Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 11.06.2020, Blaðsíða 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2020 Skoðaðu glæsilegu sumartilboðin okkar á hotelork.is/tilbod Gisting í superior herbergi 3ja rétta kvöldverður á HVER Restaurant Morgunverðarhlaðborð 19.900 kr. fyrir tvo á virkum dögum 29.900 kr. fyrir tvo um helgar Hin sígilda gamanmynd Guðnýjar Halldórsdóttur, Stella í orlofi, verður endurfrumsýnd í endurbættri útgáfu annað kvöld, 12. júní kl. 20, í Smára- bíói. Aðstandendur myndarinnar hafa tekið hana í gegn, hreinsað bæði hljóð og mynd og segir í tilkynningu að myndin njóti sín nú ótrúlega vel á stórum bíótjöldum Smárabíós. Sérstök partíforsýning á myndinni verður í kvöld og fyrir sýninguna verður haldin spurningakeppni tengd myndinni og segir í tilkynn- ingu að frábærir vinningar verði í boði. Keppnin byrjar kl. 19 og mynd- in kl. 20. Stella í orlofi fjallar um Stellu og baráttu hennar við geðvonda karla, tryllt börn, alkóhólista, flugmenn, Lionsklúbbinn Kidda, danskar drós- ir og laxeldi, eins og segir á vefnum Kvikmyndir.is. Hlægileg Edda Björgvinsdóttir og Laddi kitla hláturtaugarnar í Stellu í orlofi. Hreinsuð Stella endurfrumsýnd Eins og nafnið gefur tilkynna er bókin Morð ermorð er morð glæpa-saga. Það væri hins veg- ar algjört glapræði að flokka hana sem hefðbundna glæpasögu, enda fellur hún býsna langt fyrir utan þann ramma þrátt fyrir að atburðir hennar hverfist um hugsanlegan glæp. Sögusvið bók- arinnar, sem er eftir höfundinn Samuel Steward, er frönsk sveit árið 1937. Skáld- in og parið Gert- rude Stein og Alice Toklas hyggjast njóta sumardaga í sveita- sælunni, fjarri skarkala stórborgar- innar en þær eyða vetrum í frönsku höfuðborginni. Vert er að taka fram að Steward var mjög góður vinur þeirra Stein og Toklas í raun og veru og kemur fyrir sem Johnny vinur þeirra í sögunni. Snemma hins væntanlega rólega sumars hverfur faðir Petit Pierre, gullfallegs garðyrkjumanns Stein og Toklas, en Toklas var síðust til að sjá til hans áður en hann hvarf. Stein og Toklas dragast því inn í leitina að föðurnum og eru skyndi- lega komnar í hlutverk áhuga- spæjara. Lengi framan af virðist lögreglunni ekkert ganga að leysa hið dularfulla mannshvarf og vænt- anlega algjör óþarfi að segja vænt- anlegum lesendum bókarinnar frá því hvort, og þá hvernig, málið leysist á endanum. Þrátt fyrir titil bókarinnar og það að atburðarásin snúist að mestu um mögulegan glæp eru hnyttnar samræður og áhugaverðar og misskrautlegar aukapersónur það sem tekur mest plássið og er hvað skemmtilegast að fylgjast með. Eins og áður kemur fram í þess- ari stuttu yfirferð er sögusvið bók- arinnar frönsk sveitasæla árið 1937. Þrátt fyrir að gerast fyrir „langa- löngu“ er um að ræða hinsegin sögu þar sem meirihluti persóna í bókinni er samkynhneigður. Þar er átt við Stein og Toklas, vin þeirra Johnny og aðra karla sem hann reynir að tæla til einnar nætur skemmtunar þar sem hann eyðir hluta úr sumri í franskri slökun. Útkoman úr öllu ofantöldu er býsna skemmtileg samsuða þar sem daglega lífið víkur að hluta fyr- ir sumarstörfum spæjara og lukk- uðum og mislukkuðum bólförum aðstoðarmanns þeirra. Endirinn er nokkuð óvæntur og áhugaverður, án þess að fara nánar út í þá sálma. Morð er morð er morð er tilval- inn lestur fyrir þá sem hyggjast leggja land undir fót í sumar, verða ekki bílveikir af lestri í bíl og eru ekki bílstjórar. Öðruvísi glæpa- saga í sumarfríið Glæpasaga Morð er morð er morð bbbnn Eftir Samuel M. Steward. Ari Blöndal Eggertsson þýddi. Hringaná, 2020. 176 bls. kilja. JÓHANN ÓLAFSSON BÆKUR Höfundur „Býsna skemmtileg sam- suða,“ segir rýnir um óhefðbundna söguna eftir Samuel M. Steward. Sambíóin munu sýna sex af kvik- myndum leikstjórans Christophers Nolans frá og með deginum í dag og fram til 22. júní í tilefni af því að nýjasta mynd hans, Tenet, verður frumsýnd í júlí. Í dag verður fyrsta kvikmynd Nolans um Leðurblöku- manninn, Batman Begins, sýnd og 12. júní er það framhald þeirrar myndar, The Dark Knight. Stríðs- myndin Dunkirk verður sýnd 15. júní og þriðja Batman-myndin, The Dark Knight Rises, verður sýnd á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Incep- tion verður sýnd tveimur dögum síðar og Interstellar 22. júní. Aðdá- endur Leðurblökumannsins geta fagnað innilega 17. júní því þá munu Sambíóin í Álfabakka sýna allar þrjár Batman-myndir Nolans í VIP-salnum. Hetja Leðurblökumaðurinn glímir við óþokkann Bane í The Dark Knight Rises. Myndir Nolans í Sambíóunum HBO Max-streymisveitan banda- ríska hefur tekið hina víðkunnu kvikmynd Gone With the Wind af dagskrá sökum þess hvernig mis- munun kynþátta birtist í myndinni. Í hinni háværu mótmælaöldu vestan- hafs síðustu daga, þar sem deilt er á framkomu við hörundsdökka og lög- regluofbeldi, var streymisveitan gagnrýnd fyrir að sýna kvikmyndina án skýringa á kynþáttamisréttinu. Gone With the Wind var gerð árið 1939 og var nefnd Á hverfanda hveli þegar hún var sýnd hér á landi. Myndin hreppti tíu Óskarsverðlaun en hún gerist að hluta á plantekru í suðurríkjum Bandaríkjanna á tím- um þrælastríðsins og hefur sú upp- hafning á þrælahöldurum sem þar birtist iðulega verið gagnrýnd. Er myndin tekjuhæsta kvikmynd allra tíma ef miðasölutekjur eru upp- reiknaðar til samtímans. Í yfirlýsingu frá talsmanni HBO sem fréttaveitan AFP birtir segir að kvikmyndin sé barn síns tíma og í henni birtist því miður sumir þeirra kynþóttafordóma sem hafi verið við- loðandi í bandarísku samfélagi. „Rasisminn sem þarna birtist var óverjandi þá og er óverjandi í dag og okkur þótti það ábyrgðarlaust að bjóða áfram upp á sýningar á kvik- myndinni án útskýringa og fordæm- ingar á kynþáttaofbeldinu,“ segir talsmaður HBO. Kvikmyndin verði aftur aðgengileg síðar og þá með út- skýringum á því sem hún fjallar um og kynþáttamisréttið sett í sögulegt samhengi. Myndin verði hins vegar ekki klippt upp á nýtt eða senur fjar- lægðar, því það væri að gefa í skyn að þessir fordómar hafi ekki fyrir- fundist, eins og segir í yfirlýsingu HBO. Höfundur handrits óskarsverð- launakvikmyndarinar 12 Years A Slave, John Ridley, skrifaði grein í Los Angeles Times í vikunni og sagði að taka yrði Gone With the Wind úr sýningu því sýnin í mynd- inni á samskipti kynþátta væri ekki bara ábyrgðarlaus heldur hunsaði hún hrylling þrælahaldsins og birti auk þess neyðarlegar birtingar- myndir brenglaðra staðalímynda af hörundsdökku fólki. Kvikmyndir og þættir hafa víðar verið fjarlægðir af streymisveitum þar sem efnið þykir ekki birta hör- undsdökka með sómasamlegum hætti. Til að mynda er BBC hætt að sýna gamanþættina Little Britain, þar sem í þeim séu senur þar sem hvítir leikarar bregði sér í hlutverk dökkra. „Tímarnir hafa breyst síðan þættirnir voru frumsýndir á BBC og þess vegna eru þeir ekki lengur að- gengilegir á BBC-spilaranum,“ segir í yfirlýsingu. Umdeild Húsmóðir og þræll í verðlaunamyndinni Gone With the Wind. Gone With the Wind úr sýningu  Birtingarmynd þrælahalds gagnrýnd Eins og flestar aðrar menningar- og afþreyingarstofnanir hafa kvik- myndahús farið illa úr úr Covid-19- faraldrinum. Hin umsvifamikla bandaríska kvikmyndahúsakeðja AMC mun hafa tapað um tveimur milljörðum dala á síðasta ársfjórð- ungi, meðan húsin hafa verið lokuð, en það er um 260 milljarðar króna. Í frétt The New York Times er fullyrt að byrjað verði að sýna kvik- myndir aftur í um níutíu prósentum kvikmyndahúsa úti um heimsbyggð- ina strax í næsta mánuði. Umfangsmiklir kvikmynda- framleiðendur vestanhafs hafa beðið með að setja fjölda mynda í sýningu en stefna nú á að hefja frumsýningar. Til að mynda verður ný spennumynd með Russell Crowe, Unhinged, frum- sýnd 1. júlí. Því er hins vegar ósvarað hvort fólk muni treysta sér í kvikmyndahús eins og áður, jafnvel þótt sætafram- boð verði takmarkað, snertifletir spritthreinsaðir milli sýninga og gætt að bili á milli gesta. Talsmaður ráðgjafarfyrirtækis í kvikmyndabransanum telur að vænt- anlegir gestir í kvikmyndahúsum vilji vera sannfærðir um að aðstæður séu öruggar og ekki hætta á smiti. Fulltrúar eigenda kvikmyndahúsa segjast þó vissir um að strangar sótt- hreinsi- og öryggisreglur í húsunum muni róa væntanlega gesti. AFP Útisýning Kvikmyndahús hafa ver- ið lokuð í Bandaríkjunum en sums staðar boðið upp á bílabíó. Bíóin víða í gang í júlímánuði  Gríðarlegt tap kvikmyndahúsa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.