Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 12

Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARST með og án rafmagns lyftibú Komið og skoðið úrvalið ÓLUM naði Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hlakka rosalega mikiðtil, ég get eiginlega ekkibeðið eftir að vera íReykjavík um verslunar- mannahelgina og spila fyrir fólk. Þetta verður geggjað gaman,“ segir Loji Höskuldsson, einn af með- limum hljómsveitar sem heitir Bjartar sveiflur og ætlar að gleðja fólk með spilamennsku sinni á Inni- púkanum í höfuðborginni um næstu helgi. Bjartar sveiflur eru stráka- band með sex unga menn um borð og hefur hljómsveitin notið mikilla vinsælda í þau tvö ár sem hún hefur verið til. „Þetta byrjaði allt saman sem afmælisgjöf fyrir Ólöfu vinkonu okkar fyrir tveimur árum þegar hún setti þetta strákaband saman til að spila í eigin afmælisveislu. Þetta átti ekki að vera neitt meira en þessi eina óvænta uppákoma, en strax í afmælinu fengum við pantanir um tvö gigg og boltinn hefur ekki hætt að rúlla síðan. Við slógum óvænt í gegn og þetta ferðalag okkar undanfarin tvö ár hefur verið miklu skemmtilegra en ég bjóst við.“ Nóg fyrir alla hjá okkur Strákarnir í Björtum sveiflum þekktust allir þegar þeim var raðað í bandið af vinkonunni og þeir voru allir að spila í öðrum hljómsveitum sem fluttu frumsamda tónlist. „Bjartar sveiflur spila einvörð- ungu svokallaðar ábreiður, eða lög annarra, með okkar hætti þó eða endurgerðir. Aðeins ein regla er í þessari hljómsveit: Að við semjum ekkert sjálfir. Framtíðarplönin eru að halda áfram að spila, en við ætl- um ekki að sigra heiminn, það er ekki planið,“ segir Loji og hlær. Loji segir að þeir spili alls kon- ar tónlist en vissulega eigi hver og einn í bandinu sitt uppáhald. „Einn langar til dæmis rosa mikið að taka lög frá indítímabilinu, þegar við vorum sjálfir um tvítugt, en annar er kannski geggjað til í diskósveiflur. Mamma elskar til dæmis Abba-lög og fyrir vikið er það uppáhalds hjá mér að spila þau. Við spilum í raun hvað sem er, líka nýjustu tónlistina. Mér finnst við vera á víðu sviði af lögum, bæði ís- lenskum og erlendum dægurlögum, svo það er alltaf nóg fyrir alla á tón- leikum hjá okkur,“ segir Loji og bætir við að Abbalagið Lay All Your Love on Me slái alltaf í gegn hjá þeim, allar kynslóðir virðist mætast þar. Á diskinum eina sem Bjartar sveiflur hafa gefið út er að finna fjögur íslensk dægurlög; Þú full- komnar mig með Sálinni hans Jóns míns, Svarthvíta hetjan mín með Dúkkulísunum, Örmagna með Landi og sonum og Draumaprinsinn eftir Magnús Eiríksson, sem Ragn- hildur Gísladóttir söng forðum. Prom-kóngur og -drottning Bjartar sveiflur koma fram við ólíkustu tækifæri, hljómsveitin er mikið pöntuð í afmæli, brúðkaup og önnur einkasamkvæmi. „Við spilum sjaldan á opnu giggi þar sem allir geta komið og fyrir vikið hlökkum við sérstaklega til næstu helgar á Innipúkanum. Mér finnst geggjað spennandi að spila á slíkum tónleikum, en við vor- um að spila á Lunga, listahátíðinni á Seyðisfirði, um daginn, sem var al- veg frábært. Reyndar var þetta míní-Lunga núna vegna covid, en samt algjör draumur í dós. Ég hef oft spilað áður á Lunga en þá sem meðlimur í öðrum böndum og það er alltaf jafn skemmtilegt. Okkar aðal opnu tónleikar fyrir alla eru hinir árlegu tónleikar okkar á jól- unum, en þá blásum við til dansleiks þar sem þemað er Prom Night. Við tökum þetta alla leið og krýnum Prom-kóng og Prom-drottningu.“ Hljómsveitarbúningur lyftir æðra sjálfinu á hærra plan Þegar Loji er spurður hvers vegna þeir félagarnir í Björtum sveiflum komi ævinlega fram í hvít- um klæðum segir hann að með því séu þeir að skapa ákveðna tegund af nærveru. „Við sáum mynd af Backstreet Boys í hvítum fötum og þá varð ekki aftur snúið. Við mættum í venjuleg- um afmælisfatnaði í fyrsta gigginu í afmælinu hjá Ólöfu, en við vorum strax sammála um að mæta í hvítu í næsta gigg og höfum haldið okkur við það síðan. Við viljum vera í hljómsveitarbúningi. Fyrir mig per- sónulega er rosagott að geta verið venjulegur Loji þegar ég er að gera allt sem ég geri venjulega, en þegar ég er kominn í hvítu fötin er ég Loji í hljómsveitinni Björtum sveiflum. Ég var alveg á móti hljómsveitar- búningum þegar ég var að spila í annarri hljómsveit, en núna skil ég rosalega vel að fólk vilji dressa sig upp þegar það spilar á tónleikum og að hljómsveitir fari í geggjaðan glamúrgalla. Þetta lyftir æðra sjálf- inu á hærra plan. Mér finnst rosa- gaman að leyfa mér að skreyta mig, vera með einhverja hringa og háls- men og fleira sem maður er venju- lega ekki með. Þá finnst mér ég vera drullunettur,“ segir Loji og hlær. Mæta einlægir á Innipúkann „Við spilum sjaldan á opnu giggi þar sem allir geta komið og fyrir vikið hlökkum við sérstaklega til næstu helgar á Innipúkanum,“ segir Loji Höskuldsson, meðlimur í hljómsveitinni Björtum sveiflum, sem notið hefur mikilla vinsælda í þau tvö ár sem hún hefur verið til. Bjartar sveiflur koma fram við ólíkustu tækifæri, hljómsveitin er mikið pöntuð í afmæli, brúðkaup og önnur einkasamkvæmi. Ljósmynd/Julie Rowland Flottir Loji lengst t.v., Kári Einarsson með fót yfir öxl, Arnar Ingi Viðarsson, Dagur Sævarsson, Ólafur Daði Eggertsson og Úlfur Alexander Einarsson. Ljósmynd/Julie Rowland Innlifun Loji í miklum ham á tón- leikum og auðvitað í hvítum fötum. Þeir sem prófað hafa vita að fátt jafn- ast á við að sofa úti þegar íslenska sumarið umvefur okkur með birtu sinni og hlýju. Þeir sem eiga góðan svefnpoka ættu hiklaust að prófa að sofa undir berum himni áður en sum- arið er á enda. Aðrir láta duga að sofa í tjaldi. Enginn má missa af slíkri sælu og nú er lag að grípa sinn mal og halda út í guðsgræna, haustið kemur áður en við er litið og þá er gott að ylja sér við minninguna. Unaður hreina loftsins Sofið í tjaldi fyrir sumarlok

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.