Morgunblaðið - 19.06.2020, Side 10

Morgunblaðið - 19.06.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | Opið alla virka daga kl. 10-17 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök minning Fermingar- myndatökur Pétur Magnússon petur@mbl.is „Sem listrænn stjórnandi Sumar- tónleikaraðar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar til margra ára sé ég mig knúna til að tilkynna ykkur að sum- artónleikaröðin verði ekki haldin í ár, eins og undanfarið 31 ár. Ástæð- an er ekki Covid-19-faraldurinn heldur áhugaleysi þeirra, sem taka ákvarðanir um starfsemi Listasafns Sigurjóns Ólafssonar.“ Svo hljóðar auglýsing sem birtist í Morgunblaðinu í gær en undir aug- lýsinguna skrifar Hlíf Sigur- jónsdóttir, fiðluleikari og dóttir Sig- urjóns Ólafssonar. „Það er ekkert launungarmál að hér hafi verið í gangi hlutir sem okk- ur fjölskyldunni hefur ekki hugn- ast,“ sagði Hlíf við mbl.is í gær, en Morgunblaðið greindi frá því í fyrra- dag að sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar yrði ekki hald- in í sumar. Tónleikaröðin hefur sem fyrr segir verið haldin árlega í 31 ár, en Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hefur verð rekið sem deild innan Listasafns Íslands síðan 2012. Ekki sótt um styrki Í frétt Morgunblaðsins í fyrradag segir Anna Guðný Ásgeirsdóttir, fjármála- og mannauðsstjóri Lista- safns Íslands, að tónleikaröðin hafi frá upphafi verið í höndum fjöl- skyldu Sigurjóns Ólafssonar en haldin með velvilja Listasafns Ís- lands. Hafi fulltrúi fjölskyldunnar, sem séð hafi um skipulag og undir- búning tónleikanna síðustu ár, ekki treyst sér til að standa fyrir tónleik- unum í sumar og að ekki hafi verið sótt um styrki til að halda þá. Geirfinnur Jónsson, eiginmaður Hlífar, hefur að mestu leyti séð um umstangið í kringum tónleikana. Í ár sá hann sig knúinn til að vinna að tónleikunum utan venjulegs vinnu- tíma, en Geirfinnur starfar sem umjónarmaður fasteigna- og örygg- ismála hjá Listasafni Íslands. Hlíf segir sumartónleikana vera aðeins toppinn á ísjakanum. „Ég, sem aðstandandi móður minnar [Birgittu Spur, ekkju Sig- urjóns], er svo rasandi yfir því hvernig hefur verið komið fram við hana og hvernig er búið að sýna þessum stað mikla óvirðingu.“ Morgunblaðið/Hari Listasafn Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari er ekki sátt. Áhugaleysi þeirra sem taka ákvarðanir  Dóttir Sigurjóns Ólafssonar segir listasafninu hafa verið sýnd óvirðing Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Vínbúðin á Þórshöfn er nú flutt í nýtt og rýmra húsnæði og var verslunin formlega opnuð í vikunni. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarfor- stjóri ÁTVR, flutti stutt ávarp við opnunina og boðið var upp á veit- ingar. Vínbúðin var áður til húsa í rými inn af Kjörbúðinni en sú aðstaða er mjög lítil og lagerpláss takmarkað. Stutt var að flytja í nýja húsnæðið; frá Langanesvegi 1 yfir í númer 2, svo aðeins var yfir götuna að fara í litla miðbænum á Þórshöfn. Segja má að nú sé Vínbúðin komin aftur heim því þegar áfengisútsala var opnuð í fyrsta sinn á Þórshöfn árið 1999 var það í þessu sama húsi, Langanesvegi 2, sem í daglegu tali kallast Jónsabúð og var upphaflega byggt undir byggingarvöruverslun Kaupfélags Langnesinga en hefur hýst ýmsa starfsemi síðan. Það átti sér nokkra forsögu að áfengisútsala var opnuð hér fyrst ár- ið 1999 því skilyrði fyrir leyfi til áfengissölu á þeim tíma voru þau að fólksfjöldi sveitarfélags væri ekki undir 1.000 manns. Heimamenn undu því ekki og fóru af stað með undirskriftalista til að fá málið í gegn því langt var að sækja þessa þjón- ustu. Þórshöfn varð því fyrsta sveit- arfélagið sem fékk leyfi fyrir áfeng- isútsölu þrátt fyrir fámennið og mætti þá forstjóri ÁTVR á staðinn við opnunina ásamt fleira starfsfólki. Formlegri opnun á árinu 1999 lauk síðan með því að liðsmenn ÁTVR öttu kappi við heimamenn í fótbolta í íþróttahúsinu svo það hefði eflaust verið við hæfi að endurtaka leikinn núna rúmum tuttugu árum síðar, þegar Vínbúðin er aftur komin á upphafsstað. Í nýju Vínbúðinni verður aukið vöruúrval, sagði Sigrún Ósk aðstoð- arforstjóri, og er starfsfólkið ánægt með breytinguna sem og starfs- mannaaðstöðu, sem er mjög góð. Húsið Langanesvegur 2 eða Jónsabúð er nú eigu sveitarfélagsins Langanesbyggðar en í húsinu verða einnig íbúðir og önnur starfsemi í framtíðinni. Vínbúðin komin heim  Flutt í nýtt og rýmra húsnæði á Þórshöfn  Meira úrval Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Starfsfólk Vínbúðarinnar, Anna Burba og Sara Stefánsdóttir, við opnunina ásamt Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.