Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
VIÐ
BJÖRGUM
GÖGNUM
af öllum tegundum
snjalltækja
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Miðað við stöðuna eru lífskjara-
samningarnir fallnir. Við munum
ekki verja samninginn miðað við
óbreytta stöðu,“ segir Ragnar Þór
Ingólfsson, formaður VR.
Tilefnið er að ríkisstjórnin hafi
hvorki staðið við fyrirheit um afnám
40 ára verðtryggðra jafngreiðslulána
né loforð um hlutdeildarlán.
Ragnar lýsti þessum sjónarmiðum
á fundi með þjóðhagsráði í gær.
„Staða þessara tveggja mála gerir
það að verkum að samningarnir eru
fallnir. Ábyrgðin er ríkisstjórnarinn-
ar og fjármálaráðuneytisins. Ég er
búinn að hafa samband við félaga
okkar í Eflingu til að funda um stöð-
una og mögulegar aðgerðir í haust.“
Skilur ekki ríkisstjórnina
„Það þarf að ræða framhaldið og
næstu skref. Þegar traustið er ekki
til staðar er ekki von á góðu. Því mið-
ur. Ég skil ekki ríkisstjórnina að fara
með verkalýðshreyfinguna í fanginu
inn í næstu þingkosningar. Það er
dapurlegt að horfa upp á að lífs-
kjarasamningarnir skuli falla á van-
efndum ríkisstjórnarinnar sem er að
leita eftir trausti til að vinna sig í
gegnum kórónukreppuna. Það er
mjög dapurleg niðurstaða,“ segir
Ragnar Þór og rifjar upp að hinn 1.
september virkjast endurskoðunar-
ákvæði lífskjarasamningsins.
Meðal atriða
sem tekin verði til
endurskoðunar
séu þróun kaup-
máttar og efndir
stjórnvalda vegna
samningsins. Nóg
sé að annað þess-
ara atriða hafi
ekki gengið eftir
til að fella samn-
inginn.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, hafi lofað „ský-
lausu banni við 40 ára verðtryggðum
jafngreiðslulánum“. Nú sé frumvarp
þessa efnis í „gíslingu“ hjá ráðuneyt-
inu. Að óbreyttu muni sömu lág-
tekjuhópar og tekið hafa lánin geta
tekið þau áfram. Slíkt bjóði hættunni
heim fyrir lántaka og dragi úr öryggi
á húsnæðismarkaði, eins og reynslan
af eftirhrunsárunum sýni.
Ragnar Þór segir frumvarp um
fyrirhuguð hlutdeildarlán sömuleiðis
í gíslingu hjá ráðuneytinu. En með
þeim hyggst ríkið leggja fram hluta
af eigin fé við fasteignakaup og
þannig styðja vissa hópa til að eign-
ast íbúðir. Rætt hefur verið um að
ríkið leggi fram 15-30% af kaupverði.
Þrengt að þessum hópum
Ragnar Þór segir fyrirhugaðar
breytingar á lánunum skaðlegar.
„Það er verið að setja tekju- og
eignamörk og í sjálfu sér þrengja
mjög að þeim hópum sem geta tekið
lánin. Þar af leiðandi er unnið gegn
þeim markmiðum sem starfshópur-
inn [sem gerði tillögu um lánin] setti
sér og þeim markmiðum lífskjara-
samningsins að ná utan um við-
kvæma hópa sem hafa ekki komist á
húsnæðismarkað eftir síðasta hrun.“
Hugsjónirnar mikilvægari
Ragnar Þór bendir á að næsta vor
verði kosið til formennsku í VR.
„Ég ætla ekki að fara í gegnum
þær kosningar með allt niðrum mig í
verðtryggingarmálum. Það er alveg
á hreinu. Fyrir mitt leyti skipta hug-
sjónir og efndir meira máli en hásæt-
ið sem ég sit í og ég mun standa og
falla með þessum málum,“ segir
Ragnar Þór Ingólfsson.
Samningurinn að óbreyttu fallinn
Formaður VR segir vanefndir um verðtryggingu og hlutdeildarlán kalla á uppsögn lífskjarasamnings
Skilur ekki í stjórnvöldum að efna til hólmgöngu við verkalýðshreyfinguna í aðdraganda kosninga
Ragnar Þór
Ingólfsson
Veðrið lék við fólk á Norðurlandi í gær. Galsi
hljóp í starfsfólk Borgarhólsskóla á Húsavík í
hádegishléi og þau Hjálmar Bogi Hafliðason og
Halla Rún Tryggvadóttir nýttu góða veðrið til að
ærslast á ærslabelgnum. Ekki fylgdi sögunni
hvað nemendum fannst um frammistöðuna.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Kennarar slettu úr klaufunum í hádegishléinu
Nýtt baðlón sem nú rís vestast á
Kársnesi í Kópavogi hefur fengið
nafnið Sky Lagoon. Lónið verður
opnað gestum vorið 2021 og í fyrsta
áfanga er gert ráð fyrir heitu baðlóni
við sjóinn með útsýni út á hafið og til
Bessastaða, kaldri laug og gufu-
böðum. Um er að ræða eina af
stærstu framkvæmdum í ferðaþjón-
ustu síðustu ár. Áætlaður fram-
kvæmdakostnaður er um fjórir millj-
arðar króna.
„Himinninn er óvænti þátturinn í
upplifuninni og þannig varð nafnið
til, Sky Lagoon,“ segir Dagný
Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Sky
Lagoon. Dagný starfaði um árabil
sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins.
Alþjóðlega fyrirtækið Pursuit
stendur að opnun Sky Lagoon.
Fyrirtækið á einnig Fly Over Ice-
land sem er úti á Granda. „Þetta er
mjög spennandi verkefni, bæði
vegna þess að Pursuit kemur inn
með svo mikla fagþekkingu og
reynslu úr öðrum stórum upplif-
unarverkefnum sem fléttast svo við
mína reynslu. Það er búið að vera al-
gjört draumaverkefni að fá að taka
þátt í hönnun og undirbúningi fyrir
Sky Lagoon frá grunni. Ég þori að
fullyrða að hvergi hefur verið lagt í
eins mikla vinnu við upplifunar- og
útsýnishönnun eins og í þessu verk-
efni,“ segir Dagný.
Hún segir jafnframt að spa-
upplifun lónsins verði séríslensk og
vísi til sögunnar. „Torfbærinn hýsir
ákveðið spa-ferðalag sem við viljum
hvetja alla gesti okkar til að prófa
þegar þeir heimsækja okkur,“ segir
Dagný
Sky Lagoon á Kársnesi
Fjögurra milljarða framkvæmd Lónið vígt að ári
Upplifun Dagný Pétursdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sky Lagoon.
Jakob F. Ásgeirs-
son, bókaútgef-
andi í Uglu, segir
að Ingimar Jóns-
son, forstjóri
Pennans, fari vís-
vitandi með rang-
færslur varðandi
framferði Penn-
ans við Uglu.
Morgunblaðið
hefur í vikunni
greint frá því að bækur bókaútgáf-
unnar sem voru komnar í streymi
hjá Storytel hafi verið teknar úr sölu
í verslunum Pennans.
„Þrátt fyrir að nýjustu bækur
Uglu hefðu raðað sér á metsölulista
Eymundsson undanfarna mánuði
voru þær teknar fyrirvaralaust úr
sölu og öllum ummerkjum um þær
eytt í vefverslun Pennans. Þetta eru
alveg nýir viðskiptahættir,“ skrifar
Jakob og kveðst vona að yfirvofandi
athugun Samkeppniseftirlitsins leiði
til þess að nýjar útgáfubækur Uglu
verði til sölu hjá hinu góða starfs-
fólki Eymundsson-búðanna og að
neytendur eigi þess kost að njóta ný-
útkominna bóka jafnt á prenti sem í
vönduðum upplestri í hljóðbóka-
streymi. »39
Fyrirvara-
laust tekn-
ar úr sölu
Bækurnar röð-
uðu sér á sölulista
Jakob F.
Ásgeirsson