Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 11

Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Niðurstöður verkefnisins GróLindar sýna að 25% Íslands teljast til svæða þar sem vistfræðileg virkni er mikil og rof takmarkað. Aftur á móti teljast 45% landsins á svæðum þar sem virkni vistkerfa er takmörkuð og/eða rof mjög mikið. 38% af beitarsvæðum landsins lenda í bestu tveimur ástandsflokkunum og 39% í tveimur verstu ástandsflokkunum. Landssamtök sauðfjárbænda höfðu frumkvæði að verkefninu GróLind og er það fjármagnað að hluta með fé úr búvörusamningum. Tóku þau upp samstarf við Bænda- samtök Íslands, atvinnu- og nýsköp- unarráðuneytið og Landgræðsluna. Vinna við þróun aðferða, mat á stöð- unni og kortlagningu landsins hefur staðið í tvö ár og er að mestu unnin af starfsmönnum Landgræðslunnar. Í gær var opnuð kortasjá á vefsíð- unni grolind.is þar sem grundvöllur- inn er stöðumat á jarðvegs- og gróð- urauðlindum landsins og kortlagning beitarsvæða sauðfjár. Bæði kortin eru í grófum mælikvarða í þessari fyrstu útgáfu. Ástandið vaktað Fram kom í kynningu Bryndísar Marteinsdóttur verkefnastjóra að upplýsingum verði smám saman bætt í gagnagrunninn, meðal annars nákvæmari upplýsingum um beitar- not. Þá verður jarðvegs- og gróður- auðlindin vöktuð í framtíðinni til að fylgjast með þróuninni. Fyrstu vökt- unarreitir verkefnisins, 76 að tölu, hafa verið settir út og metnir. Bryn- dís gat þess að stefnt væri að því að koma upp á þúsund vöktunarreitum og aðrir séu hvattir til þess að setja upp eigin reiti. Þá verði gervitungla- myndir notaðar til að fá heildstætt og frekar nákvæmt mat á ástandi lands- ins og meta hvaða áhrif nýting hefur á auðlindirnar. Vöktunarreitirnir verða metnir á fimm ára fresti til að fylgjast með breytingum. Eins og sést á kortinu eru þau svæði sem fá lægstu einkunn í ástandsmati mest á eldvirka svæðinu sem liggur skáhallt yfir landið, frá suðvestri til norðausturs, sandar á Suðurlandi og há fjöll. Svæðin sem best koma út eru á láglendi. Bryndís sagði líkur á að land flokk- ist í lægri ástandsflokk, eftir því sem það lægi hærra. „Þess ber að geta að við tökum ekki tillit til þess sem gæti verið,“ sagði Bryndís og gat þess að ekki væru góð skilyrði fyrir gróður og jarðveg í þúsund metra hæð. Hins vegar lentu mörg svæði í verri flokki en þyrfti, miðað við veðurfar og legu í landi. Næst skref sé að skilja þar á milli, hvar jarðvegs- og gróðurauð- lindin geti gefið meiri ávöxt en hún gerir. Bryndís sagði að komið væri öflugt verkfæri sem gæti orðið grunnur að frekara samtali um landnýtingu. Hægt væri að sjá hvar hlutirnir væru í lagi og hvaða svæði þyrfti að skoða betur. „Það hlýtur að vera markmið okkar á næstu árum að breyta litnum á kortinu. Mig langar að sjá meira grænt,“ sagði Bryndís. Vakin var athygli á því á kynning- unni að alls hafi ríflega 8.400 ferkíló- metrar lands verið friðaðir fyrir sauðfjárbeit vegna samninga um gæðastýringu í sauðfjárrækt. Bænd- ur fá hærri greiðslur frá ríkinu ef þeir hlífa slíku landi. Meginhluti þess lands sem þannig er friðaður er í tveimur verstu ástandsflokkunum og gerir gæðastýringin því sitt gagn. Fleiri svæði eru friðuð eða lítið nýtt til sauðfjárræktar og eru þessi svæði 25% landsins en beitarland er samtals 62% landsins, að því er fram kom hjá Jóhanni Helga Stefánssyni, starfsmanni GróLindar. Afgangur- inn er jöklar, byggð og fleira. Samtal um landnýtingu Árni Bragason landgræðslustjóri sagði að með GroLind væri komið tæki sem gerði vinnu Landgræðsl- unnar markvissari, hún gæti einbeitt sér að ákveðnum svæðum. Í ávarpi sínu gaf hann þá yfirlýsingu að það hefði komið sér á óvart hvað mikið já- kvætt hefði komið út úr gæðastýr- ingu í sauðfjárrækt og taldi að byggja mætti meira á henni í framtíðinni. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra sagði að vinnan gæti nýst í frekara samtal um land- nýtingu og hægt væri á grundvelli gagna að ræða nýtingu sem ekki gæti talist sjálfbær. Hvatti hann til þess að menn tækju höndum saman um að laga þau svæði á Íslandi sem laga þyrfti. Ljósmynd/Jóhann Kristjánsson Fýkur burt Gróður og jarðvegur er viðkvæmur á hálendinu og getur landið skemmst á tiltölulega stuttum tíma, sérstaklega ef lélegt land er beitt. Hafin vöktun á ástandi jarð- vegs- og gróðurauðlindar  Staðan kortlögð  Jafnstór hluti beitarlands er í góðu ástandi og slæmu 45% Íslands eru í slæmu ástandi 25% Íslands lenda í tveimur bestuástandsfl okkunum (fl okkar 4 og 5) og teljast til svæða þar sem vistfræðileg virkni er mikil og rof er takmarkað 45% Íslands lenda í tveimur verstu ástandsfl okkunum og teljast samkvæmt stöðumatinu á svæðum þar sem virkni vistkerfa er takmörkuð og/eða rof mjög mikið (fl okkar 1 og 2) 38% af beitarsvæð-um landsins lenda í tveimur bestu ástandsfl okkunum 8.417 km2 lands hafa alls verið friðaðir vegna gæðastýringar í sauðfjárrækt og lendir meirihluti þess svæði í tveimur verstu ástandsfl okkunum eða 8.067 km2 39% beitar-svæða í tveimur verstu ástandsfl okkunum Flokkur 1 Flokkur 2 Flokkur 3 Flokkur 4 Flokkur 5 Ástandsfl okkar Grunnkort: Landgræðslan/ land.is/grolind.is/ Sigmundur Helgi Brink Aðalstræti 2 | s. 558 0000 4ja rétta draumaveisla: • Nauta carpaccio • Tígrisrækjur Nobashi • Hægeldað Andarlæri • Jarðarber & Yuzu Kynningarverð í júní 6.990 kr. Fullt verð: 9.990 kr. DRAUMAVEISLA „Það er og meðal kosta Péturs að kunna að miðla þekkingu og fróðleik með miklum ágætum til lærðra jafnt sem leikra. Rannsóknirnar hafa leitt fjölmargt nýtt og áhugavert í ljós – nýjar tegundir lífvera hafa verið uppgötvaðar, þekking efld á þróun- arfræðilegum þáttum að baki teg- undamyndun, skilningur aukinn á flæði orku og efna í fæðuvef vist- kerfa og nýju ljósi varpað á samspil jarðfræði-, vatnafræði- og líffræði- þátta, svo eitthvað sé nefnt. Lands- menn eiga Pétri M. Jónassyni það að þakka að skilningur á Þingvallvatni, undrum þess og furðum er jafn djúpur og heildstæður og raun ber vitni,“ segir Hilmar J. Malmquist í leiðara nýjasta heftis Náttúrufræð- ingsins. Heftið er gefið út til heiðurs dr. Pétri M. Jónassyni, sem varð 100 ára í gær, 18. júní. Rannsóknir á Þingvallavatni eru þemað í heftinu og segir þar frá nýj- ustu rannsóknum á þessu stærsta náttúrulega stöðuvatni Íslands. Þar kennir ýmissa grasa enda eru rann- sóknir á Þingvallavatni fjölbreyttar, m.a. í atferlisfræði, efnafræði, þró- unarfræði, þroskunarfræði, teg- undagreiningu, hitaferlum og fæðu seiða. Þar er einnig sagt frá vísinda- rannsóknum Péturs M. Jónassonar, en sjálfur ritar hann grein í heftið sem nefnist „Þingvallavatn og Mý- vatn – gróðurvinjar á flekaskilum“. Pétur hóf viðamiklar vistfræði- rannsóknir á Þingvallavatni með 59 vísindamönnum frá mörgum löndum 1974 og stóðu þær fram til ársins 1992, þegar aðrir, margir hverjir nemendur og samstarfsmenn Pét- urs, tóku við keflinu. Í leiðara tímaritsins segir Hilmar að afraksturinn af Þingvallavatns- rannsóknunum undir stjórn Péturs hafi verið birtur í ótal fagtímaritum og bókum, á ráðstefnum og mál- þingum, sem og í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum, jafnt fyrir al- menning sem fræðasamfélagið. Hilmar segir að Þingvallavatn sé ekki aðeins stórt, djúpt og fiskisælt stöðuvatn, heldur órofa hluti af líf- heiminum og menningar- og nátt- úruarfi alls mannkyns. Með þessu hefti hefur Náttúru- fræðingurinn 90. árgang sinn en tímaritið hefur komið samfellt út frá 1930, eða í 90 ár. Morgunblaðið/Ásdís Vísindamaður Pétur M. Jónasson Margt nýtt komið í ljós  Rannsóknir Pét- urs á Þingvallavatni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.