Morgunblaðið - 19.06.2020, Side 28

Morgunblaðið - 19.06.2020, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 ✝ Sigurður Jens-son fæddist í Hafnarfirði 2. nóv- ember 1932. Hann lést á Hlévangi, Suðurnesjabæ, þann 3. maí 2020. Foreldrar hans voru Jens Runólfs- son, f. 27. október 1895 á Reyðarfirði, d. 10. maí 1977, og Björg Einarsdóttir, f. 17. júlí 1901 á Fáskrúðsfirði, d. 21. febrúar 1990. Systkini Sigurðar voru: Guðný, Helga Jóna, Rafn Ingólfur, Einar Vil- helm, Guðbjörn Níels og Val- fríður. Þau eru öll látin nema Valfríður sem búsett er í stjóri að mennt og vann lengst af sem slíkur hjá Eimskipum. Eiginkona Sigurðar var Mar- tyna Danuta, fædd í Gdansk í Póllandi 30. janúar 1953. Hún var rafvirki að mennt. For- eldrar hennar voru Jozef og Urszula Klosinski. Sigurður og Martyna giftu sig í Póllandi þann 26. nóvember 1981 og bjuggu að segja má til skiptis á Íslandi og í Póllandi lengst af. Þau voru barnlaus. Martyna lést úr krabbameini í Póllandi þann 24. febrúar 2015. Útför Sigurðar og duftkers Martynu var gerð frá Hafn- arfjarðarkirkju 15. maí 2020 að viðstöddum nánustu ættingjum og vinum. Bandaríkjunum. Einn bróðir, Sigurður, lést tíu mánaða gam- all. Sigurður ólst upp í Hafn- arfirði en fluttist síðar í Garð í Reykjanesbæ. Hann var vél- Við fjölskyldan fluttum í Köldukinn 7 þegar við systurnar vorum á fyrsta og þriðja ári. Þar bjuggum við í sjö ár til 1970, þegar við fluttum á Sunnuflöt. Í Köldukinn bjuggum við fjöl- skyldan á jarðhæðinni, en amma, afi og Siggi frændi á efri hæðinni. Jólin voru sameiginleg og í raun var svo nær alla tíð, en jólahaldið færðist síðar yfir á Sunnuflöt. Samgangurinn var mikill og Siggi var tíður gestur á heimili okkar. Siggi var vélstjóri á Detti- fossi, einu af flutningaskipum Eimskipa. Hann vann mestan hluta ævi sinnar á sjónum, þang- að til hann varð fyrir meiðslum við störf, sem hrjáðu hann alla tíð. Hann var nákvæmur og fær í sínu fagi og hafði alltaf svör á reiðum höndum um vélar. Á skipaferðum sínum kynntist Siggi Martýnu frá Póllandi og kvæntist henni 1981. Þau dvöldu á Íslandi og í Póllandi, stundum hvort í sínu landi og stundum saman. Þrátt fyrir fjarbúðina gekk hjónabandið vel, þau nutu samvistanna, ferðuðust og gerðu óspart grín hvort að öðru. Siggi og Martýna héldu góðu sambandi við okkur systurnar og alltaf bárust jólagjafir til barna okkar á Íslandi og í Dan- mörku. Þegar skipið hans Sigga kom til hafnar í Danmörku var að sjálfsögðu slegið á þráðinn til Auðar, sem búsett er í Dan- mörku, til að heyra af henni og fjölskyldunni. Það var Sigga erfitt þegar Martýna veiktist og dó úr krabbameini árið 2015. Hann og pabbi fóru til Póllands til að ganga frá málum og sóttu fallegt ker með ösku Martýnu. Í Pól- landi notuðu þessir tveir herra- menn, á níræðisaldri, „Google translate“ til að gera sig skilj- anlega og tala við pólskumæl- andi fólk. Á heimleiðinni var komið við hjá Auði og fjölskyldu í Silki- borg, þar sem haldið var upp á afmæli Auðar og rifjaðar upp fallegar minningar um Sigga og Martýnu. Siggi leitaði mikið í fé- lagsskap systkina sinna, þeirra Rafns og Helgu, meðan þeirra naut við. Þau voru ötul við að halda matarboð hvert fyrir ann- að, við ýmis tækifæri og oft nut- um við og aðrir þess að vera boðin með. Síðasta þorrablótið héldu þau systkinin á Sunnuflöt árið 2015, þá svignaði borðið undan kræs- ingum sem voru smekklega bornar fram og skreyttar af al- úð, svo var mikið hlegið og minnst skemmtilegra stunda í gamla daga. Við systurnar minnumst þess hve hugulsamur Siggi var alla tíð að skjótast í mat til pabba eftir að mamma dó. Eitt símtal: „Siggi, kjötsúpan er komin í gang“ og innan skamms var Siggi mættur úr Garði í Garða- bæ. Þegar svo pabbi lá á spítala kom Siggi daglega í heimsókn og lét sig ekki muna um akstur frá Garði til Reykjavíkur. Eftir að pabbi dó kom Siggi til Herdísar bæði jól og aðra daga. Þá var glatt á hjalla og Siggi hafði frá mörgu að segja, enda vel minnugur. Nú síðast í október þegar hann kom töluð- um við um að þegar hann treysti sér ekki í aksturinn yrði hann bara sóttur. Hann sagði að enn treysti hann sér í ferðina milli Garðs og Grafarholts. Elsku Siggi, það er komið að kveðjustund. Ferðinni er heitið til Martýnu, systkina þinna og foreldra. Takk fyrir umhyggjuna og gleðilegar stundir á liðnum árum. Þínar Auður og Herdís Rafnsdætur. Við systkinin vorum svo hepp- in að fæðast inn í stórar fjöl- skyldur. Annað foreldri okkar átti níu systkin og hitt sex. Á uppvaxtarárunum var því alltaf eitthvað í gangi, lítil afmæli, stór afmæli, sameiginleg ferðalög eða bara samvera án sérstaks til- efnis. En alltaf var líf og fjör. Mikið sungið, spilað, hlegið og spjallað. Með árunum hefur þessum samverustundum stór- fjölskyldunnar fækkað í sama takti og elstu fjölskyldumeðlim- unum. Nýlega kvöddum við síð- asta bróður mömmu okkar, hann Sigga frænda, sem hefur verið okkur svo náinn alla tíð. Siggi fæddist í Hafnarfirði 2. nóvember 1932 en sá dagur var brúðkaupsdagur foreldra hans. Uppvaxtarárin voru vafalítið erf- ið. Fjölskyldan var stór og fá- tækt og veikindi settu óhjá- kvæmilega mark sitt á systkinahópinn, um tíma a.m.k. Á unglingsárum fór Siggi að vinna í Vélsmiðju Hafnarfjarðar eins og fleiri bræður hans. Má ætla að áhugi hans á vélum, bíl- um og tækjum yfirleitt hafi vaknað á þeim árum. Síðar vann hann ýmis önnur störf en eftir að hann lauk prófi frá Vélskól- anum varð hann vélstjóri hjá Eimskipum og vann þar í yfir 30 ár eða þar til hann varð fyrir vinnuslysi og neyddist til að hætta. Hann sigldi víða en mest til Norðurlandanna, Rússlands og Póllands. Í einni af ferðum sínum til Póllands kynntist hann ungri, fallegri og yndislegri konu, Martynu Danuta. Hún var talsvert yngri en hann, fædd 1953. Þau giftu sig í Póllandi þann 26. nóvember 1981. Það tók nokkurn tíma fyrir þau að fá leyfi fyrir hana að flytjast til Ís- lands en það gekk að lokum. Hún festi þó ekki almennilega rætur hér og voru þau hjónin því oft á þeytingi milli landanna. Raunin var sú að þau gátu hvor- ugt hugsað sér að flytja alfarið í annað hvort landið. Samband þeirra var engu að síður náið og farsælt. En fyrir bragðið var Siggi meira hjá okkur systkina- börnunum en ella hefði líklega orðið. Hann var gjarnan kall- aður nammisiggi enda hafði hann alltaf með sér eitthvað gott handa börnunum í fjölskyldunni. Hann taldi það ekki eftir sér að keyra til okkar úr Garðinum þar sem hann bjó lengst af til að borða með okkur hvort heldur var á hátíðum eða virkum dög- um. Og hann dásamaði matinn. Alltaf hafði þetta verið það besta sem hann hafði smakkað. Hann og einnig Martyna þegar svo bar undir voru talsvert hjá Hafdísi og Khalil í Kaupmannahöfn, á ferðum sínum milli Íslands og Póllands. Þá bauð hann þeim undantekningarlaust út að borða og alltaf á sama kínverska veit- ingastaðinn. Ástæðulaust að taka áhættu í þeim efnum. Þeim leið greinilega báðum vel í Kaupmannahöfn. Hefðu kannski bæði getað hugsað sér að setjast þar að. Martyna lést þann 24. febrúar 2015 úr krabbameini og það varð Sigga mikið áfall. Duft- ker hennar var jarðsett með honum. Siggi var bráðskemmtilegur og orðheppinn, tilsvörin oftar en ekki óborganleg. Hann var áhugamaður um tónlist og átti mikið magn af hljómplötum. Hann spilaði á gítar áður fyrr og var í gítarnámi um skeið. Hann var góður myndasmiður, tók mikið af myndum og lék sér að því að framkalla þær og stækka. Okkur krökkunum fannst mjög gaman að fá að koma inn í litlu myrkrakompuna í Köldukinn og horfa á hann við þessa iðju. Og þá var ekki síður skemmtilegt að heimsækja hann í skipin og fá leiðsögn um þau hvort heldur var hér á landi eða erlendis. Siggi var líka mikill bókaormur. Hann las að heita má allt sem hann náði í en áhuginn var þó einna mestur á mannkynssögu og sögu almennt en umfjöllun um ýmiss konar furðuhluti og fyrirbæri vakti líka áhuga hans. Hann var ótrúlega minnugur og fylgdist lengst af vel með því sem var að gerast í þjóðfélaginu. Hann lést á Hlévangi þann 3. maí sl. eftir skammvinn veikindi. Við þökkum Sigga frænda og Martynu fyrir allar ánægjulegu samverustundirnar gegnum tíð- ina. Hrafnhildur, Hafdís, Helena, Helga og Valdimar. Sigurður Jensson og Martyna Jensson Elsku Svein- björn, ég kveð þig með vellíðan og þakklæti fyrir að hafa fengið að kynn- ast þér. Ég eyddi mörgum sumrum hjá ykkur Erlu frænku á Hörgsási 2 og fannst það alveg dásamlegt. Einnig bjó ég hjá ykkur um tíma þegar ég var í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Þið voruð mér af- skaplega góð og bý ég að þeirri góðmennsku. Þið kennduð mér margt. Ég man er ég fékk að fara með þér og fleirum frá Rarik upp á Gagnheiði um vetur. Mikið frost og mikill snjór. Ég var ekki göm- ul þá en þetta er ferð sem ég gleymi aldrei. Það þurfti svo sannarlega að hafa fyrir henni. Þú varst pínu stríðinn en fórst vel með það og mér leiddist það heldur ekki. Ég minnist þess er ég benti þér á það að Eðvald ná- granni ykkar gæti ekki heitið Eð- vald, hann hlyti að heita Eðvald- ur því hann væri jú karlmaður. Þú hlóst mikið að þessu og hefur minnt mig á þetta allt mitt líf en í gamni og pínu stríðni. Þú varst afskaplega góður við mín börn og þakka ég þér fyrir það. Þú varst rólegheitamaður og það var gott að vera í kringum þig. Eitt af því sem mér fannst erfitt við að flytja suður var að geta ekki heimsótt þig á Dyngj- una eins og ég gerði. Nú ert þú kominn á annan stað og ert örugglega í góðra vina Sveinbjörn Guðmundsson ✝ SveinbjörnGuðmundsson fæddist 1. október 1926. Hann lést 30. maí 2020. Útförin fór fram 13. júní 2020. hópi. Ég á svo marg- ar og fallegar minn- ingar um þig, elsku Sveinbjörn, sem ég geymi í hjarta mér. Bless elsku Sveinbjörn. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Kveðja, Jóhanna (hennar Lillu) Kristín Hauksdóttir. Þegar maður kom inn í Hörg- sásinn til Erlu og Sveinbjarnar virtist sem tíminn stæði í stað. Ekkert nema rólegheit og ljúfir tónar umluktu heimilið. Erla eitt- hvað að bardúsa í eldhúsinu með svuntuna bundna við mittið og Sveinbjörn sat í hvíldarstólnum, hlustandi á kántrítónlist eða á Laxness lesa eigin verk, þannig byrjuðu allar heimsóknir. Það var alveg sama hvað gekk á fyrir utan; alltaf var Hörgsásinn griða- staður. Þau Erla og Sveinbjörn voru eðalhjón í fyllstu merkinu þess orðs. En nú eru þau bæði fallin frá, Erla fyrir nokkrum ár- um en Sveinbjörn nýlega. Og því nokkurs konar þáttaskil í lífi flestra sem þekktu þau, með Sveinbirni hvarf gamli tíminn, nú þarf maður að finna sér annan griðastað, skapa sinn eigin. Sveinbjörn var ótrúlega góð- hjartaður maður og þau hjónin bæði. Það eru ófáir sem þegið hafa hjálp frá þeim sómahjónum í gegnum tíðina. Eitt sumarið spurði Sveinbjörn mig hvort ég væri með yfirdrátt í bankanum og hversu hár hann væri. Ég sagði honum að hann væri 300.000 krónur og Sveinbjörn hristi höfuðið. Svona ungur mað- ur á ekki að skulda bankanum og þá sérstaklega ekki þegar það var komið sumar. Hann gerði því við mig samning. Ég skyldi vinna fyrir hann í garðinum yfir sum- arið og hann myndi greiða upp yf- irdráttinn en hann myndi þó skila honum aftur um haustið, þá gæti ég haldið áfram að borga af hon- um. Hann vildi að ég gæti átt áhyggjulaust sumar. Þetta sumar var áhyggjulaust og bráð- skemmtilegt en Sveinbjörn hóaði reglulega í mig þegar hann vant- aði aðstoð við garðvinnuna. Og svo gaukaði hann að mér seðlum þrátt fyrir að ekki hefði verið samið um það. Svona var Svein- björn, góður karl. Hann var ekki bara góðhjartaður, hann var einnig fróður um margt og rök- fastur mjög. Hann var líka rífandi húmoristi og það var frábær til- finning þegar manni tókst að láta hann hlæja, þá vissi maður að vel tókst til. Og maður fór alltaf frá þeim hjónum brosandi og aðeins betri manneskja einhvern veg- inn. Ég er mjög ánægður að dótt- ir mín, Valería Dögg, sem ekki var svo heppin að fá að kynnast langömmu sinni Helgu, fékk að sjá Sveinbjörn áður en hann kvaddi, þó ekki nema einu sinni. Hún talar enn um góða karlinn sem gaf okkur vöfflur á dvalar- heimilinu. Sveinbjörn frændi er eiginlega eini afinn sem ég komst nálægt því að eiga og ég held að það geti margir sagt það sama. Ég mun geyma góðar minningar um þau hjónin og halda þeim á lífi með sögum af þeim eins lengi og minnið leyfir. Vor hinsti dagur er hniginn af himnum í saltan mar. Sú stund kemur aldrei aftur, sem einu sinni var. (Halldór Kiljan Laxness) Með þakklæti, Björgvin Gunnarsson. Okkar kæra Bryndís Tómasdótt- ir er látin. Nú kveðjum við góða sinawiksystur og vinkonu. Var hún ein af stofn- endum Sinawik Reykjavík árið 1969. Er sú þriðja af þeim sem kveð- ur á þessu starfsári. Bryndís Tómasdóttir ✝ Bryndís Tóm-asdóttir fædd- ist 19. maí 1929. Hún lést 11. maí 2020. Útför hennar fór fram 28. maí 2020. Auk hennar, þær Kristjana Jónsdóttir og Arndís L. Níels- dóttir. Söknum við þeirra mikið. Þegar litið er til baka munum við endalaust: Gleði – grín – hlátur – söng – dugnað, þar sem Bryndís var. T.d. dreif hún saman kór okkar sinawikkvenna. Hóaði okkur stelpunum saman heim til sín og æfði, þar til hún var nokkuð ánægð með útkomuna. Þessum stundum fylgdu oftar en ekki hlaðborð af kaffi og meðlæti. Fengum við að spreyta okkur með söng á jólafundum o.fl. uppákomum, sem við kerlurn- ar nutum í botn. Það sannaðist sem hún hélt fram – alltaf gleði og vinátta þar sem söngur er. Þarna var Bryndís óþreytandi ásamt mörgu öðru sem hún af dugnaði tók þátt í. Margt fleira er hægt að tíunda frá liðnum árum, allt í svipuðum dúr. Þökkum við allar sem ein fyrir ógleymanleg kynni af vinkonu sem kom alltaf eins fram við okk- ur með gleði og einlægni í fartesk- inu. Vottum við stórfjölskyldunni samúð okkar. Guð blessi minningu Bryndísar Tómasdóttur. F.h. Sinawik Reykjavík, Dagný Heiða Vilhjálmsdóttir formaður. Mig langar með nokkrum orðun að minnast fósturmóð- ur minnar sem ég kalla, þótt hún Guðrún Stefanía Jóhannsdóttir ✝ Guðrún Stef-anía Jóhanns- dóttir fæddist 24. desember 1921. Hún lést 15. maí 2020. Útför Guðrúnar fór fram 28. maí 2020. vildi ekki viður- kenna fósturmóður- titilinn. Ég var bara frændi sem var þarna. Ég kom til afa og ömmu á fimmta ári en þau dóu bæði árið eftir og ég ílengdist í sveitinni hjá föður- systur og föður- bræðrum mínum. Gunna frænka tók þá að sér þennan villing sem var bæði les- og talnablindur og ódæll að öllu leyti. Þá var nú ekki talað um það, bara að ég væri heimskur. En Gunna frænka hjálpaði mér í gegnum skóla- göngu, las með mér og hlýddi yfir og sagði oft að hún hefði átt að verða kennari þar sem henni lík- aði kennslan vel, enda var hún mjög minnug og mundi allt, bæði rétt og rangt. Ég ólst þarna upp og tók bíl- próf, fór síðar í meiraprófið og líka með hennar hjálp. Mig lang- ar með þessum fátæklegu orðum að þakka henni fyrir það sem hún var mér og þarna átti ég heima í 30 ár, alltaf nóg að bíta og brenna en oft mikil vinna eins og gengur í sveitinni. Við Gunna sáum meðal annars alfarið um mjaltir á meðan þurfti að handmjólka, en mjaltavélar komu ekki á heimilið fyrr en ég fór að fara á sjóinn eftir áramót, þá 17 ára gamall, en kom alltaf heim í sauðburðinn og var í sveit- inni annars alfarið. Takk fyrir Gunnu frænku. Hvíl í friði. Jóhann Grétar Sigurðsson. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.