Morgunblaðið - 11.07.2020, Side 42

Morgunblaðið - 11.07.2020, Side 42
VIÐTAL Magnús Guðmundsson magnusg@mbl.is „Staðan á okkar fólki er óneitan- lega misjöfn og satt best að segja höfum við allt of takmarkaðar upp- lýsingar. En þótt þetta hafi skollið hvað harðast á okkar fólki gerum við okkur vonir um að sökum fá- dæma aðlögunarhæfni verði lista- geirinn hvað fljótastur að jafna sig,“ segir Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra lista- manna, en afleiðingar af kórónu- veirufaraldrinum hafa verið hvað mestar fyrir listamenn. Tekjumöguleikarnir hurfu Erling leggur áherslu á að þegar horft er á störf listamanna sé yfir- byggingin alla jafna lítil sem engin en hins vegar séu til stofnanir og stór verkefni sem eru alfarið háð störfum og framleiðslu listamanna. „Listahátíðir, atvinnuleikhús og annað af þeim toga er eðlilega að- eins tímafrekara að gangsetja, en þar er líka sokkinn kostnaður í rekstri töluverður. Ég hef engu að síður trú á að það komist aftur af stað, ekki síst fyrir hversu kröft- ugir íslenskir listamenn eru í sín- um störfum.“ Erling bendir á að af þeim 3.500 listamönnum sem eru starfandi undir Bandalagi íslenskra lista- manna búi aðeins brot af þeim við fastráðningu og starfsöryggi. „Langflestir eru einyrkjar og sjálf- stætt starfandi. Þetta er fólk sem er stöðugt að búa til sína vinnu og hefur enga tryggingu. Vissulega vinnur þetta fólk víða innan hinna skapandi greina en það gerði líka stór hluti af ferðamannabrans- anum. Það dró meira að segja úr ásókn í starfslaun árin 2016 og 2017 þeg- ar ferðamennskan var á sínum há- punkti. Án þess að ég geti staðfest það bendir tölfræðin til þess að þarna séu tengsl. Þetta segir okk- ur hversu hverfult það er að vera listamaður og skapa sína eigin vinnu og þegar kórónuveiran kom til sögunnar hurfu tekjumögu- leikar þessara einstaklinga.“ Okkar fólk aftast í röðina Nýverið kom út skýrsla um áhrif COVID-19 á íslenskan tónlistar- iðnað og á meðal þess sem þar kemur fram er hvað þau úrræði sem voru til staðar, auk þeirra sem bætt var við, hentuðu illa þorra ís- lenskra tónlistarmanna. Erling tekur undir þetta og seg- ir að þau hafi einmitt verið að berjast við þetta að undanförnu. „Fyrst var að afla peninga svo listamenn gætu haldið áfram að starfa en auðvitað áttu þeir að eiga leið inn í almenn vinnuúrræði. Fljótlega kom þó í ljós að hjá Vinnumálastofnun var allt stíflað. Samkvæmt könnun sem við lét- um gera kom í ljós að um mán- aðamótin apríl/maí voru enn 70% af okkar fólki, sem hafði sótt um aðstoð, ekki búin fá nein úrræði.“ Erling bendir á að þetta fólk hafi ekki verið tekjulaust áður eða í vanskilum eða neitt slíkt, „en vegna þess að vinnuumhverfi þeirra er flóknara en almennt ger- ist, fór það svo við þetta áhlaup sem varð á Vinnumálastofnun að umsóknir okkar fólks fóru neðst í bunkann, aftur og ítrekað vegna tímaskorts. Þetta er auðvitað af- leitt. Þetta er enn óleyst og mögulega komast úrræði fyrir þessa ein- staklinga ekki í lag fyrr en með haustinu.“ Gekk of hægt Erling leggur áherslu á að það þurfi að taka módelið sem Vinnu- málastofnun styðst við til gagn- gerrar endurskoðunar. Ekki síst í ljósi þess hversu margir passa ein- faldlega ekki inn í módelið en skila engu að síður miklum fjármunum til samfélagsins. Aðspurður um viðbrögð stjórn- valda gagnvart stöðunni hjá lista- mönnum segist hann ekki líta svo á að þar hafi verið brugðist seint og illa við. „Mennta- og menningar- málaráðuneytið brást strax við. Hafði samband við okkur og leitaði eftir samráðsfundum til þess að kortleggja ástandið. Það var strax dregin lína á milli þeirra sem voru innan stofnana sem stóðu í skjóli og svo þeirra sem eru sjálfstætt starf- andi og þurfti að huga að sérstak- lega. Í kjölfarið er lagður fram milljarður til lista- og íþróttastarfs og við tókum að okkur að stýra dreifingunni og fórum eftir hefð- bundnum leiðum. Að mínu mati gekk þetta samt allt of hægt eins og vill gerast í opinberri stjórnsýslu eins og við höfum séð fleiri dæmi um í þessu ástandi.“ Inngróin tortryggni Sjálfstætt starfandi listamenn hafa sumir haft á orði að sönnunar- byrðin sem fylgi t.d. starfslaunum geti verið æði íþyngjandi og í því samhengi segir Erling mikilvægt að við lítum í kringum okkur og horf- um til þeirra verðmæta sem lista- menn eru að skapa. „Andleg, efna- hagsleg og félagsleg verðmæti eru að verða til með þeim hætti að við verðum að átta okkur á því að listin er stoð í samfélaginu, rétt eins og heilbrigðis- og menntakerfi svo dæmi sé tekið. Fjármagni sem er beint til lista- manna með sem fæstum milliliðum er best ráðstafaða fjármagnið í list- inni. En því miður virðist einhver tortryggni vera inngróin í þjóðarsál- ina og það endurspeglast í úrræðum Vinnumálastofnunar. Þar þarf sá sem sækir um að sanna ólán sitt í aðdraganda umsóknarinnar og í til- vikum sjálfstætt starfandi lista- manna getur það reynst ærið flókið.“ Þrefalt fleiri umsóknir Erling geldur þó varhug við að tengja saman atvinnuleysi og styrki til listgreina og leggur áherslu á að barátta þeirra snúist einkum um að stuðningur við listgreinar eigi að vera sjálfstæður. „Auðvitað þarf þetta að vera í einhverju kerfi og þess vegna völdum við að fara með viðbótar- stuðninginn í hefðbundinn farveg sjóðanna til þess að sýna ábyrgð. Á sama tíma vissum við ekki við hverju við áttum að búast, sem kom ekki í ljós fyrr en umsóknirnar komu og þær reyndust vera allt að því þrefalt fleiri en í venjulegu árferði.“ Erling minnir á að þetta eru allt verkefnasjóðir og að á allra fyrstu dögum þessa ástands hafi kerfið ver- ið innstillt á að það gengi yfir á þrem- ur til sex vikum. „Það sem gerist svo í framhaldinu og engin sá fyrir var að allir veikleikar samfélagsgerðarinnar, ekki bara okkar heldur heimsins alls, poppuðu upp hver á fætur öðrum. Veiran fór yfir veröldina og afhjúpaði veikleika í samfélögum, bæði menn- ingarlega og stjórnmálalega. Þetta gerðist hratt og skildi okkur eftir í gríðarlega flókinni stöðu.“ Sukku á augabragði Erling segir að BÍL hafi fylgst með hvernig var brugðist við í öðr- um Norðurlandaríkjum og víðar og að einkum hafi aðgerðir í Berlín vakið eftirtekt. Þar hafi einyrkjar í hinum ýmsu greinum getað sótt sér stuðning og það hratt og örugglega. „En þar voru stefnan og strúktúrinn til staðar en hérna var hann veikur. Við verðum því að nota tækifærið og læra af þessu.“ Erling hefur trú á því að við mun- um endurhugsa hvernig við fjár- festum í listum og menningu í kjöl- far þessara hamfara. „Í dag eru margir listamenn í sárum. Verkefni sem hafði verið unnið að lengi sukku á einu augabragði. Það voru jafnvel fjárfestingar sem lágu á þeim og þeirra nánustu. Þetta eru erfiðar kringumstæður sem við viljum ekki standa frammi fyrir aftur. En upplifun mín af ráðuneytinu og stjórnsýslunni er jákvæð, þrátt fyrir að við séum með veikan strúkt- úr og það gefur mér von um að þetta verði fært til betra vegar.“ Nýr samráðsvettvangur Bandalag íslenskra listamanna er án húsnæðis sem kveikir spurning- una hvort að listamennirnir þurfi ekki einnig að huga að uppbyggingu um leið og þeir gera kröfu til ríkis og sveitarfélaga um aukinn skilning og bætt umhverfi? „Vissulega. Þetta er einn þeirra veikleika sem hafa opinberast í þessu samhengi. Við höfum rætt þetta innan stjórnar- innar og erum að horfa til þeirrar staðreyndar að við erum bandalag 3.500 listamanna. Á herðum þeirra standa stór fyrirtæki sem eru borin uppi af frumkvæði og hugmynda- vinnu þessa sömu einstaklinga. Kvikmyndagerð, tónlistarútgáfa og þannig mætti lengi telja. Af þessu leiðir fjöldi fleiri starfa og í raun þræða listir sig í gegnum samfélagið allt. En það er hins vegar inngróið við- nám listamanna gegn því að blása ekki út yfirbygginguna. Þetta er vel skiljanlegt þegar litið er til þess hversu mikilvægt það er listamönn- um að viðhalda frelsi sínu og sjálf- stæði og það er kjarni sem þarf að vernda. BÍL er ekki verkalýðsfélag, þau mynda bandalagið en þar undir regnhlífinni höfum við viljað halda þessu opnu og smáu í sniðum. En við svona áhlaup hefur okkur skilist að við erum fulltrúar þessa fólks, fulltrúar atvinnugreinar sem hefur birst okkur með styrkleika sína og veikleika í þessu erfiða árferði. Nú er verið að koma á nýjum samráðsvettvangi á milli ráðuneyt- isins og Bandalagsins. Ég held að það verði til bóta en að sama skapi þurfum við að halda áfram að þróa þetta og finna rétta módelið. Við þurfum að taka til okkar megin, rétt eins og ráðuneytið og stjórnsýslan, og ég held að það sé klár vilji til þess að gera þetta vel. Það stendur upp á okkur hjá Bandalaginu að fylgja þessu eftir og ég hef fulla trú á að okkur eigi eftir að takast það.“ Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Listalíf Það eru 3.500 listamenn undir hatti Bandalags íslenskra listamanna og Erling Jóhannesson bendir á að margir þeirra beri uppi stór fyrirtæki í ýmsum geirum, á borð við kvikmyndir og tónlistarútgáfu og að af þeim leiði fjöldi fleiri starfa enda þræði listir sig í gegnum samfélagið allt. Í dag eru margir listamenn í sárum  Erling Jóhannesson, formaður BÍL, segir listamenn hafa lent aftast í röðinni hjá Vinnumálastofnun  Hann bindur vonir við nýja samráðsgátt sem er í undirbúningi á milli bandalagsins og stjórnvalda 42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.