Morgunblaðið - 11.06.2020, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hvítari tennur – bjartara bros
NuPearl®32x Advanced Teeth Whitening
er sérlega auðvelt í notkun.
Mjúkur sílikon gómur, Led ljós, hvíttunarefni og
hvíttunarpenni saman í kassa og svo er hægt að kaupa áfyllingar
Náttúruleg innihaldsefni og jurtir.
■ Getur hvíttað um allt að 8 tóna
■ Lýsir bletti á tönnum sem myndast með
árunum vegna kaffdrykkju, reykinga, víns ofl.
■ Öruggt fyrir glerunginn og extra milt vegna náttúrulegra
innihaldsefna og jurta.
■ Hentar einnig viðkvæmum tönnum
■ Mælt með af tannlæknum
■ Inniheldur ekki: latex, parabena, súlföt, natríum flúoríð,
Triclosan, PEG/PPG, Salicylate, gervi litar- eða
bragðefni og glúten.
Inniheldur ekki peroxíð og hentar því einnig vel fyrir viðkvæmar tennur.
Sölustaðir: Flest apótek & Fjarðarkaup.
Afurðaverð á markaði
9. júní 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 360,53
Þorskur, slægður 329,32
Ýsa, óslægð 347,17
Ufsi, óslægður 110,24
Ufsi, slægður 93,00
Gullkarfi 276,44
Blálanga, óslægð 243,00
Langa, óslægð 155,92
Langa, slægð 49,00
Keila, óslægð 45,16
Steinbítur, óslægður 94,06
Steinbítur, slægður 154,59
Skötuselur, slægður 518,93
Grálúða, slægð 550,00
Skarkoli, slægður 262,86
Þykkvalúra, slægð 442,43
Sandkoli, slægður 11,00
Bleikja, flök 1.442,00
Gellur 877,00
Hlýri, óslægður 128,00
Hlýri, slægður 157,66
Lúða, slægð 645,83
Skata, slægð 111,00
Stórkjafta, slægð 10,00
Undirmálsýsa, óslægð 132,22
Undirmálsýsa, slægð 141,00
Undirmálsþorskur, óslægður 153,08
Undirmálsþorskur, slægður 92,00
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Það er óhætt að segja að frystitog-
arinn Sigurbjörg ÓF hafi tekið
breytingum frá því að Rammi hf.
seldi hann til Noregs árið 2017. Sig-
urbjörg var talin eitt fullkomnasta
skip íslenska flotans þegar Slipp-
urinn á Akureyri afhenti skipið árið
1979, en það var leyst af hólmi af
Sólbergi ÓF sem er eitt tæknivædd-
asta skip flotans nú. Hins vegar er
tími Sigurbjargar ekki liðinn undir
lok að fullu, þar sem kaupandinn í
Noregi, Nordnes AS, hefur ákveðið
að breyta henni í stærsta tengil-
tvinnfiskiskip í heimi.
Ekki er mikið eftir af togaranum
gamla og hefur allt innvolsið og yf-
irbygging verið fjarlægð, aðeins
skrokkurinn hefur verið notaður í
smíði nýja skipsins Nordbas sem
vegur 1.180 brúttótonn og er 60,5
metrar að lengd og 10,3 metrar að
breidd. „Já, það má segja það,“ seg-
ir Chris Remøy, tæknistjóri útgerð-
arinnar Nordnes og verkstjóri þess
sem ekki er hægt að flokka sem
annað en nýsmíði, og hlær er hann
er spurður hvort um sé að ræða um-
fangsmikið verkefni.
Hann segir aðeins skrokkinn og
nokkur tæki hafa verið endurnýtt í
togarann Nordbas. Þá hafi hug-
myndin verið bæði að hanna og
smíða togara sem nýtir mun minni
orku en hefðbundnir togarar og
samhliða því hugsa til umhverfisins
og endurnýta stálið í Sigurbjörgu.
Stærsta batterí í fiskiskipi
Tengiltvinntæknin um borð í tog-
ara krefst þess að mikil orka sé til
40 ára togari verður hátækniskip
Norskir eigendur Sigurbjargar vildu
láta reyna á umhverfisvænni tækni
Þreytt Íslenska skipið var orðið 40 ára þegar það kom til hafnar í Noregi og hafði þjónað eigendum sínum með
sóma. Nýju norsku eigendurnir voru með fyrirætlanir um að veita skipinu nýtt líf, eða að minnsta kosti skrokknum.
Bylting Sigurbjörg ÓF er augljóslega óþekkjanleg núna, enda hefur henni verið breytt umtalsvert og ber skipið nú nafnið Nordbas. Um er að ræða stærsta tengiltvinnfiskiskip í heimi.