Morgunblaðið - 11.06.2020, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
Veiðivefur
í samstarfi við
Stjórnendur útvarpsþáttanna Ís-
land vaknar og Síðdegisþáttarins
ætla að gerast ferðamenn í eigin
landi og ferðast um landið með
hlustendum í sumar en næsti
áfangastaður K100 er Snæfells-
bær.
Í beinni frá Ólafsvík
Dagskrá K100 á morgun, föstu-
daginn 12. júní, verður öll úr hjól-
hýsi sem verður staðsett á Ólafs-
vík en þangað munu koma ýmsir
góðir gestir af svæðinu.
Morgunþáttur stöðvarinnar, Ís-
land vaknar, með þau Jón Axel,
Kristínu Sif og Snæfellinginn Ás-
geir Pál innanborðs, hefst stund-
víslega klukkan sex að morgni.
Fréttirnar verða á sínum stað og
verður sérstaklega fjallað um það
helsta sem er að gerast á svæðinu
og Síðdegisþátturinn með þeim
Loga Bergmann og Sigga Gunn-
ars mun skoða hvað gerir Snæ-
fellsbæ að áhugaverðum stað og
eftirsóknarverðum til að heim-
sækja, starfa á og búa á.
Ekki til fallegri sveit
„Það er mikil tilhlökkun í okkur
að fara á Snæfellsnesið. Ég á
sjálfur ættir að rekja þangað og
hlakka til að sýna starfsfólki K100
heimahagana. Ég fer vestur eins
oft og ég get til að hlaða batteríin
enda er það mín skoðun að fallegri
sveit sé ekki til,“ sagði Ásgeir Páll
í samtali við K100.is og Morgun-
blaðið.
„Við fáum til okkar skemmtilega
viðmælendur í hjólhýsið og í raun
er erfitt að velja úr þeim aragrúa
fólks frá svæðinu sem hefur frá
mörgu áhugaverðu að segja. Það
er því ljóst að engum ætti að leið-
ast að hlusta á útsendinguna okk-
ar frá Snæfellsbæ á morgun,“
sagði hann.
Mikil tilhlökkun að
heimsækja Snæfellsbæ
Útvarpsstöðin K100
ætlar að kynnast land-
inu betur í sumar og
kynna þá stórkostlegu
staði sem eru í boði fyrir
landsmenn innanlands.
Á föstudaginn verður öll
dagskráin í beinni frá
Snæfellsbæ.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við elskum Ísland Hjólhýsi K100 verður í beinni frá Ólafsvík í Snæfellsbæ
á morgun með Sigga, Loga, Jóni Axel, Ásgeiri Páli og Kristínu Sif.
Snæfellingur Ásgeir Páll hlakkar
til að heimsækja heimaslóðirnar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fegurð Bærinn Ólafsvík er stærsti þéttbýliskjarninn í Snæfellsbæ.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Hann er svo sprækur og annan
hvern dag minnum við hann á: Þú
ert að verða 97 ára, Páll. Mundu það.
Þá vill hann fara upp á einhver fjöll
til að sjá betur yfir,“ sagði Albert en
fjölskyldan var stödd í Húsafelli þeg-
ar Ísland vaknar heyrði í honum þar
sem þeir prófuðu nýju Giljaböðin
sem þar eru. Fyrir hafa þremenn-
ingarnir farið víða, meðal annars til
Víkur í Mýrdal, í Reynisfjöru, á Sel-
foss, í Hvalfjörð og í Flatey auk
fjölda annarra staða en fylgjast má
með ferðalagi þeirra á vefsíðu Al-
berts, alberteldar.com.
Gott að hafa veðurfræðing með
„Það er stórkostlegt að hafa hann
[Pál] með. Hann er eins og alfræði-
orðabók. Bæði fróður um söguna og
svo spáir hann svo mikið í jarðlög og
hvar jöklar voru og í skýjafarið og
veðrið. Það er mjög gott að hafa
verðurfræðing með sér í ferðum,“
bætti Albert við.
„Hann er af þeirri kynslóð að hann
kann að lesa í skýin, sem við kunnum
ekki neitt. Þannig að hann er alltaf
með fréttir um hvað er í vændum.
Eru blikur á lofti?“ sagði hann.
Mánuður í viðbót
Stefna þremenningarnir á að
ferðast um landið í mánuð í viðbót.
Spurður hvort hjónin ætluðu að
„keyra gamla manninn út“ svaraði
Albert kíminn í bragði að það gæti
allt eins farið á hinn veginn, að hann
keyrði þá út, en hann segir tengda-
föður sinn afar nýjungagjarnan og
sprækan.
Ljósmyndir/Aðsendar
Ferðalangar Þremenningarnir Albert, Bergþór og faðir hans Páll fóru
meðal annars að Húsafellshellunni og reyndu þar krafta sína.
Hress Páll, sem er á 97. ári, er afar sprækur en hér rólar hann sér í Flatey.
Ferðast með
tengdó á
tíræðisaldri
Matreiðslumaðurinn Albert Eiríksson ferðast nú
vítt og breitt um landið ásamt eiginmanni sínum
Bergþóri Pálssyni og tengdaföður, Páli Bergþórs-
syni veðurfræðingi, sem er að verða 97 ára gamall.
Albert ræddi við morgunþáttinn Ísland vaknar á
K100 um ferðalagið í vikunni.
Hjón Giljaböðin við Húsafell slógu heldur betur í gegn hjá ferðalöngunum.