Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 18

Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS Öruggur og nettur verðmætaskápur fyrir heimili. 3 - 8 stafa aðgangskóði ásamt lyklum ef rafhlöður skildu klárast. Innbyggð 130 dB bjalla fer í gang ef rangur aðgangskóði er notaður oftar en þrisvar. VERÐMÆTASKÁPUR Hæð (cm) Breidd (cm) Dýpt (cm) Ytra mál 25 35 25 Innra mál 24,2 34 20 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Kærumálum sem berast til úr- skurðarnefndar um upplýsingamál hefur fjölgað mikið á síðustu tveimur árum. Árið 2017 bárust nefndinni 72 kærur en tvöfalt fleiri árið á eftir, eða samtals 146 kæru- mál, og í fyrra fjölgaði þeim enn frekar en þá fékk nefndin 191 kærumál til meðferðar. Flestar voru kærurnar frá einstaklingum, eða 116. Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu Katrínar Jakobsdóttur for- sætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga, sem lögð hefur verið fram á Alþingi. Kvað upp 90 úrskurði Nefndin kvað upp 90 úrskurði á síðasta ári, sem er metfjöldi frá því hún tók til starfa árið 1997, en árið 2018 kvað nefndin upp 57 úr- skurði. Úrskurðarnefndin fær fleiri mál en kærur til meðferðar á hverju ári, þ. á m. erindi frá umboðs- manni Alþingis, og voru í fyrra stofnuð alls 218 mál í málaskrá nefndarinnar. Fjölgaði þeim einnig verulega á milli ára. Fram kemur í skýrslunni að meðal kærumála sem nefndin fékk inn á sitt borð voru 15 kærur frá fyrirtækjum eða öðrum lögaðilum og 32 kærur bárust frá fjölmiðlum. Karlkyns kærendur voru 110 talsins en aðeins 6 konur voru á meðal kærenda. Nefndin kvað upp úrskurði í 84 kærumálum sem henni bárust í fyrra en þremur kærumálum var ólokið þegar skýrslan var samin. Meðferð mála hjá nefndinni tók svipaðan tíma í fyrra og á árunum þar á undan, eða 222 daga frá kæru til úrskurðar að jafnaði. „Í 25 úrskurðum af 90 úrskurð- aði nefndin um að veita skyldi að- gang, í heild eða að hluta, að gögn- um sem kæranda hafði áður verið synjað um aðgang að. Synjun var staðfest í 14 tilfellum, 17 málum var vísað heim til nýrrar afgreiðslu og 46 málum var vísað frá, ýmist í heild eða að hluta,“ segir í skýrsl- unni. Með lagabreytingum á undan- förnum árum hefur meðal annars verið hert á málsmeðferðartíma kærumála og á nefndin að birta úr- skurði um aðgang að gögnum eins fljótt og verða má, eða að jafnaði innan 150 daga frá móttöku kæru. Fram kemur í umfjöllun að undanfarin ár hefur málsmeð- ferðartíminn verið yfir þessum há- markstíma. Með styrkingu á starfsaðstöðu nefndarinnar sé þó stefnt að því að nefndin ljúki kæru- málum alfarið innan 150 daga. 72 107 94 88 72 146 191 Fjöldi kærumála til úrskurðarnefndar um upplýsingamál árin 2013–2019 Málshefjendur kærumála árið 2019 200 150 100 50 0 Einstaklingur, 116 Fyrirtæki, 15 Samtök, 28 Fjölmiðill, 322013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Samtals 191 kærumál 61%17% 14% 8% H ei m ild : fo rs æ tis rá ðu ne yt ið Kærumálum hefur fjölgað mikið á milli ára  Sex konur og 110 karlar sendu úrskurðarnefnd kærur Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjórnarráðið Sérstakur ráðgjafi um upplýsingarétt almennings tók til starfa í forsætisráðuneytinu 1. september á síðasta ári. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Borgin ætlar að bæta skilti og breyta hellulögn til að skýra betur fyrir ökumönnum að óheimilt sé að aka um göngugötur. Þetta segir Sig- urborg Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Eins og Morg- unblaðið greindi frá í vikunni hefur verið talsvert um bílaumferð um göngugötur og eru umferðarmerki eina hindrun þess að bílar geti keyrt um þær. „Við Skólavörðustíginn verður sett ný hellulögn og ný skilti í sam- ræmi við önnur göngugötuskilti þannig að þau eru lægri og meira áberandi og svo breytist hellulögnin og yfirborðið þannig að það á ekkert að fara á milli mála að rýmið er að breytast,“ segir Sigurborg. „Svo erum við að skoða Laugaveg- inn og hvernig við útfærum göngu- götuna þar. Það er hluti af stærri heildarmynd þar sem allar þver- götur eru opnar en Laugavegurinn langsum er göngugata.“ Útlit er fyr- ir að útfærslan á Laugaveginum verði svipuð þeirri á Skólavörðustíg og varanlegum skiltum verði komið upp þar, sambærilegum þeim sem er að finna í Austurstræti og á fleiri stöðum í Kvosinni, að sögn Sigur- borgar. Engin hlið í bili Í bili er ekki útlit fyrir að hliðum verði komið á sem hindra akstur bíla enda þurfa P-merkt ökutæki að geta keyrt um göngugöturnar. „Í Kaupmannahöfn eru engin hlið og það gengur bara ljómandi vel, það er enginn að aka inn á Strikið þar. Í Hollandi eru þeir ekki með hlið en þeir eru með skilti sem eru sambæri- leg göngugötuskiltunum okkar og svo eru þeir með myndavélaeftirlit. Við höfum ekki heimild til að gera slíkt hér á landi en það eru ýmsar aðrar leiðir færar en að setja hlið.“ Sigurborg segir skýrt í sínum huga að Laugavegurinn sé að verða að varanlegri göngugötu og stór hluti Kvosarinnar líka. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Austurstræti Skiltin sem komið verður fyrir verða svipuð þessu hér. Borgin ætlar að breyta merkingum  Hellulögn breytt og skilti gerð áberandi Þegar skólaganga unglinga við fram- haldsskóla hefst þurfa skólar að fá leyfi forráðamanna fyrir myndbirt- ingu, að sögn forstjóra Persónu- verndar, Helgu Þórisdóttur. „Þetta er í rauninni heimavinna skóla sem þarf að liggja skýrt fyrir,“ segir Helga og bætir við að skólar þurfi samþykki sjálfráða nemenda fyrir myndbirtingu jafnvel þó að fyrra samþykki foreldra hafi áður verið gefið. „Maður getur gefið sér að flestir vilji leyfa myndbirtingu, en það er skólans samt sem áður að vera með þetta á hreinu og fá leyfi, hvort sem það er fyrir myndbirtingu eða tilkynningu til fjölmiðla um t.d. ein- kunnir dúxa,“ segir Helga. Ný per- sónuverndarlöggjöf tók gildi í maí 2018 og hefur m.a. haft áhrif á skóla- starf á öllum stigum, m.a. á birtingu mynda af skólastarfi. „Þegar ný persónuverndarlög tóku gildi var uppi smá misskilningur innan skólakerfisins um hvað mætti og hvað mætti ekki. Almennt eru myndir sem lýsa einhverju sem er að gerast í skólastarfinu eitthvað sem er eðlilegt að sé birt. En að sama skapi er það heimavinna skóla að fá í upp- hafi skólastarfsins samþykki fyrst,“ segir Helga. Ólafur Hjörtur Sigur- jónsson, skrifstofustjóri Skólameist- arafélags Íslands, segir nokkuð hafa borið á umræðu meðal skólameistara um birtingu mynda í nýju lagaum- hverfi. Skólar séu að aðlaga sig nýj- um reglum og það taki tíma. Hvað varðar brautskráningar frá framhaldsskólum segir Ólafur um opinbera viðburði að ræða og því séu myndir af slíkum athöfnum birtar án sérstaks samþykkis þeirra sem á þeim eru. „Útskriftir eru opinberir viðburðir, það getur hver sem er komið á þá, þó alla jafna séu það að- eins aðstandendur, og á slíkum við- burðum má taka myndir og birta þær. Við höfum farið yfir þetta á okk- ar vettvangi og það á að vera allt í góðu,“ segir Ólafur. Hann segir að þegar nemendur vilji ekki birtast á myndum sé tekið tillit til þess. Þá sé beðið um leyfi þegar verið er að taka myndir af al- mennu skólastarfi þar sem ekki sé um opinbera viðburði að ræða. „Þetta er alltaf að verða strangara og strangara og við höfum rætt það hvort við ættum að fá leyfi forráða- manna þegar krakkarnir innritast, en að mér vitandi hefur enginn farið í það enn sem komið er, en við höfum verið að skoða það,“ segir Ólafur. Þurfa leyfi fyrir birtingu mynda  Lög setja myndbirtingum skorður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.