Morgunblaðið - 11.06.2020, Síða 48

Morgunblaðið - 11.06.2020, Síða 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 ✝ Geir Torfasonfæddist 26. nóvember 1940 í Reykjavík. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspít- alans við Hring- braut 26. mars 2020. Foreldrar hans voru Torfi Jó- hannsson versl- unarmaður, fædd- ur í Ólafsvík 22. febr. 1905, d. 24. júlí 1970, og Hrefna Geirsdóttir húsmóðir, fædd í Vestmannaeyjum 7. des. 1913, d. 13. sept. 1995. Kona Geirs er Ingveldur Ingólfs- dóttir, fædd 7. mars 1944. For- eldrar hennar voru hjónin Ing- ólfur Ólafsson verslunarmaður, f. 24. mars 1921, d. 17. nóv- ember 1966 og Guðlaug Hulda Guðlaugsdóttir húsmóðir, f. 28. júlí 1921, d. 25. febrúar 2005. Geir ólst upp á Ásvallagötu 26 í Reykjavík en svo flutti fjölskyldan að Hraunteig 19. Hann gekk í Mela- skólann, Vestur- bæjarskólann og fór síðan í Versl- unarskóla Íslands, þar sem hann lauk verzlunarskóla- prófi vorið 1959. Eftir það fór hann í nám í þýsku til Hamborgar og svo í enskunám í London. Geir starfaði lengst af hjá Loftleiðum/Flugleiðum/ Icelandair í Reykjavík og New York. Hann lauk starfsferli sín- um hjá Icelandair sem inn- kaupastjóri fyrir félagið og vann eftir það við fjármála- stjórn og bókhald hjá Landa- kotsskóla. Útförin fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag, 11. júní 2020, klukkan 13. Geir Torfason, svili minn, lést eftir stutta sjúkrahúslegu í mars síðastliðnum. Ég þekkti Geir í meira en hálfa öld eða frá því að ég kynntist og kvæntist Kolbrúnu, systur Ingveldar, eiginkonu Geirs. Fjölskyldan var samrýnd og varla leið sú vika að fjölskyldan kæmi ekki saman og alltaf var Geir þar með hlýju viðmóti og áhuga á öðru fólki. Geir var einbirni og átti ekki börn en hann var barngóður og þótti vænt um öll frændsystkini sín. Faðir Geirs, Torfi Jóhanns- son, var virtur verslunarmaður í Reykjavík. Móðir Geirs, Hrefna Geirsdóttir, lifði eiginmann sinn í áratugi og ávallt var mjög kært milli þeirra mæðgna og Hrefna var ávallt ómissandi hluti af fjöl- skyldu Ingveldar. Geir vann lengst af hjá Loft- leiðum þegar það félag var og hét undir forystu manna eins og Al- freðs Elíassonar og fleiri frum- kvöðla. Geir og Ingveldur Ingólfs- dóttir voru gift í nær 55 ár og er sár missir að Geir fyrir Ingu, en svona er lífið. Enginn fær lengri jarðvist en örlögin vilja og því skiptir máli að nýta þann tíma vel. Geir gerði það og vann störf sín af kostgæfni. Þau Inga unnu meðal annars í nokkur ár í New York, hann hjá Loftleiðum og hún hjá ís- lensku utanríkisþjónustunni. Geir hélt áfram vinnu hjá Flugleiðum og Icelandair, fyrirtækjunum sem byggðu á grunni Loftleiða, uns hann settist í helgan stein. Geir var félagslyndur, spilaði bridge með vinum sínum í áratugi, hafði skoðanir á flestu milli himins og jarðar og hafði gaman af því að ræða þjóðmál. Fjölskyldan var dugleg að fara saman í ferðir í sumarbústað og veiði og Geir var mjög áhugasamur um laxveiði og í einni af sínum fyrstu veiðiferðum, þá sem ungur maður, fékk hann 22 punda lax í Soginu og víst er að ekki hafa margir slegið honum við í því. Geir þótti vænt um dýr og þau Inga áttu hund í áraraðir. Í fornum sögum er stundum talað um drengi góða og vart var hægt að hrósa einstaklingum meira en með þeim orðum. Þau eiga vel við Geir Torfason. Hann var drengur góður. Geir var trú- aður og merkilegur atburður átti sér stað nokkrum vikum áður en hann dó en þá sagðist hann hafa séð móður sína í eldhúsinu í húsi þeirra Ingu á Seltjarnarnesi. Ekki var mikill gaumur gefinn að þessu þá en eftir á séð er víst að móðir hans hafi þar vitjað hans og boðið hann velkominn. Hann er nú í faðmi Guðs og foreldra sinna og það er huggun aðstandenda hans í þessum sára missi. Megi algóður Guð halda verndarhendi yfir Ingv- eldi. Ágúst Einarsson. Góður félagi og vinur, Geir Torfason, er fallinn frá. Vinskapur okkar hófst fyrir lið- lega 60 árum þegar við vorum samtímis í Versló. Við skemmtum okkur saman í glöðum vinahópi, kynntumst lífinu og tókum virkan þátt í því sem það hafði upp á að bjóða. Á þessum árum var ég að nokkru heimagangur á fallegu heimili foreldra Geirs hjá þeim sæmdarhjónum Hrefnu og Torfa. Á því heimili mætti maður ávallt einskærri hlýju og vinsemd. Mér er minnisstætt þegar við félagarn- ir Geir og Konráð heitinn Bjarna- son ákváðum að taka okkur á og lesa saman fyrir lokaprófin, enda ekki vanþörf á. Við hófum daginn á að fara í sund saman í Laug- ardalslaug sem var í næsta ná- grenni við heimili Geirs. Fórum síðan í te og ristað brauð hjá Hrefnu. Eftir það var haldið til vinnu og lestrar í rúmgóðu for- stofuherbergi sem Geir hafði til umráða. Mikið skelfing var gott að sofna eftir sund og góðan morg- unverð. Eftir Verzló fór Geir til Bret- lands til að sækja sér frekari þekkingu. Síðan hóf hann störf á skrifstofu Loftleiða, fyrst í Reykjavík og þá í New York þar sem hann dvaldi í allmörg ár. Ég kom við hjá Geir þegar ég átti er- indi til Bandaríkjanna. Mér er minnisstætt þegar hann bað mig að koma á skrifstofu Loftleiða í N.Y. í lok vinnutíma. Hann ætlaði að fara með mig á nokkra veit- ingastaði, en þetta reyndist ekki verða neitt venjulegt pöbbarölt heldur leiddi hann mig inn á nokkrar jassbúllur þar sem spiluðu fimm eða sex þekktustu djassleikarar Bandaríkjanna á þeim tíma. Allt var þetta þræl- skipulagt, pottþétt og ógleyman- legt, þannig var Geir Torfason. Eitt af því sem við tókum okkur fyrir hendur á verslunarskólaár- unum var að við félagarnir stofn- uðum bridgeklúbb. Það varð ekki síst til þess að tengja okkur vina- böndum því sá klúbbur hefur haldist gangandi í meira en sex áratugi. Þegar best lét var spilað vikulega á tveimur borðum. Í tím- ans rás hefur félögum fækkað, gengið til feðra sinna. Spilaklúbb- urinn hefur þróast með þeim hætti að það er ekki aðalatriðið að spila heldur að hittast. Geir hafði oftlega frumkvæði að því að við hittumst og var því gjarnan byrjað á haustin með því að spila heima hjá honum. Nú erum við spila- félagarnir einungis fjórir eftir. Í huga okkar var Geir snyrtimenni og hreinn ljúflingur í allri um- gengni. Félagi sem manni hlaut að þykja vænt um. Hans verður sárt saknað af okkur félögum hans. Geir kvæntist eftirlifandi eigin- konu sinni, Ingveldi Ingólfsdóttur. Milli þeirra ríkti ást og virðing. Mér verður hugsað til þess hversu oft Geir talaði um konu sína fullur af stolti og væntumþykju yfir öllu sem hún hafði fram að færa. Við samhryggjumst Ingu og hennar fólki vegna fráfalls góðs vinar. Örlygur Geirsson. Elsku Geir. Það er með söknuði sem ég rita þessa hinstu kveðju til þín. Maðurinn hennar Ingu frænku, Inga og Geir, þið sem haf- ið fylgt mér alla ævina en nú ert þú allt í einu horfinn á braut og Inga er bara Inga. Það er skrýtið og mun taka tíma að venjast. Við fjölskylda Ingu urðum fjölskyldan þín og Hrefnu, yndislegu mömmu þinnar, á meðan hún var á lífi. Fal- lega íbúðin ykkar Ingu á efstu hæðinni á Meistaravöllunum var mitt annað heimili á uppvaxtarár- um mínum. Ótal heimsóknir, jóla- og áramótaboð og íbúðarpössun með mömmu á meðan þið Inga skruppuð til Bandaríkjanna. Það var ævintýri líkast því ég gat Geir Torfason ✝ Þórður Mark-ús Þórðarson byggingartækni- fræðingur fæddist 8. júlí 1946 í Reykjavík. Hann lést 29. maí 2020 á heimili sínu á Sel- fossi eftir langvar- andi veikindi. For- eldrar hans voru Þórður Jasonarson húsameistari, f. 11. maí 1907, d. 1. september 1980, og Jónína Þórðardóttir húsmóðir, f. 2. febrúar 1912, d. 28. nóvember 1998. Systir Þórðar var Auður, f. 5. októ- ber 1942, d. 13. janúar 1973. Eiginkona Þórðar er Jenný Einarsdóttir, þau giftu sig 14. júní 1969. Börn þeirra eru: 1) Rakel, f. 5. apríl 1972. Eig- inmaður hennar er Vigfús Eyj- ólfsson og börn þeirra eru Þórunn Vaka, f. 21. janúar 2006, Sóley, f. 9. apríl 2008, og Kári, f. 15. nóvember 2013. 2) Auður Ýr, f. 20. júní 1974. Eiginmaður henn- ar er Gísli Páll Hannesson og börn þeirra eru Tómas Aron, f. 19. ágúst 2003, og Karen Ósk, f. 8. febrúar 2006. 3) Margrét, f. 27. júní 1981. 4) Þórður Jason, f. 22. apríl 1988. Þórður var menntaður húsasmíðameistari og bygg- ingartæknifræðingur. Hann starfaði einnig sem ráðgjafi og hélt ýmis námskeið. Útförin verður frá Háteigs- kirkju í dag, 11. júní 2020, klukkan 15. Það er komið að kveðjustund. Frændi minn Þórður Markús er fallinn frá eftir löng og erfið veik- indi. Ég get ekki minnst hans án þess að hugsa til heimilisfólksins á Háteigsvegi 18. Mikill kærleik- ur var á milli fjölskyldna okkar alla tíð og töluðu foreldrar mínir um þau öll af innilegri hlýju og þakklæti. Þegar pabbi var í iðn- námi í Reykjavík bjó hann á Há- teigsveginum í tvo vetur við gott atlæti. Eftir að foreldrar mínir fóru að búa austur á Selfossi var oftar en ekki komið við á Há- teigsveginum þegar fara þurfti til Reykjavíkur, en þau Jóna og Þórður voru einstaklega gestris- in. Það var aldrei neitt til sparað þegar gesti bar að garði og heim- ilið var einstaklega fallegt. Ég leit mikið upp til stóra frænda míns sem þá var orðinn ungling- ur og ekki var Auður systir hans í minna uppáhaldi hjá mér. Á þessum árum átti fjölskylda Þórðar Markúsar jörðina Haga á Snæfellsnesi. Þar er stöðuvatn og djúpir lækir fyrir ofan bæinn þar sem nóg var af vænum sil- ungi. Þetta var mikill ævintýra- heimur í minningunni, enda ég með mikla veiðidellu. Rerum við út á vatnið og lögðum net, auk þess sem við veiddum á stöng í lækjunum. Magnús frændi var yfirleitt með í för og lærðum við margt hagnýtt í veiðimennskunni af frænda okkar. Mér er í fersku minni þegar Jenný og Þórður Markús gengu í hjónaband. Það er ekki vegna þess að ég stráklingurinn hafi verið viðstaddur, heldur vegna þess að foreldrar mínir fóru í brúðkaupið og notaði ég þá tæki- færið og stalst til að sigla niður Hávaðann í Ölfusá á gúmmíbát ásamt félaga mínum. Þetta var hin mesta svaðilför en við slupp- um blessunarlega með skrekk- inn. Þórður Markús var léttur í lund og mikill húmoristi. Eitt sinn bauð Magnús frændi honum og Sigga föðurbróður mínum í bílferð norður í land. Þá vildi svo vel til að ég var að leysa af á barnadeildinni á Sjúkrahúsinu á Akureyri og þótt ég væri á vakt kom ekki annað til greina en að við færum saman út að borða. Svo brá við að í miðri máltíð þurfti ég að fara til að vera við- staddur fæðingu. Barnið fæddist sprækt og voru þeir félagar hissa á því hversu fljótt ég var kominn til baka. Eins og búast mátti við hafði Þórður Markús eitthvað um þetta að segja og varð honum að orði: „Þetta kallast að taka á móti barni milli bita.“ Um leið og ég kveð góðan dreng vottum við fjölskylda mín Jenný og fjölskyldunni allri okk- ar dýpstu samúð. Þórður Þórkelsson. Vinátta okkar Þórðar Markús- ar hófst er eiginkonur okkar störfuðu saman hjá Sjóvá fyrir rúmum 50 árum, vinátta sem hef- ur haldist æ síðan þrátt fyrir að leiðir hafi skilið um nokkur árabil vegna starfa í aðskildum löndum. Þórður útskrifaðist stúdent frá MR 1967, húsasmiður 1968 og tæknifræðingur 1976. Hann vann samhliða námi bæði hjá föður sínum Þórði Jasonarsyni og tengdaföður Einari Ágústssyni, en þeir voru afkastamiklir bygg- ingameistarar á höfuðborgar- svæðinu. Síðar nam hann tré- skurð og gullsmíði. Sem tækni- fræðingur starfaði hann meðal annars hjá Trésmiðju Austur- lands á Fáskrúðsfirði, Iðntækni- stofnun, Húsasmiðjunni og við kennslu í verkstjórnun og ýmsu handverki. Þórður fæddist að Háteigsvegi 18, ólst þar upp ásamt eldri syst- ur sinni Auði (f. 1942, d. 1973) sem giftist skoskum manni og lést barnlaus þrítug að aldri. Kynni þeirra Jennýjar hófst í skátunum, þau gengu í hjóna- band 1969, hófu hjúskap í kjall- araíbúðinni að Háteigsvegi 18 en fluttu síðar á efri hæðir hússins. Þau eignuðust þar fjögur börn 1972 (Rakel), 1974 (Auður), 1981 (Margrét) og 1988 (Jason) en fluttu 2007 ásamt tveimur yngstu börnunum til Selfoss, þar sem elsta dóttir þeirra Rakel bjó ásamt fjölskyldu. Háteigsvegur 18 var tveggja hæða steinhús með ris- og kjall- araíbúð, byggt af föður Þórðar. Auk foreldra Þórðar, Þórður Jas- onarson (f. 1907, d. 1980) og Jón- ína Þórðardóttir (f. 1912, d.1998), bjó þar í risíbúðinni Margrét (Magga frænka, f. 1899, d. 1985), móðursystir Þórðar, sem ól þar upp Magnús Valdimarsson (Mangi, síðar lyfjafræðingur, f. Þórður Markús Þórðarson Eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, ANNA ELÍN HAUKDAL, Boðaþingi 22, Kópavogi, lést 8. júní á Hrafnistu. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kríulundar fyrir góða umönnun. Sigurður Haukdal Hólmfríður Haukdal Eðvald Smári Ragnarsson Benedikta Haukdal Runólfur Maack Anna Björg Haukdal Gísli Gíslason og aðrir aðstandendur Okkar besti vinur, eiginmaður, faðir, afi, bróðir og tengdasonur sem kenndi okkur svo margt, GUNNAR ÞÓR ATLASON, lést 6. júní, í faðmi fjölskyldunnar. Útför fer fram mánudaginn 22. júní klukkan 13 í Fossvogskirkju. Konný Þór Agnarsdóttir Kristján Lár Anna Guðlaug Agnes Heiður Hlynur Þór Ása Valdís Kristrún Bjarney Kristján Krummi Anna Sigga Ása Steinunn Atli Steinarr Guðlaug Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI MATTHÍAS SIGMARSSON skipstjóri, Vestmannaeyjum, lést á Landspítalanum laugardaginn 6. júní. Útförin fer fram frá Landakirkju þriðjudaginn 16. júní klukkan 14. Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir Sigmar Gíslason Ásta Kristmannsdóttir Katrín Gísladóttir Auðunn Arnar Stefnisson Benóný Gíslason Jóna Þorgerður Helgadóttir Grímur Þór Gíslason Ásta María Ástvaldsdóttir Gísli Matthías Gíslason Jóna Kristjánsdóttir Sigurður Friðrik Gíslason Berglind Sigmarsdóttir Frosti Gíslason Ingibjörg Grétarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI RAGNAR LÁRENTSÍNUSSON húsasmíðameistari, Skólastíg 14a, Stykkishólmi, lést á St. Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi 30. maí. Útför fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 13. júní klukkan 14. Athöfninni verður streymt í Íþróttamiðstöð Stykkishólms sem og á Youtube-rás Stykkishólmskirkju. Þeir sem vildu minnast Bjarna er bent á minningarsjóð Stykkishólmskirkju. Anna María Bjartmars Sólborg Olga Bjarnadóttir Bjartmar Bjarnason Guðrún Helga Gylfadóttir Unnar Freyr Bjarnason Anna Margrét Guðmundsd. Sigurður Ragnar Bjarnason Anna Sigríður Melsteð barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ALFREÐ ÞORSTEINSSON, fv. borgarfulltrúi og forstjóri, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 27. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 16. júní klukkan 15. Guðný Kristjánsdóttir Lilja Dögg Alfreðsdóttir Magnús Óskar Hafsteinsson Linda Rós Alfreðsdóttir Eysteinn Alfreð Signý Steinþóra Guðný Gerður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.