Morgunblaðið - 25.07.2020, Síða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020
Frá því að ég hóf þátttöku í
stjórnmálum hef ég fjallað mikið
um skaðleg áhrif pólitísks rétt-
trúnaðar og svokölluð ímyndar-
stjórnmál (e. identity politics).
Þótt kenningar um að Covid-
faraldurinn muni breyta heim-
inum séu stundum heldur lang-
sóttar leyfði ég mér að vona að
þessi sameiginlega raun heims-
byggðarinnar myndi minna á
hvað skiptir raunverulega
mestu máli. Hlutir á borð við
samkennd, jafnræði, heilbrigðisþjónustu,
verðmætasköpun atvinnulífsins, öryggi ríkja
o.s.frv. Slíkir hlutir og mörg af grundvallar-
gildum vestrænna samfélaga hafa átt mjög
undir högg að sækja.
Það horfir ekki vel með þær vonir. Um leið
og dró úr árifum faraldursins á Vestur-
löndum náðu áhrif óheillaþróunar samfélag-
anna nýjum hæðum. Eftir að rétttrúnaðar-
fylkingin hafði haft enn meiri tíma en áður til
að liggja á netinu náði vitleysan nýjum lægð-
um.
Tilefnið
Það eina sem vantaði var tilefni til að hefja
byltingu. Það kom í formi hræðilegs mynd-
bands þar sem lögreglumaður í Bandaríkj-
unum murkaði lífið úr blökkumanni á ein-
staklega grimmilegan hátt. Það var eðlilegt
að slíkt vekti viðbrögð og kröfur um að lög-
reglumanninum yrði refsað ásamt félögum
hans sem stóðu aðgerðarlausir hjá.
Lögreglumennirnir voru ákærðir en fljót-
lega fóru ýmsir hópar að nýta sér málið í eig-
in þágu. Fremst í flokki fór hreyfing sem kall-
ar sig Black Lives Matter (BLM) eða „Svört
líf skipta máli“. Allt vitiborið fólk hlýtur að
vera sammála fullyrðingunni sem birtist í
nafni samtakanna þótt það sé óneitanlega
sérkennilegt að litgreina líf sem svört, hvít
eða eitthvað annað.
Bara nafnið
BLM hafði verið þekkt sem herská samtök
á jaðri stjórnmálanna. En nú skipti bara
nafnið máli. Það er tilhneiging sem birtist
víða í stjórnmálum samtímans, m.a. á Íslandi
eins og ég hef fjallað um áður. Afstaða til
samtaka, stofnana, starfa og jafnvel laga-
frumvarpa skal byggð á nafninu en ekki inni-
haldinu og aðferðinni. Það er ekki að ástæðu-
lausu að ímyndarstjórnmál eru stundum
kölluð merkimiðastjórnmál.
Fyrr en varði fór fólk að klifra hvert yfir
annað til að komast fremst í röð þeirra sem
styddu BLM. Alþjóðafyrirtæki sem lengi
hafa sýnt undirgefni gagnvart þeim tíðaranda
sem hæst ber hverju sinni fóru þar framar-
lega í flokki og fræga fólkið lét ekki sitt eftir
liggja frekar en fyrri daginn. Þátttaka var
reyndar skylda. Bresk leikkona fékk símtal
frá umboðsmanni sínum sem spurði hvers
vegna hún væri ekki búin að sverja BLM holl-
ustu á samfélagsmiðlum. Hún útskýrði að það
væri vegna þess að hana langaði ekki til þess.
Umboðsmaðurinn kvaðst skilja það en þetta
væri skylda ef hún vildi einhvern tímann fá
vinnu aftur. Leikkonan lét því undan.
Það þarf að sanna sig
Í ofstopaástandi er nefnilega ekki nóg að
halda sig til hlés. Það þarf að sanna að maður
sé rétttrúaður en ekki efasemdanorn. „Hvít
þögn er ofbeldi“ er vinsælt slagorð byltingar-
innar. Byltingar sem nú hefur tekið á sig öll
helstu einkenni kínversku menningarbylting-
arinnar. Að vísu að undanskildum opinberum
aftökum en lögreglumenn, hvítir og svartir,
hafa verið skotnir í „að mestu friðsamlegum
mótmælum“ eins og flestir fjölmiðlar kjósa
jafnan að kalla það.
Öðrum fremur eru það hvítir „aðgerða-
sinnar“ sem viðhafa mestu ólætin sem eins og
jafnan snúast um sjálfsupphafningu fremur
en málstaðinn. Mörg myndbönd hafa birst af
ungu hvítu menntafólki öskra á þeldökka lög-
reglumenn og kalla þá svikara fyrir það eitt
að vinna vinnuna sína og halda uppi lögum og
reglu.
Nýja menningarbyltingin felur í sér endur-
vakningu kynþáttahyggju, þess að flokka fólk
eftir húðlit. Hún ber líka með sér öll einkenni
öfgatrúar, þ.m.t. trúarathafnir sem fólki er
ætlað að undirgangast til að sanna undirgefni
sína gagnvart rétttrúnaðinum. Fljótlega
myndaðist sú krafa að fólk „tæki hné“, þ.e.
færi niður á annað hnéð, til að sýna stuðning
við BLM.
Allir á hnéð
Fyrr en varði fór fólk að „taka hné“ um allt.
Leiðtogar Demókrataflokksins,
sem á langa sögu stórkostlegra
afreka áður en hann var yfirtek-
in af ímyndarpólitíkinni, tóku
hné og báru sérstaka trefla til að
fullkomna athöfnina. Þótt erfitt
sé að átta sig á því hvað enski
boltinn hefur með lögreglumál í
Minneapolis að gera samþykktu
öll liðin að spila með áletrunina
„Black lives matter“ á bakinu í
stað nafna leikmannanna og auð-
vitað að taka hné fyrir leik.
Kappakstursmenn þurfa eðli
máls samkvæmt að vera hug-
rakkir. En þegar farið var fram
á að ökumenn í Formúlu 1 tækju hné fyrir
kappakstur þorðu aðeins sex þeirra að
standa. Þeir hinir sömu voru að sjálfsögðu
fordæmdir fyrir fordómafulla (ofbeldisfulla)
hegðun. Þó höfðu allir klæðst bolum með
áletrunum gegn kynþáttahyggju. Breskur
ráðherra sem ekki hlýddi kröfu um að krjúpa
á kné þurfti dögum saman að verjast sams
konar árásum.
Bandaríski NASCAR-kappaksturinn er
ekki síst vinsæll í Suðurríkjunum. Þar varð
uppi fótur og fit eftir að birt var mynd af
snöru í bílskúr þeldökks ökumanns. FBI
mætti með 15 vopnaða menn í bílskúrinn og
fordæmingar og kröfur um aðgerðir tröllriðu
íþróttinni þar til í ljós kom að snaran hefði
hangið í bílskúrnum löngu áður en ökuþórinn
fékk hann til ráðstöfunar og að um væri að
ræða spotta til að loka bílskúrshurðinni.
Fyrst rætt er um kappakstursmenn má
líka nefna ökumann sem missti stuðning bak-
hjarla sinna eftir að einhver benti á að látinn
faðir hans hefði notað óviðeigandi frasa í út-
varpi áður en sonurinn fæddist.
Stuðningur við hvað?
Fjármagn streymir nú til BLM, ekki síst
frá fyrirtækjum og fræga fólkinu. En að
hverju er það að stuðla með fjárframlögum
sínum og helgiathöfnum? Breskir blaðamenn
höfðu fyrir því að kynna sér stefnu samtak-
anna og bentu á að hún snerist um að brjóta á
bak aftur vestræna menningu og kapítalisma,
fjölskylduformið, stjórnkerfið og sérstaklega
að leggja niður lögreglu og dómstóla.
Víða um lönd létu lögreglumenn sig hafa
það að krjúpa fyrir samtökum sem berjast
gegn þeim reglum sem þeir starfa við að
verja og raunar þeim sjálfum. Lögreglustjór-
ar virtust enda margir logandi hræddir við að
verja sitt fólk og sitt hlutverk. Í Minneapolis
var lögreglustöðin þar sem manndráparinn
hafði starfað yfirgefin og eftirlátin óeirða-
seggjum sem fóru þar um brjótandi og braml-
andi og kveiktu í eftir að hafa tæmt vopna-
búrið.
Fríríki
Í Seattle, sem nú er undir oki menningar-
byltingarinnar, var stofnað nýtt fríríki.
Borgarstjórnin, sem minnir um sumt á þá
reykvísku, lagði það helst til mála að færa frí-
ríkinu vegtálma til að marka landamærin með
áfestum spjöldum fyrir veggjakrot. Fljótlega
kárnaði þó gamanið í litla landinu sem bar hið
skammstafaða nafn CHAZ þegar hópur fólks
vildi endurskíra það með skammstöfuninni
CHOP. Deilurnar snerust um hvernig ætti að
skilgreina svæðið. Þó var fljótt komið á landa-
mæravörslu þungvopnaðra manna með hríð-
skotariffla. Eflaust hafa þeir verið dyggir
stuðningsmenn samtakanna „No Borders“.
Svartklæddir og álíka vel vopnaðir meðlimir
Antifa (svokallaðra and-fasista) munu hafa
sinnt gæslu innan landamæranna. Eigendur
íbúða eða fyrirtækja á svæðinu þurftu að
sýna skilríki til að komast heim. Fræðimaður
á sviði einhvers konar vistvænnar borgar-
fræði (sem hlýtur fljótlega að verða ráðinn í
Reykjavík) mætti á svæðið til að hefja rækt-
un matjurta sem sérstaklega voru merktar
fólki af tilteknum húðlit. Sjálfskipað sam-
félagsráð leitaðist við að leysa dómstóla af
hólmi. En allt kom fyrir ekki og fríríkið flosn-
aði upp en eftirlét skattgreiðendum að
hreinsa til.
Fórnarlambamenning
Menningarbylting Vesturlanda er byggð á
því sem kallað hefur verið fórnarlambamenn-
ing. Tilhneigingu til að skipa fólki í hópa sem
njóta mismikilla réttinda eftir því hversu hátt
þeir skora á óformlegum fórnarlambaskala.
Röðun á listann kallar svo stundum á inn-
byrðisátök innan rétttrúnaðarhreyfingar-
innar. Í því samhengi er mikilvægt að hafa
hugfast að allar öfgahreyfingar segjast vera
að verja hagsmuni þeirra sem hallar á og
réttlæta þannig aðgerðir sínar. Umræðan er
alltaf um yfirlýst markmið. Ekki um aðferð-
irnar sem jafnan bitna fyrir rest á þeim sem
barist er fyrir. „Byltingin étur börnin sín“
eins og Frakkar uppgötvuðu fyrir nærri 230
árum.
Smátt og smátt hefur komið í ljós að vest-
ræna menningarbyltingin snýst í grunninn
um andúð á vestrænni siðmenningu, rétt eins
og sú kínverska sem snerist reyndar bæði um
andúð á gömlum kínverskum gildum og vest-
rænni menningu.
Aftökumenning
Þótt leiðtogar nýju menningarbyltingar-
innar hafi ekki vald til að taka fólk af lífi eru
þó aftökur eitt helsta einkenni hreyfingar-
innar. Þ.e. samfélagslegar aftökur. Enda er
þróunin nú kölluð aftökumenning í ensku-
mælandi löndum (e. Cancel culture). Sú þró-
un hófst raunar löngu áður en menningar-
byltingin sem fylgdi Covid fór af stað og lagði
grunninn að því sem koma skyldi.
Allir sem fjalla á gagnrýninn hátt um at-
burðarásina geta vænst þess að verða „teknir
af lífi“ á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.
Þar er enginn óhultur.
Rithöfundurinn J.K. Rowling sem er
þekktust fyrir sögurnar um Harry Potter var
lengst af einn af öflugustu stuðningsmönnum
ríkjandi rétttrúnaðar. Ég skrifaði um raunir
Rowling í greinum við síðustu áramót en eftir
upphaf nýju menningarbyltingarinnar hefur
hún mátt þola ágjöf sem aldrei fyrr. Rowling
er hlynnt réttindum transfólks en hún er líka
femínisti og hefur lýst áhyggjum af því að
ákveðnir transaktívistar séu að vega að kven-
frelsi. Fyrir vikið hefur hún verið stimpluð
„terfa“ (e. TERF – trans-exclusionary radical
feminist).
Rowling og á annað hundrað þekktra
Breta skrifuðu einstaklega hófstillta og á
köflum afsakandi grein til að andmæla af-
tökumenningunni. Ekki leið á löngu þar til
fólk bað um að verða tekið af lista greinar-
höfunda eftir að hafa verið spurt hvort það
ætlaði virkilega að skrifa grein með fólki á
borð við J.K.Rowling.
En það eru ekki allir í sömu stöðu og Rowl-
ing að geta látið sér fátt um finnast þegar
öfgafólk ræðst til atlögu. Margir hafa misst
vinnuna eða lifibrauð sitt að miklu leyti eftir
samfélagslegar aftökur, oft af litlu eða engu
tilefni. Dæmin væru í mörgum tilvikum
hlægileg ef þau væru ekki of sorgleg og því
miður of mörg til að hægt sé að rekja þau í
stuttri grein.
Það er líka hættulegt að vera með
Þegar öfgamenn efna til byltingar líður
ekki á löngu áður en innbyrðissamkeppni um
að vera rétttrúaðri en aðrir kemur jafnvel
þeim sem vilja taka þátt í vandræði. Ritstjóri
þekkts matreiðslutímarits taldi rétt að tíma-
ritið lýsti yfir stuðningi við byltinguna. Ein-
hverjir töldu hann hins vegar ekki hafa geng-
ið nógu langt og því var þess krafist að hann
hætti störfum.
Forstöðumaður listasafns San Francisco-
borgar ákvað að skýra frá því að aukin
áhersla yrði lögð á að safna list eftir fólk með
annan húðlit en hvítan en lét fylgja sögunni
að safnið myndi þó einnig kaupa verk eftir
hvíta listamenn. Honum varð ekki sætt í
starfi.
Eigendum fjölskyldurekinnar bókaversl-
unar í Denver varð það á að nefna það á sam-
félagsmiðli að bókabúðin yrði ópólitísk og
myndi áfram selja alls konar bækur. Ofstopa-
fólkið brást illa við. Eigendur verslunarinnar
gáfu eftir og lýstu yfir fullum stuðningi við
BLM. Það dugði ekki og fólk sem sagðist ým-
ist vera viðskiptavinir eða rithöfundar birti
langan lista af kröfum sem bókabúðin þyrfti
að uppfylla.
Félag bandarískra ljóðskálda birti stuðn-
ingsyfirlýsingu en þrátt fyrir að hún kæmi
úr réttri átt var hún ekki nógu róttæk og því
var félaginu sendur langur listi krafna. Eins
kostulegur og sá listi var er ekki svigrúm til
að rekja hann hér. En í ofanálag var krafist
fjárframlags frá skáldafélaginu með vísan
til þess að það hefði drýgt þá synd að safna
aurum í sjóð. Félagið lét auðvitað undan og
fyrsta greiðsla í málstað menningarbylting-
arinnar nemur milljón bandaríkjadölum.
Háskólar og fjölmiðlar
Langur listi 48 krafna, auk undirkrafna,
undirritaður af meira en 350 starfsmönnum
Stanford-háskóla til skólastjórnenda, slær þó
líklega flest met. Listinn tekur á öllu frá kvöð
um sérstakar hárgreiðslustofur og veitinga-
staði fólks af afrískum uppruna að umfangs-
mikilli endurmenntun starfsfólks og refs-
ingum við hugsanaglæpum. Auk 25 milljóna
dollara framlags. Stanford-háskóli er sem
stendur í miklum fjárhagsþrengingum og
hafði sett á ráðningarbann þannig að erfitt er
að segja til um hvernig þessum kröfum verð-
ur mætt.
Fjölmiðlar fara auðvitað ekki varhluta af
menningarbyltingunni og sumir þeirra eru
virkir þátttakendur í baráttunni. Ákveðnar
sjónvarpsstöðvar gerðu kröfu um að frétta-
skýrendur bæru nælu til að sýna stuðning
sinn við BLM. Bandaríska blaðið New York
Times sem eitt sinn studdist við kjörorðið
„óttalaust og hlutlaust“ (e. without fear or
favour) er fyrir löngu orðið áróðursblað og
varð loks að grínútgáfu þess sama áróðurs.
Þar missti ritstjóri aðsendra greina vinnuna
eftir að hann birti grein frá öldungadeildar-
þingmanni sem taldi rétt að hafa herinn í við-
bragðsstöðu vegna óeirða í landinu. Það var
ekki síst að kröfu samstarfsfólks sem fór
hamförum á Twitter sem maðurinn fór frá.
Skömmu síðar sagði kona á sömu deild upp
störfum. Hún var þekktur blaðamaður og
birti magnaða grein þar sem hún lýsti einelti
af hálfu samstarfsmanna og því hvernig NYT
væri nú ritstýrt af Twitter. Hún bætti því við
að „það ætti ekki að þurfa hugrekki til að
mæta í vinnuna á bandarísku dagblaði sem
miðjumaður“.
Nú skal tryggt að sjónarmið sem ganga
gegn nýjustu uppfærslunni af reglum rétt-
trúnaðarins heyrist ekki. Fólk sem gæti vilj-
að taka þátt í gagnrýninni umræðu fær ekki
að halda erindi, greinar þess mega ekki birt-
ast og samfélagsmiðlar færa sig jafnt og þétt
upp á skaftið við ritskoðun.
Eyðing sögunnar
Til viðbótar við ritskoðun samtímaumræðu
felst mikilvægur þáttur menningarbyltingar-
innar í því að endurskrifa söguna. Sígildar
kvikmyndir og gamanþættir hafa verið afmáð
hjá efnisveitum. Meðal fórnarlambanna var
þáttur um Golden girls þar sem aðalleikkon-
urnar höfðu farið í leirbað og þóttu þar með
hafa svert sig í framan.
Svo eru það stytturnar og minnismerkin.
Rétt eins og talíbanar í Afganistan og ISIS-
liðar í Sýrlandi og Írak leggja herskarar
rétttrúnaðarfólks áherslu á að eyðileggja
minnismerki frá liðinni tíð sem eru þeim
ekki að skapi. Eins og alltaf þegar öfga-
hreyfing kemst á skrið færa þær sig upp á
skaftið þegar hreinsanirnar hefjast. Ráðist
var á minnismerki um Breta sem féllu í
heimsstyrjöldunum. Styttan af Winston
Churchill var ekki óhult og næst var ráðist á
styttur af Gandhi og sjálfum Abraham Lin-
coln, manninum sem háði borgarastyrjöld
til að afnema þrælahald. Í Bandaríkjunum
var sótt að styttu Lincolns sem fjármögnuð
var með samskotum fyrrverandi þræla.
Þegar einn afkomenda þeirra sem reistu
styttuna bað fólk að sýna forfeðrum sínum
virðingu var hann hrópaður niður af hvítum
aðgerðasinnum.
Niðurstaðan
Menningarbyltingin snýst ekki bara um
kynþáttamál en með henni er endurvakin ein-
hver galnasta hugmynd sem komið hefur upp
í mannkynssögunni. Hugmyndin um að
flokka beri fólk eftir litbrigðum húðarinnar.
Þegar langt var komið með að útrýma þeirri
bábilju er hún nú endurvakin og fólk aftur
skilgreint út frá húðlit.
Nú þarf að standa vörð um grunngildi
vestrænnar siðmenningar. Þau gildi sem
skilað hafa samfélögum meiri árangri en
nokkuð annað í mannkynssögunni. Þar ber
hæst hugsjónina um að allir skuli teljast
jafnréttháir óháð líkamlegum einkennum.
Hugsjónina sem kirkjumaðurinn og mann-
réttindaleiðtoginn Martin Luther King orð-
aði í frægri ræðu. Þar sagðist hann eiga sér
draum um að dag einn yrðu börn hans ekki
dæmd út frá húðlit sínum heldur mann-
kostum. Sá boðskapur hefur náð stórkost-
legum árangri. Byggjum áfram á því besta
sem síðustu árþúsund hafa skilað okkur en
köstum því ekki á glæ til að þóknast þver-
sagnakenndum og gölnum tíðaranda
sumarsins 2020.
Eftir Sigmund
Davíð Gunnlaugsson »Nýja menningarbyltingin
felur í sér endurvakningu
kynþáttahyggju, þess að
flokka fólk eftir húðlit. Hún
ber líka með sér öll einkenni
öfgatrúar, þ.m.t. athafnir sem
fólki er ætlað að undirgangast
til að sanna undirgefni sína
gagnvart rétttrúnaðinum.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Höfundur er formaður Miðflokksins.
Sumarið 2020 og nýja menningarbyltingin