Morgunblaðið - 25.07.2020, Qupperneq 18
Helgi Rúnar Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Rammagerðarinnar,
segir fyrirtækið koma betur út úr
kórónuveirufaraldrinum en útlit var
fyrir í vor. Dregið hafi úr óvissu.
Rammagerðin rekur tvær versl-
anir í miðborginni, eina í Perlunni og
eina á Keflavíkurflugvelli, ásamt því
að reka verslun í
Eldfjallasetrinu á
Hvolsvelli undir
merkjum Lava.
Rammagerð-
inni á Skóla-
vörðustíg 20 var
lokað í vor og seg-
ir Helgi Rúnar að
leigusamningur
hafi verið að
renna út.
Eignarhalds-
félagið Rammagerðin Holding hefur
skilað samstæðureikningi ársins
2019. En þar er að finna athugasemd
vegna kórónuveirufaraldursins:
Veruleg óvissa um áhrifin
„Án þess að gera fyrirvara við álit
okkar viljum við vekja athygli á
skýringu 23 með ársreikningnum
þar sem fjallað er um þær óvenju-
legu aðstæður sem hafa nú skapast
vegna kórónuveirunnar Covid-19 og
þeirrar verulegu óvissu sem ríkir um
hvaða áhrif þessi staða mun hafa á
félagið. Vegna þessa ríkir ákveðin
óvissa um rekstrarhæfi félagsins.“
Helgi Rúnar segir aðspurður að
almennt hafi fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu sett inn slíkar athugasemdir í
ársreikninga í vor, enda hafi verið
mikil óvissa um horfur í greininni.
Því beri ekki að lesa of mikið í það.
Samkvæmt ársreikningnum tap-
aði félagið 334 milljónum í fyrra.
Skuldir voru 2,25 milljarðar og eigin-
fjárhlutfallið var um 20%. Salan var
tæplega 1,6 milljarðar króna.
Að sögn Helga Rúnars skýrist
tapið af niðurfærslu viðskiptavildar.
Með því sé tekið tillit til áhrifanna af
falli WOW air.
Hann segir að við útreikning á
eiginfjárhlutfalli sé tekið tillit til
leiguskuldbindinga, samkvæmt
IFRS16-reikningsskilastaðli. Efna-
hagur félagsins sé óbreyttur en
eiginfjárhlutfallið lækki vegna þess-
arar færslu í efnahagsreikningi. Þá
hafi EBITDA verið 214 milljónir,
eða sem samsvari 12,3%.
Veltan dróst mikið saman
„Við metum stöðuna nokkuð góða.
Þegar unnið var að ársreikningnum
var mjög mikil óvissa um framhaldið.
En Rammagerðin er með bróður-
partinn af sínum tekjum af ferða-
mönnum. Við erum að selja íslenskt
handverk frá yfir 470 hönnuðum og
handverksfólki. Síðan þegar farald-
urinn skellur á dettur veltan niður og
ekki nóg með það heldur var stöðum
þar sem við vorum með rekstur lok-
að, á borð við Eldfjallasetrið á Hvols-
velli. Óvissan var því mikil.“
Rammagerðin
eykur söluna
Framkvæmdastjórinn bjartsýnn
Veiking krónu styðji reksturinn
Morgunblaðið/Ásdís
Vinsæll Lundi hjá Rammagerðinni.
Verslunin selur hönnunarvörur.
Helgi Rúnar
Óskarsson
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020
Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is
Bárður
Sölustjóri
896 5221
Elín Urður
Lögg. fast.
690 2602
Elín Rósa
Lögg. fast.
773 7126
Lilja
Viðskiptafr. /
Lögg. fast.
820 6511
Kristján
Viðskiptafr. /
Lögg. fast.
691 4252
Halla
Viðskiptafr. /
Lögg. fast.
659 4044
Ólafur
Sölu- og
markaðsstjóri
690 0811
Ellert
Lögg. fast.
661 1121
Sigþór
Lögg. fast.
899 9787
Hafrún
Lögg. fast.
848 1489
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Bjarni Jónsson, eigandi Nordic Store-
keðjunnar ásamt Hafsteini Guð-
bjartssyni, segir söluna hjá verslun-
um félagsins í sumar hafa verið betri
en hann óttaðist.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Bjarna í apríl gerði hann ráð fyrir
100% tekjufalli í verslunum Nordic
Store-keðjunnar í apríl, maí, júní og
júlí en 90% tekjufalli í ágúst.
Nú hefur Bjarni hins vegar endur-
metið stöðuna og áætlar nú að það
verði 90% samdráttur í júní og 80%
samdráttur í þessum mánuði, miðað
við veltuna sömu mánuði í fyrra. Síðan
muni veltan stigaukast og verða 30%
minni í desember en í fyrra.
Með verslanir í miðborginni
Nordic Store-keðjan er með nokkr-
ar verslanir í miðborginni. Meðal
þeirra eru stórar verslanir á Lækj-
argötu 2, Laugavegi 4-6, Laugavegi
18 og Laugavegi 95-99.
„Maður er hress eftir atvikum,“
segir Bjarni. „Við opnuðum allar
verslanir okkar 15. júní þegar landið
opnaðist, eftir þriggja mánaða lokun.
Margir verslunarmenn gerðu það
sama. Við erum í beinni samkeppni
við um 50 verslanir og hefur fimm
þeirra verið lokað eftir að faraldur-
inn hófst. Þá er verið að undirbúa að
loka þremur til viðbótar.
Þær óhagkvæmustu fara fyrst
Þetta eru varanlegar lokanir.
Fyrstu viðbrögðin við samdrætti eru
að reyna að loka þeim verslunum
sem eru óhagkvæmastar og svo sjá
til hvort menn muni lifa af,“ segir
Bjarni. Spár hans um gjaldþrot
verslana í miðborginni í kjölfar
offramboðs hafi því ræst.
„Ég hugsa að þessum verslunum
hefði verið lokað þrátt fyrir farald-
urinn. Ég hugsa að verslunum fyrir
ferðamenn í miðborginni muni
fækka um 25%,“ segir Bjarni.
Ljóst sé að Íslendingar muni ekki
koma í stað erlendra viðskiptavina í
umræddum verslunum. Innlendir
viðskiptavinir muni því ekki koma
þeim verslunum til bjargar. Hins
vegar kunni að verða opnaðar ann-
ars konar verslanir í þessum rýmum.
Til dæmis hafi rými verið leigð til
hönnuða eftir kreppuna 2008.
Bjarni bendir jafnframt á að yfir
tíu verslunum í miðborginni hafi ver-
ið lokað umfram áðurnefndar fimm
verslanir sem verið hafi í samkeppni
við Nordic Store-keðjuna.
Kaupa meira en í fyrra
Gengi krónunnar hefur gefið eftir
að undanförnu. Bjarni segir gengis-
veikinguna hafa komið sér mjög vel
hvað varðar verslun við ferðamenn.
„Ég held ég geti sagt að hver túr-
isti eyði meira í krónum talið hjá
okkur en í fyrra. Og jafnvel meira en
sem nemur veikingu krónunnar,“
segir Bjarni. Meðal hugsanlegra
skýringa sé að efnaðir ferðamenn
séu að koma til Íslands í leit að ör-
yggi í miðjum faraldrinum og svo
hitt að dregið hafi úr samkeppninni í
miðborginni.
Salan hjá Nordic Store hafi farið
stigvaxandi frá degi til dags.
Bjarni segist aðspurður gera ráð
fyrir ferðamönnum frá Bandaríkjun-
um í haust. Án þeirra muni batinn
verða hægari en ella.
Spurður hvenær raunhæft sé að fá
hingað 2,3 milljónir erlendra ferða-
manna, líkt og 2018, fyrir fall WOW
air, segist Bjarni telja að það muni
mikið ráðast af því hvenær bóluefni
gegn veirunni kemur á markað. Ef
það verði snemma næsta árs geti ár-
ið 2021 orðið „mjög sterkt“ í ferða-
þjónustu.
Of mikil aðstoð
Bjarni segir aðspurður að Nordic
Store standi vel, þrátt fyrir farald-
urinn. Meðal annars hafi félaginu
tekist að efla netsölu í faraldrinum.
Að hans mati var gengið of langt í
ríkisaðstoð til fyrirtækja í faraldrin-
um. Umfangið hafi litast af því að
gert var ráð fyrir að staðan yrði mun
verri en raunin varð.
Hann segir aðspurður að Nordic
Store hafi nýtt sér aðstoðina. Fengið
bæði hlutabætur og stuðningslán.
Erlent starfsfólk hafi haldið til
síns heima þegar faraldurinn braust
út. Nú þurfi að ráða nýtt fólk í þess
stað.
Salan hefur aukist dag frá degi
Bjarni Jónsson, annar eigenda Nordic Store-keðjunnar, segir samdráttinn minni en hann spáði í vor
Hins vegar sé ljóst að fjölda verslana í miðborginni verði lokað, jafnvel allt að fjórðu hverri verslun
-100% -100%
-50%
-60%
-70%
-80%
-90%
júní júlí ágúst september október nóvember desember
-30%
-50%
-60%
-40%
-70%
-80%
-90%
Áætlun fyrir júní-júlí og
spá fyrir ágúst-desember
Eldri spá frá apríl s.l.Heimild: Nordic Store
Tekjufall miðborgarverslana m.v. sömu mánuði árið 2019
Áætlað tekjufall hjá Nordic Store til des. 2020
Skertur af-
greiðslutími
vegna sam-
komubanns hef-
ur reynst mikið
högg fyrir veit-
inga- og
skemmtistaðinn
Lebowski Bar
við Laugaveg,
eins og aðra
skemmtistaði.
Það sem hefur
þó bjargað staðnum í gegnum
ástandið er veitingasalan. Hefur
lágt verð á máltíðum, eða 1.250 kr.
síðan í nóvember, vakið athygli.
„Staðirnir fyllast klukkan 22 en
þurfa svo að loka klukkutíma síð-
ar,“ segir Haraldur Anton Skúla-
son, eigandi og rekstrarstjóri, í
samtali við Morgunblaðið.
Von er á því að afgreiðslutíminn
lengist til miðnættis eftir versl-
unarmannahelgi. „Við græðum
ekkert rosalega mikið á því,“ bætir
Haraldur við, en í venjulegu árferði
er staðurinn opinn til klukkan eitt í
miðri viku og til hálffimm á nótt-
unni um helgar.
„Skemmtistaðir koma illa út úr
þessu en við höldum sjó út af
matnum.“ tobj@mbl.is
Halda sjó
með veit-
ingum
Skemmtun Ekki
má hafa opið lengur
en til klukkan 23.
Hundrað og tíu þúsund manns hafa
farið inn á vefinn ferdalandid.is frá
því hann var opnaður í byrjun maí
síðastliðins. Vefurinn hjálpar Ís-
lendingum að finna áhugaverða
áfangastaði og afþreyingu innan-
lands í sumar, og er unninn af ný-
sköpunarfyrirtækinu Getlocal.
Einar Þór Gústafsson, einn stofn-
enda Getlocal, segir í samtali við
Morgunblaðið að þessi tala sé harla
góð miðað við mannfjölda hér á
landi. „Þetta hefur gengið þrusu-
vel,“ segir Einar.
Söluaðilar í skýjunum
Getlocal fær ekki sjálft tekjur af
vefnum, heldur einvörðungu þeir
aðilar sem kynna og selja vörur sín-
ar inni á vefnum. „Ég hef heyrt í
nokkrum söluaðilum sem hafa verið
í skýjunum með útkomuna.“
Einar Þór nefnir sem dæmi Zip
Line í Vík í Mýrdal, en þar sé upp-
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kafað Ferðir í Silfru á Þingvöllum
hafa selst vel í gegnum vefinn.
110 þúsund heim-
sótt ferdalandid.is
pantað tvær vikur fram í tímann.
Þá nefnir hann Dive.is, sem býður
upp á köfun í Silfru, en fyrirtækið
hafi selt mikið í gegnum ferdaland-
id.is. „Margir fóru þá leið að bjóða
bara afslætti inni hjá okkur en ekki
á sínum eigin vefjum, sem hefur sitt
að segja.“ tobj@mbl.is
25. júlí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 136.19
Sterlingspund 173.22
Kanadadalur 101.72
Dönsk króna 21.2
Norsk króna 14.878
Sænsk króna 15.377
Svissn. franki 146.88
Japanskt jen 1.2707
SDR 190.16
Evra 157.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 191.1065
Hrávöruverð
Gull 1882.35 ($/únsa)
Ál 1651.0 ($/tonn) LME
Hráolía 44.1 ($/fatið) Brent