Morgunblaðið - 11.07.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020
Hamraborg 12
200 Kópavogur
416 0500
www.eignaborg.is
ÁRANGUR
Í SÖLU
FASTEIGNA
Tónahvarf 6, 203 Kópavogur Verð 58,5 m.
Upplýsingar gefur
Óskar Bergsson lgfs. sími 893 2499, oskar@eignaborg.is
Til sölu með leigusamningi.
Nýtt atvinnuhúsnæði við Tónahvarf 6 í Kópavogi. Mánaðarleiga er kr. 420,000 + vsk
Staðsetning þessa húss er rétt fyrir ofan Ögurhvarf þar sem öflug uppbygginga
atvinnuhúsnæðis er orðin. Arnarnesvegur sem er á vegaáætlun 2020 – 2023
mun liggja fram hjá þessu hverfi.
Iðnaðarhúsnæði - Stærð 191 m2
Bæjarar hafa ekki átt kanslarasíðan Ludwig Erhard gegndi
embættinu á sjöunda áratugnum.
Stjórnmálamenn frá fríríkinu hafa
þó reynt fyrir sér, en ekki haft er-
indi sem erfiði.
Franz Josef Strauss
fór vaðbjúgur fyrir
Helmut Schmidt í
kosningunum 1980.
Edmund Stoiber var
forsætisráðherra
Bæjaralands frá
1993 til 2007. Hann
laut í lægra haldi
fyrir Gerhard
Schröder árið 2002.
Nú þykir líklegtað Bæjari
muni banka að dyr-
um að nýju þegar gengið verður til
kosninga á næsta ári. Þýskir fjöl-
miðlar hafa fylgst grannt með því
hverjir hafa verið í forustu um að
taka við af Angelu Merkel kanslara,
sem hyggst láta gott heita eftir
þetta kjörtímabil, enda mun hún þá
hafa setið í embætti í 16 ár.
Áður en kórónuveirufaraldurinnskall á þótti ólíklegt að Söder
ætti möguleika á að verða kansl-
araefni kristilegu flokkanna. Hann
þykir hins vegar hafa sýnt ótvíræða
forustuhæfileika í kórónuveiru-
faraldrinum, en keppinautum hans
hefur ekki tekist að láta ljóst sitt
skína.
Merkel hefur reyndar einnigþótt standa sig vel í faraldr-
inum og hafa vinsældir hennar far-
ið vaxandi meðal Þjóðverja.
Söder prýðir forsíðu nýjasta tölu-blaðs Der Spiegel þar sem leitt
er getum um að hann muni hnupla
hlutverki arftaka Merkel. Það
skyldi þó aldrei vera að næsti kansl-
ari Þýskalands komi frá Bæjara-
landi?
Angela Merkel
Fer Bæjarinn
Söder til Berlínar?
STAKSTEINAR
Markus Söder
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ríkissáttasemjari skipaði nú á dög-
unum Ástráð Haraldsson, héraðs-
dómara og aðstoðarríkissáttasemj-
ara, sem formann gerðardóms í deilu
Félags hjúkrunarfræðinga við ríkið.
Blaðinu hafa borist ábendingar um
hæfi Ástráðs, en hann er fyrrverandi
eiginmaður Svandísar Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra.
Í samtali við blaðið segir dr. Hauk-
ur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur
að málið heyri
undir stjórnsýslu-
lög, enda sé for-
maður gerðar-
dómsins
starfsmaður
framkvæmda-
valdsins. Í lögun-
um er kveðið á um
þær ástæður sem
gera starfsmann
vanhæfan til meðferðar máls. Haukur
tilgreinir að í skilningi laganna geti
vanhæfi skapast „ef að starfsmaður
hefur verið maki aðila“ eða að „hann
tengist fyrirsvarsmanni aðila“. Einnig
ef „að öðru leyti eru fyrir hendi þær
ástæður sem fallnar eru til þess að
draga óhlutdrægni hans í efa með
réttu“. Hann útskýrir að þrátt fyrir að
kjarasamningurinn sé við fjármála-
ráðuneyti, þá sé heilbrigðisráðuneyti í
forsvari fyrir heilbrigðisstarfsmenn
og því nátengt máli með ríka hags-
muni. Í skilningi laganna megi líta svo
á að verulega reyni á tengsl við heil-
brigðisráðuneyti og því ekki óeðlilegt
að fram komi efasemdir um hæfi. Í
svari við fyrirspurn segist Aðalsteinn
Leifsson ríkissáttasemjari líta svo á
að málið sé á milli hjúkrunarfræðinga
og fjármálaráðuneytis. Heilbrigðis-
ráðuneyti sé ekki aðili máls.
Efasemdir um hæfi gerðardómara
Spurningar vakna um hæfi formanns gerðardóms vegna tengsla við ráðherra
Ástráður
Haraldsson
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Annar eigenda Ölstofu Kormáks
og Skjaldar hefur sótt um að stað-
urinn gæti fengið að taka við
ferðagjöf ferðamálaráðherra sem
greiðslu, en starfsmenn staðarins
hafa nú í nokkurn tíma þurft að
svara því neitandi þegar vongóðir
gjafabréfshafar mættu á staðinn í
von um að geta greitt með bréf-
inu.
Og af hverju datt þeim í hug að
þeir gætu það? „Einhvern veginn
hefur sá orðrómur komist á kreik
að við tækjum við þessari ferða-
gjöf. Ég heyrði af honum og
fannst þetta svolítið fyndið. Þetta
fór af stað fyrir einhverjum tíma
og staffið var farið að hafa sam-
band við mig til að spyrja hvort
við gætum tekið við þessu. Jakob
Bjarnar hringdi meira að segja
hérna fyrir viku. Kemur í ljós að
við vorum settir á einhvern lista
yfir fyrirtæki sem tóku við þessu
en það hlýtur að hafa bara verið
einhver villa,“ segir Kormákur
Geirharðsson.
Hlynur Arnarson rekstrarstjóri
segir fólk hafa verið að koma og
reyna að nota ferðagjöfina.
„Málið er að við erum svo léleg
tæknitröll að við höfum ekki getað
gert þetta. Þegar ég var að vinna í
síðustu viku komu tveir og spurðu
út í þetta. Annar þeirra fór annað
þegar ég sagði nei en hinn lét sig
bara hafa þetta og greiddi,“ segir
Hlynur.
Á fimmtudag lögðu Kormákur
og félagar inn umsókn um að ger-
ast ferðagjafaraðili og þá má segja
að orðrómurinn hafi ræst. Það er
ekkert í reglugerðinni sem undan-
skilur stað á borð við Ölstofuna,
enda ætlað öllum veitingaaðilum
hvarvetna á landinu.
Hugsjónin er að örva ferðastand
fólks innanlands en það er þó ekk-
ert í reglugerðinni sem kveður á
um að neyslustaður skuli vera í
tiltekinni fjarlægð frá lögheimili
fólks.
Kormákur segir þó vitaskuld
ætlunina að taka aðeins við ferða-
gjöfinni frá ferðalöngum en kveðst
munu gera hógværa kröfu um að
fólk taki eins og einn stuttan
kattarþvott áður en það sest við
barinn eftir langt ferðalag.
Orðrómur um
Ölstofu rættist
Vilja taka ferðagjöf fyrir greiðslu