Morgunblaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020
Við Fellsmúla | Sími: 585 2888
ÚRVAL ÚTILJÓSA
„Mér finnst þetta ótrúlega spennandi
og skemmtilegt, að blanda hópum
saman. Allir þekkjast og það verður
svolítil stemning á kaffistofunni,“
segir Steinunn G. Einarsdóttir,
stjórnarformaður Skúrinnar, nýrrar
samfélagsmiðstöðvar á Flateyri.
Skúrin, sem er stytting á kven-
kynsnafnorðinu beitningaskúr, verð-
ur fyrirtækjahótel sem leigir út skrif-
stofuaðstöðu og frumkvöðlasetur.
Hluthafar í Skúrinni eru
Ísafjarðarbær og Lýðskólinn á Flat-
eyri auk 34 fyrirtækja, sem leggja fé-
laginu til 7 milljónir í hlutafé. Var
markmiðið að safna 5 milljónum í
hlutafé á móti 11 milljóna lánsvilyrði
frá Landsbankanum til fjármögnunar
á félaginu en Flateyringar gerðu gott
betur og getur félagið því lækkað fyr-
irhugaða lántöku sem þessu nemur,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu um félagið nýja.
Skúrin mun hýsa höfuðstöðvar
Lýðskólans, skrifstofu Ísafjarðar-
bæjar, skrifstofu fyrir hverfisráð Ön-
undarfjarðar og skrifstofu verk-
efnastjóra ríkisstjórnarinnar um
málefni Flateyrar.
Þá verður í Skúrinni aðstaða fyrir
framkvæmdastjóra Lánasjóðs
sveitarfélaga ásamt aðstöðu fyrir hin
ýmsu fyrirtæki og sjálfstætt starf-
andi einstaklinga sem búa á Flateyri
eða dvelja þar reglulega.
Skúrin er til húsa í gömlu símstöð-
inni á Flateyri, í Ólafstúni, og vísar
nafnið, sem er vestfirskt að uppruna,
sem áður segir til beitningaskúrs.
Skráð dæmi um þessa orðmynd eru
þó einungis tvö, úr ársriti Ísfirðinga
frá 1960 og í grein eftir Skúla Thor-
oddsen í Þjóðviljanum gamla frá
þeim tíma sem hann var sýslumaður
Ísafjarðarsýslu skömmu eftir alda-
mótin 1900.
Fyrirtækjahótel
stofnað á Flateyri
Ljósmynd/Skúrin
Skúrin Hluthafar Skúrinnar hittust á stofnfundi á fimmtudag. Ísafjarðarbær og Lýðskólinn á Flateyri eru þar á
meðal en hluthafar eru 36 talsins. Skúrin verður eins konar fyrirtækjahótel og verður opnuð 1. september.
Hægt að leigja skrifstofu í Skúrinni
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Það tekur tvær sekúndur að
spenna beltið og það er til mikils
að vinna, eins og veltendur komast
að raun um með æ meiri nákvæmni
eftir því sem veltibílarnir verða
nýrri. Nýr veltibíll hefur tekið við
keflinu af hinum gamla, sem var
þó ekki eldri en frá 2015.
Hins nýja bíður ærið starf verði
umfang embættisverkanna sam-
bærilegt því sem var hjá hinum, en
hann er sagður hafa velt um
64.000 manns á hálfum áratug.
Það, í 40.000 veltum.
Veltibíllinn er verkefni á vegum
Brautarinnar, bindindisfélags öku-
manna, en dyggilega styrkt af alls
kyns fyrirtækjum, einna helst bíla-
umboðinu Heklu, sem útvegar bíl-
inn. Það er sælla að gefa en að
þiggja en þetta árið er gleðin að
einhverju marki málum blandin
hjá bílakaupmönnunum, segir Guð-
mundur Karl Einarsson glettinn.
„Það vill svo til að þetta er fyrsti
Golfinn af 8. kynslóð sem er fluttur
til landsins. Hann er svo nýr að
þeir eru enn ekki farnir að mega
selja hann,“ segir Guðmundur, sem
er gjaldkeri stjórnar hjá Brautinni.
Hann áréttar að auðvitað hafi
Heklumönnum auðvitað bara fund-
ist það skemmtilegt að fyrsti Golf
A8 2020 yrði nýr veltibíllinn. Þetta
forskot á sæluna helgast af því að
bíllinn er fluttur inn vélarlaus fyrir
þetta sérstaka hlutverk.
Hefur velt 360 þúsund manns
Nýr veltibíll ferðast síðan um á
nýjum fararkosti. Áður var hann á
kerru en nú hefur hann eignast
sinn eigin vörubíl. Á honum getur
hann ferðast um landið og kennt
fólki „hversu miklu máli það skipt-
ir að vera í belti. Hann veltur hægt
og þá finnur fólk í senn hvernig
beltið togar í en um leið hve vel
þau halda þér,“ lýsir Guðmundur.
Frá því að þetta verkefni fór af
stað hefur veltibíllinn velt um
360.000 manns.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
vígði nýja veltibílinn fyrir utan
Perluna í fyrradag ásamt öðrum
aðilum er að málinu koma.
Eftir veltuna Sigurður Ingi vígði
nýja veltibílinn fyrir utan Perluna.
Ráðherra á
hvolfi í Golfi
Nýr veltibíll er
fyrsti Golf A8
2020 á landinu
Morgunblaðið/Eggert
Kynning Verkefnið var kynnt við Perluna að viðstöddu fjölmenni.