Morgunblaðið - 11.06.2020, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 11.06.2020, Qupperneq 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 ✝ Ingibjörg S.Karlsdóttir fæddist í Reykja- vík 7. nóvember 1934, dóttir þeirra Karls Kristmanns og Fjólu Snæbjörns- dóttur. Inga lést 22. mars 2020 á Hrafnistu, Reykjavík. Til 10 ára ald- urs ólst Ingibjörg upp hjá ömmu sinni og afa, Jónínu Jónsdóttur húsmóður og Krist- manni Þorkelssyni stórkaup- manni, við gott atlæti á Selja- vegi 25, Reykjavík. Þá flutti hún til Vestmanna- eyja til föður síns, Karls, og stjúpmömmu, Betsýjar Gíslínu Ágústsdóttur (ætíð nefnd Stella). Karl lést af slysförum 1958 en Betsý lést 2016. Alls eignaðist Ingibjörg fimm samfeðra systkini: Viktoría, f. 1939, Kolbrún Stella, f. 1941, Kristmann, f. 1945, Ágúst, f. 1949 og Frið- rik, f. 1953. Einnig eignaðist Vestmannaeyjum, hjá tengda- foreldrunum, Þóru Valdimars- dóttur og Kristjáni Kristófers- syni. Skömmu fyrir fæðingu síns annars barns fluttu Inga og Jón til Reykjavíkur og áttu þar ætíð heimili upp frá því, lengstum á Rauðalæk 45. Inga hélt úti myndarheimili og þegar börnin uxu úr grasi fór hún einnig að sækja vinnu utan heimilis, fyrst í bóka- og ritfangaverslun Ísafoldar, en Jón var um langan starfsaldur verkstjóri og síðar prent- smiðjustjóri Ísafoldar. Inga og Jón voru ætíð mjög samhent. Barnabörnin nutu góðs af komum til afa og ömmu, ekki síst í sumarhúsi þeirra sem þau byggðu í Grímsnesi. Vinnusemi og sam- heldni Ingu og Jóns var aldrei meira áberandi en þegar þau keyptu bóka- og ritfangaversl- un í Grímsbæ, 1976, sem þau síðar ráku undir nafninu Embla í Drafnarfelli til 1994. Varð Embla sannkölluð fé- lagsmiðstöð fyrir jafnt unga sem aldna í hverfinu. Kvenfélagið Heimaey naut lengi krafta Ingu og var hún formaður þess um langa hríð. Bálför hennar fór fram 2. apríl og minningarathöfn fer fram í Fossvogskirkju í dag, 11. júní 2020, klukkan 15. Ingibjörg tvo hálf- bræður sammæðra. Eiginmaður og lífsförunautur Ingi- bjargar var Jón Kristjánsson, f. 26.2. 1929, d. 18.6. 1999. Börn þeirra eru: 1) Jón Ingi Jóns- son, f. 10.1. 1955, d. 17.1. 1955. 2) Karl Jónsson, f. 29.2. 1956. Maki, Guðrún H. Aðalsteinsdóttir, f. 24.3. 1958. Þau eiga 3 börn og 3 barna- börn. 3) Þóra Kristín Jónsdóttir, f. 16.7. 1957. Maki Grétar Við- ar Grétarsson, f. 23.3. 1972. Þau eiga eina dóttur. Fyrri maki Þóru, Einar Guðmunds- son, f. 12.9. 1956 og eiga þau 3 börn og 5 barnabörn. 4) Kristján Jónsson, f. 21.6. 1960. Maki Diljá Þórhalls- dóttir, f. 23.5. 1968. Kristján á einn son og Diljá tvær dætur. Fyrstu búskaparár Ingu (eins og hún var ætíð nefnd) og Jóns voru á Kirkjubóli, Allt hefur sinn tíma, upphaf og endi. Nú kveð ég elsku tengdamóð- ur mína, Ingibjörgu S. Karls- dóttur. Ég kynntist Ingu, eins og hún var kölluð, fyrir rúmlega 42 ár- um þegar leiðir okkar Kalla, elsta sonar hennar, lágu saman. Inga ólst upp í Vestmanna- eyjum og þar kynntist hún eig- inmanni sínum, Jóni Kristjáns- syni, sem lést 18. júní 1999. Þau hófu sinn búskap í Eyjum en fluttu til Reykjavíkur árið 1956 og bjuggu þar síðan. Inga var mikil félagsvera. Á yngri árum æfði hún handbolta með íþróttafélagi Þórs í Vest- mannaeyjum. Hún starfaði til margra ára með Kvenfélaginu Heimaey í Reykjavík. Við Inga náðum alla tíð mjög vel saman og átti fjölskyldan mín yndisleg ár með henni. Við fórum í margar ógleymanlegar ferðir jafnt innanlands sem ut- anlands. Inga og Nonni áttu í mörg ár athvarf í sumarbústað í Gríms- nesi. Þar nutu þau sín og áttu góðar stundir með okkur og barnabörnum sínum þar sem þau leiðbeindu börnunum bæði í leik og starfi. Inga amma var alltaf til í að fara í fótbolta eða leika í sandkassanum, sögðu börnin mín. Þegar við hjónin fluttum til Eyja í nokkur ár voru tengdafor- eldrar mínir svo dugleg að koma í heimsókn til okkar og ættingja sinna. Vestmannaeyjar áttu alla tíð sterk ítök hjá þeim hjónum og alltaf var talað um að fara „heim“ til Eyja. Eftir að tengdafaðir minn lést komst sú hefð á að Inga borðaði næstum alltaf hjá okkur á laug- ardagskvöldum. Ef hún var ekki mætt á réttum tíma spurðu börnin: hvar er Inga amma? Fyrir nokkrum árum greindist Inga með sjúkdóminn alzheimer sem tók þessa fallegu og sterku konu smátt og smátt frá okkur inn í fjötra óminnis og örygg- isleysis. Ég þakka minni yndislegu tengdamóður og vinkonu sam- fylgdina og góðu stundirnar sem ég og fjölskyldan mín áttum með henni. Blessuð sé minning hennar. Þín tengdadóttir, Guðrún (Gunna). Farsælu og góðu lífshlaupi minnar kæru frænku og vinkonu er lokið. Inga frænka sem hefur verið samofin lífi mínu alla tíð, stundum lítið og stundum mikið. Hún og Nonni komu oft á Selja- veginn til afa og ömmu, þar sem við fjölskyldan bjuggum. Á æskuárum er 10 ára aldursmun- ur mikill og ég man að ég gat setið og horft á Ingu, ég trúði því varla að ég ætti svona fallega og góða frænku. Og falleg var hún að innan og utan. Tíminn leið og með árunum minnkaði aldursmunurinn og varð að engu og við vorum í góðum samskipt- um. Fórum saman í utanlands- ferðir, m.a. til Spánar og Dan- merkur, og skemmtum okkur vel. Í nokkur ár spiluðum við, mamma, Veiga, Inga, Brynja og ég, brids á mánudagskvöldum. Þá var nú mikið hlegið og gant- ast og ekki alltaf farið eftir spila- reglunum. Móður minni þótti stundum full langt gengið í kæruleysinu og hallaði sér þá aftur á bak í stólnum, horfði yfir gleraugun á okkur og sagði „Segið mér konur, er þetta spila- klúbbur eða kjaftaklúbbur? Dan- merkurferðin okkar er heil saga út af fyrir sig. Þá höfðum við fjórar, ásamt Unni æskuvinkonu mömmu sem bjó í Kaupmanna- höfn, leigt okkur sumarbústaði á sitt hvorum staðnum úti á Jót- landi. Ég keyrði, Inga átti að vera á vegakortinu og hinar 3 á áttræðisaldri í aftursætinu. En verst var að Inga hafði gleymt lesgleraugunum sínum heima og sá lítið sem ekkert á kortið. Það kom nú ekki í veg fyrir það að hún þóttist vera að leiðbeina mér við aksturinn og einn daginn enduðum við t.d. á þýskri landa- mærastöð. Þá voru sko landa- mæri og ekki svo auðvelt að snúa við án þess að vilja fara inn í Þýskaland! Ég er sannfærð um að fáir hafi ekið og skoðað jósku heiðarnar eins mikið og við gerð- um þessa daga. Sannkölluð óvissuferð. En það var sko spilað á kvöldin! Spánarferðin gekk betur, enda mundi Inga þá eftir gleraugunum. En allt er í lífinu hverfult. Inga mín fékk þau örlög að veikjast af Alzheimersjúkdómn- um. Því miður var hún næstum horfin okkur áður en hún kvaddi. Það er erfitt að horfa upp á sína nánustu hverfa smátt og smátt inn í óminnisdalinn. Það er vond- ur dalur með engri undankomu. En alltaf kom fallega brosið hennar þegar maður kom í heim- sókn og hún strauk mér svo blíð- lega á kinn. Við áttum margar góðar samverustundir við að skoða gamlar myndir og fara í gönguferðir innanhúss eða úti. Að leiðarlokum er margs að minnast og margt að þakka. Tryggð hennar og elskulegheit við móður mína verða seint full- þökkuð. Ég kveð kæra frænku mína og bið henni blessunar á leið til nýrra heimkynna og trúi því að henni líði vel þar sem hún er nú. Hugur okkar Magnúsar er hjá öllum í stórfjölskyldu Ingu og við sendum ykkur inni- legar samúðarkveðjur. Edda. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Það er með trega og söknuði sem þessar línur eru settar á blað til minningar um Ingu systur. Hún er sú fyrsta sem kveður okkur úr sex systkina hópi. Það eru margar góðar og gleðilegar stundirnar sem við erum búin að eiga saman eftir lífsins vegi. Ég var nú aldeilis maður með mönn- um þegar ég fékk að fara einn með flugi frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur tíu ára gamall. Pabbi okkar var umboðsmaður fyrir Flugfélag Íslands og ég svo heppinn að Inga systir bjó þá í Skerjafirði og ég gat labbað heim til hennar. Ég fór í fyrsta og eina skiptið að sjá ballett með Ingu og Jóni. Það var í Þjóðleik- húsinu og ég man hvað Ingu fannst gaman. Við fórum Þing- vallahringinn í bílferð og ýmis- legt var brallað sem upp í huga minn kemur. Þegar við Kristín mín vorum farin að búa gistum við oft hjá Ingu og Jóni, þá kom- in á Rauðalæk 45 og Kalli, Þóra og Kristján, komin í heiminn og ekki minnkaði gleðin á heimilinu við það. Síðar ákveða Inga og Jón að stofna Bókabúðina Emblu, sem þau ráku í Grímsbæ og síðar í Breiðholti þegar þau fluttu þangað. Verslunarstörf áttu mjög vel við Ingu. Eftir að þau selja bókabúðina og Jón kveður þetta líf fer Inga að vinna í Fatabúðinni við Skóla- vörðustíg. Þangað var gott og gaman að koma og finna hvað henni fannst gott að vinna þar. Við hjónin nutum þess að ferðast með Ingu, það var alltaf glatt á hjalla og mikið hlegið. Við fórum m.a. með mömmu og Ingu hring- veginn og er þessi ferð ógleym- anleg. Ekki má nú gleyma systk- inapartíunum, sem við höfum skipst á að halda og skemmta okkur saman. Það urðu mikil straumhvörf þegar Inga greindist með alz- heimer-sjúkdóminn. Tilveran breytist og lífið tekur á sig ann- an lit en það var alltaf gott að koma til Ingu og við hjónin skynjuðum það að hún þekkti okkur og áttum við margar góð- ar heimsóknir til hennar. Tilver- an og tilgangurinn með þessari lífsgöngu okkar allra er undar- legt ferðalag. Bestu þakkir fyrir lífið sem við áttum saman. Við sendum Kalla, Þóru, Kristjáni og stór- fjölskyldunni allri, okkar innileg- ustu samúðar- og saknaðar- kveðjur. Kristín Bergsdóttir og Kristmann Karlsson. Hún amma mín var öðruvísi en aðrar ömmur. Hún var algjör harðjaxl en á sama tíma svo blíð og ljúf. Henni þótti fátt betra en að hafa barnabörnin sín í fang- inu. Fangið hennar var einhvern veginn svo stórt, hlýtt og þægi- legt. Ég man hvað ég upplifði mig alltaf örugga í fanginu henn- ar, mér leið eins og ekkert illt gæti náð mér. Amma og afi pössuðu okkur systkinin stundum þegar við vorum krakkar. Þá fórum við annað hvort og gistum í Norð- urfelli eða amma og afi komu og gistu hjá okkur í Hafnarfirði. Ömmu leið hvergi betur en á loftinu í Norðurfellinu eða í sumarbústaðnum í Grímsnesinu. Amma var mörgum hæfileik- um gædd og einn af þeim hæfi- leikum var eldamennska. Þegar hún kom að passa okkur í seinni tíð bað ég hana yfirleitt um að elda grillaðan kjúkling, einkum og sér í lagi til að „drekka“ sós- una sem hún bjó til með kjúk- lingnum. Amma og Nonni afi voru hjón sem ég hef alltaf litið upp til. Afi gjörsamlega dýrkaði ömmu og ég gleymi aldrei þeim allmörgu tilfellum þar sem afi dró ömmu á dans „gólfið“ upp úr þurru. Al- veg sama hvar þau voru stödd og hver fermetrafjöldinn var þá dönsuðu þau svo innilega og ást- fangin upp fyrir haus. Þannig mann langar mig að eignast, ein- hvern sem horfir á mig eins og Nonni afi horfði á ömmu. Amma var svona amma sem lék við okkur barnabörnin. Ég get ómögulega talið öll skiptin sem hún fór í fótbolta með okkur í Grímsnesinu, rólaði, mokaði, drullumallaði eða fór með okkur í leynigilið. Ég tala nú ekki um allar sundferðirnar sem við fór- um í saman. Ég vil meina að ég og amma höfum alltaf átt sérstakt sam- band. Ég gleymi til dæmis aldrei ferðinni okkar tveggja í Stykk- ishólm þar sem við sungum eyja- lög alla leiðina hástöfum. Ég þá 11 ára og amma 64 ára. Hún amma var sko alltaf til í að hlusta á eyjalög með mér og við gátum vel gert það klukkustund- unum saman. Nonni afi gaf ömmu hálsmen fyrir mörgum, mörgum árum síðan, sem amma gaf mér svo fyrir meira en 20 árum síðan. Þetta er steinn, handmálaður Inga. Ég mun aldrei gleyma því þegar Nonni afi var orðinn mjög lasinn og sá mig með hálsmenið á mér því viðbrögðin hans voru ógleymanleg. Ég mun bera þetta hálsmen stolt það sem eftir er og vonandi mun ég einhvern tímann geta arfleitt aðra Ingu að því. Amma var hörkutól, hávaxin og glæsileg kona. Ég man að ég hugsaði sem barn að þegar ég yrði stór ætlaði ég sko að verða eins og amma! Ég veit ekki hvort það hafi tekist til eða mun takast en það er ennþá eitt af lífsmarkmiðum mínum. Amma, ég vildi að þú vissir hversu vænt mér þykir um að heyra þegar fólk líkir mér við þig. Ég held að það sé eitt af stærstu hrósunum sem ég heyri. Elsku amma, ég var búin að undirbúa sjálfa mig fyrir brott- för þína í mörg ár vegna veik- inda þinna. Ég er samt langt frá því að vera tilbúin að kveðja þig. Minning þín mun ávallt lifa hjá mér og ég hugga mig við það að þú og afi eruð sameinuð á ný, ef- laust að dansa við vel valin eyja- lög. Ingibjörg Karlsdóttir (litla). Ingibjörg S. Karlsdóttir ✝ Ingólfur Skag-fjörð Hákonar- son fæddist í Reykjavík 9. janúar 1951. Hann lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Ási í Hveragerði 3. júní 2020. Foreldrar hans voru þau Hanna Skagfjörð, f. 1. jan- úar 1919, d. 2. sept- ember 1989, og Hákon Guð- mundsson, f. 2. mars 1918, d. 13. júní 1966. Systkini Ingólfs eru: Kristján, f. 1946, d. 2015, Emil Ingi, f. 1947, Jóhann, f. 1949, Hreinn, f. 1952, og Ingileif, f. 1954, d. 2017. Ingólfur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík, stærð- fræðideild, árið 1971. Hann hóf nám í læknisfræði en hvarf frá því sökum veikinda. Árið 1985 kvænt- ist Ingólfur Önnu Sigurðardóttur, þau skildu. Sonur þeirra er Hákon Varmar, f. 1986. Hann vann ýmis störf á sjó og landi, hér og er- lendis. Síðustu þrjá áratugi bjó hann á Dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Ási í Hveragerði og var mjög ánægður með þá bú- setu og leið þar vel. Útför hans fer fram í dag, 11. júní 2020 frá Hveragerðiskirkju og hefst kl. 14. Jarðsett verður að Kotstrandarkirkju. Það fór hver sína leið og þær voru margar. Sumar reyndust ófærur og aðrar hamingjuleiðir. Uppeldið var sem eldur á köflum og undan honum var ekki vikist og því ól hver sig upp sjálfur eftir upplagi og hugrekki. Einhvers staðar í djúpi minninganna er bróðir minn Ingólfur sem hinn vel gefni og viðkvæmi drengur, um margt dulur og ljúfur, en þó á stundum óþarflega ör, sem var kynfylgja föðurættar. Systkina- hópurinn var stór og það var rúmt ár á milli mín og Ingólfs og þó svo væri vorum við ekki mjög nánir sem börn. Kannski var það vegna þess að ég bjó við mikla nærsýni sem barn og sá ekki það sem hann benti á eða nefndi. Hann skildi ekki skilningsleysi yngsta bróðurins né hafði þolin- mæði gagnvart því. En Ingólfur var alla tíð röskleikamaður og var ekki að tvínóna við hlutina. Gekk í verk sem þurfti að gera – eins var með skólagöngu hans sem hann átti auðvelt með og var góður stærðfræðihaus. Hann hafði líka metnað sem reyndist honum stundum ofviða. Og kannski var það kveikja þess að hann missti heilsuna í blóma lífs- ins – og lífstaflið snerist harka- lega við. Hann hvarf mér sjónum í mörg ár enda þótt maður frétti af honum hér og þar og þá einum á ferð í sínum heimi. Síðan steig hann aftur inn á svið lífsins og virtist sæmilega tygjaður til lífs- baráttunnar. Í góðu jafnvægi í nokkur ár. En þá fór hann út fyr- ir sinn örugga ramma og vildi taka þátt í lífinu eins og annað fólk, eignast konu og heimili. Hver ræður sinni för og því var fagnað og þess beðið að allt færi vel. Og auðvitað umvafði ham- ingja hans hús þá en hún getur verið hverful eins og annað í líf- inu. Heilsan brast og um skeið var hann sem hver annar útilegu- maður. En lífið snerist honum svo aftur í hag og bauð honum tryggan samastað í tilverunni sem var Ás í Hveragerði. Og þótt ég sæti þar með honum vikulega í nokkur ár í kaffihúsinu Eden í Hveragerði í djúpri þögn hans fannst mér hann kunna að meta það enda þótt hann væri ekki tilbúinn að rjúfa þögnina. Svo gerist það einn daginn að hann vaknar. Smám saman. Þögnin víkur og hann lifnar sem blóm að vori. Enda má segja að næstu rúmu tveir áratugir hafi verið hans sumar. Hann naut lífsins, Ás var hans staður. Þar var hon- um trúað fyrir ýmsum verkum sem hann sinnti með alúð. Starfs- fólkið var honum kært sem og íbúar; hann þekkti fólkið allt með nafni og lét sér annt um það – og þar kom hans góða minni sér vel. Hann rækti og sambandið við systkini sín og systkinabörn með elskulegum hætti og fylgdist mjög vel með þeim og börnum þeirra. Sjálfum sér sinnti hann með löngum gönguferðum og nýtti hverja stund til sólbaða. En fortíðina geymdi hann sem fyrr í þögn sinni og þaðan bárust engin orð. Hann var vel á sig kominn en þegar dauðinn knúði dyra var það af fullum þunga. Ingólfur tók honum með æðruleysi og með orðum skáldsins „Kom þú sæll, þá þú vilt“. Stríðið var stutt, ein vika, enda hann ætíð röskur til verka. Guð blessi minningu míns góða bróður, og vaki yfir Ási í Hvera- gerði, þeim góða stað og því frá- bæra starfsfólki sem þar er. Hreinn S. Hákonarson. „Sæl Dóra. Ég minni á pítsuna á laugardaginn. Komist þið ekki?“ Svona hljómaði byrjunin á klassísku símtali frá Ingó frænda áður en rætt var um málefni líð- andi stundar. Í dag kveðjum við Ingó frænda. Þrátt fyrir að hafa ekki kynnst honum vel fyrr en við vorum komin á fullorðinsár höfðu regluleg símtöl við hann og pítsu- ferðir í Hveragerði fest sig í sessi hjá okkur öllum síðastliðin ár. Þetta voru afar ánægjulegar heimsóknir og tíðar og því þurfti að hafa mikla reglu og rútínu á hlutunum. Ingó sá um skipulagn- inguna og skráði hjá sér bæði hvenær og hverjir kæmu. „Sama gengi“ var hann vanur að segja um leið og hann minnti á í hvers boði pítsan væri, okkar eða hans, til skiptis. Ingó hafði mikinn áhuga á börnunum okkar og fylgdist vel með því sem var að gerast í þeirra lífi. Spurði út í sýningar og fótboltaleiki og vildi vita hvernig gengi. Hann hvatti þau áfram, styrkti og þegar kórónuveirufar- aldurinn stóð sem hæst póstlagði hann t.d. eina afmælisgjöf og fylgdi betur eftir en öll rakning- arforrit. „Gjöfin er komin Ingó.“ Hann svaraði: „Þú segir ekki!“ og heyrðist brosa út að eyrum. Í heimsóknum okkar í Hveragerði var alltaf endað á heimsókn í Ás þar sem börnin fengu að sjá bæði hænur og kisur. Ingó þótti vænt um Ás og talaði vel um starfs- fólkið og vini sína þar. Ingó fylgdist vel með og sagði okkur iðulega frá því sem var að gerast í Hveragerði. Honum fannst gaman að segja frá og oft hringdi hann líka til að spjalla eða jafnvel fá okkar álit á því sem var að gerast í fréttum. Hann hafði sterkar skoðanir og hikaði ekki við að segja hvað honum fannst. Hann hafði húmor og gantaðist við okkur en það gat þó þykknað í honum ef honum líkaði ekki svör- in sem hann fékk. Hann var ein- lægur við okkur. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast Ingó frænda og yljum okkur við skemmtilegar minningar um leið og við kveðjum hann. Halldóra Sigtryggsdóttir, Jóhanna Hreinsdóttir, Pétur Hreinsson. Ingólfur Skagfjörð Hákonarson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.