Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 stjóri Línuhönnunar á árunum 1979-1983 og 1987-1996. Auk þess var Árni Björn stjórnarfor- maður fyrirtækisins árin 1997- 2004 og 2005-2008. Árni Björn var því í forystu í uppbyggingu ört vaxandi og farsæls fyrir- tækis. Hann leiddi að auki fag- lega og verkefnalega þróun fé- lagsins í orkuflutnings- mannvirkjum og náði þar afburðaárangri. Línuhönnun voru falin veigamikil verkefni á landsvísu á því sviði, þ.m.t. við uppbyggingu byggðalínu og fleiri lykilverkefna. Árni Björn naut mikils trausts meðal við- skiptavina, og var lagið að finna leiðir og lausnir á krefjandi við- fangsefnum. Eftir stofnun EFLU verkfræðistofu árið 2008 starfaði Árni Björn áfram í fyrirtækinu til loka árs 2010, þegar hann stofnaði ARA Eng- ineering sem síðar varð hluti af norska ráðgjafarfyrirtækinu Norconsult. Að frumkvæði Árna Björns færði Línuhönnun og síðan EFLA út kvíarnar erlendis á sviði orkuflutningsmannvirkja, sérstaklega í Noregi, en einnig með þátttöku í fyrirtækjum og verkefnum víða um heim. Í dag er óhætt að fullyrða að EFLA sé á heimsmælikvarða á þessu sviði, undir forystu margra af lærisveinum Árna Björns. Árni Björn var sæmdur heið- ursmerki Verkfræðingafélags Íslands árið 2001. Til stóð að Árni tæki á yfirstandandi ári við formennsku í málaflokki há- spennulína hjá CIGRE, sem eru leiðandi samtök á heimsvísu um þróun og miðlun þekkingar í orkuflutningskerfum, en því miður verður ekki af því. Árni Björn var lærifaðir af guðs náð og aðstoðaði og treysti sínu fólki til góðra verka. Hann kunni allt í senn, fagið, mann- legu hliðina og nálgun viðfangs- efna. Sannfæringarkrafti hans var viðbrugðið þegar á þurfti að halda, hann bjó yfir óbilandi sóknarhug og sá fyrst og fremst tækifærin. En það sem ein- kenndi Árna Björn ef til vill um- fram annað var félagslyndið og þau bönd sem hann bast sam- ferðamönnum sínum. Þar var hans heimavöllur. Það var ekki síst fyrir til- stuðlan Árna Björns að undirrit- aður gerði Línuhönnun og síðan EFLU verkfræðistofu að starfs- vettvangi sínum, og sambæri- lega sögu geta ótal fleiri sagt. Fyrir hönd EFLU verkfræði- stofu vil ég þakka Árna Birni samleiðina. Við vottum Gunnu eiginkonu Árna Björns, börnum og öðrum aðstandendum inni- lega samúð, og kveðjum Árna Björn með þakklæti og virðingu. Guðmundur Þorbjörnsson. Þvílíkur skelfingaratburður og reiðarslag. Minn kæri vinur til 50 ára, Árni Björn, drukknar í silungs- veiði í Laxá í Aðaldal. Fulltrúi gleði og góðvildar hefur yfirgef- ið heiminn. Síðustu 10 árin höfum við verið í nánu sambandi og hann hefur alltaf reynst mér vel sem hugmyndagjafi og traustur klettur þegar á reyndi. Í vísindaferðum okkar Stokk- hólmsmanna var hann ávallt reiðubúinn að taka þátt sem skipuleggjandi, bílstjóri eða fyr- irlesari um menningarstaði. Hann hjálpaði mér meðal ann- ars með upplýsingar um lengstu loftlínur heimsins á Grænlandi sem var áhugavert efni í verk- fræðinganámskeiði. Ef eitthvað amaði að tölvubúnaði mínum sendi hann son sinn til að gera við og hvatti mig eindregið til að gefa kennslubækurnar út. Á síðasta fundi okkar kom hann til að sækja prufueintak af umhverfisbókinni minni og lagði óumbeðið veglega upphæð inn á útgáfusjóð bókarinnar. Hann talaði sjaldan um eigin afrek og fáir vita að virðing hans fyrir fegurð náttúrunnar varð stund- um til þess að háspennuraflínur voru lagðar lengri leið en þurfti. Afrek hans og sameignarmanns hans í línuhönnun, Ríkharðs Kristjánssonar, í brúargerð og hönnun raflína er efni í heila bók. Hann kom oft fyrirvaralaust í heimsókn á hjólinu eða bílnum og hafði ávallt meðferðis skjóðu mikla sem geymdi ýmislegt góð- gæti. Það var hátíðleg stund þegar hann dró upp úr skjóð- unni ilmandi kaffibrauð, mat- föng og stundum kom dýrindis rauðvínsflaska upp úr skjóðunni ættuð úr vínkjallaranum góða. Þessar heimsóknir voru ógleym- anlegar ánægjustundir þar sem rætt var um tilgang lífsins og aðkallandi framfaramál þjóðar- innar. Fyrir nokkrum árum kom hann og sagði: „Þú verður að læra að nota PowerPoint í bóka- gerðinni“ og síðan fékk ég þriggja mínútna kennslu í forrit- inu. Þessi stutta kennslustund varð til þess að ég breytti um tjáningarform í ferðasögum mínum og bókahönnun. Nýjustu bækurnar sem koma væntan- lega út í haust „Umhverfið og framtíðin“ og „Stærðfræðin frá Abacus til Myscript Calculator 2“ eru myndabækur hannaðar á þennan máta. Það var mikil heppni og gæfa að fá að kynnast þessum hjarta- hlýja og góða manni. Ég færi Guðrúnu og afkom- endum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ellert Ólafsson. Mér féllust hendur er ég frétti að náinn vinur minn, sem var mér sem bróðir, Árni Björn Jónasson, væri allur. Leiðir okkar lágu fyrst saman er við unnum báðir hjá Lands- virkjun. Samskipti okkar voru ekki mikil á þeim tíma, en það átti sannarlega eftir að breytast er við tók áratuga löng vinátta.. Árni Björn var fjölbreyttur persónuleiki og hæfileikaríkur. Í samskiptum var hann um- hyggjusamur, réttlátur og heið- arlegur, en ákveðinn ef honum þótti tilefni til. Í starfi var hann framsýnn, skapandi í leit nýrra lausna en fyrst og fremst braut- ryðjandi. Hann var frábær verkfræð- ingur. Það fyrirfinnst varla sú háspennulína á Íslandi sem byggð hefur verið síðan 1980 þar sem Árni Björn hefur ekki komið við sögu, enda með af- burðakunnáttu á því sviði. Hann var framsýnn, úrræðagóður og alltaf leitandi betri lausna. Nafn hans var þekkt víða um heim og var hann virkur og virtur þátt- takandi í alþjóðlegum vinnuhóp- um á sínu sérsviði. Daginn sem hann lést átti að tilkynna honum að honum hefði verið falið að leiða nýjan vinnuhóp um styrk- ingu háspennulína. Hann naut þess að lifa. Hann sagði oft: „Lífið er of stutt til að láta sér leiðast. Þórður, við eig- um að lifa lífinu, hér og nú, því enginn veit hvað morgundagur- inn ber í skauti sér.“ Síðustu þrjá áratugina gerðum við ein- mitt þetta. Stundum nokkrir saman, með fjölskyldum eða vin- um og fórum víða. Síðast í góðra vina hópi til Grikklands. Hann var veiðimaður af Guðs náð og var fátt skemmtilegra en að ganga til veiða með honum. Höfum við veitt víða saman síð- ustu þrjá áratugi og í sumar voru nokkrar veiðiferðir ráð- gerðar eins og endranær. Hann veiddi alltaf meira en ég, enda hafði hann nef fyrir hvar og hvernig væri best að bera sig að. Svo fann hann alltaf réttu fluguna sem hann oftar en ekki hnýtti sjálfur. Aldrei var fiski landað án þess að smá staup af Limoncello væri teygað til að skála fyrir því hve lífið væri yndislegt. Hann var einfaldlega góður maður og einstakur vinur. Vinur sem vildi öllum greiða gera og hjálpa ef svo bar undir. Margar sögur mætti segja af hjartahlýju hans og umhyggju fyrir fjöl- skyldu, starfsfélögum og vinum, en þær bíða betri tíma. Hann var vinur sem allir myndu vilja eiga og allir eiga skilið, gegn- heill heiðursmaður sem gerði líf- ið svo mikið betra með gjörðum sínum og nærveru. Til að fá útrás fyrir framsýna hugsun sína stofnaði hann ásamt félögum sínum verkfræðifyrir- tækið Línuhönnun og var hann framkvæmdastjóri þess lengst af. Starfsemi Línuhönnunar var fjölbreytt á sviði mannvirkja- gerðar, hönnun háspennulína og á sviði umhverfismála. Sem frumkvöðull sá hann tækifæri alls staðar í viðleitni sinni að leita betri lausna og átti auðvelt með að finna hæfileikaríka ein- staklinga sem byggðu kunnáttu með samstarfi við hann. Kæra Guðrún og fjölskylda. Innilegustu samúðarkveðjur færum við Gerða og fjölskylda mín ykkur. Við hugsum til ykk- ar og þökkum fyrir Árna Björn Jónasson, góðan dreng sem gerði allt betra hvert sem hann fór. Farðu vel, vinur minn, og takk fyrir vináttu þína sem veitti svo mikla gleði. Þórður G. Guðmundsson. Fallin er frá kær vinur, Árni Björn Jónasson. Ég kynntist Árna árið 1991 er ég hóf störf hjá honum á Línu- hönnun hf. En réttara sagt sótti hann mig þar sem ég vann sem gjaldkeri í Landsbankanum og tilkynnti mér að nú væri ég að fara vinna hjá honum, það gekk eftir og áttum við farsælt sam- starf meðan Árni starfaði hjá Línuhönnun og hélst vinskapur okkar alla tíð. Árni var ákaflega dugmikill maður og ætíð með ótal verkefni á prjónunum heima sem erlend- is. Ef hann var ekki að skipu- leggja eitthvert verkefni var hann að leggja á ráðin um ein- hverja veiði eða góða utanlands- ferð með mat og eðalvínum, enda einstakur smekkmaður á mat og vín. Síðastliðið haust fór ég með Árna og Gunnu konu hans í ákaflega skemmtilega vínsmökk- unarferð til Grikklands, þar lék Árni á als oddi enda einstaklega vel skipulögð ferð. Árni hafði hóað saman góðum vinum sínum úti um allan heim og að lokum vorum við af sjö þjóðernum, kom þar vel í ljós þessi fróði og skemmtilegi maður. Það er ógleymanleg minning er við fórum með honum í veiði í Mývatnssveitina og þar var hann á heimavelli, þekkti ána eins og höndina á sér. Hann sýndi veiðimönnum sem ekki höfðu veitt þar áður góða veiði- staði og hvernig væri best að bera sig að í þessu stórbrotna umhverfi. Árni hefur ávallt reynst mér einstaklega vel og hafði áhuga á því sem var í gangi í lífi mínu og ef eitthvað bjátaði á hjá mér átti hann alltaf tíma í spjallið og ráðleggingar ef ég bað um það. Kæra fjölskylda, Gunna, Ragna, Palli, Jónas og fjölskyld- ur, við Jón Júlíus vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Ásta Björk. Nú er fallinn frá góður dreng- ur og vinur, sem er sárt saknað. Árni Björn Jónasson kvaddi þessa jarðvist við að gera það sem honum þótti skemmtilegast, að veiða urriða í sinni uppá- haldsá, Laxá í Þingeyjarsýslu. Árni Björn var frábær verk- fræðingur og einn fremsti raf- línuhönnuður landsins. Hann vann að verkefnum víða um heim við mjög góðan orðstír. Bestu kynni mín af Árna Birni voru tengd útivist og veiði. Við byrjuðum snemma að veiða saman, fórum víða og veiddum bæði lax og silung. Árvissar voru veiðiferðirnar í Hítará þar sem við vorum um árabil í ár- nefnd. Ekki voru það eingöngu veiðarnar sem heilluðu í þessum ferðum, heldur var það einnig samvera í góðra manna hópi og voru þá gjarnan haldnar kvöld- vökur eftir veiði dagsins. Árni Björn var þar ætíð hrókur alls fagnaðar, hélt ræður og sagði sögur. Árni Björn var bók- hneigður maður. Hann las mikið um veiðar og veiðibúnað og var ætíð hægt að leita til hans um fróðleik. Hann hafði alltaf með sér nokkrar bækur í veiðiferðir til að glugga í á kvöldin og las þá oft upphátt fyrir okkur hina. Það varð síðan að venju að hann eða einhver annar las valið efni fyrir veiðifélagana. Veiðiferðir okkar í Laxá í Þingeyjarsýslu skipa stóran sess í húsi minninganna. Við fórum fyrst þangað saman sumarið 1992 ásamt tveimur öðrum veiði- félögum. Þetta varð síðan árviss atburður um Jónsmessuna í um 15 ár. Í fyrstu ferðunum gistum við í tjaldi eða tjaldvagni á ár- bakkanum og veiddum ljúffeng- an urriða sem við borðuðum með nýjum kartöflum. Síðar varð skylda að gista í veiðihúsi sem búið var að reisa við ánna. Árni Björn var með afbrigðum fundvís á fisk, jafnvel þar sem aðrir töldu engan fisk vera. Engan mann hef ég þekkt sem hugsaði jafnvel um veiðidót sitt og Árni Björn. Þar var allt í röð og reglu. Eftir að ég hætti að fara með í þessar veiðiferðir hélt Árni Björn áfram að fara þangað með sínu fólki og var þar í árnefnd síðustu árin. Við Árni Björn höfðum sammælst um að ég kæmi með í næstu Jónsmessu- ferð. Ýmsar aðrar ánægjulegar ferðir með Árna Birni lifa í minningunni, svo sem nokkrar ferðir okkar Unu um Horn- strandir með honum og Guð- rúnu í góðra vina hópi. Árni Björn var réttsýnn og heiðarlegur maður sem ætíð var hægt að leita til og er ég þakk- látur fyrir að hafa fengið að vera honum samferða. Við Una vottum Guðrúnu, börnunum og öðrum ættingjum okkar dýpstu samúð. Jóhann M. Bjarnason og Gunnjóna Una. Hógvær hugdetta nokkurra félaga um að stofna lítinn veiði- hóp og lítið hús á fögrum stað við ljúfa á reyndist verða upphaf að dýrmætum félagsskap sem hefur staðið í 30 ár. Í hópinn bættust valdir fé- lagar, sumir þaulreyndir veiði- garpar – ómetanlegt fyrir þá sem voru að fikra sig áfram í íþróttinni. Spáð var í horfur og möguleika, reynslu og þekkingu var miðlað og sögustundirnar ógleymanlegar. Við nefndum okkur Laxmenn, ræktuðum lax, byggðum upp ána, reistum hús, veiddum í ám og vötnum og eignuðumst minn- ingar um dýrlegan tíma með fjölskyldu og vinum. Árni Björn Jónasson var einn af þeim sem miðla af einstakri hógværð og mikilli þekkingu. Það fór ekki á milli mála að þar talaði veiðimaður sem gekk um af nærgætni og laxinn tók hann með fimi fluguveiðimannsins. Það er svo stutt síðan við sát- um heima hjá þeim Guðrúnu, lögðum línur veiðisumarsins og nutum höfðingsskapar þeirra, veiðifengs af ýmsu tagi, listilega matreidds af Árna og borinn fram með vandlega völdum vín- um fagmannsins. Laxmannahóp- urinn hafði þynnst, nokkrir farnir óþarflega fljótt yfir móð- una miklu, aðrir dregið úr veiði. Við kvöddumst hugmikil, ekki síst Árni sem horfði fram á meiri tíma fyrir áhugamálin, ætlaði að líta inn í kaffi og spjalla um nánari útfærslu á veiðisumrinu sem í hönd fer og húsinu okkar á Laugum í Sæ- lingsdal. Kaffið verð ég að drekka án hans en minningin mun svífa yf- ir vötnunum – minning um óvenju drenglyndan félaga sem tók þátt af heilindum, lagði hreinskiptið til málanna og af festu. Hrygg kveðjum við Lóa, Júlía og Kristinn kæran félaga og vin. Elsku Guðrún og afkomend- ur, það er sárt að kveðja en það er ljúf huggun að minningu um dreng eins og Árna. Logi Kristjánsson, formaður Laxmanna. Það er með mikilli virðingu og söknuði sem við kveðjum Árna Björn, félaga okkar úr ár- nefnd Stangveiðifélags Reykja- víkur við Hítará. Árni Björn var félagi í árnefndinni allt frá því Stangveiðifélag Reykjavíkur tók við Hítará um miðjan tíunda áratug síðustu aldar og á meðan félagið hafði ána á leigu. Árni Björn var einstakur áhugamaður um veiði og veiði- skap. Stundaði hann veiðar af mikilli ástríðu og veiddi bæði lax og silung. Hann hafði auk þess mikinn áhuga á að gefa af sér varðandi reynslu sína og segja má að það sem sameinar okkur árnefndarmenn sé áhugi okkar á stangveiði ásamt því að taka þátt í góðum félagsskap. Þegar ráðist var í endurbyggingu á veiðihúsinu Lundi við Hítará var Árni Björn í fararbroddi og kom þar vel fram einlægur áhugi hans á að varðveita eldra verk eins og kostur var, enda var húsið sögufrægt og hafði verið byggt fyrir Jóhannes Jósefsson, sem byggði Hótel Borg. Árni Björn lét sér ekki nægja að vinna með árnefnd Hítarár. Hann starfaði einnig í árnefnd Laxár í Laxárdal í Þingeyjar- sýslu. Auk þess gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Stangveiðifélag Reykjavíkur. Árni Björn vildi í störfum sín- um í árnefndum leggja áherslu á að veiðimenn hefðu góða að- stöðu. Þá lagði hann ríka áherslu á að veiðimenn nytu samverunnar. Hann vildi að veiðimenn gengju vel um ána og notuðu helst eingöngu litlar flugur við veiðar og gæfu þannig bráðinni möguleika á að jafna leikinn. Árni Björn var einnig mikill áhugamaður um vín og víngerð. Nutum við ríkulega þess áhuga og minnti hann okk- ur oft á að mikilvægt sé að njóta lystisemda lífsins í bland við strit hversdagsins. Öll þessi ár í árnefndinni og við veiðar í ýms- um ám skilja eftir sig margar góðar minningar sem ekki gleymast. Árni Björn var áhugasamur í hverju því sem hann tók sér fyr- ir hendur. Það sem einkenndi hann var vinnusemi og hjálp- semi. Hann var vandvirkur og nákvæmur og mikið snyrtimenni sem vildi hafa skipulag á hlut- unum. Umgengni hans um veiði- dótið ber þess glöggt vitni, en veiðigræjur handlék hann af mikilli alúð og virðingu. Hann gerði upp þá hluti sem úr sér gengu og notaði áfram, þegar aðrir hefðu hent þeim og keypt nýja. Árni Björn var sterkur persónuleiki sem bar umhyggju fyrir samferðafólki sínu. Hann var ákveðinn og fastur fyrir og tilbúinn að berjast fyrir því sem hann trúði á. Gerði hann miklar kröfur til sjálfs sín og annarra um leið og hann miðlaði óspart af reynslu sinni bæði í leik og starfi. Árni var mikill félagsmála- maður og menn sóttust eftir að starfa með honum og hann lað- aði að sér vini, kunningja og veiðifélaga. Það voru forréttindi að fá að veiða með honum og það verður mikill sjónarsviptir við fráfall hans. Við félagar úr árnefnd Hít- arár kveðjum einstakan félaga með þökk fyrir áralangan vin- skap og samverustundir í geng- um tíðina og sendum fjölskyldu hans hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Árna Björns Jónassonar. Fyrir hönd árnefndar, Edvard Guðnason, Albert Guðmundsson, Reynir Þrastarson, Jón Emilsson, Emil Jónsson. Á árunum 1988-1989 fóru nokkrir kunningjar að sækja fornsagnanámskeið Jóns Böðv- arssonar og ferðir í framhaldi af þeim. Í þessum hópi var Árni Björn Jónasson verkfræðingur. Vorið 1990 fórum við í vel heppnaða ferð um Norðurland, m.a. á slóðir Grettis Ásmund- arsonar í Drangey. Þá kom upp sú hugmynd að stofna minni les- hring til að kafa ofan í Sturl- unga sögu. Fæstir áttu von á að meira yrði úr, en Árni Björn var maður athafna. Um haustið (11. október) bauð hann til fundar heima hjá sér, þar sem við stofnuðum átta manna leshring sem hlaut nafnið Sturlungar, enda hefur sú saga og tengt efni verið aðalverkefni okkar. Höfum við lesið hana spjaldanna á milli a.m.k. þrisvar sinnum og rætt efni hennar frá ýmsum hliðum. Stundum voru aðrar sögur tekn- ar fyrir, Íslendingasögur, konungasögur o.fl. Við höfum haft þann hátt á að hittast hálfs- mánaðarlega yfir veturinn, og á vordögum lýkur dagskránni oft- ast með ferð á söguslóðir. Hefur það löngum verið eftirminnileg- asti hluti samverunnar. Aðrar fastar athafnir hafa verið jóla- veisla á aðventunni og sviða- veisla á þorranum eða harka- fæla, nafn sem að sjálfsögðu er sótt í Sturlungu. Segja má að Árni Björn hafi haldið utan um hópinn, m.a. með því að leggja til fundaraðstöðu, sem var lengst af í húsnæði fyrirtækja sem hann tengdist, Línuhönn- unar og ARA Engineering. Ákveðinn kjarni hefur verið með frá upphafi, en nokkrir hafa kvatt okkur og aðrir fyllt í skörðin. Árni Björn var traustur vinur og þrátt fyrir annríki og um- fangsmikil störf voru fundir og ferðir okkar Sturlunga í for- gangi. Hann var einnig höfðingi heim að sækja og voru margar jólaveislur haldnar á heimili hans og Guðrúnar Ragnarsdótt- ur á Skjólbraut 12 í Kópavogi, síðast í desember síðastliðnum. Naut hann sín þar vel í gest- gjafahlutverkinu. Árni Björn kom víða við á lífsleiðinni, bæði í störfum sínum og áhugamálum, og þekkti ótrú- legan fjölda fólks. Hann var orkumikill og útsjónarsamur maður sem lét fátt stöðva sig. Að setjast í helgan stein var ekki ofarlega á blaði hjá honum. Kannski hefur það tekið sinn toll. Síðasti fundur okkar Sturl- unga fyrir kórónulokun var 4. mars síðastliðinn, og horfðum við þá á kvikmyndina Rauð- hamra (Red Cliff) um kínverska Sturlungaöld. Ekki hvarflaði að okkur þá að það væri síðasti fundurinn með Árna Birni. Frá- fall hans við urriðaveiðar í Laxá í Þingeyjarsýslu kemur í opna skjöldu, en fyrir mann eins og hann er í rauninni fagurt að fá að kveðja við ána sem var hon- um kær til áratuga. Nú þegar komið er að leið- arlokum viljum við Sturlungar þakka félaga okkar Árna Birni dýrmætar samverustundir í ár- anna rás. Stórt skarð er höggvið í raðir okkar með fráfalli hans. SJÁ SÍÐU 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.