Morgunblaðið - 11.07.2020, Síða 48
Kvartett söngkonunnar og kontrabassaleikarans Dag-
nýjar Höllu Björnsdóttur kemur fram á hinum sívinsælu
sumardjasstónleikum veitingahússins Jómfrúarinnar
við Lækjagötu í dag, laugardag, og hefjast þeir klukkan
15. Með henni leika þeir Benjamín Gísli Einarsson á
píanó, Bjarni Már ingólfsson á gítar og Skúli Gíslason á
trommur. Þau hyggjast flytja fjölbreytta dagskrá djass-
standarda auk annarrar skemmtilegrar tónlistar úr
ýmsum áttum. Tónleikarnir fara fram utandyra á
Jómfrúartorginu og er aðgangur ókeypis.
Kvartett bassaleikarans Dagnýjar
Höllu leikur á Jómfrúnni í dag
að þó nokkur saga sé á bak við Ís-
landskortið hennar.
„Hugmyndin velktist um í koll-
inum á mér í nokkur ár áður en
endanleg útfærsla varð til. Ég var
búin að prufa ýmsar aðferðir og
gera margar prufur. Ég fékk hæða-
línukort hjá Landmælingum Ís-
lands og í kortinu mínu táknar hver
litur ákveðna hæð í landslaginu, allt
frá mjög ljósgráum lit upp í svart-
an. Ég notaði ullargarn en jöklarnir
skarta silkiþræði með hvítri ull.“
Þórhalla segir að hugmyndin að
endanlegri útkomu Íslandskortsins
hafi komið til hennar yfir kaffibolla
á Súfistanum.
„Þar sá ég í tímariti pixlaða
mynd af ítölsku leikkonunni Sófíu
Loren. Þetta var svart/hvít gróf-
pixluð mynd og ég sá strax hver
var á myndinni. Á þessu augnabliki
vissi ég hvernig mitt Ísland ætti að
vera. Ég fékk síðan til liðs við mig
Birnu Geirfinnsdóttur sem er graf-
ískur hönnuður og hún setti
mynstrið upp fyrir mig, sem var
frábærlega vel gert hjá henni.
Þetta er mín sérstaka Íslandssaga,“
segir Þórhalla sem hefur nú snúið
sér að krafti að starfi þar sem hún
vinnur með höndunum, en hún
skellti sér í nám í húsgagnabólstr-
un í fyrra þegar henni var sagt upp
í banka þar sem hún starfaði.
„Ég hlakka til á hverjum degi að
mæta til vinnu sem nemi á verk-
stæðinu hjá Lofti Þór Péturssyni,
þar sem ég er í læri.“ Nánar um
það á blaðsíðu tólf í blaðinu í dag.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Ég hafði alltaf saumað mikið og
nýt þess virkilega að gera eitthvað í
höndunum,“ segir Þórhalla Sólveig
Sigmarsdóttir, sem hannaði sjálf
mjög svo óhefðbundið kort af Ís-
landi og saumaði það síðan út með
krosssaum. Myndin er nokkuð stór,
málið á henni er 125x180 cm, og
það tók tímann sinn að vinna
verkið.
„Ég hélt dagbók um verkefnið og
það tók mig 600 klukkustundir að
sauma út þetta Íslandskort. Þetta
voru 96 þúsund krossar og einn og
hálfur kílómetri af garni. Ég hef
gert ótal minni útgáfur af þessu út-
saumaða Íslandskorti og notað sem
gjafir,“ segir Þórhalla og bætir við
Þetta er mín sér-
staka Íslandssaga
96 þúsund krossar og einn og hálfur kílómetri af garni
Morgunblaðið/Eggert
Stolt Útsaumað Íslandskort Þórhöllu er 125x180 cm og það tók hana 600 klukkustundir að sauma það út.
MHingað koma ótrúlegustu … »12
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar
sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa
notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar
hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er
þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Flex skrifstofuhúsgögn
Hönnuðir: Guðrún Margrét Ólafsdóttir
og Oddgeir Þórðarson
Dímon
Hönnuður:
Erla Sólveig Óskarsdóttir
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 193. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Hinn átján ára gamli Valgeir Lunddal Friðriksson hefur
vakið athygli fyrir frammistöðu sína með knatt-
spyrnuliði Vals að undanförnu og skoraði tvö mörk í
sigri á Víkingi síðasta miðvikudag. Hann er í liði um-
ferðarinnar hjá Morgunblaðinu í annað sinn og segir að
aðalmarkmiðið sé að festa sig í sessi í byrjunarliði Vals.
„Ég verða að standa mig í þeim leikjum sem ég fæ og
sýna að ég eigi heima í liðinu,“ segir Valgeir. »40
Verð að standa mig og sýna að
ég eigi heima í liðinu
ÍÞRÓTTIR MENNING