Morgunblaðið - 15.07.2020, Side 8

Morgunblaðið - 15.07.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2020 Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 Ívar Pálsson, sem lengi starfaðiötull í Sjálfstæðisflokknum, furðar sig á Degi borgarlínu- stjóra. Í feigðarflani stífli hann götur borgarinnar og vilji skuld- setja borgarbúa um hundruð millj- arða! Vitað sé hvaðan vaðall um strætó fortíðar komi en verra sé hverjir hafa stutt þann ófögnuð og geri enn, „en það eru ýmsar ungar konur í Sjálfstæðis- flokknum.    Aðalskipulagandskotans fær enn stuðning þeirra og nú Borgarlínan, sem toppar alla Sovét- hugsun, jafnvel eftir nær áratug af afarsamningi um framkvæmdaleysi fyrir millj- arð á ári, til þess að strætónotkun fari úr 4% ferða í 4%.    Nú kaupa þessar ungu konurréttilega rafmagnsbíla eins og enginn sé morgundagurinn, einungis til þess að láta leggja honum (en ekki í miðbænum) eða að byrja daginn og enda hann í umferðarteppu. Réttast væri að hætta alfarið við Borgarlínu, en styðja rafbílavæðingu og bæta vegakerfið, sem kostar aðeins brot af strætóvæðingunni.    Borgin gæti dreift inneignum áskjólstæðinga sína í staðinn, sem nota mætti í viðurkennda raf- leigubíla.    En risahnífurinn í kúnni ertregðan í hluta Sjálfstæðis- flokksins til þess að faðma nýja tíma, frekar en austantjalds- drauma miðbæjarídealistanna.    Ekki er hægt að kjósa þannflokk nema þeirri tregðu verði vikið almennilega til hliðar.“ Ívar Pálsson Hikandi stuðningur STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Fangavarðafélag Íslands mótmælir harðlega lokun fangelsisins á Akur- eyri. Þetta kom fram í yfirlýsingu fé- lagsins í gær. Fangavarðafélagið segir lokunina stangast á við yfirlýsta stefnu stjórn- valda um að fjölga störfum á lands- byggðinni. Með þessu tapist sex stöðugildi úti á landi. „Fangaverðir eru sérhæfð stétt og mesta þekk- ingin kemur frá starfsreynslu. Ára- tuga reynsla mun tapast við þessar aðgerðir, ásamt verðmætri tengingu við lögregluna, en fangaverðir og lögreglumenn á Akureyri hafa átt farsælt samstarf í áraraðir,“ segir m.a. í yfirlýsingunni. Þá er bent á að um 13,3% landsmanna búi á Norður- landi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi. Þessir landshlutar þurfi fangelsi í nærumhverfinu bæði til að vista gæsluvarðhaldsfanga og afplánunarfanga. Stór hluti af betr- un fanga felist í bættum samskiptum við fjölskyldu og vini. Gott aðgengi og stuttur ferðatími skipti því máli. Fangavarðafélagið kveðst sýna því fullan skilning að Fangelsismála- stofnun hafi sætt niðurskurði ár eftir ár. Það hafi kallað á sparnaðar- aðgerðir. Félagið skorar á stjórnvöld að auka fjárheimildir til fangelsis- kerfisins svo hægt sé að reka það með sóma. gudni@mbl.is Á móti lokun fangelsis á Akureyri  Fangavarðafélag Íslands segir sex stöðugildi úti á landi tapast við lokun Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að loka fangelsinu. Vinnustöðvun starfsmanna Herjólfs ohf. sem eru félagsmenn Sjómanna- félags Íslands hófst öðru sinni á mið- nætti aðfaranótt gærdagsins og mun standa yfir þar til á morgun. Deilan er á borði ríkissáttasemjara en engir fundir hafa verið boðaðir. „Ég tek ekki efnislega afstöðu enda er deilan ekki á mínu borði. En þetta hefur gríðarlega mikil áhrif á samfélagið allt og við hörmum það að þessi vinnudeila hafi þau áhrif að þjóðvegurinn okkar sé lokaður,“ sagði Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, í samtali við mbl.is í gær. „Ég vona það besta – að deilu- aðilar klári þetta af því að staðan eins og hún er núna er ekki boðleg samfélaginu okkar,“ bætir Íris við. Leita allra leiða Guðbjartur Ellert Jónsson, fram- kvæmdastjóri Herjólfs ohf., segir fé- lagið leita allra leiða til þess að tryggja samgöngur milli Eyja og meginlandsins. Spurður hvort til greina komi að hefja siglingar á einhvern hátt þrátt fyrir að á verkfallinu standi vill hann ekki útiloka það án þess þó að gang- ast við því. „Það er auðvitað lögmætt verkfall í gangi, en það breytir því ekki að það eru starfsmenn hjá fé- laginu sem sinna þessum störfum og eru ekki í verkfalli. Við höfum skyld- ur gagnvart þessu fólki og eins sam- félaginu sem við búum í.“ Hann segir að ekki sé hægt að láta núverandi ástand viðgangast og því séu ýmsir hlutir til skoðunar. „Það yrði ekki látið viðgangast lengi ef Þjóðvegur 1 væri rofinn eða mikil- vægar samgöngur innan höfuð- borgarsvæðisins eða til annarra bæja.“ alexander@mbl.is Samgöngur til Eyja enn niðri  Sagt hafa gríðarleg áhrif á samfélagið Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Heimaey Samgöngur eru í uppnámi og fátt vitað um framhaldið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.