Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 60 ára Pauline er frá Glasgow í Skotlandi en flutti til Íslands 1991 og býr núna á Akranesi. Hún er lífeindafræð- ingur að mennt og er formaður Félags nýrra Íslendinga. Maki: Tryggvi Sigfússon, f. 1956, fv. bíla- viðgerðarmaður. Synir: Benedikt, f. 1993, og Patrick, f. 1997. Foreldrar: Patrick McCarthy, f. 1936, fv. járnsmiður og félagsráðgjafi, búsettur í Glasgow, og Catherine McCarthy, f. 1935, d. 2013, húsmóðir. Pauline McCarthy Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Einhver mun hugsanlega gefa þér gjöf eða gera þér greiða í dag. Taktu frá tíma til þess að gera áætlanir fyrir fram- tíðina. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú færð óvenjumikið út úr því að vera með vinum þínum í dag. Dragðu hvergi af þér í þeirri viðureign. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nánustu sambönd þín skipta þig óvenjumiklu máli þessa dagana. Hristu þetta slen af þér og gakktu öruggur til móts við ný og spennandi verkefni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að læra að nýta þér þann eiginleika sem fær fólk til þess að opna hjarta sitt fyrir þér. Velgengnin bíður þín handan hornsins. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú getur reynt að fela tilfinningar þínar en það er hollara að hleypa þeim út. Hann þarf að leysa tiltekið verkefni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki bíða eftir fullkomnum að- stæðum til að halda áfram. Aðeins þannig getur þú unnið eins og best verður á kos- ið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér finnst þú þurfa að fá sérstaka viðurkenningu fyrir framlag þitt. Búðu þig undir að fyrr eða síðar reyni á útsjónar- semi þína. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Fólk laðast að þér og þú nýt- ur þess en gefðu þér tíma til að hugleiða hvort þú þurfir á því að halda. Gættu þess samt að verðlauna viðkomandi á end- anum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hlustaðu á ráð frá þér eldri og reyndari manneskju í dag. Veltu þér ekki upp úr því þótt eitthvað fari úr skorðum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er gefandi að taka áhuga- mál sín alvarlega. Leggðu áherslu á að hitta fólk og taka þátt í umræðum um þau mál sem eru í brennidepli. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Notaðu tækifærið og gerðu áætlanir í tengslum við vinnu eða starfs- frama. Enginn hefur sama álit á hlut- unum. 19. feb. - 20. mars Fiskur Það er hreint ekki nóg að hafa svör við öllu á reiðum höndum. Mundu að það er stundum í lagi að vera eigingjarn og hugsa fyrst um eigið skinn. lenskra fiskframleiðenda, SÍF, og tók fyrstu skóflustunguna að vörulager SÍF, þar sem nú eru skrifstofur Haf- rannsóknastofnunar. Geir fylgist enn með sjávarútveg- síðan Gísli, sonur Geirs, sem keypti fyrsta fiskinn á uppboðsmarkaðinum 15. júní 1987. Geir seldi Sjávarfisk ár- ið 2001. Geir sat í stjórn Sölusambands ís- G eir Sigurjónsson fæddist 19. júní 1930 í Neskaup- stað og ólst þar upp til sextán ára aldurs en flutti þá með foreldrum sínum til Hafnarfjarðar þar sem hann hefur búið síðan. „Ég var í sveit á Hofi í Mjóafirði í þrjú sumur frá 9 ára aldri. Þar mátti ég gera allt og þar lærði ég allt. Þar var fínt að vera fyrir krakka og eins í Neskaupstað en við ólumst upp á bryggjunni þar.“ Geir gekk í Barnaskóla Neskaup- staðar og fór síðar í Stýrimannaskól- ann og lauk meira fiskimannaprófi 1953. Geir vann fyrst hjá föður sínum í múrverki en hóf sjómennsku 1947, fyrst á Hugin RE en var lengst á Hafbjörgu GK eða í þrjú ár. Eftir skipstjórnarprófið var hann stýri- maður á Fiskakletti GK 1953-55, en lengst var hann á Norðfirði hjá tengdaföður sínum á Björgu NK 103. Hann var einnig skipstjóri á Guð- björgu GK 6 árið 1955 og á Dóru GK 49 1957. Síðast var hann stýrimaður á Hval 8 1965-69 en fór þá í land. Geir starfaði um skeið á netaverk- stæði en stofnaði árið 1971 sitt eigið fiskverkunar- og útgerðarfyrirtæki, Sigurberg hf. í Hafnarfirði, sem gerði út Sigurberg GK 212. Geir lét yfir- byggja Sigurberg og var það fyrsti vertíðarbáturinn sem var yfirbyggð- ur. „Við vorum fyrst í harðfiski og svo þegar við fengum Sigurberg verk- uðum við fiskinn í saltfisk og skreið.“ Geir rak fyrirtækið til áramóta 1979- 80. Hann stofnaði síðan fiskverkunar- fyrirtækið Sjávarfisk 1981 ásamt Bergsveinu konu sinni og Gísla syni þeirra. „Þar vorum við til að byrja með í harðfiski og frystingu en hætt- um frystingunni og fórum að verka saltfiskflök og vorum stórir í því,“ en fyrirtækið var með 45 starfsmenn þegar mest var. Sjávarfiskur var einn af stofn- endum Fiskmarkaðar Hafnarfjarðar. „Við vorum að velta því fyrir okkur hvar við ættum að hafa fiskmark- aðinn og þá fór Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri í að láta byggja hús fyrir fiskmarkaðinn og það var upphaf fiskmarkaðar á Ís- landi.“ Til gamans má geta að það var inum. „Ég fer oftast einu sinni á dag inn á síðuna Marinetraffick.com en þar getur maður séð hvar skipin eru á veiðum. Ég fylgist með öllum íslensku skipunum, hvort sem þau eru á kol- munnaveiðum nálægt Bretlands- eyjum eða á veiðum í Barentshafi. Ég fór að læra að mála árið 2006 og var þrjá vetur hjá góðum kennurum og það var yndislegt,“ segir Geir, spurður út í áhugamálin. Þau hjónin fengu viðurkenningu frá Hafnar- fjarðarbæ fyrir fallegan og snyrti- legan garð 1996 og sama ár fékk Sjáv- arfiskur einnig viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi. „Það var mjög gaman að því en konan sá alveg um þetta.“ Fjölskylda Eiginkona Geirs er Bergsveina Gísladóttir, f. 18.8. 1935, húsmóðir og var kokkur á síldarbátnum Björgu NK103 sem faðir hennar átti. Hún var fyrsta konan á Norðfirði munstr- uð á síldarbát og kannski fyrsta kon- an yfirhöfuð sem var kokkur á ís- lenskum síldarbát. Gísli og Berg- sveina gengu í hjónaband 25.8. 1956. Geir Sigurjónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri – 90 ára Fylgist með íslensku skipunum Sonurinn Gísli S. Geirsson. Björg NK Bergsveina kokkur er fremst á myndinni en Geir var stýrimaður. Hjónin Bergsveina og Geir að kynna afurðir Sjávarfisks á matvælasýningu í kringum aldamótin. 50 ára Birna er Garðbæingur og býr þar. Hún er dans- kennari og danshöf- undur og eigandi Dansskóla Birnu Björns. Maki: Elías Óskar Ill- ugason, f. 1970, endurskoðandi hjá RFS ráðgjöf. Börn: Aníta Rós, f. 1996, Ísabella Rós, f. 2000, og Kári Hrafn, f. 2005. Foreldrar: Aldís Elíasdóttir, f. 1947, húsmóðir og Björn Friðþjófsson, f. 1948, húsasmíðameistari og verkstjóri hjá Ístaki. Þau eru búsett í Grafarvogi. Birna Gyða Björnsdóttir ... stærsti uppskriftarvefur landsins! Til hamingju með daginn Reykjavík Baldur Rökkvi fæddist 22. júní 2019. Hann vó 3.788 og var 52 cm að lengd. Foreldrar hans eru Sindri Dalsgaard og Unnur Thelma. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.