Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 29

Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 ✝ Svava Jóns-dóttir fæddist í Stafholti í Nes- kaupstað 13. júní 1927. Hún lést á Hrafnistu við Sléttuveg í Foss- vogi 13. maí 2020. Foreldrar henn- ar voru Hróðný Jónsdóttir frá Deildartungu, f. 1892, d. 1973, og Jón Rafnsson (eldri) frá Gili í Svartárdal, f. 1885, d. 1971. Þau eignuðust sjö börn og komust fimm þeirra á legg. Systkini Svövu voru María, f. 1918, d. 1927. Arnfríður, f. 1919, d. 2016. Kristján, f. 1923, d. 1989. Rafn Ellert, f. 1924, d. 1936. Gísli, f. 1931, d. 1949. Rafn Maríus, f. 1937, d. 1970. Hinn 1. desember 1946 giftist Svava Antoni Einari Grímssyni frá Vestmannaeyjum, f. 14. október 1924, d. 11. júní 2014. Foreldrar hans voru Grímur Gíslason, f. 1898, d. 1980, frá Bugðum í Stokkseyrarhreppi og Guðbjörg Magnúsdóttir, f. 1901, d. 1982, frá Felli í Vestmanna- eyjum. Svava og Anton eignuðust fjóra syni. 1) Jón Rafns, f. 24.3. 1947, d. 2018. Eftirlifandi kona 1967, börn Rúnars eru: a) með Ernu Jónsdóttur, Inga Maren, f. 3.3.1983, m. Kjartan Már Óm- arsson, f. 29.5. 1981, þeirra börn eru Sóley og Edda. b) Ásrún Ýr, f. 6.11. 1985, samb.m. Hilmar Sveinsson, f. 26.6. 1979, börn Ás- rúnar og Hilmars eru Daníel Snær og Viktor Elí, c)Anton, f. 20.7. 1988, kv. Sigrúnu Gróu Skúladóttur, f. 27.8. 1991, börn þeirra eru: Emilía Ósk, Óliver Aron og Róbert Breki. Guðlaug Hrönn á fyrir börnin Bjarka, f. 17.9. 1988, samb.k. Þorbjörg Matthíasdóttir, sonur þeirra er Gunnar Rökkvi og Írisi Hrönn, f. 15.1. 1997, Garðarsbörn. Móðir Antons og Ásrúnar Ýrar er Ás- björg Hjálmarsdóttir. Svava tók gagnfræðapróf á Norðfirði. Eftir það fór hún í vist til systur sinnar Fríðu á Sel- fossi. Hún lauk svo prófi frá Húsmæðraskólanum á Laug- arvatni. Á þessum árum kynnt- ist hún eiginmanni sínum Antoni og hófu þau svo búskap sinn í Reykjavík fyrst hjá foreldrum Svövu á Vesturgötu 26b. Þau bjuggu eftir það í Reykjavík til ársins 2000 er þau tóku sig upp og fluttust til Akureyrar. Þar bjuggu þau í um 10 ár, uns þau flytja í þjónustuíbúð í Boðaþingi 24 í Kópavogi til að geta verið nær barnabörnum sínum. Útför Svövu fór fram frá Fossvogskirkju 22. maí 2020, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. hans er Guðrún Clausen, f. 27.11. 1951., dætur þeirra eru: a) Sólveig Andrea, f. 28.7. 1974, samb.m. Hilmir Víglunds- son, f. 12.8. 1976, börn þeirra eru Hekla Rán og Vík- ingur Rafns, fyrir átti Sólveig Guð- rúnu Andreu, samb.m. Þorbjörn Þór Sigurð- arson, börn þeirra eru Andrea Rafns og Jón Rafns. b) Svava Hróðný, f. 17.12. 1985, samb.m. Stefán Jónsson, f. 8.5. 1982, börn þeirra eru Jón Þorkell og Hrafnkell Bragi. 2) Grímur, f. 30.6. 1948, kv. Björgu Freys- dóttur, f. 1.4. 1948, dætur þeirra eru: a) Svava , f. 8.7. 1966, m. Einar B. Nåbye, f. 11.12. 1964., börn þeirra eru Atli Freyr og Eva Björg, b) Íris Dögg, f. 2.3. 1981, samb.m. Bjarki Þór Hall- varðsson, f. 11.4. 1978, börn þeirra eru Emil Nói og Grímur Leó. Fyrir á Bjarki dótturina Birtu Líf. 3) Gísli, f. 24.9. 1954, kv. Aðalbjörgu Katrínu Helga- dóttur, f. 18.3. 1959, sonur þeirra er Gísli Grímur. 4) Rúnar, f. 18.4. 1958, kv. Guðlaugu Hrönn Gunnarsdóttur, f. 8.11. Elsku amma mín. Sæt er minning þín, sem nú býr í hjarta mínu. Undarlegt með þessar minningar, sumar setjast að í líkamanum og fylgja manni æv- ina á enda og aðrar grafa sig dýpra í minni manns. Þær eru nokkrar sem hafa fylgt mér frá barnsaldri. Eins og garðurinn ykkar afa á Víkurbakkanum. Ævintýraheimurinn sem þar bjó, fyrir litla stúlku, var eins og skógur sem hægt var að valsa um í, hoppa á milli steina og finna óskir í vatninu. Vídeó- spólurnar undir sjónvarpinu sem geymdu Tomma og Jenna. Íspinnarnir sem alltaf voru til í frystikistunni hans afa í bíl- skúrnum. Sérstaklega minnist ég þó veitinganna og dásamlegu boðanna og hversu stórkostleg þú ávallt varst í hlutverki gest- gjafans. Veisluborðið svignaði undan veitingunum í hvert skipti. Framsetningin án feil- spors, þetta fannst þér gaman. Eins fallega og þetta leit út voru litlir munnar stundum smeykir við suma réttina, en réttast var að smakka þá, hvernig átti mað- ur annars að vita hvaða skoðun maður hefði á því? Ég man eitt skiptið, þegar þú kallaðir heilt boð upp í stofuna. Allir settust og börnin á gólfið. Þar sat ég. Svo stóðstu í miðjunni og hélst langa tölu. Þetta fórstu létt með. Að vera gestgjafinn í öllum hans hlutverkum. Allir hlógu inni á milli. Ég var of lítil. En minning er góð. Ég gæti aðeins reynt að feta í fótspor þín með fallega stellinu sem þú gafst mér, þó er ég viss um að ég næ aldrei tán- um mínum þar sem þú hafðir hælana. Elsku amma. Vöfflurn- ar klikkuðu aldrei. Leynivopnið var víst möndludropar. Því deildirðu með mér. Eins mun aldrei hverfa mér úr minni ein sagan sem þú sagðir mér, af ferðalagi þínu og afa til Seattle. Þú ætlaðir sko aldeilis ekki að láta þá nappa þig þar og tókst upp á það ráð að setja alla pen- ingana þína í skóna. Og þannig þrammaðir þú um borgina. Því ekki það! Ég er þakklát fyrir sögurnar og ég er þakklát fyrir síðustu heimsóknirnar. Sérstak- lega litla vöffluboðið sem var svo í þínum anda síðasta kvöldið okkar saman. Síðasta kvöldið þitt í þessum heimi. Því deildum við með góðum. Sætar vöfflurn- ar lituðu síðustu augnablikin dýrðarljóma. Þannig mun ég muna þig. Elsku amma mín. Sæt er minning þín. Inga Maren Rúnarsdóttir. Þegar ég minnist Svövu, bestu vinkonu minnar, þá er af nógu að taka því vinátta okkar hefur staðið í meira en 80 ár og aldrei borið skugga á. Þetta byrjaði austur á Norðfirði og þar höfðum við vinkonurnar gaman af að reyna eitthvað nýtt. Eitt sinn príluðum við upp á há- an olíutank og stukkum fram af niður á grjótharða götuna, en sluppum heilar fyrir utan hringlið í hausnum. Það var verra þegar við fórum í útilegu inn í sveit, við hittum á heitustu viku sumarsins, sólin skein og það blakti ekki hár á höfði. Við ætluðum að verða brúnar í hvelli og lágum í sólbaði frá morgni til kvölds. Brúni liturinn lét ekki sjá sig en í staðinn feng- um við eldrauðan lit og skinn- tætlur sem ekki var beðið um. Þegar ég horfi á mynd frá þess- um tíma af handboltaliði Þróttar þá erum við Svava þar, allt liðið brosandi út að eyrum því okkur hafði tekist að vinna utanbæj- arlið sem heimsótti bæinn okk- ar. Svava var glæsileg kona, kát, skemmtileg og róttæk til hinstu stundar. Það var ótrúlegt hvað hún gat allt, saumað hvað sem var, skorið gler og búið til alls konar fallega hluti tengda því og að ég ekki tali um matargerð af öllum toga. Ég fékk oft að njóta góðs af því. Um tíma skemmti hún eldri borgurum með ýmsu móti og kenndi þeim m.a. línu- dans með góðum árangri. Auk þess voru hún og Toni eiginmað- ur hennar í dansklúbbi árum saman, enda flottust á dansgólf- inu. Svava flutti á táningsaldrin- um til Reykjavíkur en þrátt fyr- ir fjarlægðina vorum við dugleg- ar að hittast og ferðast bæði innanlands og utan. Eftir að við vorum komnar á svipaðar slóðir myndaðist sú hefð að fjölskyld- urnar hittust á þrettándanum og kvöddu jólin. Það voru ljúfar stundir. Það fór vel á því að við Svava fórum saman okkar síð- ustu ferð til útlanda, þá báðar orðnar einar. Þá var margt rifj- að upp frá liðinni tíð og mikið hlegið. Ég óska Svövu vinkonu minni góðrar ferðar yfir landamærin og þakka henni ævilanga vináttu og tryggð. Strákunum hennar og fjölskyldum þeirra sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Anna Jónsdóttir. Svava Jónsdóttir „Halló, hvert ertu komin? Ha, hver er þetta? Nú þetta er nýi vinur þinn, Kristján kon- ungur.“ Þannig byrjaði okkar fyrsta símtal Kristjáns af mörg- um. Ég kom norður í afleysingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri sum- arið 2016 og var svo lánsöm að kynnast þessum einstaka manni. Við urðum strax miklir vinir og gátum spjallað lengi saman um allt milli himins og jarðar. Fljótlega kom ekkert annað til greina en að koma við í kaffi eða mat hjá honum og Dísu ef ég átti leið um Akureyri. Ég fann fljótt að Kristján var mikill fjölskyldumaður og fylgd- ist vel með sínu fólki og vinum og vildi allt fyrir alla gera. Hann talaði fallega um Dísu sína og þreyttist ekki á að hrósa henni við hvert tækifæri. Sama átti við um Júlíu dóttur hans, Edda og barnabörnin Evu Laufeyju, Al- dísi Huldu og Kristínu Eddu, stoltið leyndi sér ekki þegar hann talaði um þau. Ég naut oft góðs af velvild Kristjáns og Dísu, dvaldi nokkr- um sinnum í bústað þeirra í Vaðlaheiðinni og átti þar m.a. ein jól með mínum börnum. Al- veg yndislegur staður. Einnig gat ég alltaf leitað ráða hjá hon- um varðandi flesta hluti, úr- ræðagóður og greiðvikinn með eindæmum. Hann spurði mig alltaf frétta af mínu fólki, hvort ekki væri allt gott. Sagðist alltaf hafa verið forvitinn maður sem má kannski vera en þetta var þetta líka einlægur áhugi sem er góður eiginleiki að hafa. Við töluðum mikið saman þegar ég var að keyra lands- horna á milli og voru þá nokkrar ríkisspurningar í byrjun: Kristján Friðrik Júlíusson ✝ Kristján Frið-rik fæddist 5. júní 1950. Hann lést 20. mars 2020. Útför Kristjáns fór fram 31. mars 2020. „Hvert ertu komin, er mikil umferð, hvernig er veðrið, hvað hefur þú mætt mörgum flutninga- bílum á leiðinni og klukkan hvað lagð- ir þú af stað?“ svo hann gæti reiknað út nákvæman komutíma miðað við löglegan hraða. Ég á nú bágt með að trúa því að hann hafi virt þá reglu á sínum yngri árum en góður bílstjóri var hann. „Mundu bara, Harpa mín, að gera alltaf ráð fyrir að bílstjór- inn sem þú mætir sé hálfviti, ég má engan mann missa.“ Veikindi voru farin að hrjá Kristján þegar ég kynntist hon- um en hann vildi sem minnst um það tala og sjaldan heyrði ég hann kvarta. Hann talaði vel um alla þá sem komu að umönnun hans, starfsfólk SAK og heima- hlynningar. „Ég er umvafinn góðum konum í lífinu.“ Kristján var margoft búinn að ná sér upp úr miklum veik- indum sem gaf fjölskyldu og vinum von um lengri tíma með honum en 20. mars sl. var hans tími kominn. Óskastaðan hefði verið að fagna þessum stóra degi með þér, fjölskyldu þinni og vinum, kæri vinur. En það hefur eflaust vantað nýjan kon- ung þarna uppi til að sinna mik- ilvægum málum og nú hefur þú góða yfirsýn yfir allan heiminn og margir nýir að kynnast. Lukkan er þeirra en við hin ylj- um okkur við minningar um góðan mann. Síðasta símtalið man ég jafn- vel og það fyrsta. Vissum bæði í hvað stefndi en reyndum að bera höfuðið hátt og kvöddumst eins og venjulega: „Heyrumst fljótlega.“ Elsku Dísa, Júlía, Eddi, Eva Laufey, Aldís Hulda, Kristín Edda, Jóhanna og fjölskylda, Jóna María og fjölskylda, inni- legar samúðarkveðjur til ykkar allra. Harpa Indriðadóttir Mig langar til að minnast kærrar vin- konu minnar, Hall- dóru frá Næfur- holti, sem lést 20. maí eftir 16 ára harða baráttu við krabbamein. Upphaf okkar kynna var árið 1979, þá bjó ég á Akranesi og hún í Hafnarfirði. Ég fór eina helgi til Reykjavíkur í gönguferð með Ferðafélagi Íslands, þar rakst ég á þennan rauðhærða gaflara og tókust með okkur góð kynni. Það leit samt út fyrir að þessi kynni yrðu ekki lengri því komin heim Halldóra Hauksdóttir ✝ HalldóraHauksdóttir fæddist 14. ágúst 1957. Hún lést 20. maí 2020. Útför Halldóru fór fram 6. júní 2020. uppgötvaði ég að gleymst hafði að fá símanúmerið hjá Halldóru. En nokkr- um vikum seinna er ég fór í aðra göngu- för með FÍ kemur hún þá ekki til mín brosandi og segir: „Hæ Inga, gott að sjá þig, ég gleymdi að fá númerið þitt!“ Þetta var sem- sagt byrjunin á rúmlega 40 ára vináttu sem aldrei féll skuggi á. Ferðuðumst við mikið saman dagsferðir og helgarferðir með bæði FÍ og Útivist. Svo ferðuð- umst við líka á eigin vegum. Oft minntist hún á Næfurholt þar sem hún var búin að vera nokkur ár. Þá bjuggu þar systkinin Ófeigur, Geir og Jónína og sonur Jónínu, Ófeigur. Ekki var hún mikið að tala um Ófeig sérstak- lega, en svo flytur hún alveg í Næfurholt vorið 1986 og skömmu síðar fæddist Hjalti, 5. júní. Þá minntist ég þess er Halldóra kom í afmælið mitt á Skaga á gamlárs- kvöld 1985. Kom hún með Akra- borginni, þótt veðrið væri ekki gott, en tók rútu til baka. Þá hvíslaði ein vinkona mín, nýbúin að eignast barn sjálf: Hún Hall- dóra er ólétt og ég alveg græn! Svo eignaðist hún Geir 1990. En þetta stoppaði ekki okkar vináttu, heldur fór ég að koma austur í heimsóknir og gisti. Tek- ið var á móti mér opnum örmum af Næfurholtsfólkinu og leið mér strax eins og heima hjá mér. Í litla bænum fannst einhvers stað- ar rúm fyrir mig og þegar Ófeig- ur eldri lést 1990 erfði ég svo eig- inlega rúmið hans. Fyrstu árin kom ég aðallega í sauðburð, svo bættust réttirnar við og síðustu árin hef tekið þátt í að reka fé á afréttinn. Ekki bara fjölgaði ferð- unum heldur lengdist dvalartím- inn úr einum eða tveimur dögum í jafnvel fjóra til fimm daga. Átti ég meira segja svefnpoka þarna, en þegar dvalartíminn lengdist fannst Halldóru það ómögulegt þannig að ég var farin að koma að uppbúnu rúmi. Þá á ég stígvél þarna. Er hægt að bjóða mann betur velkominn en þetta? Mitt aðalhlutverk á bænum var innanhúss. Sátum við Hall- dóra oft í stofunni, hún með prjóna, og spjölluðum margt. Þá tók ég mikið af myndum og skemmtilegast var þegar heimil- isfólkið áttaði sig ekki á hvar ég tók þær. Það var ekki bara í Næf- urholti sem mér var tekið opnum örmum heldur kynntist ég fljótt vel fólkinu í sveitinni. Geir eldri lést 2006 og Jónína 2013 og nú er hún Halldóra mín farin. Mikið á ég eftir að sakna þín, elsku Hall- dóra, en minningarnar lifa. Ófeigur, Hjalti, Geir og Silje, þetta er erfiðast fyrir ykkur og sendi ég ykkur innilegar samúð- arkveðjur. Mikið þótti mér vænt um þegar þið sögðuð öll við mig við erfidrykkjuna: „Inga, þú held- ur áfram að koma austur, alltaf velkomin.“ Mér hlýnaði þá um hjartarætur, takk fyrir það. Inga Aradóttir. Nú hef ég gengið síðustu sporin hérna megin með Jónasi frænda mín- um. Það var mjög gott að koma til hans og alltaf var manni tekið opnum örmum og ævinlega beið manns útrétt hjálparhönd ef á þurfti að halda. Oft var ég búinn að koma til hans í Grundargötunni og að- stoða hann við ýmis viðvik sem hann þurfti aukahendur í og jafnvel gista þar líka og þá oftast nær í herberginu hans afa á suð- urloftinu. Og þegar maður var rétt lagstur á koddann fóru fljót- lega að heyrast svefnhljóð og jafnvel hrotur úr kvistherberg- inu en það var herbergið hans Jónasar. Í minningunni eru Jónas Ingimarsson ✝ Jónas Ingi-marsson fædd- ist 23. janúar 1937. Hann lést 31. maí 2020. Jarðarförin fór fram 13. júní 2020. þetta eins og falleg- ar kvöldsögur sem maður sofnaði við eins og skot. Og ekki gleymi ég þeim dögum sem hann og Hafliði frændi á Urðum eyddu heima á Jarlsstöðum þegar var verið að byggja nýju fjárhúsin og þeir voru að sjóða saman stálgrindina í húsin, fyrst úti á túni og síðan þegar var ver- ið að reisa hana. Þar var beitt aðferðum til að ná upp í þakhæð til að sjóða saman grindina, að- ferðum sem manni hafði ekki dottið í hug að væru framkvæm- anlegar en þetta lék allt í hönd- unum á þeim. Eitt skipti kom ég til hans um helgi seint í júní og þá hafði hann verið fenginn til að keyra nokkra frændur sína af Dalvík- inni fram í Svarfaðardal og þeg- ar unglingurinn datt inn úr dyr- unum breyttust plönin og ég var gerður að bílstjóra og fékk þann heiður að keyra með þá frændur mína fram í Bakkagerði og eyða þar einni kvöldstund við gleði og söng. Það var einhver besta skemmtun sem ég hef orðið vitni að á þessum slóðum og leið nótt- in eins og hendi væri veifað. Og þegar heim í Grundargötu var komið undir morgun sofnaði ég sætt og rótt. Eins var það mikið sport hjá okkur systkinum að fara á móti honum þegar hann var að koma í heimsókn austur og kom á gamla voffa að fá far með honum seinasta spölinn. Enn í dag finn ég lyktina sem fylgdi þeim bíl sem var alltaf eins, meira að segja eftir að frændi kom með bílinn til geymslu austur í sveit hélst lyktin áfram í honum. Það eru mörg svona smáatriði sem koma upp í hugann við svona kaflaskil en fegnastur er ég þó því að við gátum verið hjá honum síðustu dagana þannig að hann væri ekki einn þegar hann loks ýtti frá landi síðla dags á hvítasunnudag, 31. maí síðastlið- inn. Hvíl í friði elsku frændi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Einar Ingi Hermannsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.