Morgunblaðið - 11.07.2020, Page 18
VIÐTAL
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Íbúar Skaftahlíðar 25, við hlið Ísaks-
skóla við Bólstaðarhlíð, hafa um
langa hríð barist fyrir því að batta-
völlur við skólann yrði fjarlægður.
Völlurinn stendur þétt við íbúðarhús
og hafa boltaspörkin valdið stöðugu
ónæði.
Nú hafa þeir haft sigur í málinu því
borgarráð hefur ákveðið að battavöll-
urinn verði fjarlægður, eins og fram
kom í frétt í blaðinu á fimmtudaginn.
Hjónin Hermann Jónasson og
Ingibjörg Halldórsdóttir búa í
Skaftahlíð 25 og hefur Ingibjörg bor-
ið hitann og þungan af baráttunni.
„Árið 2016 sendi ég skólastjóra
Ísaksskóla póst vegna ónæðis af bolt-
um sem voru alltaf að fara yfir girð-
inguna og inn á lóð okkar og í bíla. Þá
voru þar minni mörk á malbiksvelli.
Skólastjórinn kvaðst skilja það að við
vildum hafa heimilisfrið og ætlaði að
láta kippa þessu í liðinn.“
Hins vegar gerðist ekkert og árið
2018 skrifaði Ingibjörg skólastjór-
anum annað bréf og sagðist vera orð-
in hundleið á ástandinu.
Settu upp mikið mannvirki
„Skólastjórinn svaraði og sagðist
hafa beðið borgina að hækka girð-
inguna svo að boltarnir færu ekki út
af vellinum. Starfsmaður frá Reykja-
víkurborg hafði síðan samband sím-
leiðis og tjáði mér að hækka ætti
girðinguna til að koma í veg fyrir
þetta. Girðingin var hækkuð og sett
mjög há girðing, sem ég hafði ekki
átt von á eða séð fyrir. Síðan hófust
nýjar framkvæmdir, þar sem sett var
upp mikið mannvirki, stór mörk,
járnbattar með miklum festingum og
neti í sömu hæð og girðingin, mikið
mannvirki sem ég hafði aldrei heyrt
um. Ég skrifaði skólastjóranum enn
á ný og spurðist fyrir um hvað væri á
seyði. Ég hefði viljað fá heimilisfrið
en þá hefði þetta mannvirki verið
sett upp. Skólastjórinn sagði að hún
hefði aldrei farið í þessa framkvæmd
nema að fá grænt ljós til þess frá
borginni. Ég gerði strax athugasemd
til skólastjóra og fékk svar um að það
væri leitt að battarnir væru að valda
ónæði og ætlaði að athuga hvort
hægt væri að láta laga þá. Ég sendi á
móti bréf þar sem ég mótmælti þessu
og sagðist leita til yfirvalda,“ segir
Ingibjörg
Þetta var síðla sumars 2018. Síðan
þá hefur verið stanslaust boltaflug
inn í garðinn við Skaftahlíð 25, á bíla
á bílastæðinu, bílskúrsþakið og einn
daginn var bolti á svölum íbúðar-
innar þegar fólkið kom heim til sín.
„Unglingar hafa klifrað hér upp á
bílskúrsþak til að ná í bolta, notað til
þess jafnvel garðhúsgögn sem hér
voru og nú í sumar lyfti starfsmaður
hjá skóla barni upp að þaki til að ná
bolta. Skólalóð Ísaksskóla er fyrir
5-9 ára börn sem í skólanum eru. Á
skólatíma, eftir að völlurinn kom,
hefur ónæði af boltum aukist, mörkin
stærri, spörkin hærri og mikil hróp
og læti. Þegar skólanum lýkur koma
börn, unglingar og fullorðnir og
sparka hér boltum, oft er mikill há-
vaði í iðkendum auk stöðugra högga
frá böttum og bolta komandi hér í
bíla, að húsi og inn á lóð. Þetta getur
verið alla daga, öll kvöld, allar helgar
og staðið fram undir miðnætti oft.
Þetta ástand hefur valdið okkur
miklu ónæði, leiðindum og vanlíðan.“
Þegar skólastjórinn tjáði Ingibjörgu
árið 2018 að í þessi framkvæmd hefði
verið farið eftir grænt ljós frá borg-
inni sendi hún fyrirspurnir á öll
möguleg svið borgarinnar en fékk af-
skaplega fá svör.
Fékk hún Vigdísi Hauksdóttur
borgarfulltrúa, sem er í umhverfis-
og heilbrigðisnefnd, til að gera fyrir-
spurn í þeirri nefnd, en þar hafði
Ingibjörg aldrei fengið svör. Vigdís
gerði það og þá komst hreyfing á
málið.
„ Ég sendi líka athugasemdir um
slysahættu, sem er annað mál, til
margra aðila og sviða. Horfi hér dag-
lega á börn sem eru á aldrinum 5-9
ára klifra óáreitt upp þessa háu girð-
ingu, nota járnfestingar battanna til
að klifra upp og príla svo upp eftir
girðingu. Það er þakkarvert að ekki
hafi orðið hér stórslys. Það eru
strangar reglur um leiksvæði og út-
tekt og eftirlit á þeim, en svona er
þetta enn í dag, 10. júlí 2020.“
Það var svo í febrúar á þessu ári að
Ísaksskóli sendi borginni bréf og
óskaði eftir breytingu á deiliskipu-
lagi þar sem gert væri ráð fyrir
battavellinum. Í greinargerð skipu-
lagsfulltrúa kom fram að enginn vafi
léki á að þetta hefði verið óleyfis-
framkvæmd. Jafnframt kom fram að
hann hefði hvergi innan borgarinnar
fengi skýringar á því hvers vegna
ráðist var í þessa framkvæmd án
leyfis.
Er undrandi á yfirgangi
„Ég er afar undrandi á yfirgangi
sem hefur verið sýndur í þessu máli
og að mér hafi ekki verið svarað. Ég
lét vita af því kurteislega árið 2016 að
þetta boltaspark væri að valda okkur
ónæði. Mætti skilningi að ég hélt, en
þetta er útkoman, algjörlega
óskiljanleg,“ segir Ingibjörg.
Eftir að úrskurður borgarráðs lá
fyrir sendi hún Reykjavíkurborg er-
indi og óskaði eftir því að battavöllur-
inn yrði fjarlægður fyrir 10. júlí.
Hann hefði risið á skömmum tíma
og því ætti ekki að taka langan tíma
að fjarlægja hann. Ingibjörg hefur
fengið það svar að málið sé komið til
skilmálaeftirlits byggingafulltrúa,
ekkert meir, engar áætlanir fengið.
Síðast á fimmtudagskvöld voru
fullorðnir í boltaleik á vellinum, alveg
fram að miðnætti. Ingibjörg segir
ekki hægt að ákveða að battavellir
séu settir upp við alla skóla, burtséð
frá staðsetningu og stærð skólalóða.
„Ég er þakklát fyrir málalyktir og
að meirihluti borgarráðs hafi staðfest
synjun. Sjálfstæðismenn sátu hjá,
sem ég skil ekki því gögnin sýna brot
á borgurum,“ segir Ingibjörg að
lokum.
Barátta íbúanna bar árangur
Morgunblaðið/sisi
Battavöllurinn Þrátt fyrir nær þriggja metra háa girðingu hefur ekki tekist að koma í veg fyrir að boltar fljúgi yfir.
Battavöllurinn var settur upp í óleyfi „Ástandið hefur valdið okkur leiðindum og vanlíðan“
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Flaggskip íslenska kaupskipflot-
ans, Dettifoss, er vætanlegt til
hafnar í Reykjavík í fyrsta sinn síð-
degis á mánudaginn. Dettifoss er
stærsta skipið sem verið hefur í
þjónustu íslensks skipafélags frá
upphafi.
Eimskip fékk skipið afhent í Kína
2. maí sl. og það lagði af stað í heim-
ferðina 7. maí. Dettifoss sigldi frá
Guangzhou, þar sem hann var smíð-
aður, til Taicang, þar sem farmur
var lestaður til Evrópu. Síðan var
siglt frá Kína með viðkomu í Singa-
púr, Srí Lanka og gegnum Súes-
skurðinn inn í Miðjarðarhafið.
Áfram var haldið til Rússlands með
farm. Þaðan lá leiðin til Danmerkur
en þar fór skipið inn í siglinga-
áætlun Eimskips. Lagt var af stað
til Íslands frá Árósum í hádeginu í
gær.
Langt úthald hjá áhöfninni
Í áhöfn eru 16 manns. Skipstjóri
Dettifoss er Bragi Björgvinsson,
margreyndur skipstjóri, og yfirvél-
stjóri er Gunnar Steingrímsson.
Þegar skipið leggst að Klepps-
bakka í Reykjavík hefur áhöfnin
lagt að baki 68 daga siglingu.
En úthaldið hefur verið ennþá
lengra hjá Braga skipstjóra og fjór-
um öðrum í áhöfninni. Sex manna
hópur, skipstjóri, stýrimaður, tveir
vélstjórar, rafvirki og forstöðu-
maður skiparekstrardeildar lögðu
af stað til Kína 18. mars til að taka
við skipinu. Þegar þangað kom
þurfti hópurinn að fara í hálfs mán-
aðar sóttkví. Þegar þeir sluppu úr
sóttkvínni var virkni alls búnaðar
könnuð og athugað hvort Dettifoss
uppfylli kröfur skipasmíðasamn-
ingsins og flokkunarfélags skipsins.
Að lokinni prufusiglingu var skipið
afhent. Þegar Dettifoss kemur á
mánudaginn hafa skipverjarnir
fimm verið erlendis í 118 daga.
Eimskip samdi í byrjun árs 2017
við tvær skipasmíðastöðvar í Kína
um smíði tveggja stórra gáma-
skipa. Samningsverð hvors skips
nemur um 32 milljónum dollara
eða rúmir 5 milljarðar miðað við
núverandi gengi. Gert var ráð fyr-
ir að skipin yrðu afhent á árinu
2019 en afhending hefur tafist af
ýmsum ástæðum.
Dettifoss og systurskip hans,
Brúarfoss, verða stærstu gáma-
skip í sögu íslensks kaupskipa-
flota, 180 metra löng, 31 metra
breið og geta borið 2.150 gámaein-
ingar. Skipin mælast 26.500
brúttótonn. Ganghraði verður 20,5
sjómílur á klukkustund.
Þau eru hönnuð með mjög mikla
stjórnhæfni og með TIER III,
17.000 Kw aðalvél sem er sérstak-
lega útbúin til að minnka losun
köfnunarefnisoxíð (NOx) út í and-
rúmsloftið, samkvæmt upplýsing-
um á heimasíðu Eimskips. Skipin
verða mun sparneytnari á flutta
gámaeiningu í samanburði við
eldri skip og eru útbúin olíu-
hreinsibúnaði sem minnkar enn
frekar losun brennisteins (SOx) út
í andrúmsloftið. Þau eru sérlega
útbúin fyrir siglingar á Norður-
Atlantshafi, ísklössuð og uppfylla
Polar Code-reglur sem eru nauð-
synlegar til siglinga við Grænland,
en þangað munu þau sigla.
Gert er ráð fyrir að seinna skip-
ið, Brúarfoss, verði afhent Eim-
skip í september nk.
Dettifoss heim eftir 68 daga siglingu
Flaggskip kaup-
skipaflotans vænt-
anlegt til Reykja-
víkur á mánudag
Ljósmynd/Eimskip
Flaggskipið Dettifoss kemur til hafnar í Álaborg í Danmörku í vikunni, í fyrstu ferð sinni þangað. Næst lá leiðin til Árósa og þaðan fór skipið heim í gær.