Morgunblaðið - 11.06.2020, Síða 72
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 163. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Geta Selfyssingar ógnað stórveldunum í kvennafót-
boltanum og gert alvöru atlögu að Íslandsmeistaratitl-
inum í ár, eða heyja Valur og Breiðablik annað einvígi
um hann? Tekst Fylki að koma sér í hóp bestu liðanna
og nær breytt lið Stjörnunnar að halda sjó um miðja
deild? Fjallað er um þessi fimm lið í aðdraganda
Íslandsmótsins í blaðinu í dag. »62
Tekst Selfyssingum að ógna
Val og Breiðabliki?
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir
Sölumanni deyr eftir Arthur Mill-
er í nýrri þýðingu Kristjáns Þórð-
ar Hrafnssonar sem Borgarleik-
húsið frumsýnir í janúar 2021.
Með hlutverk Loman-hjónanna
fara Jóhann Sigurðarson og Sig-
rún Edda Björnsdóttir, en þau
fagna 40 ára leikafmæli á næsta
leikári. Meðal annarra leikara
eru Stefán Jónsson, Þorsteinn
Bachmann, Esther Talía Casey og Rakel Ýr Stefáns-
dóttir. Sölumaður deyr, sem er þekktasta leikrit Millers
og skilaði honum Pulizer-verðlaunum, er harmleikur
þar sem Willy Loman þarf að fara í erfiða sjálfsskoðun
og uppgjör við ameríska drauminn þegar honum er
sagt upp störfum sem sölumaður eftir áratuga starf.
Að lokum sér hann aðeins eina leið úr ógöngum sínum,
sem er að fremja sjálfsvíg dulbúið sem bílslys svo að
fjölskylda hans fái líftrygginguna. Brynja Björnsdóttir
hannar leikmynd og Þórunn María Jónsdóttir búninga
en tónlist er í höndum Gyðu Valtýsdóttur.
Sölumaður deyr í Borgarleikhúsinu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Lögmaðurinn Jón Steinar Gunn-
laugsson, fyrrverandi hæstaréttar-
dómari og prófessor, sendi á dög-
unum frá sér bókina Umbúðalaust –
Hugleiðingar í hálfa öld, sem Al-
menna bókafélagið gefur út. Þar eru
tæplega 200 valdar greinar, sem
langflestar hafa birst í Morgun-
blaðinu á undanförnum áratugum
frá því upp úr 1970. „Þetta er efni
um grundvallarstjórnmálaviðhorf,
dómstóla og gagnrýni mína um ým-
islegt,“ segir hann. „Jafnframt er
kafli um fjölskylduna og svo eru
þarna líka hugvekjur!“
Jón Steinar hefur verið afkasta-
mikill höfundur greina og bóka og
hann segist hafa verið hvattur til
þess að taka saman úrval úr greina-
safni sínu og birta í bók. Í fyrstu
hafi hann verið fráhverfur því en
áhuginn hafi vaknað þegar hann fór
yfir úrklippusafnið sitt. „Þá upplifði
ég það, sem ég þóttist reyndar vita,
að ég hef alla tíð náð að fylgja þeirri
línu sem ég lagði af stað með upp úr
1970, ákveðinni hugsjón eða grund-
vallarhugmyndum um það hvernig
lýðræðið væri,
mannréttindin,
einstaklings-
frelsið, ábyrgðin
og þar fram eftir
götunum.“
Blásið hefur
um Jón Steinar
síðan hann fór að
viðra skoðanir
sínar opinberlega, en þetta er átt-
unda bók hans. Hann bendir á að
fyrsta bókin, Deilt á dómarana, sem
kom út 1987 og fjallar um gagnrýnis-
verða hæstaréttardóma, hafi haft
meiri áhrif en hann hafi órað fyrir.
Greinaskrifin hafi einnig vakið menn
til umhugsunar. „Meintir samherjar
mínir í stjórnmálum hafa stundum
kveinkað sér undan skrifunum, en ég
hef fyrst og fremst fjallað um lífs-
skoðanir og hugmyndafræði í sam-
hengi við málefni dagsins.“
Stefnuleysi og valdníðsla
Jón Steinar hefur ekki legið á
skoðunum sínum. „Ég hef verið
þenkjandi um þjóðfélagsmál alla tíð,“
útskýrir hann. „Ég vil að við lifum í
þjóðfélagi sem gerir ákveðnar kröf-
ur, og sérstaklega hefur mér verið í
nöp við það, þegar menn misnota
opinbert vald öðrum til hnjóðs.“
Þegar sér hafi mislíkað eitthvað hafi
hann sest niður og skrifað um það
stutta grein. Afgreitt málið þannig
frá sér og verið tilbúinn að halda
áfram.
Greinarnar eru ekki eftir pólitísk-
um línum. „Ég vil ekki vera pólitísk-
ur bardagamaður,“ segir hann og
tekur fram að sér hugnist ekki að
taka þátt í leðjuslag, sem snúist
ekki um ákveðnar stefnur heldur
aðeins að gera það sem viðkomandi
haldi að sé til vinsælda fallið. „Skrif
mín eru hróp gegn þessu viðhorfi og
ég hika ekki við að gagnrýna hvaða
meirihluta sem er.“
Bókinni er skipt í 13 efniskafla,
eins og til dæmis Frelsi og ábyrgð,
Mannréttindi, Misnotkun dómsvalds
og Spilling hugarfars. Greinar í
hverjum kafla eru í tímaröð. Bókin
er 541 blaðsíða í stóru broti, skreytt
teikningum eftir Gunnlaug SE
Briem leturfræðing sem sá um útlit-
ið eins og í fyrri bókum höfundar
eftir að hann hætti sem dómari. Jón
Steinar þakkar honum í eftirmála.
„Gunnlaugi fæ ég aldrei full-
þakkað.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðfélagsrýnir Jón Steinar Gunnlaugsson bendir á það sem betur má fara í samfélaginu.
Leiðarvísir í lífinu
Jón Steinar Gunnlaugsson sendir frá sér nýja bók
go
crazy
hefst á morgun!
föstudag - mánudags
aföllumvörum*
25%
Sparadu-
*20% afsláttur af sérpöntunum.
Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði.
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
mánudaga - sunnudaga 12-18
Frí heimsending
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
FYRIR ÞÁ SEM VERSLA
FYRIR 5.000 EÐA MEIRA
WWW.ILVA.IS
GILDIR DAGANA 12.-15. JÚNÍ