Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
SVIÐSLJÓS
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Norðmaðurinn rauðskeggjaði,
Kristofer Hivju, hefur vakið heims-
athygli fyrir túlkun sína á tvíbur-
unum Erik og Adam í norsku
spennuþáttunum Tvíburi eða Twin
sem sýndir hafa verið í tugum landa.
Hivju leikur eineggja tvíbura sem
eru býsna ólíkir í öllu nema útliti, á
meðan Adam er ábyrgðarfullur fjöl-
skyldumaður með eigið fyrirtæki er
bróðir hans einn af kantmönnum
lífsins, býr í hjólhýsi við ströndina í
Lofoten í Norður-Noregi og hefur
býsna ólíkan lífsstíl miðað við hvað
bróðir hans hefur tamið sér.
Jötnabani í Game of Thrones
Hivju er aðdáendum Game of
Thrones-þáttanna einnig að góðu
kunnur þar sem hann lék manninn
með hið eftirminnilega nafn Tor-
mund Giantsbane í þriðju til átt-
undu röð þáttanna. Hann hefur þó
komið mun víðar við í heimi leiklist-
arinnar og á að baki fjölda kvik-
mynda og þátta.
Kristofer Hivju er rétt rúmlega
fertugur, fæddur 7. desember 1978 í
Ósló þar sem hann ólst upp á Eke-
berg, austan til í höfuðborginni.
Leiklistin heillaði snemma og Hivju
lauk stúdentsprófi af leiklistarbraut
Hartvig Nissens-framhaldsskólans.
Þaðan lá leiðin í leiklistarnám í Det
statlige russiske akademi for teater-
kunst, elsta leiklistarskóla Rúss-
lands, sem stofnaður var árið 1878,
en Hivju lagði þó ekki leið sína til
austurveldsins heldur nam við útibú
skólans í Árósum í Danmörku.
Sníkjudýr af öðrum heimi
Árið 2008 lék hann í kvikmynd-
inni Rovdyr og fylgdi fjöldi annarra
í kjölfarið, svo sem Olav, kvikmynd
leikstjórans M. Night Shyamalan,
After Earth, og árið 2011 í kvik-
myndinni The Thing, þar sem sett
var upp forspil að kvikmynd Johns
Carpenters með sama nafni frá
árinu 1982, sem fjallar um sníkjudýr
af öðrum heimi sem leggst á hóp vís-
indamanna í rannsóknarstöð á Suð-
urskautslandinu og tekur gervi
þeirra, eins af öðrum.
Fékk kórónuveiruna
Myndinni frá 2011 leikstýrði hinn
hollenski Matthijs van Heijningen
Jr. og blandaði þar saman norskum
og bandarískum leikurum þar sem
sögusviðið var norsk rannsóknar-
stöð. Í nokkrum senum ræddu því
Hivju og fleiri norskir leikarar sitt
móðurmál þótt annað væri enska.
Hivju fór ekki varhluta af kórónu-
veirunni sem breytt hefur svo mörg-
um áætlunum heimsbyggðarinnar
það sem af er árinu 2020. Um miðj-
an mars tilkynnti leikarinn að hann
væri smitaður af veirunni. Þar með
fór öll fjölskyldan í heimasóttkví og
ýmislegt breyttist. Til stóð að hefja
tökur á annarri röð Netflix-þáttanna
The Witcher þar sem Hivju leikur
persónuna Nivellen og var því slegið
á frest meðan á sóttkví stóð.
Lenti í svikahröppum
„Við fjölskyldan verðum heima
þann tíma sem þetta mun taka,“
skrifaði Hivju á Instagram-síðu sína
en eiginkona hans er blaðamað-
urinn, leikstjórinn og handritshöf-
undurinn Gry Molvær og eiga þau
táningsdæturnar Noor og Sylju.
Í mars misnotuðu svikahrappar
nafn og persónu Hivju og reyndar
fleiri þekktra Norðmanna, þar á
meðal hótelkóngsins Olavs Thon,
Mortens Harket úr hljómsveitinni
A-ha og fleiri til að ginna fólk út í
fjárfestingar í ýmsum rafmyntum.
Var þar sett upp stórt og mikið við-
tal við Hivju, allt falsað frá grunni,
þar sem hann ræddi í löngu máli
hvernig hann hefði stórauðgast.
Sögur af ótrúlegum gróða
Viðtalið var á lýtalausri norsku og
látið líta svo út að það kæmi frá
norska ríkisútvarpinu NRK sem það
gerði þó ekki og sást þegar farið var
að rýna í vefslóðina. Var þar meðal
annars sagt frá því hvernig starfs-
maður NRK ákvað að reyna þessa
undrafjárfestingu og hóf leikinn
með lítilli upphæð sem svo gerði
ekkert annað en að vaxa næstu dag-
ana.
Norskir fjölmiðlar, þar á meðal
rannsóknarvefmiðillinn Faktisk,
birtu fljótlega í kjölfarið frásagnir
um að allt saman væri tóm tjara
sem dreift væri um Facebook-
síðuna FortLock og þar beitt þeirri
þekktu aðferð að framleiða efni sem
liti út fyrir að eiga rætur sínar hjá
trúverðugum fjölmiðlum þegar
sannleikurinn væri öllu dekkri.
Rauðskeggurinn sem sló í gegn
Kristofer Hivju frá Ósló hefur vakið heimsathygli Á að baki fjölda mynda og þátta Gekk í
elsta leiklistarskóla Rússlands, þó í Danmörku Fékk kórónuveirusýkingu og lenti í svikahröppum
Ljósmynd/NRK TV
Tvíburar Hinn norski Kristofer Hivju hefur marga hildina háð á leiklistarferli sínum og slær nú í gegn í Twins.
Vígalegur Hivju neyddist til að fresta tökum er hann sýktist af kórónuveiru.
Hæ sæti
– hvað vilt þú borða!
Bragðgott,
hollt
og næringar
ríkt
Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
SKOÐIÐ
NÝJA
NETVERSLUN
LAXDAL.IS
NÝJAR
SUMARLÍNUR
FRÁ GERRY WEBER & BETTY BARCLAY
10-
20%afsl.
Matur