Morgunblaðið - 15.07.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.07.2020, Blaðsíða 22
FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Fallbaráttan virðist ætla að verða gríðarlega hörð í Pepsi Max-deild kvenna eftir að bæði KR og FH kræktu sér í fyrstu stig sín í gær- kvöld með góðum útisigrum og Þróttur hirti stig af Selfyssingum. Líkurnar á því að einhver lið geti elt Breiðablik og Val minnkuðu hins vegar til muna þegar Þór/KA tapaði fyrir nýliðunum í FH á heimavelli og Selfoss missti tvö dýrmæt stig í slagnum við Þrótt í Laugardalnum. Mesta dramatíkin var í Garðabæ, þar sem KR missti Önu Cate af velli með rautt spjald eftir hálftíma en knúði samt fram magnaðan útisigur, 3:2. „KR-ingar voru áræðnir og bein- skeyttir og heimakonur réðu illa við það. Þær voru í vandræðum ótt og títt þegar Katrín Ásbjörnsdóttir sótti á varnarmenn þeirra og þær voru á endanum leiknar grátt,“ skrifaði Kristófer Kristjánsson m.a. um leikinn á mbl.is.  Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði fyrstu mörk sín í deildinni fyrir KR í níu ár þegar hún gerði fyrsta mark leiksins í Garðabæ og síðan sigur- markið. Hún lék þrjú fyrstu ár meistaraflokksferilsins með KR, 2009 til 2011, en síðan með Þór/KA og Stjörnunni.  Alma Mathiesen, sem er aðeins 16 ára gömul, skoraði fyrsta mark sitt í efstu deild, í fimmta leiknum, þegar hún kom tíu KR-ingum í 2:1 undir lok fyrri hálfleiks.  Snædís María Jörundsdóttir sem jafnaði fyrir Stjörnuna í 2:2 er líka 16 ára. Þetta var hins vegar ann- að mark hennar á tímabilinu. Gríðarlega mikilvægur sigur Á blautum Þórsvellinum á Akur- eyri náði FH fyrstu stigum sínum með því að leggja Þór/KA óvænt að velli, 1:0. „Sigurinn er gríðarlega mikil- vægur fyrir FH, sem var án stiga fyrir leikinn. Hafnfirðingar hafa nú unnið tvo leiki í röð en þær sigruðu Þrótt í bikarnum í síðustu viku. Liðið getur spilað mun betur en það gerði hér en það eru stigin sem skipta máli,“ skrifaði Baldvin Kári Magnússon m.a. um leikinn á mbl.is.  Madison „Maddy“ Gonzalez skoraði fyrsta mark sitt hér á landi þegar hún tryggði FH þennan óvænta sigur á Akureyri með marki á 86. mínútu eftir slæm mistök markvarðar Þórs/KA. Hún kom frá Santa Clara-háskólanum og var í 200 manna hópi í nýliðavalinu fyrir NWSL-atvinnudeildina í vetur.  Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyr- irliði Þórs/KA, bættist í gær í hóp þeirra sem hafa leikið 200 leiki í efstu deild kvenna hér á landi. Hún hefur spilað 170 af þessum leikjum fyrir Þór/KA og á leikjametið þar en lék auk þess 30 leiki fyrir Val. Arna er 17. leikmaðurinn frá upphafi sem spilar 200 leiki í deildinni.  Eva Núra Abrahamsdóttir miðjumaður FH lék 100. leik sinn í deildinni. Af þeim eru 82 fyrir Fylki og 18 fyrir FH. Þróttarar hafa komið á óvart Í Laugardal gerðu Þróttur og Sel- foss markalaust jafntefli þar sem hin reynda Hólmfríður Magnúsdóttir fékk rauða spjaldið undir lok leiks- ins og verður í banni í næsta leik Sel- fyssinga, sem er gegn Þór/KA. „Þróttur hefur komið á óvart í sumar. Liðið er virkilega skipulegt og með skemmtilega leikmenn sem hafa tekið stóra skrefið upp í efstu deild og gert það vel. Þá eru erlendir leikmenn liðsins virkilega sterkir. Þróttur skapaði sér fleiri færi en Selfossliðið sem er eitt best mann- aða lið deildarinnar og hefði með smá heppni getað tekið stigin þrjú,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. um leikinn á mbl.is. Stórir áfangar hjá Blikum Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir skoruðu tvö mörk hvor fyrir Breiðablik í 4:0 sigri á ÍBV í Eyjum. Fjórði sigur Blika sem eru með fullt hús og markatöluna 15:0 en Eyjakonur hafa nú tapað fjórum leikjum í röð. „Það sem skildi liðin að í þessum leik voru einstaklingsgæði Blika fram á við en Berglind sýndi það í leiknum að hún þarf ekki mörg færi til þess að skora og jafnframt var Alexandra frábær í leiknum og stýrði miðjuspili Blika eins og her- foringi,“ skrifaði Arnar Gauti Grettisson m.a. um leikinn á mbl.is.  Berglind Björg varð næst- markahæsti leikmaður Breiðabliks í efstu deild frá upphafi þegar hún kom liðinu yfir gegn ÍBV. Það var 98. mark hennar fyrir Blika í deild- inni og hún fór upp fyrir Fanndísi Friðriksdóttur. Berglind hefur nú gert 99 mörk fyrir Blika og alls 131 mark í deildinni fyrir Breiðablik, Fylki og ÍBV. Hún er sú níunda markahæsta í sögu hennar.  Blikarnir Rakel Hönnudóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir, mark- vörður og fyrirliði Kópavogsliðsins, náðu báðar þeim stóra áfanga í Eyj- um í gær að spila 250. deildarleik sinn á ferlinum. Þetta er áfangi sem aðeins fimmtán íslenskar knatt- spyrnukonur hafa náð á undan þeim. Rakel lék 205. leik sinn í efstu deild og 223. deildarleik á Íslandi en hún á auk þess 27 deildarleiki að baki í Svíþjóð og á Englandi. Sonný lék 186. leik sinn í efstu deild og hefur auk þess spilað 64 leiki í 1. deild. KR og FH sneru deild- inni á hvolf Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Harka Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, og Hólmfríður Magnúsdóttir, Selfyssingurinn reyndi, í hörðum slag í Laugardal í gærkvöld.  Katrín hetja KR-inga á gamla heima- vellinum  FH sótti sigur til Akureyrar 22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2020 Pepsi Max-deild kvenna ÍBV – Breiðablik....................................... 0:4 Þór/KA – FH ............................................ 0:1 Þróttur R. – Selfoss.................................. 0:0 Stjarnan – KR........................................... 2:3 Staðan: Valur 5 5 0 0 17:2 15 Breiðablik 4 4 0 0 15:0 12 Fylkir 3 2 1 0 6:3 7 Selfoss 5 2 1 2 6:4 7 Þór/KA 4 2 0 2 8:8 6 Stjarnan 6 2 0 4 8:14 6 Þróttur R. 5 1 2 2 8:9 5 FH 5 1 0 4 2:10 3 ÍBV 5 1 0 4 5:15 3 KR 4 1 0 3 4:14 3 2. deild kvenna Sindri – Fjarð/Hött/Leiknir .................... 1:3 Staðan: HK 5 5 0 0 18:0 15 FHL 4 3 0 1 11:10 9 Grindavík 4 2 0 2 12:6 6 Hamrarnir 3 2 0 1 6:5 6 Álftanes 3 2 0 1 5:8 6 ÍR 4 1 1 2 6:10 4 Hamar 3 1 0 2 5:9 3 Fram 4 0 1 3 7:16 1 Sindri 4 0 0 4 5:11 0 England Chelsea – Norwich ................................... 1:0 Staðan: Liverpool 35 30 3 2 76:27 93 Manch. City 35 23 3 9 91:34 72 Chelsea 36 19 6 11 64:49 63 Leicester 35 17 8 10 65:36 59 Manch. United 35 16 11 8 61:35 59 Wolves 35 14 13 8 48:37 55 Sheffield United 35 14 12 9 38:33 54 Tottenham 35 14 10 11 54:45 52 Arsenal 35 12 14 9 51:44 50 Burnley 35 14 8 13 39:47 50 Everton 35 12 9 14 41:52 45 Southampton 35 13 6 16 45:58 45 Newcastle 35 11 10 14 36:52 43 Crystal Palace 35 11 9 15 30:45 42 Brighton 35 8 12 15 36:52 36 West Ham 35 9 7 19 44:59 34 Watford 35 8 10 17 33:54 34 Bournemouth 35 8 7 20 36:60 31 Aston Villa 35 8 6 21 38:65 30 Norwich 36 5 6 25 26:68 21 B-deild: Millwall – Blackburn............................... 1:0  Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill- wall á 69. mínútu. WBA – Fulham......................................... 0:0 Reading – Middlesbrough ....................... 1:2 Wigan – Hull ............................................. 8:0 Cardiff – Derby ........................................ 2:1 Luton – QPR............................................. 1:1 Sheffield Wed. – Huddersfield................ 0:0 Staðan: Leeds 43 25 9 9 69:34 84 WBA 44 22 16 6 74:41 82 Brentford 43 23 9 11 78:35 78 Fulham 44 22 11 11 58:44 77 Nottingham F. 43 18 15 10 55:43 69 Cardiff 44 17 16 11 62:57 67 Millwall 44 16 17 11 50:46 65 Swansea 43 16 15 12 55:50 63 Preston 43 17 11 15 56:52 62 Derby 44 16 13 15 58:60 61 Bristol City 43 17 10 16 58:62 61 Blackburn 44 16 12 16 60:57 60 Wigan 44 15 12 17 54:53 57 Reading 44 15 11 18 55:50 56 Sheffield Wed. 44 15 11 18 54:59 56 QPR 44 15 9 20 61:71 54 Middlesbrough 44 12 14 18 45:57 50 Stoke 43 14 7 22 56:66 49 Birmingham 43 12 13 18 52:69 49 Huddersfield 44 12 12 20 49:65 48 Charlton 43 12 10 21 47:58 46 Hull City 44 12 9 23 57:83 45 Luton 44 12 9 23 50:80 45 Barnsley 43 10 13 20 46:67 43  Coventry, Rotherham og Wycombe leika í B-deildinni á næsta tímabili en þrjú neðstu liðin falla niður í C-deildina. Ítalía Atalanta – Brescia ................................... 6:2  Birkir Bjarnason lék allan leikinn með Brescia. Staða efstu liða: Juventus 32 24 4 4 67:32 76 Atalanta 33 21 7 5 93:43 70 Inter Mílanó 32 20 8 4 68:34 68 Lazio 32 21 5 6 68:35 68 Danmörk B-deild: Vejle – Nyköbing ..................................... 1:0  Kjartan Henry Finnbogason lék í 86 mínútur með Vejle sem tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni.,  Efstu lið: Vejle 67, Viborg 58, Fredericia 51, Kolding 43, Fremad Amager 42. Noregur B-deild: Sandnes Ulf – Lilleström........................ 1:1  Arnór Smárason hjá Lilleström er frá keppni vegna meiðsla.  KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Origo-völlur: Valur – Fylkir ................ 19.15 Í KVÖLD! Breiðablik hefur fengið góðan liðs- auka fyrir keppnina í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik næsta vet- ur en Sóllilja Bjarnadóttir er komin aftur í Kópavoginn eftir eitt tímabil með KR. Sóllilja er 25 ára gömul og uppalin í Breiðabliki en lék með Val 2013 til 2016 og síðan aftur með Blikunum frá 2016 til 2019. Isabella Ósk Sigurðardóttir hef- ur jafnframt framlengt samning sinn við Breiðablik en hún hefur misst mikið úr tvö undanfarin tíma- bil vegna meiðsla. Hún á fjóra A- landsleiki að baki. Sóllilja aftur til Breiðabliks Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Breiðablik Sóllilja Bjarnadóttir er komin aftur til liðsins frá KR. Chelsea styrkti stöðu sína í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með naumum 1:0 sigri á föllnu liði Norwich City á Stam- ford Bridge í London í gærkvöld. Chelsea er komið með 63 stig og á tvo leiki eftir, gegn Liverpool og Wolves, en Leicester og Manchest- er United eru með 59 stig og eiga þrjá leiki eftir. Tvö þessara liða tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu. Olivier Giroud skoraði sigurmark Chelsea í uppbótartíma fyrri hálfleiks með skalla eftir fyrirgjöf frá Christian Pulisic. AFP Sigurmarkið Olivier Giroud fagnar eftir að hafa skorað gegn Norwich. Chelsea með allt í eigin höndum ÍBV – BREIÐABLIK 0:4 0:1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 22. 0:2 Alexandra Jóhannsdóttir 42. 0:3 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 64. 0:4 Alexandra Jóhannsdóttir 72. M Helena Jónsdóttir (ÍBV) Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV) Hanna Kallmaier (ÍBV) Kristjana Sigurz (ÍBV) Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki) Heiðdís Lillýjardóttir (Breiðabliki) Hafrún Rakel Halldórsd. (Breiðabliki) Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðabliki) Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki) Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðabliki) Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðab.) Dómari: Guðmundur P. Friðbertsson – 6. Áhorfendur: 126. STJARNAN – KR 2:3 0:1 Katrín Ásbjörnsdóttir 12. 1:1 Betsy Hassett 25. 1:2 Alma Gui Mathiesen 43. 2:2 Snædís María Jörundsdóttir 60. 2:3 Katrín Ásbjörnsdóttir 89. MM Katrín Ásbjörnsdóttir (KR) M Betsy Hassett (Stjörnunni) Hugrún Elvarsdóttir (Stjörnunni) Shameeka Fishley (Stjörnunni) Katrín Ómarsdóttir (KR) Ingibjörg Valgeirsdóttir (KR) Ingunn Haraldsdóttir (KR) Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (KR) Rautt spjald: Ana Cate (KR) 33. Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson – 8. Áhorfendur: 160. ÞRÓTTUR R. – SELFOSS 0:0 MM Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (Þrótti) M Friðrika Arnardóttir (Þrótti) Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti) Morgan Goff (Þrótti) Mary Vignola (Þrótti) Sóley María Steinarsdóttir (Þrótti) Kaylan Marckese (Selfossi) Anna María Friðgeirsdóttir (Selfossi) Clara Sigurðardóttir (Selfossi) Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Selfossi) Anna Björk Kristjánsdóttir (Selfossi) Rautt spjald: Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfossi) 90. Dómari: Steinar Berg Sævarsson – 8. Áhorfendur: Um 250. ÞÓR/KA – FH 0:1 0:1 Maddy Gonzalez 85. M Taylor Sekyra (FH) Telma Ívarsdóttir (FH) Birta Georgsdóttir (FH) Maddy Gonzalez (FH) María C. Ólafsdóttir Gros (Þór/KA) Jakobína Hjörvarsdóttir (Þór/KA) Madeline Gotta (Þór/KA) Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 9. Áhorfendur: 203.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.