Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 12

Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Vissulega er þolinmæðis-verk að mynda fugla enég hef gaman af því aðganga rólega um í ís- lenskri náttúru, þá birtist alltaf ein- hver spennandi fugl,“ segir Árni Árnason áhugaljósmyndari, sem finnst skemmtilegast að mynda fugla himinsins, en sýning hans á fuglaljósmyndum stendur nú yfir í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg. „Ég hef lengi haft áhuga á fuglum en myndatakan er seinni tíma áhugamál. Ég notaði filmu- vélar hér áður fyrr en með staf- rænu tækninni gjörbreyttist allt. Að mynda fugla er ákveðin kúnst, því þeir eru mjög snöggir í hreyf- ingum þótt þeir séu vissulega ekki allir jafn styggir og því misauðvelt að nálgast þá. Nauðsynlegt er að æfa sig að taka myndir af þeim á flugi og í ólíkustu gjörðum, ná hraðanum og bíða eftir réttu birt- unni,“ segir Árni, sem finnst mest heillandi við fugla hversu margt komi á óvart. „Maður lærir svo mikið um hegðun þeirra við að umgangast þá, sér á hverju þeir lifa, hvernig þeir hegða sér meðan á uppvexti ung- anna stendur, hvernig hreiður þeirra eru ólík og ótal margt fleira. Þegar kemur fram á ungatímann umhverfast þeir, alveg magnað að sjá hversu sterkt það er náttúru- lega eðlið að vernda líf afkvæma með öllum ráðum.“ Eltist ekki við flækinga Árni segist nokkuð glöggur á fugla en þó hafi það komið fyrir að hann viti ekki hvaða fugl hann er að mynda. „Ég þurfti til dæmis að láta bera kennsl á sanderluna sem er á einni myndinni hér á sýningunni. Eitt sinn sá ég fugl í garðinum heima sem ég hafði aldrei séð þar áður og þurfti líka að láta greina fyrir mig, þetta var glóbrystingur, en þeir eru algengir flækingar hér á landi. Ég hef ekkert verið að elt- ast við flækinga, ég vil frekar ná góðum myndum af algengum fuglum. Ef einhver spennandi eða óvenjulegur fugl verður á vegi mínum, þá tek ég auðvitað mynd.“ Árni segist fyrst hafa heillast af fuglum þegar hann vann sem ungur maður hjá Orkustofnun. „Ég var í tíu ár í mælingum þar vegna kortagerðar og var mikið uppi á heiðum. Þá þurfti gott skyggni til að geta mælt yfir langar vegalengdir, stundum þurfti ég að bíða hálfan dag eftir mælingaskil- yrðum, og þá hafði ég ekkert annað að gera en liggja í sjónaukanum og drekka í mig náttúruna. Þá sá ég atferli fuglanna, til dæmis sá ég svartbak sveima yfir þar sem æðar- fugl var að stinga sér á kaf eftir æti, hann réðist að honum þegar hann kom upp og stal af honum æt- inu. Kjóinn gerir þetta líka, hann er sniðugur og snöggur og ræðst að öðrum fuglum á flugi til að ná af þeim æti. Tíminn er fljótur að líða þegar maður fer að fylgjast með svona atvikum.“ Samhæfður paradans Árni segir að ýmislegt hafi komið honum á óvart í hegðun fuglanna. „Til dæmis er hettu- mávurinn, sem mörgum þykir leið- ur fugl, með skemmtilegt háttalag á vorin þegar hann parar sig. Hann dansar og reigir sig með miklum látalátum. Flórgoðinn hegðar sér líka sérkennilega þegar hann fer að gera sér hreiður. Þá nær parið í gróðurtægjur niður á botn í vatni og rífur upp, dansar svo með þess- ar tægjur fullkomlega samhæfðan dans. Þau dansa líkt og þau hlaupi um vatnið. Þetta er alveg ótrúlegt sjónarspil. Mér hefur líka komið á óvart hversu séðir fuglar eru, þrösturinn er til dæmis lunkinn með ormana. Ég hef séð þröst ham- ast við að draga upp orma og leggja þá frá sér einn og einn á meðan hann veiðir fleiri. Hann safnar þeim í hrúgu og flýgur svo burt með nefið fullt af öllum þess- um ormum. Ég náði mynd af máríuerlu með hundrað flugur eða svo í gogginum í einu. Tjaldurinn með sitt langa nef virðist vita hvar hann eigi að stinga því til að sækja sér fæðu, hann veit nákvæmlega hvar er veiðivon. Fræðingarnir eru með kenningar um að fuglar heyri í ormum í jörðinni.“ Lóan þykist vængbrotin Árni segist einnig heillaður af því hvernig farfuglar komast hing- að í norðrið um langan veg, sumir alla leið frá Afríku. „Spóinn flýgur í einni lotu frá Gíneu-Bissá sem eru þúsundir kíló- metra. Ég hrífst af því hvernig fuglarnir lifa af við ótrúlegustu að- stæður. Mér finnst magnað að minnsti fugl Evrópu, glókollur, sé heimilisfastur hér, hann er agnar- smár, nánast eins og stór randa- fluga. Hann hefur mögulega fokið hingað í ákveðnum veðurskilyrðum fyrir tuttugu árum og hann hefur fjölgað sér ágætlega hér á landi og heldur sig gjarnan í barrtrjánum. Fuglar eru sumir svo skrýtnir og skemmtilegir, ég hef til dæmis hrif- ist af þúfutittlingnum, hann er svo smár og syngur mikið og fallega. Hann er mjög duglegur og algeng- asti fuglinn á Íslandi,“ segir Árni, sem gefur fuglum að éta þar sem hann er með athvarf í sveitinni í Ölfusi. „Ég hef gaman af því að lifa og hrærast með þeim og fylgjast með atferlinu. Lóan er til dæmis skond- in þegar hún þykist vera væng- brotin til að draga athyglina frá hreiðri eða ungum þegar mannfólk kemur of nærri. Ég fæ fiðring á vorin um leið og ég frétti að fyrsti farfuglinn sé kominn til landsins, leikurinn í ungviðinu er fallegur og ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með hvað ungarnir eru fljótir að læra það sem fyrir þeim er haft,“ segir Árni, sem ætlar að halda ótrauður áfram að fylgjast með fuglum og mynda þá. „Ég ætla að fara að Mývatni í sumar og skoða endur sem ég hef ekki áður séð.“ Klókur fugl Maríuerla með óteljandi flugur í goggi sínum. Ástardans Hettumávar fetta sig og bretta til að heilla. Ljósmyndir/Árni Árnason Glókollur Minnsti fugl Evrópu er heimilisfastur á Íslandi. Heillaður af fuglum himinsins Hann fékk áhuga á fugl- um þegar hann sem ung- ur maður var við mæl- ingar vegna kortagerðar uppi á heiðum. Árni Árnason fær fiðring á vorin um leið og hann fréttir að fyrsti farfuglinn sé kominn til landsins. Morgunblaðið/Eggert Fuglaljósmyndari Hér má sjá Árna ásamt nokkrum af þeim 40 fuglamyndum sem eru á sýningu hans hjá Ófeigi. Sýning Árna, Sumargestir, stendur yfir í Listhúsi Ófeigs til og með 17. júní, opið frá kl. 9 til 18 alla daga nema sunnudaga. Allar myndirnar eru til sölu. LC02 hægindastóll Leður – Verð 319.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.