Morgunblaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020
„HVAÐ GERIST EF ALLIR SAMÞYKKJA
STARFSLOKASAMNINGINN?”
„VILHJÁLMUR, ÉG ÞARF AÐ RÆÐA AÐEINS
VIÐ ÞIG UNDIR FJÖGUR AUGU ÞEGAR ÞÚ
MÁTT VERA AÐ.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að njóta ársins
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Í ALVÖRU? ERTU AÐ
PÓSTA MYND AF MJÓLK
OG SMÁKÖKUM?
HVER Í ÓSKÖPUNUM
HEFUR ÁHUGA Á ÞESSU?
KLIKK TIKK
ÉG HEF HEYRT AÐ SUNDIÐKUN
LENGI LÍFIÐ!
Í ALVÖRU …
OG ÞVÍ HRAÐAR SEM
ÞÚ SYNDIR, ÞEIM MUN
LENGUR LIFIRÐU!
höfn, húsfreyja, búsett í Reykjavík.
Börn Bárðar og Eddu eru 1)
Hákon Frank, f. 4.12. 1972 í Flekke-
fjord, byggingaverkfræðingur í
Ósló, maki: Aðalheiður Einarsdóttir,
f. 4.12. 1975, líffræðingur og kennari
í Ósló; 2) Birgir Valur, f. 13.11. 1976,
rafvirki, starfmaður velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar, maki: Jóhanna
Jónsdóttir, f. 28.7. 1971, starfs-
maður velferðarsviðs Reykjavíkur-
borgar; 3) Pálmi Freyr, f. 9.7. 1983,
viðskiptafræðingur hjá Marel hf.,
maki: Aðalbjörg Bjarnadóttir, f.
14.4. 1983, félagsráðgjafi hjá
Reykjavíkurborg. Barnabörn eru
Þórdís Alda, f. 1995, Hafsteinn
Einar, f. 1997, Hlynur, f. 2003, og
Hanna María f. 2009, Hákonarbörn,
og Rakel Una, f. 2009, Hrafnhildur,
f. 2013, og Arnar Felix, f. 2018,
Pálmabörn.
Systkini Bárðar: Guðrún Krist-
jana, f. 29.4. 1950, iðjuþjálfi, fv.
starfsmaður Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins, búsett í Mosfells-
bæ; Hannes, f. 17.9. 1951, d. 28.7.
2007, dr. í matvælaverkfræði og
starfaði á matvælasviði Iðntækni-
stofnunar og síðar verkefnastjóri
hjá Matís.
Foreldrar Bárðar voru hjónin
Hafsteinn O. Hannesson, f. 31.10.
1921, d. 16.5. 1992, skrifstofustjóri
hjá Landsbankanum á Ísafirði, svo
útibústjóri Landsbankans á Eski-
firði og síðast útibústjóri Lands-
bankans í Grindavík, og Kristín
Bárðardóttir, f. 10.7. 1922, d. 5.3.
2011, húsmóðir, síðast í Reykjavík.
Bárður
Hafsteinsson
Kristján Helgi Kristjánsson
verkamaður á Ísafirði, f. á Ísaf.
Jónína Jónsdóttir
húsfreyja á Ísafirði, f.
á Ósi í Steingrímsfirði
Guðrún Jörgína Kristjánsdóttir
húsmóðir á Ísafirði
Hannes Halldórsson
framkv.stj. á Ísafirði
Hafsteinn O. Hannesson
útibússtjóri Landsbankans
Guðbjörg Óladóttir
húsfreyja á Melum, f. á Seljanesi
Halldór Jónsson
bóndi á Melum í Árneshreppi, f. á Melum
Hjálmar R. Bárðarson
skipaverkfræðingur
og siglingamálastjóri
Guðrún Bárðardóttir
bústýra á Hjöllum
Bárður G.Tómasson
skipaverkfræðingur
Björg Þorkelsdóttir
húsfreyja í Bæ, f. í Ófeigsfirði
Guðmundur Guðmundsson
bóndi í Bæ í Árneshreppi, f. í
Þorpum í Kirkjubólshr.
Emelía Hólmfríður Guðmundsdóttir
húsmóðir á Ísafirði
Bárður Guðmundsson
bókbindari og fiskmatsmaður á Ísafirði
Guðmundur Jóhannesson
bóndi á Kirkjubóli, f. á
Hjöllum í Ögursveit
Kristín Bárðardóttir
húsfreyja á Kirkjubóli í
Langadal, f. í Kálfavík í Ögursveit
Úr frændgarði Bárðar Hafsteinssonar
Kristín Bárðardóttir
húsmóðir á Ísafirði,
Eskifirði, í Grindavík og Rvík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Skógum valdið skaða getur.
Skepna sú er ekki góð.
Kannski lítið krakkatetur.
Kyn, sem táknar menn og fljóð.
Fyrir mistök birtist gátan á
mánudag en ekki á laugardag og
veldur því sjálfsagt að færri svör
bárust en ella myndi. En hér er
lausn frá dyggum lesanda Vísna-
horns:
Kindin á sér ýmsa mynd:
ég ókind sá á róli;
ég þekki líka krakkakind;
kind er í Heimsumbóli.
Eysteinn Pétursson spyr: „Er ég
nokkuð kindarlegur?“:
Kindur bíta knappan skóg.
Kind er ill, sem hefst á ó.
Sofi vært hver barnkind blíð.
Blessist mannkind alla tíð.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Kindin veldur skaða skógi.
Skelfir ókind búalið.
Verið getur kindin krógi.
Kind er líka mannkynið.
Þá er limra:
Kormákur kindasmali
keifaði frár um dali,
heiðar og fjöll,
hitti þar tröll,
og kófsveittur tók þau tali.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Heilann lagt nú hef í bleyti,
hripa gátu niðr’ á blað,
um heiður eða skömm ei skeyti,
en skyldi nokkur fást um það?
Í skóglendinu vex hún víða.
Veglegt klæði myndum skreytt.
Heilög ritning heimsins lýða.
Heft er saman yfirleitt.
Guðmundur Ingi Kristjánsson orti:
Hef ég fundið heyrt og reynt
hestsins vit og snilli,
þegar ekki gat ég greint
götujaðra milli.
Káinn og tveir aðrir voru reknir
úr vinnu hjá bónda en þrír aðrir
teknir í staðinn:
Góður, betri, bestur
burtu voru reknir;
illur, verri, verstur
voru aftur teknir.
„Hugsjónin“ er yfirskrift þessarar
vísu Guttorms J. Guttormssonar:
Hann berst með hugsjón: að hækka,
með hæð sinni aðra að lækka.
En enginn annar má stækka
því annars vill munurinn smækka.
Og að lokum þessi staka eftir
Guttorm:
Miklum vanda er ég í
– orðinn fjandi mæðinn –
get ei andað út af því
að í mér standa kvæðin.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nú skal leita kinda
- meira fyrir áskrifendur
Lestumeira
með vikupassa!
Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang
að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga.
- Fréttir
- Ritstjórnargreinar
- Menning
- Íþróttir
- Daglegt líf
- Viðskipti
- Fastir þættir
- Aðsendar greinar
- Aukablöð
- Viðtöl
- Minningargreinar
- Umræðan
Vikupassi er auðveldari
leið til að lesaMorgunblaðið
á netinu.
Fáðu þér vikupassa af
netútgáfu Morgunblaðsins.