Morgunblaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 1
Saman í fyrsta sinn Sígild hönnun Feðginin Baltasar og Mireya Samper sýna saman í fyrstasinn á sýningu sem opnuðverður á Snæfellsnesi hinn1. ágúst. Kvenskörungar,vættir og staða kvenna ídag eru viðfangsefni lista-mannanna. Mireya segisthafa verið viss um að verðaaldrei myndlistarkona einsog pabbi hennar en ekkikomist undan. 12 26. JÚLÍ 2020SUNNUDAGUR Þjóðhátíð í garðinumFormlegri dagskrá hefur verið aflýst en Eyjamenn eru vergi af baki dottnir og ætla að færa Þjóðhátíð heim í garð. 8 h Heimurinnþarfnast ÍslandsNýja markaðsherferðinfer vel af stað. 14 Sunnudagsblaðið kíktií heimsókn á sýninguá verkum Sveins Kjar-val á Hönn-unarsafniÍslands. 18 L A U G A R D A G U R 2 5. J Ú L Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  174. tölublað  108. árgangur  Veldu nýjan Polo og njóttu ferðarinnar Tilboðsverð frá 2.730.000 kr. hekla.is/volkswagensalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA BOLTINN HEF- UR EKKI HÆTT AÐ RÚLLA HEILLANDI SAMASTAÐUR MYNDLISTARMENN 35BJARTAR SVEIFLUR 12 Strætisvagn og tvær útlendar smáþotur vöktu athygli á Reykjavíkurflugvelli á dögunum. Flestir hafa tök á að ferðast með strætó en færri hafa einkaþotur til umráða. Flugsamgöngur á milli landa eru smám saman að færast í aukana eftir að farþegaflug lagðist að mestu af í kórónu- veirufaraldrinum. Eins og fram hefur komið varð ekki eins mikið hrun í einkafluginu og varð í almenna fluginu og var einkaþotuflugið fljótara að taka við sér en almenna flugið. Öllum sem ætla að koma til landsins, hvort sem er frá áhættusvæði eða ekki, er nú skylt að fylla út forskrán- ingareyðublað. Þar er fólk m.a. beðið um farsímanúmer svo hægt sé að hafa samband við það meðan á dvölinni stendur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Misfráir fararskjótar á Reykjavíkurflugvelli Baldur Arnarson baldura@mbl.is Bjarni Jónsson, einn eigenda Nordic Store-keðjunnar, segir söluna í sum- ar hafa verið meiri en hann óttaðist þegar samkomubann var sett á. Hann hafi spáð 100% samdrætti í verslunum sínum í júlí en reikni nú með 70% samdrætti. Með sama áframhaldi verði tekjurnar í desem- ber orðnar um 70% af tekjunum í sama mánuði í fyrra. Nordic Store-keðjan er með nokkrar verslanir í miðborginni. Bjarni segir stefna í að átta af 50 verslunum sem Nordic Store hafi verið í samkeppni við verði lokað. Þá muni á annan tug annarra verslana í miðborginni fara sömu leið. Vegna offramboðs af verslunum hafi þróunin verið óhjákvæmileg. „Ég hugsa að þessum verslunum hefði verið lokað þrátt fyrir kórónu- veirufaraldurinn. Ég hugsa að versl- unum fyrir ferðamenn í miðborginni muni fækka um 25%,“ segir Bjarni um horfur í versluninni. Ríkisaðstoð breytti miklu Helgi Rúnar Óskarsson, fram- kvæmdastjóri Rammagerðarinnar, segir úrræði ríkisstjórnarinnar hafa gert félaginu kleift að komast í gegn- um skaflinn í faraldrinum. Fram kemur í ársreikningi vegna síðasta árs að óvissa sé um rekstrar- hæfi félagsins. Helgi Rúnar segir al- gengt að slíkur fyrirvari hafi verið settur hjá félögum í ferðaþjónustu. „Við metum stöðuna nokkuð góða. Þegar unnið var að ársreikningnum var mjög mikil óvissa um fram- haldið,“ segir Helgi Rúnar. Gengisveiking hjálpar til „Við höfum nýtt okkur úrræði ríkisstjórnarinnar eins og önnur fyrirtæki í ferðaþjónustu. Það hefur gert okkur kleift að fara í gegnum þennan skafl. En nú er veltan að byrja að stíga upp á við [eftir að flug- ið fór í gang upp úr miðjum júní], sem er mjög jákvætt. Við erum mjög bjartsýn á framtíðina. Við höfum líka veika krónu, sem hjálpar til,“ segir Helgi Rúnar um horfurnar. Þær séu „allt aðrar og miklu betri“ en í vor. Salan umfram spár en útlit fyrir grisjun  Gengi tveggja verslanakeðja í borginni umfram væntingar MSalan hefur aukist … »18  Sveinbjörn Darri Matthíasson, fjórtán ára piltur úr Kópavogi sem fermist í haust, er yngsti flugmaður landsins. Hann tók nú í vikunni próf og fékk réttindi til sólóflugs á svif- flugu sem hann sveimar á frá flug- vellinum á Sandsskeiði. „Áskorunin felst í því að leita uppstreymis og annarra krafta til þess að geta svifið,“ segir Sveinbjörn, sem fékk réttindin degi á undan föður sínum, Matthíasi Sveinbjörnssyni, sem er flugmaður hjá Icelandair. Langt er síðan jafn ungir flug- menn á Íslandi hafa tekið á loft, segir Kristján Sveinbjörnsson, kennari hjá Svifflugfélagi hjá Ís- lands. Þó sé gróska í sportinu og nemendur 20-30 talsins. »6 Flugmaður Sveinbjörn Darri á Sandskeiði. Flýgur fjórtán ára  Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðn- aðar- og nýsköp- unarráðherra, segir eðlilegt að Rio Tinto „leggi öll spilin á borð- ið“ vegna um- ræðu sem fór af stað í kjölfar yfir- lýsingar fyrir- tækisins um lokun álversins í Straumsvík láti Landsvirkjun „ekki af skaðlegri háttsemi“. Umræðan sem fyrirtækið setti á dagskrá felur í sér „risahagsmuni fyrir hundruð einstaklinga og raun- ar þjóðina alla“, skrifar Þórdís í pistli sínum í Sunnudagsmogg- anum. Þórdís segir að eftir umræður um þriðja orkupakkann sé eðlilegt að tala gegn því að „umhverfisvænar orkulindir Íslands“ séu settar á út- sölu. Ástæða sé til að ætla að þær verði áfram eftirsóttar. Segir eðlilegt að Rio Tinto „leggi öll spilin á borðið“ Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.