Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 1. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 136. tölublað 108. árgangur
FRÁBÆR HELGARTILBOÐ Í NETTÓ!
Lambaframparts-
sneiðar
Kryddaðar
1.300KR/KG
ÁÐUR: 2.599 KR/KG
Hrossafille
1.160KR/KG
ÁÐUR: 2.899 KR/KG
-50%
-30%
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 11. júní - 14. júní
-60% Tómatar
5 tegundir
Verð frá:
321KR/PK
FÆR FIÐRING
ÞEGAR FARFUGL-
ARNIR KOMA
SÓLVEIG PÁLS-
DÓTTIR HLAUT
BLÓÐDROPANN
HEFUR MARGA
HILDINA HÁÐ
Á FERLINUM
GLÆPASAGNAVERÐLAUN 64 KRISTOFER HIVJU 26ÁRNI ÁRNASON 12
Ómar Friðriksson
Baldur Arnarson
Það kom í hlut kvenna í mun meira
mæli en karla að vera heima með
börn meðan á faraldri kórónuveir-
unnar stóð, vegna skertrar þjónustu
skólanna. 42% kvenna segjast í ný-
birtri könnun BSRB hafa þurft að
vera heima með börn á þessum tíma
en hlutfallið var 30% meðal karla.
Ríflega helmingur þeirra sem
þurftu að vera heima vegna lokunar
skóla gat unnið heima í samráði við
yfirmann en 10% nýttu til þess or-
lofsdaga sína eða tóku launalaust
leyfi til að vera heima.
Umtalsverður munur var á að-
stöðu fólks eftir tekjum og menntun
til að vera heima og sinna vinnu og
annast börnin vegna lokana meðan á
faraldrinum stóð. Aðeins um tólf pró-
sent fólks með tekjur undir 400 þús-
und gátu unnið heima á þessum tíma
en til samanburðar áttu tæplega 64
prósent þeirra sem eru með heim-
ilistekjur yfir einni milljón kr. á mán-
uði þess kost að vinna heima, að því
er fram kemur í niðurstöðum könn-
unarinnar sem birtar eru á vefsíðu
BSRB.
Netsala rauk upp í apríl og maí
Áhrifin af kórónuveirufaraldrin-
um koma nú fram á ýmsum sviðum.
Þannig tók netverslun kipp í apríl og
maí en lengstum á því tímabili var
samkomubann vegna kórónuveir-
unnar. Samkvæmt greiningu Rann-
sóknaseturs verslunarinnar jókst
hlutur netverslunar af allri verslun
úr 2,9% í apríl 2019 í 9,1% í apríl sl. Í
maí fór hlutfallið úr 3% í 5% á milli
ára. Bendir þetta til þess að áhrif far-
aldursins á netverslun hafi minnkað
þegar slakað var á samkomubanni.
42% kvenna heima með börnin
Mikill munur eftir tekjuhópum hvort fólk gat unnið heima Stóraukin netsala
MÁhrifin af faraldrinum »6 og 36
Gleðin er sjaldnast langt undan hjá ungviðinu
þegar sólin lætur sjá sig og ekki vantar orkuna
þegar skólaslit eru nýlega að baki eftir langan
og erfiðan vetur. Við Gerðarsafn voru fjarlægð-
artakmarkanir minningin ein þegar krakkarnir
fengu útrás á ærslabelgnum.
Hætt er við því að minna líf verði á sama stað í
dag því samkvæmt veðurspá má búast við rign-
ingu. Áfram verður þó hlýtt í veðri.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hoppað og skoppað við Gerðarsafn
Skáldaga Ragnars Jónassonar,
Dimma, er í öðru sæti á metsölulista
þýska miðilsins Der Spiegel. Bókin
hefur nú verið á listanum í 3 vikur,
fyrst í 14. sæti, þá í því sjötta og loks
í öðru sæti. „Ég
eiginlega trúi
þessu ekki. Mað-
ur horfir á þetta
og skilur þetta
eiginlega ekki,“
segir Ragnar.
„Ég hefði bara
aldrei trúað því
að ég kæmist á
þennan metsölu-
lista yfirhöfuð.
Hvað þá í annað sæti.“ Fyrirhugað
er að önnur bókin í þríleik Ragnars
sem hefst á Dimmu, Drungi, komi út
í júlí í Þýskalandi og Mistur, sem er
lokabók þríleiksins, komi út í sept-
ember. „Öll serían kemur út á einu
ári, sem er mjög frumleg hugmynd
hjá Þjóðverjunum,“ segir Ragnar.
Þetta er einungis í annað sinn sem
íslensk skáldsaga nær svo hátt á
metsölulistanum, en skáldsaga Arn-
alds Indriðasonar, Napóleons-
skjölin, naut mikilla vinsælda í
Þýskalandi árið 2005. Er því um að
ræða besta árangur íslensks höf-
undar í Þýskalandi í 15 ár.
Greg Silverman, fyrrverandi for-
stjóri Warner Brothers, tryggði sér
sjónvarpsþáttarétt að Dimmu fyrir
um ári. Þá segist Ragnar hafa fengið
fyrirspurnir frá Þýskalandi um kvik-
myndarétt að bókinni eftir velgengni
hennar síðustu vikur. „Maður gæti
ekki verið mikið sáttari við þetta.
Þetta er mikil hvatning til að halda
áfram,“ segir Ragnar.
Ljósmynd/Veröld-Ómar
Útgáfa Ragnar Jónasson áritar.
Besti
árangur
í 15 ár
Bók Ragnars í 2.
sæti á lista Spiegel