Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 12

Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Þórður Magnússon, stjórnarformað- ur fjárfestingarfyrirtækisins Eyris Invest, segir í samtali við tímaritið Nýsköpun, sem Samtök iðnaðarins gáfu út fyrr í vikunni, að Akkilesar- hæll íslenskrar nýsköpunar sé uppbygging sölu- og markaðsstarfs. Hann segist líta á það sem hlut- verk Eyris að leið- beina frumkvöðl- um sem félagið fjárfesti í, og hjálpa til við að setja saman far- sæl stjórnenda- teymi og aðstoða við að byggja upp sölu- og markaðsstarf. „Sá hluti er að mínu mati Akkilesarhæll íslenskrar nýsköpunar,“ segir Þórður í tímarit- inu. „Við leggjum gríðarlega áherslu á sölu- og markaðsstarf, því þú getur haft frábæra vöru í höndunum en ef enginn veit af henni eða aðgangur að mörkuðum er ekki til staðar, þá hefur það ósköp lítið að segja,“ segir Þórð- ur í tímaritinu og bætir við að sala og markaðsstarf, aðlögun vörunnar að þörfum markaðarins og markaðs- skilaboðin séu oft 60–70% af vegferð- inni. Betra að annar leiði Í samtalinu segir Þórður að það sé hans reynsla að frumkvöðullinn sjálf- ur sé ekki alltaf endilega best til þess fallinn að leiða fyrirtækið áfram í vexti, þó hann gegni mikilvægu hlut- verki. Oft þurfi að ná fram breyting- um í rekstrinum sem betra sé að ein- hver annar leiði. Í greininni í tímaritinu er farið lauslega yfir fjölbreytt eignasafn Eyris. Þar er meðal annars að finna líftæknifyrirtækið Saga Natura sem framleiðir fæðubótarefni úr hvönn og þörungum, eTactica sem selur mæli- tæki sem gerir fyrirtækjum kleift að skilja og bæta orkunotkun sína, Sæ- býli ehf., sem ræktar japönsk sæeyru á Eyrarbakka og í Þorlákshöfn að- allega til útflutnings til Asíu og Co- oori sem tvinnar saman tækni og nýj- ustu þekkingu í kennslufræðum. Uppbygging sölu- og mark- aðsstarfs er Akkilesarhællinn Fjárfestingar Þórður segir að langstærstur hluti alls reksturs sé eins í grunninn.  Stjórnarformaður Eyris Invest segir að frumkvöðullinn sjálfur sé ekki alltaf endilega best til þess fallinn að leiða fyrirtækið áfram í vexti Þórður Magnússon 19. júní 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 134.98 Sterlingspund 170.6 Kanadadalur 99.48 Dönsk króna 20.481 Norsk króna 14.18 Sænsk króna 14.517 Svissn. franki 142.57 Japanskt jen 1.2576 SDR 186.71 Evra 152.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.9658 Hrávöruverð Gull 1717.3 ($/únsa) Ál 1573.5 ($/tonn) LME Hráolía 40.61 ($/fatið) Brent ● Upplýsingatæknifyrirtækið Wise hefur fest kaup á ráðgjafarfyrirtækinu Clarito sem hefur sérhæft sig í stjórn- un viðskiptatengsla með Microsoft- viðskipta- og skýjalausnum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Wise. Þar segir að í kaupunum felist mikil tækifæri til að auka enn frekar lausna- framboð Wise. Clarito komi inn með þekkingu og reynslu í Dynamics 365, Power Platform og Microsoft 365; lausnir sem séu stór hluti af nútíma- fyrirtækjaumhverfi þar sem sjálf- virknivæðing, vinnuferlar og gagnanýt- ing skipti höfuðmáli. Einnig hafi Clarito mikla reynslu af greiningu vinnu- og verkferla, sem sé undir- staðan að því að finna réttu leiðina fyrir viðskiptavini. Wise kaupir ráðgjafar- fyrirtækið Clarito Kaup Árni Haukur Árnason, eigandi Cla- rito, og Jóhannes Helgi Guðjónsson, Wise. STUTT 1. Aukin áhersla á umhverfisvernd. 2. Fólk flytur í auknum mæli úr sveit í borg. 3. Aukin áhersla á upplifun – til að mynda að kaupa fisk sem veiddur var í hreinu hafi og því séu tækifæri í að sýna fram á rekjanleika fisksins. 4. Þjóðir séu að eldast og því sé horft til þess að aðstoða fólk við að öðlast betri heilsu. 5. Aukið netöryggi, hvort sem litið er til hernaðar eða viðskipta. 6. Allir séu nú tengdir netinu öllum stundum og það hefur þau áhrif að samskipti og viðskiptaferlar færist þangað. 7. Sjálfvirknivæðing Sjö fjárfestingaþemu EYRIR INVEST Markmið tímaritsins Nýsköpunar, sem hefur að geyma samtalið við Þórð Magnússon í Eyri, sem vísað er til hér á síðunni, er að draga fram fjölbreytt sjón- armið og gefa góða innsýn í nýsköpun á Íslandi. Í inngangi sínum segir Margrét Kristín Sigurðardóttir rit- stjóri að útgefandi ritsins, Samtök iðn- aðarins, vilji leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar á öllum sviðum atvinnu- lífsins. Hún segir að í tíma- ritinu hafi náðst tal af fólki sem fáist við ný- sköpun alla daga, og hafi frá miklu að segja. Þá sé leit- að eftir sýn forseta Íslands og ný- sköpunarráðherra á hvert mik- ilvægi nýsköpunar er fyrir Ísland. Enn fremur segja formaður og framkvæmdastjóri SI frá því hvers vegna samtökin leggja áherslu á nýsköpun og hvaða þýð- ingu það hefur að hvetja til sókn- ar á þessu sviði. TÍMARITIÐ NÝSKÖPUN Markmiðið að gefa góða innsýn í nýsköpun á Íslandi Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18 – 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum – Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími – Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.