Morgunblaðið - 11.06.2020, Page 40

Morgunblaðið - 11.06.2020, Page 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 Vöxtur Frjálsa líf- eyrissjóðsins hefur verið mikill á liðnum árum. Sjóðurinn er nú fimmti stærsti lífeyr- issjóðurinn og stærsti séreignasjóður lands- ins. Frá árinu 2014 hefur sjóðurinn nær tvöfaldast, ávöxtun verið góð og sjóð- félögum fjölgað veru- lega. Síðastliðið ár var árangursríkt hjá sjóðnum, raunávöxtun fjárfest- ingarleiða var 3,4%-13,7%. Góð ávöxtun síðasta árs er eftirtektar- verð en þó má ekki gleyma að stundum gengur vel og stundum ekki eins vel. Í því samhengi þarf að horfa til árangurs yfir lengra tíma- bil en eins árs. Til að mynda var raunávöxtun Frjálsa 1, sem er stærsta fjárfestingarleið sjóðsins, síðastliðin 30 ár 4,7%. Eins og nafn sjóðsins gefur til kynna hafa sjóðfélagar val um að greiða í sjóðinn. Ekki er skylduaðild að sjóðunum heldur velja sjóð- félagar að greiða í sjóðinn. Sjóð- félagar Frjálsa hafa jafnframt at- kvæðisrétt á ársfundi sjóðsins. Frelsinu fylgir líka sá möguleiki að sjóðfélagar geta kosið með fótunum og þannig valið hvenær sem er að greiða annað og flytja séreign sína í annan sjóð. Fyrir stjórn, sem starf- ar í umboði sjóðfélaga, veitir þessi veruleiki mikið aðhald. Hlutverk stjórnar Stjórn lífeyrissjóðs ber lögum samkvæmt ábyrgð á starfsemi sjóðsins. Mikilvægasta verkefni stjórnar er að standa vörð um líf- eyrissparnað sjóðfélaga, ávaxta sparnaðinn með traustum hætti og greiða sjóðfélögum lífeyri. Ég tel það kost að samsetning stjórnar sé fjölbreytt og að baki sé breið þekk- ing og reynsla, en ekki síst er mik- ilvægt að hún sameinist í því að vinna að heildarhagsmunum sjóð- félaga. Þetta á líka við þótt allir séu ekki endilega alltaf sammála. Með öðrum orðum er mik- ilvægt að friður ríki um starfsemina til að hagsmuna sjóðfélaga sé sem best gætt. Við stefnumörkun lífeyrissjóða er rétt að horfa til lengri tíma eðli málsins sam- kvæmt. Allar meiri- háttar ákvarðanir í tengslum við starfsemi sjóðsins skulu teknar af yfirvegun og að vel ígrunduðu máli en ekki í fljótfærni með skammtímasjón- armið að leiðarljósi. Vegferðin síðasta ár Á árinu vann stjórn að stefnu- mótun sjóðsins til næstu fimm ára. Áherslumál eru meðal annars að stuðla að frekari stækkun sjóðsins og að lækka kostnaðarhlutfall með aukinni hagkvæmni, án þess þó að það komi niður á hag sjóðfélaga. Að leggja áfram áherslu á virka eigna- og áhættustýringu sem skilað hefur góðri langtímaávöxtun undanfarin ár. Þessu til viðbótar að nýta í ríkari mæli stafrænar lausnir til að þjón- usta sjóðfélaga og veita þeim sem kjósa sjálfsafgreiðslu kost á því. Stjórn sjóðsins hefur mótað sjóðn- um skýra stefnu í málefnum ábyrgra fjárfestinga og innleitt að- ferðafræði þess málefnis í alla starf- semi sína. Stjórn sjóðsins hefur einnig mótað sjóðnum hlut- hafastefnu og þannig staðsett sig sem ábyrgan hluthafa þeirra félaga sem sjóðurinn hefur fjárfest í. Nið- urstöður kosninga hverju sinni birt- ir sjóðurinn árlega á heimasíðu sinni. Stjórn Frjálsa hefur á starfsárinu unnið að því að hrinda í framkvæmd samþykktum síðasta ársfundar. Í því felst meðal annars að unnið hef- ur verið að innleiðingu rafrænna kosninga á ársfundum sjóðsins, með það að leiðarljósi að finna lausn sem tryggir öryggi kosninga, gerir fundi skilvirkari og ýtir enn frekar undir þátttöku sjóðfélaga. Vanda þarf mjög til slíkra kosninga, reynslan sýnir að upp geta komið hnökrar og skapast getur tortryggni varðandi slíkt kosningafyrirkomulag. Stjórn- in er einhuga um að rafrænar kosn- ingar verði valkostur framtíðar en vill þó á sama tíma tryggja að allir sjóðfélagar geti nýtt kosningarétt sinn. Á komandi ársfundi sjóðsins stendur til að kynna þessa vinnu og hvernig stjórn hyggst innleiða þetta fyrirkomulag. Framboð til stjórnar Undirrituð hefur verið stjórnar- maður í Frjálsa frá árinu 2013 og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum. Ég hef frá upphafi verið kosin af sjóðfélögum. Ég hef og mun ætíð starfa með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi auk þess að leggja mig fram um að stuðla að enn betri sjóði og auka þar með hag sjóðfélaga. Starf mitt í stjórn hingað til hefur verið mikil reynsla og gefandi veg- ferð, oft á tíðum reynt á en ávallt hef ég í lok dags getað gengið sátt frá borði með mín verk. Ársfundur sjóðsins verður hald- inn þriðjudaginn 23. júní næstkom- andi. Að þessu sinni fer fundurinn fram í Silfurbergi í Hörpu. Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til áfram- haldandi setu í stjórn sjóðsins til næstu þriggja ára. Ég tel mig verð- uga til þessa verkefnis. Ég vil halda áfram að gæta hagsmuna sjóðfélaga þannig að ávöxtun sparnaðar þeirra til langs tíma muni standa undir líf- eyrisskuldbindingum og þannig tryggja þeim lífeyri þegar að út- greiðslu kemur. Ég hvet sjóðfélaga til að mæta á ársfundinn, kynna sér rekstur sjóðsins á árinu og ekki síst nýta atkvæðisrétt sinn. Hagsmunir sjóðfélaga ætíð í fyrirrúmi hjá Frjálsa Eftir Önnu S. Halldórsdóttur » Frá árinu 2014 hefur Frjálsi lífeyrissjóðurinn nær tvöfaldast að stærð, ávöxtun verið góð og sjóðfélögum fjölgað verulega. Anna S. Halldórsdóttir Höfundur er sjóðfélagi og stjórnar- maður í Frjálsa lífeyrissjóðnum. Undanfarið höfum við Íslendingar verið minnt á hversu stórt vandamál smit- sjúkdómar geta verið en eftir öflugt heilsu- verndarstarf síðustu aldar hefur fennt yfir minningar okkar um hættulega sjúkdóma. Í byrjun mars í fyrra kom upp berklasmit í skóla í Reykjavík. Berklar eru sjúkdóm- ur sem var skæður hérlendis og á árunum 1911-1925 voru þeir al- gengasta dánarorsök Reykvík- inga. Fræðsla, hreinlæti og smit- varnir skiluðu nokkrum árangri en bylting varð þegar berklalyfin komu um miðja síðustu öld. Um árabil voru berklar svo ekki vandamál fyrr en með tilkomu fjölónæmra berklabaktería. Það verður að taka því af fullri alvöru þegar berklasmit finnst og það var gert í þessu tilfelli. Allir í skólanum voru berklaprófaðir, bæði nemendur og starfsfólk, alls 300 manns. Hjúkrunarfræðingar og annað fagfólk í heilsugæslunni stökk fyrirvaralaust úr sínum daglegu störfum til að leysa þetta mikilvæga verkefni. Nokkrum dögum síðar greind- ust mislingar á Íslandi. Mislingar eru mjög smitandi veirusjúkdóm- ur, sem getur verið hættulegur og jafnvel valdið dauða. Sem betur fer hefur verið bólusett fyrir hon- um í nokkra áratugi og að jafnaði er sjúkdómurinn ekki til staðar hérlendis. Mislingar eru hins veg- ar landlægir í mörgum löndum og reglulega koma upp mislingafar- aldrar erlendis þar sem þátttaka í bólusetningum er minni. Þarna kom mikilvægi bólusetn- inga berlega í ljós. Undanfarin ár hefur því miður borið á því að foreldrar hafni bólusetningum en margir þeirra gerðu sér nú grein fyrir alvöru málsins. Í dag eru sem betur fer um 95% barna á Ís- landi bólusett við mislingum og fólk því vel varið. Nú sýndi heilsugæslan styrk sinn til að bregðast við yfirvof- andi mislingafaraldri. Samkvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis var skipulagt átak til að bólusetja börn sex til átján mánaða, sem ekki voru búin að fá reglubundn- ar bólusetningar, ásamt því að bólusetja þá sem voru óbólusettir. Heilsugæslustöðvar voru opnaðar um helgar og verkefnið sett í al- gjöran forgang um nokkurra vikna skeið. Mikið álag var einnig við að aðstoða fólk við að fletta upp hvort það hefði verið bólu- sett. Þarna voru rafrænar skrán- ingar á bólusetningum, sem eru m.a. á mínum síðum Heilsuveru, ómissandi. Nú á fyrri hluta ársins 2020 hefur komið í ljós að mislingarnir og berklasmitið voru einungis smá áminning um það hversu al- varlegir smitsjúk- dómar geta verið. COVID-19 barst til landsins í febrúar og nú er engin bólusetn- ing til að bjarga. Þrátt fyrir að sjúk- dómurinn sé nýr hef- ur heilsugæslan tekist á við bæði fuglaflensu og svínaflensu á síð- ustu áratugum og við- bragðsáætlanir til sem hægt var að upp- færa. Gömlu smit- varnirnar sem voru notaðar í bar- áttunni við berklana, fjarlægð og hreinlæti, nýttust vel í baráttunni. Sem betur fer eru til próf til að kanna hvort fólk sé sýkt og gera þá viðeigandi ráðstafanir til að hindra frekara smit. Þarna kom heilsugæslan til sög- unnar og tók sýni hjá ein- staklingum með einkenni sem bentu til COVID-19-sýkingar. Fyrirkomulag sýnatökunnar sýndi aðlögunarhæfni heilsugæslunnar. Til að lágmarka smithættu fyrir aðra skjólstæðinga og draga úr þörf á sótthreinsun húsnæðis voru sýni tekin utanhúss og í bílastæ- ðakjöllurum, skjólstæðingar fóru ekki út úr bílum sínum. Snjór og rok var engin hindrun, út kom starfsfólk heilsugæslu í grænum hlífðarfatnaði með veirupinna á lofti. Styrkur heilsugæslunnar kom ekki síður í ljós í samkomubann- inu þegar gerðar voru ráðstafanir til að vernda starfsemi heilsu- gæslustöðvanna. Starfsfólki var skipt í tvo hópa sem hittust ekki til að minnka áhættu á að loka þyrfti stöð ef smit kæmi upp. Annar hópurinn var á stöðinni og hinn vann heima á meðan. Starf- semi heillar stofnunar var því flutt á heimili starfsmanna og hluti þjónustunnar veittur í gegn- um síma og net. Þetta var því ákveðið afturhvarf til upphafs læknisþjónustu á Íslandi þegar þjónustan var veitt af heimilum héraðslæknanna. Í dag er ársfundur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem við tölum um þessa viðburðaríku tíma og líka um öll venjulegu verkin sem varð áfram að vinna meðan allt þetta gekk á. Heilsugæslan hefur sýnt hvers hún er megnug og er tilbúin fyrir áskoranir sem smitsjúkdómar framtíðarinnar bera í skauti sér. Heilsugæslan og smitsjúkdómar Eftir Sigríði Dóru Magnúsdóttur Sigríður Dóra Magnúsdóttir »Heilsugæslan hefur sýnt hvers hún er megnug undanfarið ár þegar við höfum verið minnt á hversu alvar- legir smitsjúkdómar geta verið. Höfundur er framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Frábært tilboð fyrir þig! 30% afsláttur af 4 skiptum í Húðþéttingu Húðþétting meðferð er áhrifaríkasta meðferðin sem býðst á markaðnum til að þétta slappa húð. g Örvar kollagenframleiðslu húðar Húðþétting Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.