Morgunblaðið - 15.07.2020, Blaðsíða 28
Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti gaf á árinu út þriðju
breiðskífu sína og til stóð að hann myndi verja mestum
hluta ársins á tónleikaferðalagi erlendis. En kórónu-
veiran breytti þeim áætlunum og þess í stað er Ásgeir
nú á ferðalagi um Ísland og heldur 13 tónleika á 17 dög-
um. Næst kemur hann fram í Havaríi í Berufirði í kvöld,
miðvikudagskvöld, þá á Kaffi Rauðku á Siglufirði annað
kvöld, fimmtudagskvöld, á föstudagskvöldið kemur
hann fram á Sæborg í Hrísey, og á Græna hattinum á
Akureyri á laugardagskvöldið kemur.
Í stað þess að kynna nýja plötu
erlendis ferðast Ásgeir um Ísland
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Ég var sjö ára þegar Tófa kom inn
í líf mitt,“ segir Þuríður Magnús-
dóttir, 27 ára ung kona sem hefur
notið þeirrar gæfu að fá að vera
samferða kisunni sinni óvenju lengi.
„Pabbi vann í húsdýra- og fjöl-
skyldugarðinum þegar hún fannst
þar í refabúrinu. Enginn veit
hvernig hún komst þangað inn en
litlu mátti muna að hún endaði líf
sitt ung í tófukjafti. Starfsfólkið tók
hana inn til sín og þar sá ég kett-
linginn Tófu í fyrsta sinn, því ég
fékk stundum að fara með pabba í
vinnuna. Ég hafði tuðað um að fá
hund frá því ég byrjaði að tala, svo
foreldrar mínir sáu þarna gott
tækifæri og dag einn þegar ég kom
heim úr skólanum göbbuðu þau mig
til að fara inn á bað, sögðu að ég
ætti að þvo mér um hendurnar.
Þegar ég kom þar inn var kett-
lingurinn Tófa þar í búri. Ég varð
auðvitað himinlifandi með þessa
óvæntu gjöf,“ segir Þuríður, sem hef-
ur nú brátt í tuttugu ár búið með
Tófu sinni.
„Hún hefur verið dekurrófa, ég
leyfði henni strax að sofa uppi í hjá
mér, en núna sefur hún uppi í hjá
mömmu, því ég og kærasti minn bú-
um í öðru rými í íbúðinni. Tófa vill
alltaf láta breiða yfir sig þegar hún
kemur upp í.“
Þuríður segir að Tófa sé mjög frek.
„Hún stjórnar hér með harðri
hendi. Hún tekur ekki ný dýr á heim-
ilinu í sátt, við reyndum að fá okkur
annan kött en það gekk ekki. Við
fengum okkur hund í nokkur ár en
hún tók hann aldrei í sátt. Tófa varð
mjög fegin þegar hundurinn flutti
með pabba eftir að foreldrar mínir
skildu, þá varð hún aftur drottning í
ríki sínu. Hún er ljúf við þá sem
henni hentar, ég má kjassa hana eins
mikið og ég vil, en hún er ekki eins
hrifin af börnum og leyfir þeim lítið
að hnoðast með sig.“
Þuríður segir Tófu gáfaða og
flinka, hún hafi opnað dyr þegar hún
var yngri og hraustari.
„Hún stökk upp í hurðarhúna og
opnaði til að komast hvert sem hún
vildi. Hún hefur þann skemmtilega
eiginleika að hún knúsar mig þegar
ég held á henni, leggur loppurnar
hvora sínum megin við hálsinn á
mér.“
Eftir langa samvist segist Þuríður
nú hugsa um það hvern dag að jarð-
vist Tófu sé að styttast.
„Hún er hraust og leikur sér eins
og kettlingur, en við fórum með
hana í skoðun til dýralæknis á þessu
ári af því hún fór að mjálma óvenju
hátt. Hún fékk vítamínsprautu og
hresstist, en starfskona hjá dýra-
lækninum hélt að hún væri 12 ára.
Hún heldur sér því vel þótt hún geti
ekki lengur hoppað upp í sófa og sé
með tröppu til að komast upp í rúm.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Vinir „Tófa knúsar mig þegar ég held á henni, leggur loppurnar hvora sínum megin við hálsinn á mér,“ segir Þuríður.
Tófa stjórnar heimilinu
með harðri hendi (loppu)
Fannst í refabúri og verður tuttugu ára í næsta mánuði
SÆKTU APPIÐ
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Sæktu appið frítt
á AppStore
eða Google Play
Hreyfils
appið
Pantaðu
leigubíl
á einfaldan
og þægilegan
hátt
Með Hreyfils appinu er fljótlegt
og einfalt að panta leigubíl.
Þú pantar bíl, færð SMS skilaboð
þegar bíllinn er mættur á staðinn.
Þú getur fylgst með hvar bíllinn er
staddur hverju sinni.
Ef þú ferðast á vegum fyrirtækis
getur þú valið viðskiptareikning
og opnað aðgang.
Hreyfils-appið er ókeypis.
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 197. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Gríðarleg spenna er komin í neðri hluta Pepsi Max-
deildar kvenna í fótbolta eftir að FH vann óvæntan sig-
ur á Þór/KA á Akureyri og tíu KR-ingar knúðu fram sig-
ur á Stjörnunni í Garðabæ þar sem Katrín Ásbjörns-
dóttir skoraði tvívegis gegn sínu gamla félagi. Í báðum
leikjum komu sigurmörkin undir lokin. Þróttur tók
óvænt stig af Selfyssingum en Breiðablik vann hins
vegar sannfærandi sigur í Vestmannaeyjum, 4:0, og
hefur enn ekki fengið á sig mark á tímabilinu. »23
Útisigrar botnliðanna
galopnuðu deildina
ÍÞRÓTTIR MENNING