Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 11

Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is ÚTSALA ENNMEIRI VERÐLÆKKUN 50-60% AFSLÁTTUR Verð: 38.980 Nú: 15.592 Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgið okkur á facebook SUMAR YFIRHAFNIR OPIÐ laugardag kl. 10-15 HEILSÁRSYFIRHAFNIR ALLT AÐ 50% AFSL. ÚTSALA - ÚTSALA NÝTTNETVERSLUNLAXDAL.IS Húseiningar til sölu. Um er að ræða byggingarhluta úr um 10 ára gamalli skólabyggingu við Nauthólsveg 87. Bygging er sett saman úr timbureiningum sem eru á færanlegum steyptum einingum (SG Hús). Húsin eru klædd með litaðri stálklæðningu. Raki og skemmdir eru í hluta af húsinu og seljast einingar í því ásigkomulagi sem þær eru. Einingar sitthvorum megin miðju húss (tengibyggingar) eru til sölu og seljast þær sem ein heild eða hvor fyrir sig. Innvols fylgir með en ekki verður sérstaklega selt innan úr einingum (svosem salerni, handlaugar, hurðir o.þ.h.). Hvor eining er ein hæð og milliloft u.þ.b. 250 m2 að stærð. Beðið er um tilboð sem inniheldur allan kostnað við niðurtöku í flytjanlegar einingar ásamt brottflutningi af lóð fyrir 21. ágúst n.k. Húseignin verður til sýnis þriðjudaginn 28.júlí og þriðjudaginn 4.ágúst kl.16.30 -17:30 eða eftir samkomulagi. Tilboðum skal skila á skrifstofu Hjallastefnunnar Hæðarsmára 6, 201 Kópavogi fyrir kl 14 föstudaginn 7.ágúst – merkt : tilboð í húseiningar í Öskjuhlíð. Kaupendur sem bjóða í báða byggingarhluta í einu munu hafa forgang. Hver bjóðandi getur aðeins skilað inn einu tilboði og áskilur Hjallastefnan sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Farið verður með tilboð sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Steinunn Guðmundsdóttir arkitekt s. 699 1332 virka daga kl 13-15. Netfang steina@hjalli.is Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Í landi Glæsibæjar í Hörgársveit er nú unnið að uppbyggingu Haga- byggðar, en um er að ræða 18 sjávarlóðir steinsnar frá Akureyri á grónum sjávar- bakka í fallegu umhverfi. Vegagerð er hafin og í tengslum við hana er fólki boðið að koma og kaupa tré og bjarga þeim þannig frá vega- framkvæmdum. Ólafur Aðal- geirsson fer fyrir hópi eigenda jarð- arinnar og stýrir verkefninu. Vinna við verkefnið hefur staðið yfir undanfarin þrjú ár eða frá því landið var keypt. Glæsibær er skóg- ræktarjörð og skartar einum stærsta nytjaskógi á Norðurlandi. „Skógurinn býður upp á svo margt skemmtilegt, þar eru kjör- aðstæður til útivistar sem gerir landið einkar heppilegt til búsetu. Við þekkjum það að á landinu okkar fagra getur oft orðið ansi næðings- samt og því gott að fá skjól af trjánum,“ segir hann. Sala áður en vegagerð hefst Verkefnið er nú formlega hafið, skipulagsvinnu lokið og öll tilskilin leyfi fyrir hendi. Vinna við vegagerð er hafin og í tengslum við hana hef- ur Ólafur auglýst trjásölu þar sem fólk getur komið og stungið upp tré og bjargað þeim frá vegafram- kvæmdum. „Það eru ansi mörg tré sem eru beinlínis í veginum og það er sárt að sjá á eftir þeim, mörg verið að berj- ast upp úr jörðinni í um áratug. Okkur datt því í hug að auglýsa trjásölu og gefa fólki kost á að ná trjám upp úr vegstæðinu fyrir smá- aura áður en gröfurnar mæta á svæðið,“ segir hann. Hægt verður að nálgast tré næstu daga en vissara að heyra í Ólafi fyrst. Næði og náttúra Ólafur segir að í Hörgársveit sé nú gott framboð af lóðum, sveitar- félagið sé með í uppbyggingu fínt hverfi í námunda við Lónsá sem hugsað er fyrir fjölbýli. Nánast eng- ar einbýlishúsalóðir séu til í sveitar- félaginu. „Okkar hugmynd er að bjóða fal- legar einbýlishúsalóðir í næsta ná- grenni við Akureyri, þar sem næði og náttúra eru eins konar lykilorð. Til viðbótar bætist við frelsi því byggingarskilmálar eru ekki um of fast mótaðir,“ segir Ólafur. 18 lóðir í fyrsta áfanga Verkefninu er áfangaskipt og fyrsti áfangi sem vinna er að hefjast við innifelur 18 lóðir en til viðbótar er þegar búið að hanna 12 lóðir í áfanga 2. „Okkar markmið er að byggja upp fallegt hverfi á frábærum stað og hér á að vera gott að búa. Það er gefið út leyfi fyrir þremur byggingum á hverri lóð, einbýlishúsi auk allt að tveggja stakstæðra húsa allt að 80 fermetrar að stærð sem mega vera gestahús, vinnustofa eða sambæri- legt,“ segir hann. Um er að ræða leigulóðir. Sala á lóðum er vart hafin en Ólaf- ur segir að hún fari ótrúlega vel af stað. „Við höfum enn ekkert auglýst eða komið þessu á framfæri, nú eru allir í sumarleyfi og um annað að hugsa. Þó eru fimm lóðir af þessum 18 þegar seldar og margir spenntir að fá að koma og skoða. Við getum ekki verið annað en ánægð með þessar góðu viðtökur,“ segir Ólafur Aðalgeirsson. Fólki boðið að bjarga trjám  Uppbygging sjávarlóða í landi Glæsibæjar í Hörgársveit að hefjast  Ekkert búið að auglýsa en fimm lóðir þegar seldar  Lykilorðið næði og náttúra  Byggingarskilmálar ekki of fast mótaðir Morgunblaðið/Margrét Þóra Hagabyggð Verkefnið er áfangaskipt og 1. áfangi sem vinna er að hefjast við innifelur 18 lóðir en til viðbótar er þegar búið að hanna 12 lóðir í áfanga 2. Trjárækt Sárt er að sjá á eftir trjám sem hafa vaxið upp á síðustu árum. Ólafur Aðalgeirsson Fasteignir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.