Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 57

Morgunblaðið - 11.06.2020, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 57 RAFMÖGNUÐ STÖRF Rafvirki/Rafveituvirki Um er að ræða fjölbreytt starf við að tryggja örugga afhendingu raforku á Íslandi. Starfsvettvangur er um allt land og starfsstöðvarnar eru í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum. Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun í rafvirkjun eða rafveituvirkjun • Æskileg reynsla af vinnu við háspennu • Sterk öryggisvitund • Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð • Metnaður og rík ábyrgðarkennd Starfs- og ábyrgðarsvið • Rekstur og viðhald á rafbúnaði í tengivirkjum (há- og lágspennubúnaði) • Þátttaka í framkvæmdaverkefnum við endurnýjun og nýbyggingar flutningsvirkja • Undirbúningur og frágangur verkefna á starfsstöð Aðstoð í mötuneyti Við erum að leita að jákvæðum og skipulögðum einstaklingi til að starfa í frábæra mötuneytinu okkar. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni innan mötuneytisins í samstarfi við matreiðslumenn og yfirmann mötuneytis. Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun sem nýtist í starfi, matartæknir kostur • Fyrri starfsreynsla úr mötuneyti • Þjónustulund • Nákvæmni Starfs- og ábyrgðarsvið • Aðstoð við matreiðslu • Undirbúningur matar- og kaffitíma • Tiltekt og framreiðsla matvæla fyrir fundi • Uppvask, frágangur og dagleg þrif á vinnusvæðum Umsóknarfrestur er til 14. júní 2020. Hægt er að hafa samband við Ólaf Kára Júlíusson, mannauðssérfræðing, mannaudur@landsnet.is til að fá nánari upplýsingar. Við leitum að fjölhæfu og framúrskarandi starfsfólki á vinnustaðinn okkar. Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is Hjúkrunar- og dvalarheimilið Naust á Þórshöfn óskar eftir hjúkrunarforstjóra til starfa sem fyrst Ákveðinn sveigjanleiki er á vinnutíma og þarf að vera möguleiki á að sinna bakvöktum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Á Nausti er rými fyrir 14 íbúar. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta-, samstarfs- og skipulagshæfni og hafa gaman af því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu. Íslenskukunnátta er nauðsynleg. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 26. júní nk. Nánari upplýsingar gefur Sólrún Arney Siggeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 846 3474 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is Við hlökkum til að heyra frá þér! Langanesbyggð leitar eftir áhugasömum hjúkrunastjóra Langanesbyggð er öflugt og vaxandi sveitarfélag með spennandi framtíðarmöguleika. Á Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskylduvænu umhverfi. Skólinn var endurnýjaður árið 2016 og er öll aðstaða og aðbúnaður til fyrirmyndar. Nýr leikskóli var tekinn í notkun haustið 2019. Gott íbúðarhúsnæði er til staðar og öll almenn þjónusta er á Þórshöfn. Á staðnum er gott íþróttahús og innisundlaug og stendur Ung- mennafélag Langaness fyrir öflugu íþróttastarfi. Mikið og fjölbreytt félagslíf er í byggðarlaginu. Samgöngur eru góðar, m.a. flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri. Í næsta nágrenni eru margar helstu náttúruperlur landsins og ótal spennandi útivistarmöguleikar, s.s. fallegar gönguleiðir og stang- og skotveiði. Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri, af báðum kynjum, með margs konar menntun og reynslu. Í samræmi við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera     ! Vantar þig fagmann? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.