Morgunblaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020 STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Frétir hafa borist af góðri stórlaxa- veiði í upphafi veiðitíðar í Eystri- Rangá og að þeir komi að auki afar vel haldnir úr hafi. Margir veiði- menn hafa verið lukkulegir yfir sannkölluðum boltafiskum sem þeir hafa haft hendur á þar í ánni. En veiðimenn hafa ekki bara verið að veiða þar stóra fiska heldur líka marga enda trónir áin á toppnum sem gjöfulasta veiðisvæðið á land- inu. 504 laxar veiddust þar í liðinni viku, að meðaltali fjórir laxar á stöng á dag. „Í fyrra var líka mjög góð stór- laxaveiði en þá veiddust hér átta hundruð stórlaxar,“ segir Gunnar Skúli Guðjónsson veiðivörður við Eystri-Rangá. „Það hefur verið mik- ið af stórlaxi hér undanfarin ár og það hefur verið lagt í að rækta hann upp. Sem hefur heppnast vel. En allur fiskur virðist vera mjög vel haldinn hér núna, smálaxinn al- veg upp í þrjú og hálft kíló, algjörir bolta-hængar,“ bætir hann við og að lax sé orðinn nokkuð vel dreifður um ána þótt vissulega sé einhver munur á milli svæða. Langflest svæði séu inni núna en dagamunur á þeim og meiri fiskur á sumum en öðrum. Gunnar segir að í veiðinni nú undanfarna viku hafi smálaxinn ver- ið í aðalhlutverki. „En ég var sjálfur með útlendinga uppi á svæði sjö í gær. Við fengum átta laxa og þar af sex stórlaxa, sem fóru allir í klak- kistu. Fiskar frá 74 cm upp í 90 cm hæng. Það var svaðaleg veiði. Og veiðimennirnir heldur betur ánægðir.“ Gunnar segir að góðar fréttir af veiðinni fyrstu vikurnar hafi hjálpað við að selja vel þau leyfi sem til voru. „Áin var mjög vel seld fyrir sumarið en vegna COVID-19 fóru mjög margar af þeim pöntunum. En nú hafa margir Íslendingar verið að veiða. Það hefur verið svolítið af Mið-Evrópubúum að veiða hér undanfarið, þó ekki mikið af útlend- ingum en nú eru Bretar að mæta.“ Þar hjálpar mikið að búið að er af- létta þeirri kvöð að þeir verði að fara í sóttkví er þeir snúa aftur heim. Aðeins á flugu í Eystri-Rangá Sú breyting hefur verið gerð á veiðinni í Eystri-Rangá að nú er að- eins veitt á flugu, til 20. ágúst. „Og það er kvóti, menn mega bara taka fjóra smálaxa á vakt á stöng og allur stórlax þarf að fara í klakkistur eða út í aftur.“ Áhersla er lögð á að koma stórum hrygnum í klakkistu en stundum eru menn ekki nálægt þeim þegar þeir landa þeim stóru og þá ber að sleppa þeim. Þegar spurt er hvort hópur við- skiptavina hafi breyst við þessa breytingu, að aðeins megi veiða á flugu, segist Gunnar ekki mikið hafa séð það enda geti þeir sem vilji veiða á maðk bara mætt undir lok ágúst. „En þetta er mikil breyting, til batnaðar, og mikið af fiski er sleppt. Bæði smálaxi og stórlaxi.“ Tökuleysi síðustu daga Fínasti gangur hefur verið í lax- veiðinni við Urriðafoss í Þjórsá. Þar voru menn að fá tæplega þrjá laxa á stöng í liðinni viku en veitt er á fjór- ar. Vikan þar á undan var enn betri en þá veiddust rúmlega fjórir á stöng að meðaltali. Veiðimenn sem hafa verið í góðum veiðiám á Suðvestur- og Vesturlandi síðustu daga segja annars svipaðar sögur, af laxi sem fer hratt upp árn- ar og tekur illa. Veiðimenn sem voru í Elliðaánum í gær sögðust hafa reist fiska á nokkrum stöðum og tyllt í, en ekki nema þremur var landað á vaktinni. Síðustu holl í Þverá og Kjarrá fengu þannig fáa fiska, þótt talsvert sé sýnilega gengið í ána, en heimamaður í Aðaldal fyrir norðan, sem rætt var við, hafði áhyggjur af „Drottningunni“, Laxá. Þar fréttist af hollum sem fá afar lítið og vikutöl- ur sýna að miðað við að veitt sé á 17 stangir í ánni sé dagveiðin á stöng ekki nema þriðjungur úr laxi. Tínast inn 20-pundarar Það tínast inn fregnir af veiði- mönnum sem hafa náð að landa fisk- um yfir hundrað cm löngum, og þar með í 20-punda flokknum. Þrír slíkir eru komnir úr Blöndu, þar sem í fyrsta skipti er aðeins veitt á flugu. Þann síðasta veiddi írskur veiðimað- ur sem verður níræður eftir nokkrar vikur, 100 cm langan hæng sem tók flugu hans á svæði tvö í ánni. Fyrr í vikunni veiddi Breti 105 cm hæng á Breiðunni að norðan og þá hafði 101 cm hrygna veiðst í ánni. Þrír í þess- um stærðarflokki hafa þegar veiðst á Nesveiðum í Aðaldal, sá lengsti 107 cm og á náði handboltakappinn Aron Pálmarsson einum 104 cm. Hægt er að fylgjast með lista yfir þessa stórfiska á vefsvæðinu Sporðaköstum á mbl.is. Þar sagði í gær af fínni veiði í Veiðivötnum í sumar en þegar hefur um 9.000 silungum verið landað, ríf- lega 5.700 bleikjum og um 3.000 urr- iðum; flestir koma úr Snjóölduvatni. Ljósmynd/Bjarni Júlíusson Boltalax Hinn reyndi veiði- og leiðsögumaður Ásgeir Heiðar með sannkallaðan boltalax, vel yfir 20 pundum, sem hann veiddi á ómerktum stað í Eystri-Rangá í vikunni. Þeir Bjarni Júlíusson fengu níu laxa á stöngina á einni vakt. Svaðaleg veiði – og veiðimenn ánægðir  Góð byrjun í Eystri-Rangá  Vænir laxar og fjórir á stöng Afl ahæstu árnar Heimild: www.angling.is 0 250 500 750 Staðan 8. júlí 2020 Veiðistaður Stanga- fjöldi Veiði 10. júlí 2019 11. júlí 2018 Eystri-Rangá 18 667 405 216 Urriðafoss í Þjórsá 4 589 502 718 Norðurá 15 404 83 834 Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 328 164 401 Þverá - Kjarrá 14 275 140 1186 Haffjarðará 6 217 133 487 Miðfjarðará 6 177 202 515 Langá 10 153 51 346 Laxá í Kjós 6 136 42 276 Laxá á Ásum 4 131 54 172 Elliðaárnar 6 119 153 325 Hofsá og Sunnudalsá 6 103 54 97 Blanda 8 101 175 417 Laxá í Leirársveit 6 97 34 176 Laxá í Aðaldal 17 95 114 175 Liðsmenn Sri Chinmoy-heimsein- ingar Friðarhlaupsins hlupu í gær með logandi friðarkyndil í kringum Reykjavíkurtjörn. Hófst hlaupið á miðnætti í fyrrinótt og lauk á mið- nætti í nótt. Upphafs- og endapunktur hlaupsins var við Friðartréð, við styttuna af skáldinu Tómasi Guð- mundssyni. Markmið hlaupsins var að efla alþjóðlega vináttu, sátt og samlyndi, að því er segir í tilkynn- ingu frá Sri Chinmoy. Friðarhlaupið hefur allt frá stofnun þess árið 1987 farið árlega um allan heim með logandi kyndil, sem tákn friðar. Sólarhringshlaup í þágu friðarins Morgunblaðið/Eggert Friðarhlaup Hlaupið var í kringum Reykjavíkurtjörn í sólarhring. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgið okkur á facebook NÝTT NETVERSLUNLAXDAL.IS SUMAR YFIRHAFNIR HEILSÁRSYFIRHAFNIR ALLT AÐ 50% AFSL. ÚTSALA - ÚTSALA Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is ÚTSALA MEIRI VERÐLÆKKUN 40-60% AFSLÁTTUR SKOÐIÐhjahrafnhildi.is Rangt var farið með föðurnafn Ingi- bjargar Sverrisdóttur, nýs formanns Félags eldri borgara í Reykjavík, í grein minni í Morgunblaðinu 7. júlí síðastliðinn. Um leið og ég óska Ingibjörgu vel- farnaðar í starfi biðst ég velvirð- ingar á mistökunum. Hjörleifur Hallgríms. Ingibjörg er Sverrisdóttir LEIÐRÉTT Allt um sjávarútveg Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.