Morgunblaðið - 19.06.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.06.2020, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 ✝ IngimundurKristján Ingi- mundarson fæddist í Tröllatungu við Steingrímsfjörð í Strandasýslu, 4. október 1927. Hann lést 7. júní 2020 á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi. Foreldrar hans voru María Sigurbjörg Helga- dóttir, f. 15.4. 1890, d. 14.1. 1966, og Ingimundur Þórður Ingimundarson, f. 11.9. 1894, d. 30.5. 1976. Systkini Ingimundar voru: Magnús, f. 27.12. 1922, d. 8.2. 1977, Kristín, f. 4.5. 1924, d. 11.6. 2003, Helgi Sigurður, f. 27.12. 1929, og Steinunn Helga, f. 29.11. 1933. Ingimundur giftist 2. júní 1956 Þórunni Þorvaldsdóttur hjúkrunarfræðingi, f. 6.1. 1925, d. 2.5. 2020, og eignuðust þau 5 börn. Þau eru: 1) Hafdís, f. 1956, maki Þórir B. Guðmundsson, f. 1955, þeirra börn eru: Þórunn Ása, f. 1982, Stefán Ingi, f. 1989, og Hafþór Örn, f. 1990. 2) Ólöf, f. 1957, maki Þorvaldur Geir Geirsson, f. 1958, synir þeirra blóð borin og hann fór snemma að fara í róðra, m.a. með bræðr- um sínum. Sjómennsku stundaði hann að staðaldri frá því hann var 14 ára. Árið 1950 hóf hann nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík. Þar var hann í tvo vetur og útskrifaðist þaðan með skipstjórnarréttindi árið 1952. Að loknu námi sneri hann á heimaslóðir og var ráðinn skip- stjóri á Hólmvíking ST, skip sem gert var út af Hólmavíkur- hreppi. Þar var yngri bróðir hans, Helgi, í áhöfninni sem átti eftir að fylgja honum á fleiri skip. Síðar flutti hann á Akranes þar sem hann var skipstjóri á skipum Haraldar Böðvarssonar. Árið 1964 tók Ingimundur við Óskari Halldórssyni RE. Hann var svo einnig með Fylki og Hilmi áður en hann keypti Svan RE 45 árið 1973. Hann var far- sæll skipstjóri og útgerðarmað- ur alla tíð. Á Akranesi kynntist hann Þórunni Þorvaldsdóttur hjúkr- unarfræðingi. Tóta og Ingi fluttu til Reykjavíkur árið 1963. Bjuggu fyrst í Sólheimum 38, svo í Eikjuvogi 6 þar sem þau voru til ársins 2002 að þau fluttu í Mánatún. Tóta greindist með alzheimer árið 2008 og var Ingi- mundur hennar stoð og stytta til dauðadags en hún lést 2. maí síðastliðinn. Útför Ingimundar fer fram frá Áskirkju í dag, 19. júní 2020, kl. 15. eru: Geir, f. 1983, og Sveinn Þorri, f. 1991. 3) Ingimund- ur Þórður, f. 1961, maki Sigríður Ásta Sigurðardóttir, f. 1963. Þeirra börn eru: Ingimundur Kristján, f. 1980, Þórunn Sif, f. 1992, og Þorvaldur Ingi, f. 1995. 4) Sigrún María, f. 1964, maki Friðgeir Halldórsson, f. 1965. Dætur þeirra eru: Steinunn, f. 1991, Hólmfríður Dóra, f. 1998, og Harpa María, f. 2000. 5) Þor- valdur, f. 1970, maki Rós Guð- mundsdóttir, f. 1966. Synir hans eru: Tryggvi, f. 2003, og Júlíus, f. 2003. Börn Rósar eru: Ásgeir Daði, f. 1993, Elísabet Sara, f. 2003, og Arnar Logi, f. 2004. Alls eru barnabarnabörnin 9 talsins. Ingimundur fór ungur að vinna fyrir sér og var m.a. í sveit á Stað í Steingrímsfirði. Upp- vaxtarárin í sveitinni mótuðu hann og ýttu undir áhuga hans á náttúrunni og dýrum og var hann ótrúlega fróður um stað- hætti til sjávar og sveita. Sjó- mennskan var honum einnig í Heiðursmaðurinn Ingimund- ur Ingimundarson skipstjóri er látinn. Hann kvaddi á sjó- mannadaginn en það var hans dagur – enda hafði hann stund- að sjóinn og verið afburða far- sæll skipstjóri um langt árabil. Það var eftirsótt að komast í skipsrúm hjá Ingimundi, þar voru menn öruggir, stjórnin og reglan á hlutunum var einstök. Ekki var það hávaðinn eða fyr- irgangurinn sem réð ríkjum heldur samvinna og samhjálp í einu og öllu. Sjómannadagurinn var ein- stakur hátíðisdagur í lífi sjó- manna um land allt og á þeim degi fyrir meira en 60 árum voru þau gefin saman í hjóna- band Ingimundur skipstjóri og Þórunn Þorvaldsdóttir hjúkr- unarfræðingur við látlausa en hátíðlega athöfn í Akranes- kirkju. Þar voru foreldrar mín- ir giftingarvottar þeirra og skírnarvottar elstu dótturinnar, Hafdísar. Oft minntist mamma fallegu sólargeislanna sem skinu inn um kirkjugluggana á brúðhjónin og barnið þeirra þennan fallega dag. Þessir geislar hafa umvafið þau alla tíð síðan. Traust og virðing einkenndi samband Tótu og Ingimundar, þau voru samhent um uppeldi og velferð barna sinna, enda bera þau foreldrum sínum gott vitni. Hann var skipstjórinn á hafi úti en Tóta frænka stjórn- aði í brúnni heima. Ingimundur var sérstaklega hlýr, rólegur og góður maður í þess orðs bestu merkingu. Það var auðvelt að láta sér þykja vænt um hann. Börnin löðuðust að honum – hann þurfti ekkert að segja eða gera sig til, þau hreinlega komu upp í fangið á honum og sátu þar örugg og trygg. Barnabörnin okkar litlu í Svíþjóð fóru ekki úr fanginu á Ingimundi þegar við komum við hjá þeim í bústaðnum á Laugarvatni eitt sumarið. Þau þekktu ekki marga í stórfjöl- skyldunni sem þarna voru, töl- uðu ekki mikla íslensku, voru örlítið feimin – en í fanginu á Ingimundi nutu þau sín vel og fylgdust örugg með. Þetta segir meira en mörg orð. Í langvarandi veikindum Tótu sýndi Ingimundur henni einstakan kærleika og um- hyggjusemi og sinnti henni af alúð. Hún dvaldist þó síðasta árið á Hrafnistu og var það þeim báðum þungbært að hitt- ast ekki síðustu vikurnar í lífi þeirra beggja, en hún lést 2. maí síðastliðinn. Hann náði að fylgja henni síðasta spölinn, þrotinn að kröftum. En kalla má það táknrænt að hann lést á sjálfan sjómannadaginn – brúð- kaupsdag þeirra hjóna. Við Brynjúlfur og fjölskylda sendum stórfjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Hrafnhildur Sigurðardóttir. Ingimundur Krist- ján Ingimundarson ✝ Grethe G. Ingi-marsson (áður Grethe Gertrud Kortsen) fæddist 25. ágúst 1938 í År- hus í Danmörku. Hún lést 21. maí 2020 á Landspít- alanum. Foreldrar henn- ar voru Jens Christan Kortsen (fæddur 1889, lést 1941) og Anna M. Kortsen (fædd 1907, lést 1996). Hún átti fjögur systkini en tvö þeirra dóu ung áður en Grethe fæddist. Hin eru Fanney og eiga þau Ölmu Dögg og Emmu Dögg, d) Axel sem á dótturina Guðrúnu Köru. 2) Anna María Kortsen Þorkels- dóttir, f. 10.10. 1965, sem á a) Tinnu Björk sem á soninn Krist- jón Emil, b) Sævar Þór og c) Grétu Pálín. Grethe var lengi vel heima- vinnandi en hún vann lengst í Plastprenti og síðar við póst- útburð í Reykjavík. Grethe flutti til Íslands árið 1958 og bjó eftir það lengst af á Íslandi. Saman áttu Grethe og Þorkell þó heima víða í styttri tíma eins og í Þórs- höfn í Færeyjum og svo eyddu þau nokkrum árum í sumar- húsum sem þau áttu í Danmörku og á Spáni eftir að þau komust á eftirlaunaaldur. Grethe verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í dag, 19. júní 2020, klukkan 13. Viggo Emil (f. 1934) og Inge-Lise (f. 1942). Eiginmaður hennar var Þorkell S. Ingimarsson, f. 3.9. 1929, d. 14.11. 2010. Börn þeirra eru 1) Christian Emil Þorkelsson, f. 4.9.1960, giftur Guðrúnu Axels- dóttur. Börn þeirra eru a) Ásgeir, sem á dótturina Jóhönnu, b) Birgitta Björk, sem á Sóleyju og Aron Breka, c) Hólmar, sambýliskona hans er Við Christian bróðir minn erum vel meðvituð um það að við unnum stórt í foreldralottóinu. Betri for- eldra en okkar er erfitt að ímynda sér. Pabbi lést fyrir tæpum 10 ár- um og fram að andláti mömmu fann hún stöðugt fyrir söknuði sem aldrei vandist eða minnkaði. Mamma fæddist í Danmörku um það leyti sem síðari heimsstyrjöld- in var að skella á og átti ýmsar minningar frá þeim tíma. Þær voru þó fæstar neikvæðar eða að minnsta kosti upplifði hún þær ekki sem neikvæðar minningar. Hún ólst upp í mikilli fátækt þar sem pabbi hennar dó þegar hún var bara þriggja ára og mamma hennar varð ein eftir með tvö og síðar þrjú börn. Mamma elskaði mömmu sína mikið og var mjög stolt af þessari konu sem vaknaði klukkan þrjú á næturnar til að krulla á sér hárið áður en hún fór út til að sinna þremur erfiðis- vinnum til að geta brauðfætt ung- ana sína. Mamma sá alltaf bara það besta í öllum og það fylgdi henni alla tíð. Ég var alls ekki alltaf sammála henni en hún barðist fyrir þá sem áttu bágt og hélt alltaf með liðinu sem var að tapa. Reyndar fagnaði hún því vel þegar Ísland vann Danmörku í hinum ýmsu keppn- um, en það var líklega af því að henni fannst við vera lítilmagninn í þannig leikjum. Mamma sýndi okkur systkin- unum alltaf að hún elskaði okkur umfram allt annað. Við vorum henni gríðarlega mikilvæg, sér- staklega eftir að pabbi lést og við reyndum að standa okkur vel þeg- ar á þurfti að halda. Þegar fólk hefur svona mikla ást að sýna og svona mikla trú á manni, þá er ekkert annað í boði en að standa sig vel. Það var aldrei augnablik í okkar lífi sem hún stóð ekki með okkur og því stóðum við þétt með henni þar til yfir lauk. Mamma var mikil barnagæla og elskaði að hafa börn í kringum sig, ef hún hefði fengið að ráða værum við systkinin líklega mun fleiri en bara tvö. Pabba fannst það þó nóg. En önnur börn, barna- börnin þeirra og barnabarnabörn fengu í staðinn að njóta góðs af gæsku hennar og ást, því að hún átti nóg af henni til að dreifa mjög víða. Í bréfi sem ég fékk afhent eftir að hún dó skrifaði hún mér að hún hefði átt yndislegt líf sem hún væri þakklát fyrir. Ég veit að það eru engar ýkjur, en það er ekki af því að líf hennar var alltaf dans á rósum, heldur af því að hún ein- blíndi á það góða og skemmtilega í öllum aðstæðum. Það eina sem hún gat ekki snúið upp í eitthvað gott og skemmtilegt var að missa pabba. Sorgin sem fylgdi því dró mikið úr lífsgleði hennar en rétt fyrir andlát hennar sagði hún þó að hún hefði mikið að lifa fyrir ennþá. Hún var orðin mjög veik á þeim tímapunkti og þegar ég spurði hana hvað það væri, þá nefndi hún barnabarnabörnin sín. Fyrir þau vildi hún lifa áfram. Lík- aminn hennar var þó ekki sam- vinnufús og gafst upp að lokum. Elsku mömmu verður sárt saknað en það er gott að vita til þess að nú eru þau saman, mamma og pabbi. Anna María K. Þorkelsdóttir. Elsku Greta, það er með trega og eftirsjá sem ég kveð þig. Ég mun alltaf minnast þín sem mik- illar sómakonu sem vildi alltaf öll- um gott og mátti ekkert aumt sjá, alltaf reiðubúin að hjálpa. Hafðu þökk fyrir þína góðu nærveru og hversu vel þú tókst mér og börnunum þegar við urð- um hluti af fjölskyldu þinni. Þú varst mér svo hjartfólgin, hugljúf og mild, við hlið mína stóðst þú af frábærri snilld og liðsinni vildir mér veita, ef særði mig eitthvað, þitt sólbrosið hlýtt frá saklausum barnsaugum vermdi svo blítt að samúðar létt var að leita. (Jónas Jónsson frá Grjótheimi) Guðrún Axelsdóttir. Elsku besta amma mín, sem varst alltaf svo ljúf og góð. Það var mikill heilladagur þegar mamma mín og sonur þinn fundu hvort annað. Það reyndist okkur krökk- unum mikil blessun að græða þig sem ömmu, þú gerðir okkur strax að þínum og það er sko ekkert sjálfgefið en sýnir best hvað þú varst vel gerð og vildir okkur allt- af það besta. Þú tókst miklu ást- fóstri við börnin mín og þau við þig og hafðir alltaf mikinn áhuga á hvað þau voru að gera og varst í góðu sambandi við þau alla tíð. Sóley á örugglega eftir að sakna allra símtalana sem þið áttuð milli Íslands og Danmerkur eftir að hún flutti í þitt gamla heimaland. Breki saknar þín líka mjög mikið, hann var alltaf til í að heimsækja „löngu“ og hlusta á sögur úr stríð- inu og geta talað við þig um allt milli himins og jarðar, það var gaman að sjá ykkur ná svona vel saman. Þú gerðir allt fyrir alla og gafst aldrei upp, kannski bara svona skemmtilega þrjósk. Ég man þeg- ar ég var hjá ykkur afa á Spáni fyrir mörgum árum og vantaði lyf sem voru líklega ófáanleg þarna úti. Þá gekkst þú á milli apóteka og neitaðir að gefast upp, uppgjöf var ekki til í þínum huga ef þú varst búin að ákveða eithvað. Þetta kom best fram í veikindum þínum síðustu ár, ég held að þú hafir átt tuttugu líf og notað þau öll í viðleitni þinni til að ná þér. Hvað ég á eftir að sakna þín, elsku amma mín, kíkja í heimsókn til þín, heyra í þér í símanum og bara vita af þér. Þangað til næst, elska þig. Birgitta Björk. Hún amma mín var falleg sál sem sá alltaf það góða í öllum og gerði allt fyrir fólkið sitt. Ég á óteljandi minningar um góð- mennsku hennar og hjálpsemi. Hún var ekta amma sem eldaði allan ömmumatinn, gerði besta grjónagrautinn, mætti alltaf í veislur með rjómatertu eða epla- skífur, skipti jólaforréttinum í tvennt svo að ég þyrfti ekki að borða aspas, fór til kjötmannsins þegar mig langaði í „paneret flæsk“ og byrjaði í nóvember að baka sjö sortir af smákökum fyrir alla afleggjarana sína. Hún og afi ferðuðust líka meira en flestir aðr- ir og alltaf komu þau heim með eitthvað skemmtilegt handa okkur ásamt innkaupapokum með nammi frá ýmsum löndum. Hún var alltaf mikill stuðningur og klappstýra og leyfði okkur að gera það sem við vildum. Hún varð aldr- ei pirruð þegar við helltum öllum ilmvötnunum hennar í vaskinn til að búa til ný ilmvötn eða þegar við báðum hana um að taka upp alla dansa, söngva og brandara sem við bjuggum til upp á myndbandspólu. Hún passaði alltaf upp á að bæði ég og hinir krakkarnir í hverfinu værum ekki svöng og lét ískex síga niður af þriðju hæð til okkar á meðan við vorum úti að leika. Henni ömmu þótti heldur ekki mikið mál að skutla mér frá Dan- mörku til Belgíu til þess að ég gæti leikið við vinkonu þar þegar ég var sjö ára, og koma svo að sækja mig 16 dögum seinna. Hún amma mín var yndislegust og vann ég svo sannarlega í ömmulottóinu þegar ég fæddist. Tinna Björk Pálsdóttir. Elsku besta amma mín, þá ertu farin í sumarlandið að hitta afa sem þú ert búin að bíða eftir í 10 ár. Þú sagðir reyndar stuttu eftir að afi dó að þú myndir ekki vilja hafa þetta mikið fleiri en svona sex ár, en mikið er ég glaður að þau urðu tíu því annars hefðir þú ekki náð að hitta Emmu Dögg sem ég veit að þú elskaðir og hún elskaði þig. Minningarnar lifa um allt sem var brallað og rennur þá hugurinn líka að öllum matnum sem sumir myndu segja framandi. Ferðin með Inge Lise að sækja Tinnu til Belgíu er ein af uppáhaldsminn- ingum mínum og mun ég geyma þetta hjá mér svo lengi sem ég lifi, að við skyldum hafa komist á leið- arenda þótti mér ótrúlegt afrek. Gaman var að koma og gista í Engjaselinu þegar ég var yngri og lifa minningarnar um alla leikina sem farið var í, leiki sem ég hafði aldrei heyrt um áður, allt til þess að stytta mér stundirnar. Skiptin þegar búið var að henda öllu úr skápunum af því að okkur Tinnu datt eitthvað í hug og þá var allt gert til að gera það að veruleika. Maturinn var alltaf frábær, sumir réttir standa upp úr eins og rauð- magi, edik og lifur sem var réttur sem ég borðaði hvergi annars staðar en í Engjaselinu hjá ykkur afa. Aðrir hápunktar voru heimsk- lassa eplaskífurnar og rækju- hlaupið svo eitthvað sé nefnt. Sumar minningarnar á ég ekki sjálfur heldur lifa þær meira á því hvað þér fannst gaman að segja frá öllum prakkarastrikunum mín- um. Ég vil líka nota þetta tækifæri til þess að þakka þér fyrir að hafa óbilandi trú á mér og því sem ég hef verið að fást við og fyrir stuðn- inginn sem þið afi veittuð mér með því að sýna áhuga á einhverju sem þið sennilega skilduð lítið í. Síð- ustu ár voru þér erfiðari en ég von- aði að þau yrðu en við fengum þó að njóta þín þessi ár og myndi ég ekki vilja skipta á þeim tíma fyrir neitt annað. Takk fyrir að vera til staðar og ávallt veita mér skilyrðislausa ást. Knús í Sumarlandið. Hólmar Freyr. Frá því ég man eftir mér hefur amma alltaf verið manneskja sem ég gat leitað til ef eitthvað var að. Hún var góðhörtuð, gjafmild og æðisleg í alla staði. Amma lifði mjög viðburðaríku lífi og var alltaf gaman að heyra sögur frá hennar lífi. Hún bjó í mörgum löndum; Danmörku, var au pair á Englandi og flutti með afa til Færeyja og svo Spánar eftir að ég fæddist. Amma sem ólst upp í Danmörku sagði margar sögur af því hvernig það var að lifa á stríðs- árunum, en hún bjó í götu þar sem Þjóðverjarnir voru með bæki- stöðvar sínar. Hún talaði oftast um þennan tíma með jákvæðum tón sem maður heyrir ekki oft frá þeim tíma. Amma og afi áttu sumarhús í Danmörku þar sem við eyddum öllum sumrum og eru þeir tímar með þeim bestu og eftirminnileg- ustu frá ævi minni. Amma fyllti líf mitt af ást og hamingju og tel ég það mikil forréttindi að vera skírð í höfuðið á henni, vera með líkan persónuleika og að hafa haft hana í mínu lífi öll þessi ár. Gréta Pálín. Fimmtudaginn 21. maí, upp- stigningardag, fékk ég þær fréttir að okkar ástkæra Grethe hefði verið kölluð burt úr þessu lífi. Hún lifði svo sannarlega lífinu lifandi alla ævi og var stórkostleg manneskja sem við öll eigum eftir að sakna mikið. Hún hafði líklega mestu lífs- reynslu af öllum sem ég þekki, bjó í Danmörku fyrstu 18 ár lífs síns og upplifði meðal annars stríðsár- in þar mjög ung. Hún sagði mér svo margar og merkilegar sögur frá þeim tímum líka, ótrúlegt hvað hún mundi, hún lýsti því sjálf þannig: „Þótt ég geti aldrei fundið gleraugun mín, þá man ég svo mikið frá barnæsku minni!“ Ég man eftir einni sérstakri sögu sem hún sagði mér þar sem hún var mjög ung, þetta var í stríð- inu, Danmörk hernumin og gatan sem hún bjó við lokuð í báða enda með gaddavír enda var þýski her- inn með bækistöð í götunni. Þar bjó þá maður sem var mjög hallur undir Þjóðverjana, ekki góður maður, sem reyndi að fá mömmu hennar til lags við sig og var mjög ógnandi í alla staði. Svo gerðist það einn daginn að hún varð vitni að því að einhverjir Danir skutu hann rétt fyrir augum hennar. Ef þetta gerðist í dag gætum við lík- lega ekki sofið lengi á eftir og fengjum líklega áfallahjálp. En Grethe litla valhoppaði niður göt- una og hrópaði „húrra, húrra, húrra, þeir skutu karlinn“, svo mikil var gleði hennar að losna við þennan mann úr lífi þeirra. Grethe hefur búið í Danmörku og á Íslandi, ég veit að Danmörk átti jafn stóran sess í hennar hjarta og það á í mínu. Ég votta öllum ástvinum henn- ar mína dýpstu samúð, hvíl í friði elsku langamma. Sóley Björk. Grethe G. Ingimarsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.