Morgunblaðið - 15.07.2020, Side 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2020
Áhöfn Nýtt flaggskip Eimskips, Dettifoss, kom til landsins á mánudag, þar sem tekið var á móti áhöfninni í Sundahöfn. Eftir langt ferðalag stillti áhöfnin sér upp til myndatöku í landganginum.
Arnþór Birkisson
Sá sem leggur fyrir
sig stjórnmál þarf að
sækjast eftir trausti
fólksins. Bjarni Bene-
diktsson (1908-1970),
forsætisráðherra og
formaður Sjálfstæð-
isflokksins, var sann-
færður um að aðeins ein
leið væri fær; að vinna
til traustsins: „Fólkinu
verður ekki sagt að
treysta neinum. Það
verður sjálft að finna, hvort maðurinn
er trausts verður. Með góðri grein
eða góðri ræðu er hægt að vekja
hrifningu í bili, ná svo og svo miklum
völdum og vegtyllum. En traustið öðl-
ast maður aldrei, nema hann vinni
fyrir því.“
Í ritdeilu við Árna Jónsson frá
Múla árið 1942 bendir Bjarni á að
stjórnmálin séu ekki arðsöm fyrir
þann sem er heiðarlegur. Ekki þurfi
mikið sjálfstraust „til að hafa trú á, að
maður geti útvegað sér arðsamari at-
vinnu“. En sá geri hins vegar „lítið
gagn í stjórnmálum, sem eigi fengist
við þau af einhverri innri þörf. Vegna
þess, að hann þættist hafa komið
auga á einhver slík sannindi, að hann
væri minni maður, ef hann legði sig
ekki allan fram til að berjast fyrir
þeim“.
Þegar þessi orð voru sett á blað var
Bjarni aðeins 34 ára gamall en hafði
verið borgarstjóri í tvö ár. Sannfær-
ing hans um eðli stjórnmálanna og
skyldur stjórnmálamanna breyttist
aldrei heldur styrktist eftir því sem
árin liðu. Halda má því fram að allt
hans mikla starf hafi mótast af því
sem hann sagði í áramótaávarpi í
Ríkisútvarpinu 1968, þá sem for-
sætisráðherra, að engin skömm sé
„að því að falla vegna þess, að maður
fylgir sannfæringu sinni“ en lítilmót-
legt sé, „að játast undir það, sem
sannfæring, byggð á bestu fáanlegri
þekkingu, segir, að sé rangt“.
Einkenni frjálshuga manns
Síðastliðinn föstudag var þess
minnst að 50 ár voru liðin frá því að
Bjarni Benediktsson, kona hans Sig-
ríður Björnsdóttir og Benedikt Vil-
mundarson, fjögurra ára dóttursonur
þeirra, létust í eldsvoða á Þingvöllum.
Hér verður ekki fjallað um harm-
leikinn, áhrif hans eða
hvaða áhrif hann hafði á
þróun íslenskra stjórn-
mála.
Bjarni var aðeins 62
ára gamall en átti að
baki áratuga farsælan
feril sem einn áhrifa-
mesti stjórnmálamaður
landsins. Aðeins 24 ára
varð hann prófessor í
lögum við Háskóla Ís-
lands og 32 ára borgar-
stjóri. Síðar varð hann
utanríkisráðherra og
lagði hornstein að utan-
ríkisstefnu landsins sem hefur verið
fylgt æ síðan. Árið 1948 var Bjarni
kjörinn varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins og formaður árið 1961.
Tveimur árum síðar tók hann við
embætti forsætisráðherra og sinnti
því til dauðadags. Bjarna var trúað
fyrir öðrum ráðherraembættum allt
frá 1947; dómsmála-, menntamála-,
heilbrigðis- og iðnaðarmálaráðherra.
Eftir Bjarna liggur fjöldi greina og
rita, ekki síst um lögfræðileg efni,
utanríkis- og varnarmál og stjórnmál.
Rauði þráðurinn í hugmyndafræði
hans var trúin á frelsi einstaklingsins
og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar.
Alþjóðleg samvinna við frjálsar þjóðir
með þátttöku í Atlantshafsbanda-
laginu og varnarsamningi við Banda-
ríkin, á viðsjárverðum tímum, var í
huga Bjarna mikilvæg forsenda þess
að hægt væri að verja fullveldi fá-
mennrar þjóðar.
Sannfæring Bjarna um mikilvægi
sjálfstæðis og frelsis kemur ágætlega
fram í ræðu sem hann hélt á sam-
komu Íslensk-ameríska félagsins á
þjóðarhátíðardegi Bandaríkjanna
1955:
„Einkenni hins frjálshuga manns
er umfram allt það, að unna öðrum
frelsis ekki síður en sjálfum sér.
Þetta er auðvelt í orði en erfiðara í
framkvæmd. En einmitt þess vegna
eru það fremstu þjóðir heims, sem
eru frjálsastar. Þær gera mestu kröf-
urnar til sjálfra sín og þegna sinna.
Þeir, sem unna frelsinu, verða að
muna, að formlegt frelsi er ekki nóg.
Þeim ber að hjálpast að til að gera
hverjum einum mögulegt að njóta
lífsins og frelsisins og leita hamingj-
unnar eftir eigin vild innan ramma
laganna.“
Þegar þessi ræða er lesin fæst góð-
ur skilningur á því hvers vegna
Bjarni lagði alltaf mikla áherslu á
samstarf lýðræðisríkja í varnar- og
öryggismálum. Þá var frelsinu ógnað
úr austri – nýfengið sjálfstæði var
brothætt í átökum við hugmynda-
fræði alræðishyggjunnar.
Undramáttur frelsisins
Bjarni var sannfærður um „undra-
mátt frelsisins“ og taldi að iðnaður
fengi „því aðeins staðist, að hann geti
þróast við frjálslega verslunarhætti“
og sama ætti við um landbúnaðinn. Í
útvarpserindi á hátíðardegi versl-
unarmanna 1949 voru skilaboð hans
til þeirra sem eru fylgjandi frjálsri
verslun skýr og eiga erindi enn í dag.
Það verði að varast að „fyrir okkur
fari eins og hesti, sem verið hefur í
hafti“:
„Eftir að hnappheldan hefur verið
af honum leyst heldur hann áfram að
hoppa eins og engin breyting hafi á
orðið, hann heldur, að hann komist
ekki áfram með öðru móti.
Við verðum að gæta þess, að það
hugarfar skapist ekki, að ómögulegt
sé að vera án haftanna, að allt hljóti
um koll að keyra, ef höftin eru leyst
eða verulega á þeim linað.“
Bjarni varaði við því sem hann kall-
aði „hnapphelduhugarfar“ líkt og ríkt
hefði á tímum einokunar-
verslunarinnar, þegar margir voru
sannfærðir um nauðsyn þess að
„stjórnvöldin hefðu vit fyrir þegn-
unum“. Valdhafarnir hefðu óttast „þá
eins og nú, að allt mundi um koll
keyra, ef slakað yrði á þeim höftum,
sem sett voru á framkvæmdaþrek
einstaklinganna“:
„Reynslan sýndi, að sá ótti var með
öllu ástæðulaus.
Íslenska þjóðin sökk ekki í skulda-
fen, heldur komst einmitt úr algerri
örbirgð og allsleysi meðan fullt versl-
unarfrelsi var, og ætti þó að vera ólíkt
hægara fyrir hana að lifa nú af
tekjum sínum, sem eru hlutfallslega
miklu meiri en þá var.“
Síðar í útvarpserindinu undir-
strikar Bjarni að það sé ekki nægjan-
legt „að menn í orði kveðnu segist
vilja vera lausir við höft og hömlur, ef
þeir fást ekki til að skapa þau skil-
yrði, sem eru nauðsynleg forsenda
þess, að þeim verði aflétt“.
Tryggð við trú og menningu
Árið 1949 var íslenskt samfélag í
höftum, frjálsræði í viðskiptum var
lítið og allt bundið leyfum. Haftakerf-
ið var eitur í beinum sjálfstæðis-
manna, ekki síst Bjarna, sem vildi
láta reyna á „hvers læknisdómur
frelsisins má sín um þau mein“ sem
hrjá íslenskt þjóðfélag. Fyrstu raun-
verulegu skrefin í þá átt voru stigin í
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokks 1959 til 1971. Þá var
traustur grunnur að velsæld íslensks
samfélags lagður. Í landsfundarræðu
1965 orðaði Bjarni þetta svo:
„Öll vitum við þó, að við lifum ein-
ungis í upphafi tækni- og vísinda-
aldar. Með því að nota okkur ávexti
hennar og tryggja einstaklingunum
til þess frelsi og möguleika, þá greið-
um við fyrir meiri, örari og öruggari
framförum, lífskjarabótum, ef menn
vilja svo segja, en nokkur getur nú
séð fyrir.“
Bjarni var sannfærður um nauðsyn
þess að rjúfa einangrun Íslands,
brjóta hlekki hafta og ófrelsis og
tryggja opin samskipti við aðrar þjóð-
ir. Um leið ítrekaði hann mikilvægi
þess að Íslendingar héldu tryggð við
trú og menningu: „En okkur Íslend-
ingum tjáir ekki á sama veg og flest-
um öðrum að treysta á mannmergð-
ina, heldur á manndáðina. Á Íslandi
þarf sjálfstæði allrar þjóðarinnar að
eflast af sjálfstæði einstaklinganna.“
Það er hollt og nauðsynlegt fyrir
alla að þekkja söguna. Stjórnmála-
menn samtímans verða að skynja úr
hvaða jarðvegi hugmyndir þeirra og
hugsjónir eru sprottnar. Fyrir tals-
menn frelsis eru skrif og ræður
Bjarna Benediktssonar ómetanlegur
hugmyndafræðilegur leiðarvísir. Þótt
aðstæður breytist og viðfangsefnin
einnig er enn tekist á um grunnatriði
stjórnmálanna. Orð Bjarna í ára-
mótagrein í Morgunblaðinu árið 1965
eiga því jafnvel við í dag og fyrir 55
árum:
„Oft er sagt, og vissulega með
réttu, að veðurfar, gróður og fiski-
göngur séu ekki að þakka ríkisstjórn.
Gamalkunnugt er, að jafnt rignir á
réttláta og rangláta. En ríkisstjórnin
ræður því, hvernig hún bregst við at-
burðunum. Treystir hún eingöngu á
forsjá sína og bannar þegnunum að
bjarga sér eftir því, sem þeirra eigin
vit og þroski segir til um? Eða treyst-
ir hún fyrst og fremst á frumkvæði,
manndóm og dug borgaranna og tel-
ur skyldu sína að greiða fyrir fram-
kvæmdum þeirra, en leggur ekki á
þær hömlur og hindranir?“
Eftir Óla Björn
Kárason
» „Einkenni hins
frjálshuga manns
er umfram allt það, að
unna öðrum frelsis ekki
síður en sjálfum sér.
Þetta er auðvelt í orði en
erfiðara í framkvæmd.“
Óli Björn
Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
„Fólkinu verður ekki sagt að treysta neinum“
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Leiðtogi Í Stjórnarráðshúsinu 1952, þá utanríkis- og dómsmálaráðherra.