iðnbyltingin gerir kröfur um .
Ríkari kröfur eru um að við nýtum af-
urðirnar betur og sköpum meiri verð-
mæti úr því sem við höfum . Ef við ætlum
að vera tilbúin að mæta nýjum tímum og
nýta þá tækni sem er í boði, þarf miklu
meira en orðin tóm . Við verðum að láta
námið vera í forgangi og gera nemend-
urna hæfa til að takast á við þá spenn-
andi tíma sem bíða okkar,“ segir Helga .
fiv .is
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
Frumkvöðlahugsun í sjávarútvegs-
námi mun skapa ný tækifæri
■ „Markmið okkar er að einstaklingar útskrifist með þá hæfni sem fjórða iðnbyltingin gerir kröfur um. Ríkari kröfur eru um
að við nýtum afurðirnar betur og sköpum meiri verðmæti úr því sem við höfum,“ segir Helga Kristín Kolbeins, skólameistari
Framhaldsskólans í Vestmanneyjum.