Morgunblaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020
Dreifir sér sífellt hraðar
Enn ætti að vera hægt að ráða niðurlögum kórónuveirunnar að mati Tedros
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO)
varaði við auknum dreifingarhraða
kórónuveirusmits. Segir hún ástand-
ið fara versnandi í flestum heims-
hornum. Tedros Adhanom Ghebre-
yesus, forstjóri WHO, segir ekki
hafi tekist að koma böndum á veir-
una, hún dreifi sér á vaxandi hraða,
en 11,8 milljónir manna hafa smit-
ast. Segir hann að nýsmit hafi tvö-
faldast á heimsvísu undanfarnar sex
vikur.
Að sögn WHO eru engin merki
dvínandi dreifingar Covid-19 veir-
unnar sýnileg á þeim svæðum þar
sem kórónuveirufaraldurinn er
skæðastur nú; Bandaríkjunum,
Brasilíu og Indlandi. Ghebreyesus
varaði við kæruleysi því faraldurinn
væri enn að sækja í sig veðrið.
„Við vitum að þegar lönd ganga
mót faraldrinum á faglegum for-
sendum, svo sem með því að finna,
einangra, skima og leita uppi
hugsanlega smitbera og færa þá í
sóttkví, má ná tökum á faraldrin-
um,“ sagði WHO-stjórinn. Hann
bætti því við að nær alls staðar í ver-
öldinni hefði veiran ekki verið hamin
og ástandið færi versnandi.
Ghebreyesus kvaðst í gær harma
að fjöldi sýkinga skyldi hafa tvöfald-
ast síðustu sex vikurnar en bætti því
við að enn ætti að vera mögulegt að
ráða niðurlögum veirunnar. „Fjöldi
dæma víðs vegar um veröldinni gef-
ur til kynna að enn megi koma bönd-
um á veiruna“ sagði Tedros. Gilti
einu þótt veiran blossaði ákaft upp.
Enn að glíma við fyrstu bylgju
Í gær ákváðu bresk stjórnvöld að
undanþiggja ferðalanga frá 59 lönd-
um frá kröfum um að þeir færu í
sóttkví við komuna til Englands.
Á sama tíma og flest önnur ríki
einbeita sér að sporna við hugsan-
legri annarri smitbylgju eiga Banda-
ríkin, Brasilía og Indland enn í erfið-
leikum með að höndla fyrstu
bylgjuna. Verst hafa Bandaríkin
orðið fyrir barðinu á veirunni með
rúmlega þrjár milljónir manna smit-
aðar, eða um 1% þjóðarinnar. Veiran
hefur kostað 131.000 Bandaríkja-
menn lífið en dánartalan fyrir
heimsbyggðina alla er um 555.000
manns. Síðasta sólarhring bættust
60.000 nýsmitaðir við í Bandaríkj-
unum, 45.000 í Brasilíu og 25.000 í
Indlandi.
Þá hefur nýsmiti fjölgað síðustu
daga í Tókýó og hafa yfirvöld
áhyggjur af því að þar sé ný veiru-
bylgja á ferðinni.
Eftir að hafa verið ríkjandi í far-
þegaflutningum í hálfa öld eru örlög
breiðþotunnar Boeing 747 ráðin;
smíði hennar verður senn hætt. Í
þetta hefur stefnt um skeið því flug-
vélasmiðurinn hafði ekki pantað
neina smíðishluta þotunnar í rúmt
ár.
747-breiðþotan hefur verið fram-
leidd óslitið frá árinu 1968. Boeing
hefur enn ekki staðfest að smíðinni
verði alfarið hætt en verulega hefur
dregið úr pöntun nýrra flugvéla frá
Boeing. Þá hafa líklegir kaupendur
747-þotunnar valið í staðinn í vax-
andi mæli 787-þotu Boeing, Draum-
farann, og A350-þotu Airbus.
Síðasta áætlunarflug 747 í rekstri
bandarísks félags var farið fyrir
þremur árum með flugi Delta-flug-
félagsins frá Seúl í Suður-Kóreu til
Detroit. Víða hefur notkun þotunn-
ar verið hætt. KLM lagði sinni síð-
ustu í mars sl. og Qantas í Ástralíu
gerði slíkt hið sama stuttu seinna.
Áfram verður 747-þotan hryggjar-
stykkið í flugvélaflota Lufthansa og
British Airways.
Hermt er að sú ákvörðun keppi-
nautarins Airbus að leggja smíði
A380-risaþotunnar á hilluna hafi
flýtt ákvörðun Boeing að binda
enda á smíði breiðþotunnar 747.
Evrópska þotan er stærri en sú
bandaríska en náði þó aldrei fót-
festu sem ofurjúmbóþota. Franska
flugfélagið Air France hefur nýlega
lagt sínum A380-þotum eftir mun
styttri tíma en 747-þotur í þjónustu
þess.
Fyrsta farþegaflug Boeing 747
var farið í janúar 1970, í áætlunar-
flugi Pan Am frá New York til
London. Á fjórða milljarð manna
hafa ferðast með þotunni og af rúm-
lega 1.500 sem hafa verið smíðaðar
eru 450 enn í notkun. Talið er að
hún eigi enn framtíð fyrir sér sem
vöruflutningavél. agas@mbl.is
Boeing 747-þotan
líður undir lok
Framleiðslunni
senn hætt
AFP
Vinnuhestur Boeing 747-breiðþot-
an hefur sinnt ýmsum hlutverkum.
Ráðgerðum kosningafundi Donalds
Trumps Bandaríkjaforseta í New
Hampshire var frestað, að því er
Hvíta húsið tilkynnti í gærkvöldi.
Útifundurinn var áformaður í
borginni Portsmouth en talsmaður
yfirvalda sagði honum hafa verið
frestað um eina eða tvær vikur
vegna mikils óveðurs.
Búist er við að leifar hitabeltis-
stormsins Fay gangi á land í norð-
austurhluta Bandaríkjanna um
helgina.
Trump sagðist í gær ætla að fara
sér hægt í að koma í kring annarri
lotu viðræðna við Kína um viðskipta-
mál. Hann hefði „margt annað að
sýsla um áður“. Hann hnýtti í Kín-
verja vegna kórónuveirufaraldurs-
ins og sagði þá hafa getað kæft veir-
una í upphafi. „Þeir hefðu getað
stöðvað pláguna en þeir gerðu það
ekki“ sagði Trump.
Frestar fundi sínum
BANDARÍKIN
AFP
Forseti Trump gengur upp í þotuna, en
hann ætlar að dvelja um helgina í Flórída.
Kínverjar og Kasakar eiga í óvenju-
legu áróðursstríði sín á milli. Vör-
uðu Kínverjar við „óþekkti lungna-
bólgu“ sem færi eins og logi um
akur í Kasakstan og væri mann-
skæðari en kórónuveiran.
„Dánartíðni þessa sjúkdóms er
miklu hærri,“ sagði kínverska
sendiráðið í Kasakstan en Kasakar
hafa nýlega skýrt frá því að lungna-
bólgutilfellum hafi fjölgað frá byrj-
un júní.
Kasakar gagnrýna frumhlaup
Kínverja og segja að um lungna-
bólgu sé að ræða. Enn hafi veiran
sem henni valdi ekki fundist en
hennar sé leitað.
Í héruðunum Atyrau og Aktobe
ásamt borginni Shymkent hefur
lungnaveikin breiðst hratt út.
Ný eða ekki ný
lungnabólga
KASAKSTAN
Vera Lynn, ein dáðasta goðsögn Breta frá árum seinna heimsstríðsins, var
borin til grafar í gær, en hún náði 103 ára aldri. Breski flugherinn kvaddi
hana með virktum með yfirflugi tveggja Spitfire, goðsagnakenndra orr-
ustuflugvéla frá stríðsárunum.
Söngkonan vinsæla er þekktust fyrir lagið „We’ll Meet Again“ sem blés
mörgum hermanninum kjark í brjóst á vígvellinum á árunum 1939-45.
Lagði Lynn sig fram um að heimsækja hersveitir á vígstöðvunum.
Líkfylgdin lá frá æskuheimili Veru Lynn í Ditchling í Suðaustur-
Bretlandi og fjölmenni veifandi breska fánanum stóð meðfram leiðinni sem
kistan var flutt. agas@mbl.is
Ein goðsögn kveður aðra
AFP