Morgunblaðið - 11.06.2020, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 57
RAFMÖGNUÐ
STÖRF
Rafvirki/Rafveituvirki
Um er að ræða fjölbreytt starf við að tryggja örugga afhendingu raforku á Íslandi.
Starfsvettvangur er um allt land og starfsstöðvarnar eru í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun í rafvirkjun eða rafveituvirkjun
• Æskileg reynsla af vinnu við háspennu
• Sterk öryggisvitund
• Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
• Metnaður og rík ábyrgðarkennd
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Rekstur og viðhald á rafbúnaði í tengivirkjum (há- og lágspennubúnaði)
• Þátttaka í framkvæmdaverkefnum við endurnýjun og nýbyggingar flutningsvirkja
• Undirbúningur og frágangur verkefna á starfsstöð
Aðstoð í mötuneyti
Við erum að leita að jákvæðum og skipulögðum einstaklingi til að starfa í frábæra mötuneytinu okkar.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni innan mötuneytisins í samstarfi við matreiðslumenn og yfirmann mötuneytis.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi, matartæknir kostur
• Fyrri starfsreynsla úr mötuneyti
• Þjónustulund
• Nákvæmni
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Aðstoð við matreiðslu
• Undirbúningur matar- og kaffitíma
• Tiltekt og framreiðsla matvæla fyrir fundi
• Uppvask, frágangur og dagleg þrif á vinnusvæðum
Umsóknarfrestur er til 14. júní 2020. Hægt er að hafa samband við Ólaf Kára Júlíusson,
mannauðssérfræðing, mannaudur@landsnet.is til að fá nánari upplýsingar.
Við leitum að fjölhæfu og
framúrskarandi starfsfólki
á vinnustaðinn okkar.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Naust á
Þórshöfn óskar eftir hjúkrunarforstjóra
til starfa sem fyrst
Ákveðinn sveigjanleiki er á vinnutíma og þarf að vera möguleiki á að
sinna bakvöktum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga við
viðkomandi stéttarfélag.
Á Nausti er rými fyrir 14 íbúar. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt.
Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta-, samstarfs- og skipulagshæfni
og hafa gaman af því að umgangast eldra fólk.
Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu.
Íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 26. júní nk.
Nánari upplýsingar gefur Sólrún Arney Siggeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri í
síma 846 3474 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Langanesbyggð leitar eftir
áhugasömum hjúkrunastjóra
Langanesbyggð er öflugt og vaxandi sveitarfélag
með spennandi framtíðarmöguleika. Á Þórshöfn búa
um 400 manns í fjölskylduvænu umhverfi. Skólinn
var endurnýjaður árið 2016 og er öll aðstaða og
aðbúnaður til fyrirmyndar. Nýr leikskóli var tekinn í
notkun haustið 2019. Gott íbúðarhúsnæði er til staðar
og öll almenn þjónusta er á Þórshöfn. Á staðnum er
gott íþróttahús og innisundlaug og stendur Ung-
mennafélag Langaness fyrir öflugu íþróttastarfi.
Mikið og fjölbreytt félagslíf er í byggðarlaginu.
Samgöngur eru góðar, m.a. flug fimm daga vikunnar
til Reykjavíkur um Akureyri.
Í næsta nágrenni eru margar helstu náttúruperlur
landsins og ótal spennandi útivistarmöguleikar, s.s.
fallegar gönguleiðir og stang- og skotveiði.
Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri, af
báðum kynjum, með margs
konar menntun og reynslu. Í
samræmi við jafnréttisáætlun
Langanesbyggðar eru karlar
jafnt sem konur hvött til
að sækja um störf hjá
sveitarfélaginu.
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
!
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is