Morgunblaðið - 03.07.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2020
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty
Toppur 7.850-8.950 kr.
Buxur 3.950-4850 kr.
Kjóll 13.900 kr.
URBAN
SUND LÍNAN
FRÁ FREYA
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Félag íslenskra húðlækna varar
við ákvæðum í reglugerð er snýr
að innflutningi og notkun leysa,
leysibenda og IPL-tækja. Endur-
skoðun umræddrar reglugerðar
hefur staðið yfir frá því í fyrra.
Ástæðan að baki endurskoð-
uninni er sú að að Geislavörnum
ríkisins bárust ítrekað ábendingar
um að við fegrunaraðgerðir væri
verið að meðhöndla með öflugum
leysum húðbreytingar sem jafnvel
gátu tengst sortuæxli í húð, án að-
komu læknis með viðeigandi sér-
menntun. Sömuleiðis hafa borist
kvartanir vegna alvarlegs bruna á
húð við fjarlægingu húðflúrs.
Í umsögn húðlækna um málið
eru gerðar alvarlegar athuga-
semdir við reglugerðina auk þess
sem lagðar eru til breytinga-
tillögur. Þar segir meðal annars
að stéttin hafi orðið vör við að
fjöldi fólks hafi orðið fyrir auka-
verkunum af völdum tækjanna
sem fjallað er um í reglugerðinni.
„Það ætti að vera nægjanlegt að
benda ábyrgum stjórnvöldum á
stöðuna til að þau bregðist við og
setji viðeigandi reglugerð til að
aftra t.d. meðferðum á húðkrabba-
meinum sem eru ógreind af sér-
fræðilækni. Fólk treystir því að
stjórnvöld búi því öryggi hvert svo
sem það leitar,“ segir í umsögn-
innni.
Vara við „leppalæknum“
Bendir félagið jafnframt á að
ábyrgð meðferðaraðila, annarra en
heilbrigðisstarfsmanna, virðist lítil
sem engin. Þannig geti viðskipta-
vinir ekki leitað sér aðstoðar hjá
viðeigandi aðilum þegar í ljós
kemur að þjónustan er ekki í sam-
ræmi við gefin loforð. Í raun er
því enginn sem tekur á móti
kvörtunum frá hópnum. Sömu-
leiðis vara húðlæknar við svoköll-
uðum leppalæknum, en með því er
átt við að læknar leppi starfsemi
sem ekki uppfyllir skilyrði laga
um aðkomu læknis.
Í umsögn húðlæknanna segir
ennfremur að engar tryggingar
séu fyrir hendi og eina úrræði ein-
staklinga sé að leita atbeina dóm-
stóla. Hefur slíkt jafnframt verið
afar sjaldgæft sökum þess að í
langflestum tilvikum „dregur fólk
sig inn í skelina og aðhefst
ekkert“.
Að umsögn húðlækna undan-
skildri bárust sex aðrar umsagnir
um reglugerðina.
Húðlæknar
vara sterklega
við reglugerð
Telja breytingar geta haft alvar-
legar afleiðingar í fegrunaraðgerðum
Morgunblaðið/Ómar
Húðfegrun Varað er við breyt-
ingum á reglugerð stjórnvalda.
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Icelandair hefur innleitt allar þær til-
lögur sem lagðar eru til í skýrslu
rannsóknarnefndar samgönguslysa á
alvarlegu flugatviki sem birt var í
gær. Þetta segir Jens Þórðarson,
framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs
Icelandair, í samtali við Morgun-
blaðið. Félagið hafi átt í samstarfi við
rannsóknarnefndina meðan á vinnu
skýrslunnar stóð.
Í skýrslunni er rakið hvernig vél
Icelandair á leið frá Glasgow var að-
eins um 67 metrum frá jörðu um
fimm kílómetrum frá flugbraut 19 á
Keflavíkurflugvelli þar sem hún átti
að lenda þegar hætt var við aðflug
eftir að jarðvari vélarinnar gaf frá sér
viðvörun. Aðeins munaði þá átta sek-
úndum að vélin færi í jörðina.
Vélinni var flogið með svokallaðri
svæðisleiðsögu (RNAV) en meðal
þess sem fram kemur í skýrslunni er
að flughermir sem notaður var í
verklegri þjálfun hafi ekki hermt rétt
eftir vélinni þegar svæðisleiðsaga var
þjálfuð. „Þjálfuninni hjá okkur hefur
verið breytt og flugmenn eru hvattir
til þess að prófa þetta svæðisaðflug,“
segir Jens.
Flugrekstrarbók uppfærð of oft
Í skýrslunni eru gerðar alvarlegar
athugasemdir við að Icelandair hafi
ekki tilkynnt um atvikið samstundis.
Fyrsta tilkynning barst rannsóknar-
nefndinni daginn eftir, en hún kom
frá Isavia. Segir nefndin að vegna
þess hve seint tilkynning barst hafi
ekki verið unnt að tryggja hljóðupp-
tölur hljóðrita vélarinnar af atvikinu,
og það hafi haft áhrif á rannsóknina.
„Við tilkynntum þetta of seint,“ segir
Jens. „Það er einfaldast að segja að
verklagsreglur okkar með tilkynn-
ingar svona alvarlegra atvika hafi
ekki verið nægilega skýrar.“
Brugðist hafi verið við þessu með því
að skerpa á verklagsreglum og brýna
fyrir áhöfnum og flugleiðsöguþjón-
ustu, flugmönnum og flugumferðar-
stjórum að tilkynna alvarleg atvik
tafarlaust.
Þá eru gerðar athugasemdir við að
280 tímabundnar breytingar á flug-
rekstrarhandbók félagsins hafi verið
gerðar á nokkrum árum, en svo tíðar
breytingar kunni að verða til þess að
flugmönnum yfirsjáist einhver atriði.
Brugðist hefur verið við þessu. Jens
segir breytingar á flugrekstrarbók
nauðsynlegar eftir því sem flug-
umhverfið breytist, en handbókin sé
nú uppfærð um tvisvar á ári.
Isavia skoðað efni skýrslunnar
Í svari Isavia við fyrirspurn
Morgunblaðsins segir að búið sé að
rýna efni skýrslunnar og ýmist sé
lokið við eða unnið að innleiðingu
þeirra tillaga sem að þeim sé beint.
„Tillögurnar lúta að þjálfun starfs-
manna, innleiðingu hugbúnaðar, til-
kynningarskyldu sem og samskipt-
um flugmanna og flugumferðar-
stjóra.“
Hallgrímskirkja
75 m
Til saman-
burðar
Aðfl ug FI431 að fl ugbraut 19
á Kefl avíkurfl ugvelli
Flug Icelandair, FI431 frá Glasgow 19. október 2016 kl. 15.15
2
Flugbraut 19 Fjarlægð frá fl ugbraut: 9,1 km5 km 5,5 km
1
3
Kl. 15:13:45 fer FI431 yfi r lokaaðfl ugsmið
fyrir fl ugbraut 19 í 1.750 feta hæð
Fráfl ug
1 15:14:59 Jarðvari: SINK RATE
15:15:07 Jarðvari: TOO LOW
15:15:09 Jarðvari: TERRAIN
2 15:15:11 Jarðvari: PULL UP
Fráhvarfsfl ug valið.
Vélin var þá komin
niður í 72 m hæð
yfi r jörðu (236 fet).
3 15:15:12 Lægsta hæð
fl ugvélarinnar
yfi r jörðu varð
67 m (221 fet).
Einkennisstafi r: TF-ISR
Tegund: Boeing 757-200
Fjöldi um borð: 113 Aðfl ugsferli FI431
Auglýst aðfl ugssnið
Heimild: Rannsóknar-
nefnd samgönguslysa
ATH. Hlutföll
hæðar/lengdar
á teikninunni
er um 5:1
Icelandair gripið til
ýmissa ráðstafana
Mistök að tilkynna atvikið ekki strax Þjálfun verið breytt
mið
ATH. Hlutföll
h r l r
á teikningu ni
er u
Píeta samtökin
opnuðu á mið-
vikudaginn fyrir
símaþjónustu
sem verður til
taks allan sólar-
hringinn. Fólki í
sjálfsvígshug-
leiðingum og að-
standendum
þeirra stendur til
boða að hringja í
þjónustuna, sem gengur undir heit-
inu Píetasíminn, í síma 552-2218.
„Við prófuðum þetta á tímum
kórónuveirunnar og um páskana og
þá fundum við fyrir eftirspurn-
inni,“ segir Kristín Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri samtakanna.
Í maímánuði bárust Píeta alls 547
símtöl, en félagsmálaráðuneytið
styrkti samtökin um 2 milljónir í
kjölfar kórónuveirufaraldursins og
verður framlagið nýtt til að við-
halda Píetasímanum.
„Við erum bara að bregðast við
kröfum samfélagsins,“ segir
Kristín.
Unnið er í nánu samstarfi við
hjálparsíma Rauða krossins, sem
einnig er opinn allan sólarhringinn.
„Það er mikið álag á hjálparsíma
Rauða krossins, svo við erum bæði
að létta á þeim og sinna samfélags-
þjónustu,“ sagði hún.
Fimm starfsmenn samtakanna
taka þátt í verkefninu; félagsráð-
gjafi, tveir sálfræðingar og tveir
ráðgjafar sem munu skipta með sér
símavöktum.
Sólarhringssímaþjónusta hjá Píeta
Kristín
Ólafsdóttir
Vatnsmýri er ákjósanlegasta stað-
setningin fyrir framtíðarhúsnæði
Listaháskóla Íslands samkvæmt
frumathugun Framkvæmdasýslu
ríkisins sem kynnt var á mánudag.
Listaháskólinn hefur glímt við
húsnæðisvanda um árabil, en
starfsemi hans er dreifð um fjögur
hús í tveimur póstnúmerum.
Framkvæmdasýslan réðst í frum-
athugun á húsnæðismálum skólans
að beiðni Menntamálaráðuneytis-
ins í samráði við Listaháskólann.
Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
Framkvæmdasýslunnar, kynnti
niðurstöðurnar á fundi í gær.
„Þessi niðurstaða markar
ákveðin tímamót í mikilvægu
verkefni. Það er tilgreint í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar að unnið verði að lausn á
húsnæðismálum Listaháskóla Ís-
lands á kjörtímabilinu. Uppbygg-
ing framtíðaraðstöðu Listaháskóla
Íslands í Vatnsmýrinni í Reykjavík
hefur marga kosti,“ er haft eftir
Lilju Alfreðsdóttur menntamála-
ráðherra í tilkynningu frá skól-
anum. Málið var tekið fyrir á
fundi ríkisstjórnarinnar í síðustu
viku og frumathugunin er nú til
umfjöllunar í ráðuneytinu.
Vatnsmýri ákjósanlegust fyrir Listaháskóla