Morgunblaðið - 25.07.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020
Ef þú hefur ekki heimsótt Færeyjar nýlega skaltu láta verða að því.
Þangað er heillandi að koma, stórbrotið landslag, gott vegakerfi,
góður matur og rómuð gestrisni eyjaskeggja.
Glæsileg ferð til Færeyja með Norrænu og umhverfis Ísland
dagana 14.-20. október. Íslensk fararstjórn.
Dagskrá: Þann 14. október er ekið frá Reykjavík að Seyðisfirði og þaðan siglt með Norrænu til
Þórshafnar og komið þangað 15. október. Fyrsti dagurinn er frjáls en síðan verða skoðunarferðir
um eyjarnar næstu 3 daga undir leiðsögn fararstjóra. Gist er á Hotel Hafnia 4* í miðbæ Þórs-
hafnar. Siglt er frá Þórshöfn mánudaginn 19. október og komið til Seyðisfjarðar að morgni 20.
október. Þaðan ekið til Reykjavíkur og komið þangað að kvöldi. Innifalið í verði ferðarinnar er
morgunverður alla daga, kvöldverður á leið til Færeyja og á Hotel Hafnia og veitingar á leið til
Seyðisfjarðar.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri
borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með
tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is
og á www.hotelbokanir.is
Niko ehf | Austurvegi 3 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
FÆREYJAR
14.-20. október 2020
Sérferð fyrir
eldri borgara
Mikil upplifun
Verð 186.500 kr. á mann (m.v. einbýli eða tvíbýli)
Borgarráð hefur heimilað umhverf-
is- og skipulagssviði Reykjavíkur að
bjóða út kaup á búnaði til endur-
nýjunar á umferðarljósum á 11
gatnamótum í borginni.
Fram kemur í minnisblaði Þor-
steins R. Hermannsonar, samgöngu-
stjóra borgarinnar, að í október
2019 hafi verið auglýst útboð á stýri-
búnaði umferðarljósa. Í desember
sama ár tók Reykjavíkurborg
ákvörðun um að fella niður útboðið
og hafna öllum tilboðum. Tvær kær-
ur bárust vegna útboðsins, önnur
dags. 27. desember 2019, sem lokið
var með úrskurði þann 8. apríl sl., og
hin dags. 27. nóvember 2019, sem
enn er til meðferðar hjá kærunefnd
útboðsmála.
Samkvæmt áætlun skrifstofu sam-
göngustjóra og borgarhönnunar
liggur fyrir að nauðsynlegt sé að
endurnýja búnað umferðarljósa á
ellefu gatnamótum á þessu ári. Um
er að ræða búnað sem er um 25 ára
gamall, getur ekki tengst miðlægri
stýritölvu umferðarljósa og er mjög
erfitt að halda við vegna skorts á
varahlutum. Til viðbótar komi að
vegna aldurs hugbúnaðar, sem virk-
ar ekki lengur á núverandi tölvu-
búnað, sé ekki hægt að framkvæma
nauðsynlegar öryggisbreytingar á
ljósaprógrömmum stýrikassa um-
ferðarljósa. Að mati skrifstofunnar
er brýnt að fara sem fyrst í útboð á
þessum búnaði í samstarfi við Vega-
gerðina, svo hægt sé að skipta yfir í
nýrri búnað áður en þekking á við-
haldi hins úrelta búnaðar glatast.
„Fyrirséð er, að ef beðið verði eftir
niðurstöðu í því kærumáli sem nú er
til meðferðar og væntanlegu endur-
útboði rammasamnings í kjölfarið,
náist ekki að endurnýja umræddan
búnað í samræmi við áætlanir ársins
en endurnýjun að sambærilegu um-
fangi er einnig fyrirhuguð á næsta
ári,“ segir samgöngustjórinn.
Gatnamótin 11 sem um ræðir eru:
Nóatún-Skipholt, Hringbraut-
Bræðraborgarstígur, Barónsstígur-
Eiríksgata, Hringbraut- Framnes-
vegur, Stekkjarbakki-Álfabakki,
Hringbraut-Hofsvallagata, Háa-
leitisbraut-Listabraut, Miklabraut-
Skeiðarvogur, Réttarholtsvegur-
Sogavegur, Geirsgata-Tryggvagata
og Geirsgata-Naustin-Steinbryggja.
sisi@mbl.is
Úrelt umferðarljós
verða endurnýjuð
Búnaðurinn orðinn 25 ára gamall
Morgunblaðið/Eggert
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ný gerð af gangbrautum, sem fengið
hafa heitið snjallgangbrautir, verða
teknar í notkun á fjórum stöðum í
Reykjavík á þessu ári. Borgarráð
samþykkti á síðasta fundi sínum að
setja 190 milljónir króna í að bæta
umferðaröryggi.
Snjallgangbrautirnar „skynja“
þegar gangandi vegfarendur nálgast
og kveikja þá á LED-götulýsingu,
sem lýsir aðeins upp gangbrautina og
vegfarandann á meðan hann fer yfir.
Einnig kviknar á gangbrautarmerk-
inu og viðvörunarljósi fyrir bíla.
Þessari nýju tækni er ætlað að gera
gangandi vegfarendur sýnilegri þeg-
ar þeir fara yfir götur á gang-
brautum.
Snjallgangbrautirnar verða settar
upp á Neshaga við Furumel, Rofabæ
við Árbæjarskóla, Seljaskógum við
Seljabraut og Fjallkonuvegi við
Logafold.
Gönguþveranir bættar
Þá verða gangbrautir og bættar
gönguþveranir við 15 götur í borginni
og hámarkshraði lækkaður á sex
götum, Engjateigi, Reykjavegi,
Sundlaugavegi, Laugarásvegi,
Lokinhömrum og Haukdælabraut.
Verkefnin eru að hluta samkvæmt
áætlun um að flýta fjárfestingarverk-
efnum Reykjavíkurborgar með það
að markmiði að veita viðspyrnu við
atvinnuleysi af völdum COVID-19.
Borgarráðsfulltrúar meirihlutans,
Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og
Vinstri grænna, lögðu fram svohljóð-
andi bókun:
„Stór skref eru nú tekin í
umferðaröryggismálum. Verkefnið
var sett í flýtimeðferð vegna CO-
VID-19 til að auka fjárfestingu og
styðja við atvinnulífið. Um er að ræða
snjallgangbrautir, betrumbætur á
göngubrautum, betri gönguþveranir
og lækkun hámarkshraða. Það er
stefna meirihlutans í Reykjavík að
auka snjallvæðingu hvarvetna í kerf-
um borgarinnar og ánægjulegt að sjá
slíka þróun einnig eiga sér stað í um-
ferðaröryggismálum.“
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram svohljóðandi
bókun: „Fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins fagna umferðaröryggisaðgerðum.
Þá er því sérstaklega fagnað að til-
laga Sjálfstæðisflokksins um snjall-
gangbrautir, sem samþykkt var í
borgarstjórn, komi nú til fram-
kvæmda. Þá er jafnframt ánægjulegt
að sjá áform um bætta gangbraut-
arlýsingu og gönguþveranir víða í
borginni, sem eru í samræmi við fyrri
tillögur Sjálfstæðisflokks.“
Snjallgangbrautir sett-
ar upp á fjórum stöðum
Borgin veitir 190 milljónum til að bæta umferðaröryggi
Mynd/Reykjavíkurborg
Snjallgangbraut Myndin sýnir hvernig ný tegund gangbrauta mun líta út.