Morgunblaðið - 11.06.2020, Síða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir laust embætti skrifstofustjóra á nýrri skrifstofu loftslagsmála í ráðuneytinu.
Hjá ráðuneytinu starfar samhentur hópur starfsmanna á sex skrifstofum ráðuneytisins. Ráðuneytið leggur áherslu
á góðan starfsanda, góð starfsskilyrði og jafnræði kynjanna. Ráðuneytið hefur hlotið gæðavottun umhverfisstjórnunarkerfis
og jafnlaunavottun.
Umhverfis- og auðlindaráðherra skipar í embættið til fimm ára. Leitað er eftir leiðtoga til að stýra skrifstofu sem fer með
viðamikið samfélagslegt og alþjóðlegt verkefni sem varðar skuldbindingar stjórnvalda á sviði loftslagmála. Um er að ræða
embætti sem felur í sér mikil tækifæri til að hafa áhrif og vinna að þróun í átt að kolefnishlutleysi Íslands.
Um starf skrifstofustjóra:
Hlutverk skrifstofustjóra á skrifstofu loftslagsmála er að leiða starf skrifstofunnar undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra.
Skrifstofustjóri ber ábyrgð á að vinna að og framfylgja helstu áætlunum, stefnum og lögbundnum verkefnum stjórnvalda
á sviði loftslagsmála, í samstarfi við skrifstofur ráðuneytisins, önnur stjórnvöld og hagsmunaaðila.
Helstu verkefni skrifstofunnar eru:
• Framkvæmd verkefna á sviði loftslagsmála
• Innleiðing og framfylgd áætlana stjórnvalda á sviði
loftslagsmála, s.s. aðgerðaáætlunar, áætlunar um
aðlögun og vegvísi að kolefnishlutleysi
• Innleiðing löggjafar á sviði loftslagsmála
• Málefni loftslagsráðs og loftslagssjóðs
• Alþjóðastarf á málefnasviði skrifstofunnar
• Umsjón loftslagsteymis ráðuneytisins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun með meistaragráðu sem nýtist í starfi
• Þekking og/eða reynsla á málefnasviði skrifstofunnar
• Árangursrík reynsla af stjórnun og stefnumótun
• Leiðtogahæfileikar
• Hæfni til að leiða fólk til samvinnu og árangurs
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og góð kunnátta
í einu Norðurlandamáli
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og stutt kynningarbréf um ástæðu umsóknar auk upplýsinga um árangur sem
viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í embættinu. Hæfnisnefnd skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra
metur hæfni umsækjenda samkvæmt reglum nr. 393/2012 og skilar greinargerð til ráðherra.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní nk.
Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið uar@uar.is.
Nánari upplýsingar um starfið eru á Starfatorgi – starfatorg.is.
Upplýsingar um embættið veitir Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri
í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu (sigridur.arnardottir@uar.is).
Skrifstofustjóri
á skrifstofu loftslagsmála
Innflutnings- og sölufyrirtæki óskar eftir
að ráða starfsmann til bókhalds, innflutnings
og tollamála.
Um er að ræða vinnu við almennt bókhald,
afstemmingar og uppgjör. Ásamt vinnu við
pantanir, innflutning, samskipti við erlenda birgja,
tollskýrslugerð, umsjón talninga og fleira.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af sambærilegu starfi
• Góð tölvukunnátta
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Góð þjónustulund
• Reglusemi og góð ástundun
• Gott skipulag
• Góð íslensku og ensku kunnátta skilyrði
Um 100% starf er að ræða.
Einungis reyklausir einstaklingar eldri en 25 ára
koma til greina og þarf viðkomandi að hafa hreint
sakavottorð. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á
umsokn2020@gmail.com fyrir 15. júní 2020.
Bókhald og
innflutningur
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastjóri í eftirvinnslu myndbanda leggur
áherslu á að eiga gott og jákvætt samstarf við
starfsfólk í öllum starfseiningum skólans þar
sem þjónustulund er í fyrirrúmi. Verkefnastjóri í
eftirvinnslu myndbanda þarf því að hafa mikla
samskiptafærni, að geta unnið í teymi og hafa
ríkan vilja til að leiðbeina og aðstoða alla innan
Háskólasamfélagsins varðandi eftirvinnslu
myndbanda.
VERKEFNASTJÓRI
Í EFTIRVINNSLU MYNDBANDA
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Ráðið verður í starfið til eins árs. Gert er ráð fyrir að starfið hefjist í samráði við starfsmann.
Umsókninni skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá (CV) og sýnishorn af fyrri verkefnum.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá á: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_islands.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2020
Nánari upplýsingar veitir
Páll Ásgeir Torfason - pallasgeir@hi.is - 525 5486
Kennslusvið - Deild rafrænna kennsluhátta v/Suðurgötu 101 Reykjavík
Verkefnastjóri í eftirvinnslu myndbanda er starfsmaður deildar rafrænna kennsluhátta á
Kennslusviði Háskóla Íslands og sér um klippingu og eftirvinnslu á kvikmynduðu efni sem tekið er
upp fyrir kennslu og kynningar. Klippari skal hafa þekkingu og reynslu á sviði kvikmyndagerðar.
Hann sinnir nær allri eftirvinnslu á upptökum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi eða haldbær reynsla í eftirvinnslu
• Frumkvæði, sveigjanleiki og framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Þekking og reynsla af notkun helstu klippiforrita (s.s Final Cut Pro, Adobe
Premiere Pro og Davice Resolve) er æskileg
• Þekking á eftirvinnslu efnis, þ.m.t. hljóðvinnsla, litaleiðréttingar og
grafíkvinnsla er æskileg
• Reynsla af vinnslu á lifandi efni fyrir miðla (t.d auglýsingar, dagskráefni
og samfélagsmiðla) er æskileg