Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 49
dreift úr dótinu mínu og farið í bað
í baðkari. Ég minnist áramótanna
á Meistaravöllunum þegar þú
kenndir mér að skjóta upp flug-
eldum. Flugeldaáhugi kviknaði
þar og síðari árin á Melabrautinni
hef ég eiginlega séð um þau málin.
Ég minnist vínrauða Volvosins
sem þið áttuð til fjölda ára, það var
sport fyrir lítinn gutta að sitja á
miðpúðanum í aftursætinu á hon-
um, þá á þeim tímum sem notkun
bílbelta var ekki skylda. Þið hafið
ekki átt þannig séð marga bíla í
gegnum árin en þú hugsaðir alltaf
ákaflega vel um bílana ykkar, stíf-
bónaðir og vel með farnir.
Ég gerði mér snemma grein
fyrir því hversu vænt þér þótti um
vinnu þína í flugbransanum. Flug-
ið átt hug þinn og einatt bar það á
góma þegar við áttum spjall sam-
an. Sérstaklega þótti þér vænt um
Ameríkuárin þegar þið Inga
bjugguð í New York og þú vannst
hjá Loftleiðum. Þá ljómaðir þú all-
ur og sagðir sögur af dvöl ykkar
þar. Stundum sagðir þú sömu sög-
una aftur en það var bara allt í lagi
því það var greinilegt að þú naust
þessa tíma í botn.
Á Melabrautinni eignuðust þið
Inga annað fallegt heimili og
áfram var gott að koma til ykkar
þangað þótt fullorðinn ég væri og
fjölskyldu að mynda. Það var líka
þá sem Perla ykkar kom til sög-
unnar. Það skein í gegn hvað þér
þótti vænt um hana Perlu ykkar.
Ég sé þig fyrir mér labba með
henni út í bílskúr, teygja þig upp í
efstu hilluna eftir harðfiskpakka,
opna pakkann og gefa Perlu þinni
bita. Svo genguð þið saman inn, þú
settist í stólinn þinn í sjónvarps-
holinu, last ameríska vasabrots-
spennusögu með litla útvarpstæk-
ið við hlið þér og Perlan þín lagðist
á gólfið við hlið stólsins. Þannig
man ég þig best elsku Geir. Það
voru því erfiðar stundir að sitja
hjá þér með Ingu þinni og mömmu
minni síðustu andartökin á spítal-
anum í enda mars. En ég veit að
þú ert kominn á góðan stað með
mömmu þinni, pabba og Perlu og
bíður þolinmóður eftir elsku Ingu
þinni. Hvíl í friði elsku besti Geir.
Þinn vinur,
Ingólfur Már Ingólfsson
(Ingi Már).
1955, d. 2012), sonur systurdótt-
ur hennar, sem Þórður mun ætíð
hafa litið til sem yngri bróður.
Það var oft margmenni gesta
að Háteigsvegi 18, ættingjar
dvöldu þar oft um tíma, auk þess
sem gamlir skóla- og skátafélag-
ar, litríkur hópur ýmissa sam-
starfsmanna og aðrir vinir voru
þar tíðir veislugestir. Þórður
Markús, sem var vel gáfum
gæddur, fullur fróðleiks um allt
það sem sneri að hans sérgrein
og þar að auki um marga aðra
óskilda hluti, var á þeim stundum
óhræddur að tjá skoðanir sínar
um menn og málefni.
Þórður átti, eftir ítrekuð
hjartaáföll, lengi við heilsufars-
leg vandamál að stríða sem
leiddu af sér ýmsa aðra fylgi-
kvilla sem aftur leiddu til end-
urtekinna sjúkrahúsvista, en
hann komst ætíð heim á ný. Þrátt
fyrir að þessi heilsuvandamál
hefðu vissulega áhrif á bæði lík-
amlega og andlega líðan hans tók
hann þeim með æðruleysi og var
ætíð ótrúlega léttur í lund þegar
fundum okkar bar saman.
Fyrir tveimur árum fluttu þau
hjónin ásamt Jasoni í nýbyggt
parhús á einni hæð á Selfossi,
húsnæði sem hentaði betur
skertri hreyfigetu Þórðar. Hann
dvaldi síðasta árið í dagvistun á
vegum Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands á Selfossi, sem hann
hafði gagn og gaman af. Hann
var reyndar í dagsferð með þeirri
stofnun um slóðir ættmenna
hans í nágrenni Selfoss skömmu
áður en hann lést að heimili sínu
á Selfossi aðfaranótt 29. maí
2020. Með Þórði er horfinn kær
vinur sem er sárt saknað, blessuð
sé minning hans.
Kristjan Sigurðsson og
Sigrún Ósk Ingadóttir.
MINNINGAR 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
✝ Garðar Sig-urðsson fædd-
ist í Syðsta-
Hvammi í Vestur-
Húnavatnssýslu 6.
október 1924.
Hann lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Mörk 28. maí
2020.
Foreldrar Garð-
ars voru Margrét
Halldórsdóttir, f.
3.10. 1895, d. 22.4. 1983, hús-
móðir og Sigurður Davíðsson,
f. 13.9. 1896, d. 27.3. 1978,
kaupmaður á Hvammstanga.
Garðar var fjórði í röð sjö
systkina. Látin eru: Davíð, f.
1919, d. 1981, Anna, f. 1921, d.
1996, Gunnar Dal, f. 1923, d.
2011, Guðmann, f. 1928, d.
2004, Jón, f. 1930, d.2008,
Björn, f. 1935, d. 2018. Eft-
irlifandi er Soffía, f. 1929.
Barnabörn Elínar og
Garðars eru 16 og barna-
barnabörn 20.
Garðar ólst upp í Syðsta-
Hvammi og á Hvammstanga.
Hann var í Barnaskólanum á
Hvammstanga og stundaði
nám við Héraðsskólann á
Laugarvatni 1942-1944.
Hann hélt til Bretlands í
stríðslok og lauk prófi sem
atvinnuflugmaður frá The
Royal Aero Club í London
1947.
Hann stofnaði í félagi með
bróður sínum Davíð og Þórði
Júlíussyni Fiat-umboðið og
starfaði þar um árabil.
Garðar var mikill áhuga-
maður um laxveiði sem hann
stundaði bæði með fjölskyldu
og góðum vinum. Einnig spil-
aði hann bridds í áratugi og
stofnaði m.a. briddsdeild
eldri borgara í Kópavogi.
Garðar var góður hagyrð-
ingur og liggur eftir hann
mikið safn ljóða, m.a. Í ljóða-
bók er gefin var út 2014.
Útförin fer fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju í dag, 11.
júní 2020, klukkan 11.
Garðar kvæntist
Elínu Guðbrands-
dóttur, f. 17.1.
1921, d. 17.11.
2000, frá Sól-
heimum í Lax-
árdal, Dalasýslu,
húsmóðir.
Börn þeirra
eru: Helgi Eyjólfs-
son, f. 5.5. 1949,
kvæntur Sveindísi
Sveinsdóttur.
Dagur Garðars, f. 29.9.
1954, kvæntur Guðrúnu Sig-
urðardóttur. Guðrún Garðars,
f. 10.12. 1956, gift Guðmundi
Vikar Einarssyni. Margrét
Garðars Mölk, f. 11.9. 1958,
gift Rúnari Mölk. Guðbrandur
Garðars, f. 18.8. 1962, d. 17.1.
2017, kvæntur Helgu Maríu
Kristinsdóttur. Sigurður Garð-
ars, f. 3.1. 1964, kvæntur Sig-
rúnu Pétursdóttur.
Ég vildi að ég væri farinn
langt langt í burt
þar sem ekkert er um mig sagt
og aldrei um mig spurt.
Hvíla í mjúkum mosa
við hið milda stjörnuskin
með eilífðina eina
fyrir unnustu og vin.
Þannig komst Garðar Sig-
urðsson tengdafaðir minn að
orði fyrir tveimur árum og var
þegar sáttur að kveðja okkur.
Garðar fæddist í Syðsta-
Hvammi í Vestur-Húnavatns-
sýslu, sonur hjónanna Mar-
grétar Halldórsdóttur og Sig-
urðar Davíðssonar kaupmanns
á Hvammstanga. Baðstofuna
sem hann fæddist í er hægt að
skoða á Byggðasafni Húnvetn-
inga og Strandamanna við
Reykjaskóla í Hrútafirði.
Hann ólst upp á Hvamms-
tanga en fór 1942 í Héraðsskól-
ann á Laugarvatni.
Fyrir og eftir skólann starf-
aði hann til sjós en einnig hafði
hann áður unnið í svo kallaðri
Bretavinnu. Við lok seinni
heimsstyrjaldarinnar fór hann í
flugnám til Englands þar sem
hann lauk prófi í atvinnuflug-
mennsku 1947 og fékk flugskír-
teini í London hjá The Royal
Aero Club. Á Íslandi fékk hann
flugskírteini númer 80. Hann
starfaði aldrei sem flugmaður
eftir heimkomuna. Hann starf-
aði við verslunarstörf en síðar
stofnaði hann ásamt Davíð
bróður sínum og Þórði Júl-
íussyni Fiatumboðið og starfaði
þar í mörg ár.
Garðar giftist Elínu Guð-
brandsdóttur og eignaðist með
henni sex börn. Elín lést eftir
langvarandi veikindi í nóvem-
ber 2000.
Garðar var mjög öflugur í
því sem hann tók sér fyrir
hendur. Hann stundaði íþróttir
af krafti, fimleika sem ungur
maður og sund daglega í Sund-
laug Kópavogs meðan heilsan
leyfði. Stangaveiði átti hug
hans allan og hann var með ár
á leigu í mörg ár, m.a. Laxá í
Dölum. Þessari bakteríu smit-
aði hann til nánustu afkom-
enda. Þegar heilsan brast og
hann gat ekki veitt sjálfur varð
hann að fá fréttir daglega
hvernig fjölskyldumeðlimum
gengi við veiðina allt til hins
síðasta.
Hann stundaði bridds og
skák af kappi og stjórnaði þeim
félagsskap eldri borgara í
Kópavogi lengi vel.
Garðar var hagyrðingur og í
tilefni níutíu ára afmælis hans
var gefin út bók með ljóðum
hans. Til er mikill fjöldi af ljóð-
um, vísum og spökum eftir
hann.
Garðar var skemmtilegur
maður, glaður, traustur og
hafði skoðanir á flestum hlut-
um. Það gat verið skemmtilegt
að rökræða við hann. Hann var
alltaf til í að syngja og fara
með kvæði. Við kveðjum hann
með söknuði en um leið vitum
við að honum líður vel þar sem
hann er núna.
Við þökkum starfsfólki á
Hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir
frábæra umönnun.
Guðmundur Vikar
Einarsson.
Afi Garðar, sem ég er
skírður í höfuðið á, er látinn á
96. aldursári.
Ég man enn eftir þeim skipt-
um sem ég fékk að gista í
Hrauntungunni hjá ömmu Ellu
og afa Garðari. Sofa í „holunni“
eins og hún var kölluð, en það
var bilið sem myndaðist á milli
dýnu ömmu og afa þegar mað-
ur skreið upp í. Þarna lá maður
og hlustaði á afa segja söguna
af Búkollu af mikilli innlifun.
Ég náði því miður ekki að
hitta á afa í síðustu ferðum til
Íslands, en það var einmitt í
einni slíkri að ég kíkti heim til
hans og þá kom kveðskapur
hans til tals. Afi hafði nefnilega
ótrúlega gaman af ljóðum og
kveðskap. Á öllum mannamót-
um sem ég man eftir, sem og
við minni tilefni, voru aðilar
verðlaunaðir með frumsömdum
kveðskap, hvort sem þeim lík-
aði betur eða verr.
Afi minntist á það í þessari
heimsón að nú væri líklega
komið að seinni hlutanum hjá
sér, og það sem hann hefði allt-
af langað til að gera væri að
geta kallað sig skáld. Að hverfa
úr þessu veraldlega sem fyrr-
verandi verslunarmaður væri
lítið spennandi.
Við afi, ásamt Sússu systur,
gáfum því út ljóðabók í tilefni
af 90 ára afmælis afa. 90 tal-
entur, stökur og spökur eftir
Garðar Sigurðsson, skáld.
Minningin um afa mun lifa,
minning um góðan mann sem
kenndi mér meðal annars að
tefla.
„Hvar sem sönn ást ríkir í hjarta,
vex blóm eilífðarinnar.“
Sveinn Garðar Helgason
og fjölskylda, Lúxemborg.
Þá hefur þú loksins fengið
hvíldina elsku afi en ljúfar og
góðar minningar munu áfram
lifa. Veiðiferðir okkar eru of-
arlega í huga. Þú sýndir mér
þolinmæði og eyddir ófáum
tímum í að leysa flækjur á
girninu og kenna mér réttu
handtökin. Ferðin í Reykja-
dalsá stendur upp úr, ég var
sjö ára og þú harðneitaðir að
hjálpa mér að landa maríulax-
inum. Á seinni árum beiðst þú
eftir símtalinu til að fá veiði-
fréttir og til að gefa góð ráð.
Þú smitaðir mig af veiðibakt-
eríunni og ég er þakklátur fyrir
það.
Þá minnist ég heimsóknanna
á Kópavogsbrautina. Amma
Ella brosandi í hornglugganum,
kleinur og kaffi með nóg af
sykri til að bæla niður bragðið,
sundferðirnar og sagan af Loð-
inbarða Strútssyni sem pissaði
á gluggann. Á jólunum söngst
þú hástöfum með messunni sem
mér fannst fyndið sem krakka
en á fullorðinsárum vekur þessi
minning hlýju þegar kveikt er á
útvarpinu á aðfangadagskvöld.
Við áttum það sameiginlegt
að læra báðir atvinnuflug í
Bretlandi. Í náminu flaug afi
Tiger Moth-tvíþekju. Skírteini
hans var gefið út af Royal Aero
Club árið 1947, en frá þessum
skóla var fyrsta flug Bretlands
flogið árið 1909. Afi sýndi flug-
inu og vinnu minni mikinn
áhuga. Gaman var að deila sög-
um okkar á milli, hvernig flugið
var í gamla daga og hvernig
það hefur þróast til dagsins í
dag.
Ég er þakklátur að strák-
arnir mínir hafi fengið að kynn-
ast þér og átt með þér gæða-
stundir. Daníel Arnari finnst
erfitt að hugsa til þess að þú
sért farinn og vill helst að allir
lifi að eilífu. Ég mun sakna
hlátursins sem var svo smitandi
og samræðna okkar um laxinn
og flugið. Flugskírteinið sem
þú gafst mér mun áfram vera á
sínum stað í „kittinu“ mínu og
nærvera þín í háloftunum verð-
ur sterkari en áður var. Ég
enda þetta á þínum orðum sem
alltaf var svo notalegt að heyra
í lok hverrar samverustundar:
Guð veri með þér.
Guðmundur Þór
Vilhjálmsson.
Ég er svo heppin að hafa átt
þrjú pör af afa og ömmu. Afi
Garðar og amma Ella voru eitt
parið. Hjá þeim naut ég þess að
eiga góðar stundir, daga og
nætur. Minningin um okkur
Svenna bróður hjá ömmu Ellu
og afa Garðari í Hrauntungu
107 í Kópavogi eru margar og
hlýjar. Við fórum ansi oft inn í
Kópagarðar eins og við köll-
uðum það. Amma að stússa
eitthvað og dekra við okkur á
meðan afi var í vinnunni. Afi
Garðar með okkur í sögustund
en afi kunni margar skemmti-
legar sögur sem hann sagði
okkur af mikilli innlifun og
túlkun. Sögur af Búkollu, Loð-
inbarða Strútssyni sem pissaði
á gluggann, Fóu feykirófu og af
Ásu, Signýju og Helgu. Svo oft
sagði hann þessar sögur að ég
var farin að vita hvað kom næst
í sögunni en samt var alltaf
jafn skemmtilegt að heyra afa
fara með þær. Þegar ég varð
eldri fylgdist afi Garðar með
því sem ég tók mér fyrir hend-
ur og vissi alltaf hvað ég var að
gera á hverjum tíma. Í seinni
tíð þegar við heimsóttum hann,
hvort sem það var í Sunnuhlíð,
Brákarhlíð í Borgarnesi (þar
sem hann dvaldi um stund) eða
á Mörk, sagði hann okkur frétt-
ir af hinum barnabörnunum og
hvað þau væru að gera þá um
dagana, hann einhvern veginn
fylgdist með öllu og öllum.
Hann hafði líka gaman af að
rifja upp gamla tíma og segja
okkur frá. Afi Garðar var mikill
áhugamaður um ljóðlist og
hafði til margra ára ort ljóð og
spökur sem hann skrifaði aftan
á umslög og hélt vel utan um,
sem síðar voru færð í tölvu af
sonarsyni. Hann hafði átt sér
þann draum til margra ára að
gefa út ljóðabók með þessum
ljóðum. Hann minntist á þetta
við Svenna bróður sem tók
hann á orðinu og fékk mig í lið
við sig í að gera þennan draum
að veruleika. Þakkarvottur fyr-
ir allt það sem hann hafði gert
fyrir okkur. Útgáfan skyldi
verða að veruleika á 90 ára af-
mæli afa með 90 fyrstu ljóð-
unum. Ég fékk það verk að
vera ritstjóri verksins og
Svenni var útgefandi. Afi Garð-
ar hafði miklar og sterkar
skoðanir á því hvernig ljóða-
bókin skyldi vera og má þar
nefna brot bókarinnar, útlit
bókarkápu og leturstærð og
síðast en ekki síst bókartitl-
inum „Talentur, stökur og
spökur“. Það að hafa látið
draum afa Garðars verða að
veruleika er eitt af því mest
krefjandi sem ég hef tekið mér
fyrir hendur en á sama tíma
veitti það mér mikla ánægju og
gleði. Það var mín leið að
þakka þessum góða, ljúfa og
yndislega afa fyrir allt og allt.
Á aðfangadag síðustu jóla átti
ég með afa yndislega kveðju-
stund þegar ég kom á Mörk
með jólagjöf til hans og þegar
við vorum tvö eftir í herberginu
sagði hann við mig: „Ég vona
að þú berir gæfu til að verða
jafngömul og ég, en ég mun
ekki vera hér fyrir þig. En
vittu til, ég mun finna leið til
þess að vera með þér og fylgj-
ast með þér og þínum.“ Ég,
Steinn og börnin okkar þrjú
munum minnast afa Garðars
um ókomna tíð. Ég enda þessi
orð mín á tveimur mínum uppá-
haldsljóðum úr ljóðabókinni
hans:
Þú varst á vegi mínum, Drottinn.
Og vegur þinn varð hjarta mitt.
Nú er nóttin að hverfa mér sem
dagurinn.
Ef einhversstaðar er pláss fyrir mig.
Minnstu mín þá.
Súsanna María B.
Helgadóttir.
Það var ekki óalgengt ef far-
ið var heim á leið frá þeim
hjónum Garðari Sigurðssyni og
konu hans Elínu Guðbrands-
dóttur að Garðar laumaði að
gestunum svo sem einni eða
tveim vísum, sem áttu vísan í
samveru kvöldstundarinnar og
voru því eins „nýjar“ og hægt
var, oftast gamansamar, stund-
um jafnvel svolítið vinalega
stríðnar. Það var reyndar með
hreinum ólíkindum hvað þau
hjón kunnu af kvæðum og vís-
um alls staðar að, sem þó
þurftu að vera svo vel kveðnar
að þeim þætti þess virði að fara
með þær.
Konur okkar Garðars voru
langtímavinkonur og fyrst ég
og þá hann fylltum flokkinn.
Þeirra samverustunda er gott
að minnast, hvort sem var úr
fjölskylduheimsóknum eða frá
veiði- og hestaferðum, bæði
höfðingjar heim að sækja og
miklir öðlingar og síglaðir
ferðamenn.
Þeir bræður Garðar og
Gunnar Dal voru báðir ljóðelsk-
ir og kunnáttumenn um ljóða-
og vísnagerð. Það þurfti engum
að leiðast í þeirra félagsskap,
en Garðar átti sér aðra hlið,
sem var veiðiskapur og óvenju-
legir hæfileikar til sportveiði í
laxám og við silungsveiði ef svo
bar undir eða við „fiskeldi“ í
ám og veiðivötnum. Allt undir
formerkjum kunnáttumanns og
náttúruunnanda.
Garðar var lengi starfsmaður
SÍS við vélavarahlutavörslu og
–sölu og síðar í félagi við Davíð
bróður sinn o.fl. einn eigenda
og stjórnenda framsækins bíla-
umboðs og innflutningsfyrir-
tækis, en alltaf hann sjálfur án
vífilengja eða mannamunar,
það er gott að eiga slíka að vin-
um um skemmri eða lengri
tíma.
Í allmörg ár átti Garðar
veiðileyfi (2 st.) í Reykholts-
dalsá, Reykjadalsá svo sem hún
hét í okkar munni að gömlum
sið og þeirri veiði skiptum við
svo að Garðar sótti tvo eða þrjá
neðstu veiðistaðina, ég hefði
alla ána þar fyrir ofan fyrir
mig. Það gat verið æðilöng
ganga á stundum, oft góð veiði
og alltaf fallegt umhverfi og á
fallegum dögum dýrðleg úti-
vera með sólinni og skapara
alls sem er. Mér var oft ekki
ljóst hvor okkar naut daganna
betur, hvað sem allri veiði leið,
og þá gott að loknum löngum
degi að hitta þær stöllur Jó-
hönnu og Elínu í veiðihúsi við
sameiginlegar kræsingar og
vinaspjall.
Nú er Garðar allur, að hon-
um er sjónarsviptir, svo sem
allra góðra manna, þegar lokið
er farsælu ævistarfi. Við Jó-
hanna sendum öllum ættingjum
og ástvinum Garðars og Elínar
einlægar samúðarkveðjur og
góðar óskir. Sé vinur okkar
Garðar Sigurðsson kært kvadd-
ur.
Einar Birnir.
Garðar
Sigurðsson
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Sálm. 86.5
biblian is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744