Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 Ögmundur Jónasson skrifar ít-arlega grein um vaxandi landakaup erlendra auðmanna.    Tilburðir stjórnvalda til að bregð- ast við þeirri þróun fá ekki háa einkunn hjá greinarhöfundi.    Hér eru ekkitök á að rekja mál hans í smáat- riðum. Enn er iðu- lega vitnað til vafa- samrar túlkunar stjórnvalda á EES- samningnum sem er í senn ögrun og ósvífni í garð þjóðarinnar, eins og ónýtur mála- tilbúnaður hennar í „orkupakk- anum“ var svo ömurlegt dæmi um.    Ögmundur vísar til úttektartveggja lögfræðinga og skýrslu Stefáns Más lagaprófess- ors og fl. þar sem segir að EES- samningurinn hafi verið „stórlega oftúlkaður hvað varðar rétt EES- borgara til landakaupa“. Sjálfsagt eru þar sömu „sérfræðingar“ á ferð og gerðu íslenska stjórn- málamenn að aulum nú síðast.    Þeir Stefán Már segja að„ákvæði 72. greinar stjórn- arskrárinnar um rétt til að tak- marka fjárfestingar erlendara manna á landareignum stæði því óhaggað gagnvart EES-borg- urum“.    Sama ríkisstjórnin og telur sérskylt að elta dellumakeríi Jó- hönnustjórnarinnar gagnvart ís- lensku stjórnarskránni sýnir sig margoft að gera minna en ekkert með texta þeirrar sem er enn í fullu gildi!    Er heil brú í því? Ögmundur Jónasson Óþolandi tvöfeldni STAKSTEINAR 2ja og 3ja daga holl – 3. stangir Hagstætt verð fyrir fjölskyldur og vinahópa. Húsið í Skógarhvammi fylgir með. Þrjú tveggja manna herbergi. Uppbúin rúm og handklæði.Þrif innifalin. Lausar stangir í júlí og ágúst Norðurá II fjallið Símastrengur að Fornahvammi Allar upplýsingar gefur Einar í síma 893 9111 eða einar@nordura.is Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Metfjöldi umsókna hefur borist Háskólan- um í Reykjavík í ár. Alls hafa borist 3.900 umsóknir um skólavist fyrir næsta skólaár og er það 13% fjölgun frá síðasta ári, en undanfarin ár hafa um 1.500 nemendur haf- ið nám að hausti. Sóttu flestir um grunnnám í tölvunar- fræðideild, ríflega 460 manns, en umsókn- um fjölgaði hvað mest í grunnnámi í iðn- og tæknideild og sálfræðideild. Umsóknum um meistaranám hefur fjölgað í öllum deildum háskólans um þriðjung af jafnaði. Enn er opið fyrir umsóknir um undirbún- ing fyrir háskólanám í Háskólagrunni HR en með honum hlýst réttur til náms við skól- ann fyrir þá sem ekki hafa lokið stúdents- prófi. Háskólinn hefur undanfarin tvö ár lagt áherslu á að kynna möguleika iðn- lærðra á háskólanámi í samstarfi við stjórn- völd og Samtök iðnaðarins. Aldrei fleiri sótt um að nema við HR  Flestir sóttu um grunnnám í tölvunarfræði  Áhersla á að kynna möguleika iðnlærðra Morgunblaðið/Sigurður Bogi HR Enn er opið fyrir umsóknir um undirbúning fyrir nám. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Icelandair mun, samkvæmt flug- áætlun sem gildir til 19. júlí næst- komandi, fljúga til 26 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku. Á heimasíðu flugfélagsins er vakin athygli á því að hægt sé að bóka flug á dagsetningum eftir fyrrgreinda áætlun. Verði flugið hins vegar fellt niður segist félagið munu koma við- komandi farþega á áfangastað. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, segir ómögu- legt að segja til um það núna hvort þessi fjöldi áfangastaða muni breyta uppsögnum starfsfólks. Ástandið sé enn viðkvæmt og óvissan mikil. „Við erum að fara mjög rólega af stað og það er mikil óvissa. Það plan sem við settum upp frá 15. til 30. júní gerir ráð fyrir 11 áfangastöðum. Í júlí gerum við svo ráð fyrir að fjölga áfangastöðum talsvert en það er þó háð ýmsu,“ segir Ásdís Ýr í samtali við Morgunblaðið og bætir við að flugáætlun með 26 áfangastöðum sé háð opnun ytri landamæra Schen- gen og landamæra Bandaríkjanna. „Það er bara ekki enn komið á hreint. Hvort við getum gripið til endurráðninga, það er of snemmt að segja til um það,“ segir hún. Evrópa og Norður-Ameríka Auglýst flugáætlun Icelandair til 19. júlí gerir ráð fyrir eftirfarandi áfangastöðum; Amsterdam, Berlín, Billund, Boston, Brussel, Chicago, Denver, Dublin, Düsseldorf, Frank- furt, Glasgow, Hamburg, Helsinki, Kaupmannahöfn, London, Madrid, Minneapolis, München, New York, Ósló, París, Seattle, Stokkhólmi, To- ronto, Washington og Zürich. Geta ekki sagt til um endurráðningar  Enn er mikil óvissa fram undan í flugrekstri Morgunblaðið/Eggert COVID Ein af Boeing 757-vélum Icelandair sem nú standa óhreyfðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.